Dagblaðið - 23.08.1978, Blaðsíða 4
Atvinna f boði
Kennarar
Kennara vantar aö grunnskólanum
Skagaströnd. Æskilegt að um hjón sé
að rœða. Húsnæði á staðnum.
Uppl. hjá Dómhildi Jónsdóttur í síma
95—4695 og Elínu Njálsdóttur í síma
95—4674.
Skólanefndin.
Atvinna í boði
Kennarar
Ker ara vantar aö grunnskólanum á
ökagaströnd. Æskilegt að um hjón sé
að ræða. Húsnæði á staðnum.
Uppl. hjá Dómhildi Jónsdóttur í síma
95-4695 og Elínu Njálsdóttur í síma 95-
4674.
Skrifstofustarf
Starfskraft vanan vélritun og meðferð bók-
haldsvéla vantar nú þegar til starfa á bæjar-
skrifstofuna á Selfossi.
Aðeins heilsdags vinna kemur til greina.
Umsóknir um starfið berist fyrir 1. sept. nk.
Nánari upplýsingar veitir undirritaður í síma
(99)1187 eða (99)1450.
Bæjarritarinn á Selfossi.
Kennarar
Almennan kennara vantar við grunnskóla
Akraness.
Upplýsingar í símum (93)2012 og (93)1797.
Skólanef nd Akraness
Við Rannsóknarlögreglu ríkisins eru lausar til
umsóknar staða skrifstofustjóra og staða
einkaritara rannsóknarlögreglustjóra ríkisins.
Laun samkvæmt launakerfi opinberra starfs-
manna.
Umsóknir sem greini aldur, menntun og fyrri
störf sendist rannsóknarlögreglustjóra ríkisins
fyrir 25. september 1978.
Rannsóknarlögreglustjóri ríkisins
22. ágúst 1978.
BÍLAPARTASALAN
Höfum úrvalnotaðra varahluta íýmsar
tegundir bifreiöa, tildæmis:
' Saab árg. '68, VW 1600 árg. '68, Willys árg. '54,
Fiat 850 S árg. 72, Moskvitch árg. 72, Chevrolet
Chevelle árg. '65, Fiat 125 S árg. 72, Chevrolet
Nova árg. '67.
Einnig höfum viö urval afkerruefni,
til dæmis undir vélsleöa.
Sendum um allt land.
BÍLAPARTASALAN
Höföatúni 10 — Sími 11397
DAGBLAÐIÐ. MIÐVlkUDAGUR 23. ÁGÚST 1978
Steiktur fiskur
með eggi og raspi
Einn af eftirlætisréttum fjölskyld-
unnar er steiktur fiskur með remolaði-
sósu. Við notum oftast ýsuflök en ekk-
ert er því til fyrirstöðu að nota ein-
hverja aðra tegund af fiski, eins og t.d.
þorsk eða steinbít.
500 gr fiskflök
1 egg
2 dlrasp
100 grsmjörl.
Krydd, t.d. Salt’n Spice.
Remolaðisósa
1/2 litil dós majones
1/2 litil dós ýntir
Ca 4 matsk. af relish.
Roðið er tekið af flökunum. þau
þerruð með eldhúsrúllu. velt upp úr
samanpiskuðu egginu og velt upp úr
raspi. Steiktá pönnu.
Sósan er búin til á þann hátt að
ýminum er hrært saman við majones-
ið og relishinu blandað sarnan við.
Þarna er gott að nota Dalsgarðs relish-
ið sem við birtum uppskrift af á dög-
unum.
Soðnar kartöflur eru bornar fram
með þessum rétti, eins og flestum rétt
um sem borðaðir eru á Íslandi.
Verð:
Allur skammturinn um 737 kr. eða
um 184 kr. á mann.
— A.Bj.
Það er auðvitað ekkert því til fyrir-
stöðu að nota cinhvern annan fisk en
ýsu i hina ýmsu fiskrétti.
Mannleg mistök
geta átt sér stað
Raddir neytenda
Á dögunum hringdi einn af
lesendum neytendasiCunnar, hús-
móðir, sem fest hafði kaup á frystu
saltkjötsfarsi í einni stórverzluninni.
Er hún kom heim hætti hún við að mat-
reiða farsið strax og lét það i frysti-
kistuna til geymslu. Þegar hún tók
farsið nokkrum dögum síðar fannst
henni vigtin sem stimpluð var á
pakkann ekki vera sennileg og vigtaði
hann því aftur. Þá kom í Ijós að þrátt
fyrir að á umbúðirnar væri stimplað
987 gr reyndist pakkinn ekki vega
nema um 5,25 gr á búrvigtina. Til þess
að ganga úr skugga um að vigtin væri
rétt vigtaði konan óupptekinn pakka,
sem greinilega var merktur með
ákveðinni vigt.
Konan sagðist ekki kvarta yfir
þessu vegna þess að hún léti sér til
hugar koma aö hún fengi ekki
leiðréttingu mála sinna þegar hún færi
fram á það, heldur til þess að sýna
fram á að neytendur verða sífellt að
vera á verði. Mistök geta alltaf átt sér
stað, og ef neytendur verða varir við
að vigtin sem stimpluð er á matvörur
sem þeir hyggjast kaupa sé ekki rétt
eiga þeir að vekja athygli á því. Lang-
bezt er að gera það um leið og varan er
keypt.
Einnig benti kona þessi á nauðsyn
þess að fylgjast með þvi að rétt sé lagt
saman á annatimum i stórverzlunum.
„Maður velur vörur i körfurnar, fer
síðan að kassanum og greiðir það sem
upp er sett án þess að athuga hvort
nokkur mistök hafi átt sér stað," sagði
konan í samtali við DB.
Þetta er alveg rétt athugað. Við
eigum alltaf að vera á verði, því öllum
geta orðið á mistök. Það er ekki nema
mannlegt.
Urvals harðfiskur!
Fæst um allt land.
Mjallaflskur
Merkið sem vann harðfisknum nafn
Hjallur hf. — Sölusími 23472.