Dagblaðið - 03.08.1978, Page 19

Dagblaðið - 03.08.1978, Page 19
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 3. ÁGÚST 1978 19 [Mæöurnar eltu Ibömin í siglingaklúbb Hótunin varðaó veruleika „Nú vantar bara eiginmennina,” sögðu hressar konur sem gengnar eru í siglingaklúbb þeirra Garðbæinga og Hafnfirðinga. Konurnar eru fimm en við hittum aðeins fjórar þeirra að máli í Arnarnesvognum. Þar krussuðu þær fram og til baka eins og alvanir siglarar en höfðu til vonar og vara tvo karlmenn til aðstoðar. Konurnar heita Marta Páls- dóttir, Þórunn Ingjaldsdóttir, Kristjana Kristjánsdóttir og Ragnhildur Gunn- laugsdóttir. Karlarnir sem voru til að- stoðar heita Bjarni Hannesson og Egill Ragnarsson (sonur Þórunnar). í þetta sinn var siglt á tveim bátum og karl- maður á hvorum en „einu sinni fórum við út einar á báti. Þá héldum við ekki að við kæmumst þurrar í land. Við æptum og skræktum en þeir í landi létu sem ekkert væri. Þeir sögðu að þetta hefði verið allt í lagi hjá okkur. Við vorum nú ekki alveg á þvi á meðan á þessu stóð.” Hótunin varð að veruleika Þær stöllurnar hafa aðeins verið 2 Kristin og Ragnhildur ásamt Agli syni Þórunnar. Krakkarnir voru á litlum bátum með hvit- og rauðröndóttum seglum. vikur í siglingaklúbbnum. Hvernig stóð á því að þær byrjuðu? „Við vorum ekki viðræðuhæfar heima hjá okkur. Krakkarnir voru í þess- um siglingum og töluðu ekki um annað. Við hótuðum þeim að gamni að nú færum við að heimta að koma með. Og einn daginn varð hótunin að veruleika. Nú þurfum við bara að drifa mennina okkar með líka. Þeir hafa varizt hart og lengi en eru aðeins farnir að gefa sig. Hver er svo að tala um kynslóðabil?” Ódýr íþrótt Siglingaklúbburinn er ungur að árum, man þau aðeins þrjú. Hann á nokkra litla báta sem krakkarnir æfa sig á og svo nokkra stærri fyrir þyngra fólk. Þeim stöllunum ber saman um að hlægilega ódýrt sé að vera með í klúbbnum. Það kostar litlar 3000 krónur á ári og fylgir þvi lán af bátum nær því eins og hver vill. Ef menn vilja hins vegar koma sér upp báti sjálfir til þess að verða engum háðir hækkar verðið talsvert. Bjárni og félagi hans hafa þó komið verðinu niður með því að flytja innósamsetta báta sem menn geta dundað sér við að setja saman í bílskúrnum heima hjá sér. Kosta slikir bátar um 160 þúsund og tekur um 100 tima að koma þeim saman. Miðið á hvíta húsið á Arnarnesinu Snúið er til lands og miðið sett á hvítt einbýlishús á Arnarnesinu. „Við höfum nokkur uppáhaldsmið. Það er Hótel Saga, beljan á Bessastaðatúni, pútna- húsið í Kópavoginum og hvíta húsið á Arnarnesi. Ef fólkið sem býr í því vissi hvernig við tökum mið á það kvöld eftir kvöld.” — DS .Þessi hnútur heitir 8,” segir Marta. DB-myndir Bjarnleifur. LJOSMVNDIR BJARNLEIFUR BJARNLEIFS^ON Bjarni, Þórunn og Marta á Mardöll sem er I eigu Bjarna.

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.