Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 03.08.1978, Qupperneq 12

Dagblaðið - 03.08.1978, Qupperneq 12
12 DAGBLADIÐ. FIMMTUDAGUR 3. ÁGÚST 1978. Sérhæfum okkur í IŒ Seljum í dag: Saab 96 árg. Saab 96 árg. Saab 96 árg. Saab 99 árg. Saab 99 árg. Saab 99 árg. Saab 99 árg. Saab 99 árg. Saab 99 árg. Saab 99 árg. Saab 95 árg. Autobianchi 1971, 1972, 1973, 1972 1973 1974 1975 1975 1976 1976 1974 árg. 1977, ekinn 120 þús. km ekinn 60 þús. km ekinn 64 þús. km ekinn lOOþús. km ekinn73þús. km ekinn 70 þús. km ekinn 48 þús. km ekinn 68 þús. km ekinn 60 þús. km ekinn 33 þús. km ekinn 77 þús. km ekinn 12 þús. km Látið skrá btia, höfum kaupendur að ýmsum árgerðum. ’ BJÓRNSSON Aco BÍLDSHÖFÐA 16 SÍMI 81530 REYKJAVÍK Blaðburðarbörn óskaststrax Hátún, Miðtún, Lindargata, Laugavegur 1—116, Þórsgata. UppL / síma27022. BIAÐIÐ Þórsmörk um verzlunarmanna- helgina Farið verður frá BSÍ föstudagskvöld klukkan 20. Til baka frá Þórsmörk mánudag kl. 14. Upplýsingar á BSÍ, sími 22300. Austurleið hf. BÍLASALA Seljum í dag: Renault 20TL árg.’77 verð 3.600þús. Renault 16TL árg. ’73 verð 1.400þús. Renault 16 TL árg. ’72 verð l.lOOþús. Renault 12TL árg. ’77 verð 2.600þús. Renault 12L árg. ’75 verð 1.800þús. Renault 12TL árg. ’74 verð 1.450þús. Renault 12 Station árg. ’73 verð 1.550þús. Renault 12TL árg. ’73 verð 1.100þús. Renault 4TL árg. ’78 verð 1.900þús. BMW 518 árg. '77 verð 4.300þús. Suðurlandsbraut 20. Sími 86633- Á utanríkisráðuneytið sök á að höf uðvitnið fórekkiutan? Árásarmaðurinn sýknaður fyrir brezkum dómstólum Þann 25. september sl. lézt á sjúkra- húsi í Lundúnum, af völdum áverka, Pétur Sverrisson Bernhöft. Áverkann hafði Pétur hlotið u.þ.b. tveimur mán- uðum áður, þegar Alsírmaður, Abdela- mind Boutaieb að nafni, réðist að honum i samkvæmi sem Pétri og unn- ustu hans hafði m.a. verið boðið í. Dæmt var í málinu 31. maí sl. Var ákærði, Abdelamind, .....fundinn sekur um árás (pleaded guilty of a charge of assault). Dómarinn tók til greina að sak- borningur hefði þegar setið í varðhaldi í 10 mánuði og hann myndi því ekki dæma hann til frekari fangelsisvistar, heldur fyrirskipaði að honum skyldi vísað úr landi,” segir í skeyti sendiráðs- ins íslenzka í Lundúnum. „Höfuðástæðan fyrir því að Alsír- maðurinn var einungis dæmdur fyrir árás en ekki morð er sú að aðalvitnið fór aldrei utan til Lundúna til þess að bera vitni í málinu. Álít ég að það sé fyrst og fremst sök utanríkisráðuneytisins að vitnið fór ekki utan,” sagði Svava Bern- höft, móðir Péturs, m.a. í viðtali við DB. „Mér barst tilkynning þess efnis nokkru eftir miðjan mai sl. að dæmt myndi í málinu 5. júní. Skömmu siðar barst skeyti frá islenzka sendiráðinu í Lundúnum þar sem sagði m.a.: „Lang- ham, Kensington police, hringdi rétt í þessu og skýrði frá þvi, að dagsetning réttarhaldanna hafi breytzt og verði í dag (31. maí, innsk. DB) í Old Bailey í stað mánudagsins 5. júní.” Búið var sem sagt að dæma í málinu fyrr en varði og málinu flýtt fyrir dómstólum,” segir Svava Bernhöft. í sama streng tekur aðalvitnið, unn- usta Péturs heitins Sverrissonar. Ekki vissi hún fyrr til en búið' var að dæma í málinu. „Utanríkisráðuneytið hafði aldrei samband við mig persónulega á annan hátt en með því að senda mér skeyti þess efnis að brátt hæfust réttar- höldin og annað um að þeim hefði lokið með úrskurði þar sem ákærði var svo til sýknaður. Mér