Dagblaðið - 23.08.1978, Blaðsíða 5
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 23. ÁGÚST 1978.
5
Rætt við Aðalstein Jónsson framkvæmdastjóra á Eskifirði:
„Þetta er eins og þegar manni var
eignuð kind í gamla daga”
— Á Eskifirði vantar fólk allt árið til vinnu — Þeir eru búnirað ráða 15 Ástralíumenn og dugar skammt
Nú þegar hvert frystihúsið af öðru á
suðvesturhorni landsins tilkynnir lokun
og atvinnuleysi og eymd blasir við, er
það skemmtileg tilbreytni að heyra um
velgengni í atvinnumálum austurá landi
og að þar eru staðir sem eru að ráða
erlent fólk til vinnu.
Tólf stúlkur og þrir karlmenn frá
Ástraliu hafa verið ráðin til fiskvinnslu á
Eskifirði næsta hálfa árið. Þar er mikil
vinna og vantar tilfinnanlega fólk til
allra starfa allan ársins hring. Dugar því
ráðningin á erlenda fólkinu hvergi nærri
til.
Eskifjörður er einn aðalútgerðar-
bærinn með um 1100 íbúa. Langstærsta
fyrirtækið er hlutafélag, með um 100
hluthafa að baki, Hraðfrystihús Eski-
fjarðar hf. Starfar það á mjög breiðum
grundvelli, rekur frystihús, saltfisk- og
skreiðarverzlun. humarvinnslu, bifreiða-
véla- og rafmagnsverkstæði, loðnu
bræðslu og gerir út einn og hálfan skut-
togara auk nótaskipsins Jóns Kjartans-
sonar.
' ..
„Loðnubrxðslan er eins og vitaminsprauta fyrir heildarreksturinn,” segir Alli ,ríki" eins og hann er kallaður á F.skifirði og
viðar. Verksmiðjuhúsin sem gullið mala eru ekki stærri álengdar séð en þetta Nótaskipið Jón Kjartansson er við losunar-
tækin. Það skip hefur lika reynzt gullnáma. DB-mynd Ari.
Hvernig gengur rekstur frystihksins?
„Sannleikurinn er sá að rekstur frysti-
hússins hefur aldrei skilað neinum
hagnaði svo orð sé á gerandi,” sagði
Aðalsteinn Jónsson, framkvæmdastjóri
Hraðfrystihúss Eskifjarðar í viðtali við
fréttamann DB á staðnum.
„Stærsta orsökin er hve mikið er um
hringorma í fiskinum. Það er sennilega
hvergi á landinu eins mikið af þeim og
hér fyrir austan. Annars hefur rekstur-
inn verið viðráðanlegur fram undir mitt
sl. ár en síðan hefur hallað undan fæti
og i dag er frýstihúsið rekið með tapi."
4C
Það er oft unnið myrkranna á milli I
frystihúsinu. Hér er ein við vinnuna —
með sigurbros á vör. DB-mynd Ari.
Hin mikla atvinna á Eskifirði.
„Á árunum 1967, ’68 og ’69, þegai
síldin hvarf var mjög dauft timabil í
atvinnumálum hér, þótt ekki kæmi til
teljandi atvinnuleysis.” sagði Aðalsteinn
er við snerum tali að hinni miklu
atvinnu á Eskifirði. „En við vorum svo
heppnir að verða með þeim fyrstu sem
fóru út i skuttogaraævintýrið og allir
þekkja þá sögu. I dag kemur það sér vel,
þar sem togararnir okkar voru ódýrir.
Hólmatindur sem keyptur var 1971
kostaði þá um 50 milljónir og 1974
þegar Hólmanesið var keypt kostaði það
100 milljónir. Það er einmitt þetta, að
hafa verið fyrstir til skuttogarakaupa,
sem hefur þýðingu, þar sem við i dag
eigum ódýr skip. Þá má geta stórbreyt-
ingar á frystihúsinu, sem SH krafðist
vegna B ndaríkjamarkaðar og fór fram
fyrir 4 árum. Kostnaðurinn hennar
vegna telst ekki stór í dag.
Okkur hefur líka verið mikill styrkur
að loðnuverksmiðjunni, þegar vel hefur
tekizt að selja þær afurðir er hún skapar.
Rekstur loðnuverksmiðjunnar hefur
komið eins og vítamínsprauta í heildar-
reksturinn, t.d. fengum við um 50
þúsund lestir af lc-ðnu á síðustu vcrtið,"
sagði Aðalsteinn.
Af öllum þessum rekstri benti Aðal-
steinn á að skapazt hefði mikil vinna.
Þess vegna var ráðizt í ráðningu Ástra
liumannanna 15 og dugar hvergi til. Það
vantar fólk tilfinnanlega allan ársins
hring.
— Og er þó ekki um mikinn gróða að
ræða?
„Hvað heldur þú að menn efnist á
þessu? Hér gerist það sama og i gamla
daga þegar manni var cignuð kind en
átti raunverulega ekkert í henni. Þegar
svo afurðirnar voru seldar þá voru
keyptar einhverjar tuskur utan um
mann. 1 dag er þetta eins með fyrir
tækið. Ef einhver hagnaður er fer hann
til að bæta vinnuaðstöðuna og laga til á
annan hátt. Og það er sjaldan mikið eftir
þegar hið opinbera, ríkissjóður, bæjar-
félag og bankarnir eru orðrir mettir."
— Stöðvast rekstur frystihússins um
mánaðamótin?
„Ég trút ekki öðru en aó stjórnvöld
geri viðeigandi ráðstalanir i tima, svo
ekki komi til stöðvunar Það væri það
sama og hætta að mjólka nvhorna kú."
Emil
Þannig lítur
út eftir breytinguna og setur turn-
inn mikinn svip á hana.
DB-mynd-Bæring Cecilsson.
Nýlega var lokið síðasta hluta
byggingar turns Grundarfjarðar-
kirkju. Þá var komið fyrir tum-
spiru með Ijóskrossi ofan á
turninn. Kirkjan á 12 ára vígslu-
afmæli um þessar mundir.
Aðalsmiðir við bygginguna voru
Páll Harðarson og Pálmar Einars-
son. Söfnuðurinn hefur verið
einhuga um byggingu kirkjunnar
allt frá upphafi og margar góðar
gjafir hafa borizt til styrktar
byggingunni. JH
J
Turnspíra
á Grundar-
fjarðar-
Sýnishorn úr Suðurveri
adidds
Teg. Madrid
Litur: Brúnn
Stœrðir
7-111/2
Kr. 8100.-
Sígildar hvítar
kventöfflur
frá Portúgal.
Nr. 36-41
Verðkr.2500.-
Nr. 34-403600.-
Nr. 41-46 4000.-
Tréklossar með fótiagi
hvítir og svartir.
Bandatöfflur
rauðbrúnar, hvítar
Stærðir nr. 36—41
Verðkr.2900.-
Skóbúðin Suðurveri Stigahlíð45 Sími 83225 Póstsendum