er þó kunnugt um að ráðuneytið hafði samband við afa minn (vitnið er fætt 1950, innsk. DB) og innti hann nánar eftir því hvort ég ætlaði mér að koma og bera vitni. Ég var vissulega þess albúin að fara utan og bera vitni í málinu. En afi minn tjáði ráðuneytinu, að því miður stæði ég ekki fjárhagslega það traustum fótum að ég gæti kostað utanförina sjálf.” Að sögn Svövu Bemhöft svaraði tals- maður utanríkisráðuneytisins því til er hann heyrði um fjárhagsvanda vitnisins að: „Þá færi hún ekki neitt, ekki borgaði ráðuneytið fyrir hana farið.” Er afinn var fyrir stuttu spurður málsatvika varðist hann allra svara. Þegar DB innti í gær þann starfsmann ráðuneytisins, er um þetta mál hefur1 fjallað af þess hálfu, eftir því, svaraði hann svo, bréflega: „Mér er ekki kunn- ugt um hvers vegna vitni það sem þér spurðust fyrir um tók þá ákvörðun að fara ekki til London.” JÁ. Það færist æ meir i vöxt að fólk tjaldi úti i náttúrunni i stað þess að sofa á hótelum. „Landinn” breytir um ferðavenjur FÆKKAR A HÓTELUM EN TJALDSTÆÐIFYLLAST „Landinn” er greinilega að skipta um ferðavenjur. í stað þess að aka á milli hótela færist mjög í vöxt að menn taki með sér tjaldvagna og gisti úti i náttúr- unni. Þriðjungi fleiri með Akraborg Fjöldi þeirra, sem ferðazt hafa með Akraborginni það sem af er þessu ári, er um þriðjungi meiri en hann var í fyrra. Þá var hann um 60 þúsund en er núna um 80 þúsund. Islendingar eru þar í miklum meirihluta en þó útlendingar innan um. Ferðir með tjaldvagna hafa aukizt mjög mikið í sumar en að sama skapi hefur dregið úr ferðum með hjól- hýsi. Fleiri á ísafirði Ferðamönnum hefur fjölgað talsvert á Isafirði í sumar frá því sem var i fyrra- sumar. íslendingar eru þar í meirihluta en útlendingar eru álika margir og í fyrra. Óvenjumikið er um tjöld á tjald- stæðinu þar vestra og töluverð aðsókn á hótelið þó ekki fengjust tölur um það hvort hún væri meiri eða minni en i fyrra. Mikið er um tjaldvagna á ferð þar vestra en lítið um hjólhýsi enda eru vest- firzkir vegir ekki beint heppilegir fyrir þau. Aukning í júní — minnkun í júlí Á Akureyri hafa ferðamenn ekki ver- ið eins margir og búizt var við. Kenna menn um köldu veðri. Á hótelum stað- arins var nokkuð góð nýting í júni en miklu minni nýting i júlí núna en í fyrra. Sem dæmi má nefna að júlínýting hótels KEA datt niður úr 96,9% í fyrra í 88,9% núna. Matsala hefur minnkað að sama skapi. Á tjaldstæðinu í bænum hafa á sama tíma verið fleiri en í fyrra. Útlendingar eru þar í minnihluta, en þó er nokkuð um fólk sem komið hefir með Smyrli til landsins og er á leiðinni suður. Eins og annars staðar eykst það að Islendingar komi til Akureyrar með tjaldvagna. Fœrri á Egilsstöðum Færri lslendingar hafa komið til Egils- staða í sumar en í fyrra en svipaður fjöldi útlendinga. Veður þareystra hefur eflaust átt sinn þátt í því, því blautt hefur verið og kalt. Mikið hefur verið um tjöld á tjaldstæðinu eystra í sumar þrátt fyrir kuldann-og nokkuð hefur ver- ið þar af tjaldvögnum. Heimamenn hafa drjúga atvinnu af því að bæta dekk undan þeim farartækjum eftir hina aust- firzku vegi. Svipað á Hellu Fjöldi ferðamanna á Hellu á Rangár- völlum hefur verið svipaður í sumar og í fyrra. Nokkuð fleiri ferðamenn voru í júní en i fyrra en aftur svipaður fjöldi eða heldur færri i júlí. DS.

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.