Dagblaðið - 23.08.1978, Blaðsíða 8
ioss
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 23. ÁGÚST 1978.
Heilbrigðismálaráð beitir dagsektum:
Lögtök vegna útleigu
„jarðhýsis” til íbúðar
„Já við fórum fram á lögtaksaðgerðir
af hálfu borgarfógeiaembættisins 12.
mai sl. hjá Birni Traustasyni. vegna
ógreiddra dagsekta 2.781.000. Dagsekt-
irnar. 1500 krónur hlaut hann vegna
útleigu heilsuspillandi húsnæðis. Voru
þær lagðar á frá I. marz 1973," tjáði DB
i gær fulltrúi hjá Heilbrigðiseftirliti
Reykjavíkurborgar.
„Hér er um að ræða hreint og beint
jarðhýsi. Lofthæð aðeins 2.20 metrar.
þar af hátt i tveir metrar niðurgrafnir.
Gluggar aðeins mjó rænta langt inn
undir svölum. Að öðru leyti er húsnæðiö
Að innan. Fins og sjá má eru gluggar „íbúðarinnar” nærri upp undir lofti, þó er
lofthæð einungis 2 metrar og 20 sentimetrar. DB-mynd: Ari.
Viðurlög falla á söluskatt fyrir júlímánuð
1978, hafi hann ekk: verið greiddur í síðasta
lagi 25. þ.m.
Viðurlög eru 4% af vangreiddum söluskatti
fyrir hvern byrjaðan virkan dag eftir eindaga
uns þau eru orðin 20%, en síðan eru viður-
lögin 3% til viðbótar fyrir hvern byrjaðan
mánuð, talið frá og með 16. degi næsta mán-
aðareftireindaga.
Fjármálaráðuneytið, 21. ágúst 1978
Sérhæfum okkur í
Ilv.hm
Seljum í dag:
Saab 96 árg. 1975
Saab 96 árg. 1971
Saab 99 árg. 1974
Saab 99 árg. 1975
Saab 99árg. 1975
Saab 99 árg. 1976
Saab 95 árg. 1974
Autobianchi árg. 1977
ekinn
ekinn
ekinn
ekinn
ekinn
ekinn
ekinn
ekinn
55 þús. km
120 þús. km
70 þús. km
48 þús. km
68 þús. km
60 þús. km
77 þús. km
12 þús. km
• Autt1 ianchi árg. 1977
ekinn 38 þús. km, dökkrauður.
Látið skrá bí/a, höfum kaupendur
að ýmsum árgerðum.
s
- BJÖRNSSON
BlLDSHÖFÐA 16 SlMI 81530 REYKJAVIK
þokkalegt. En aðsjálfsögðu brýtur þetta
allt saman i bága við gildandi lög og
reglugerðir um heilbrigðismál.
Jú. málið hefur verið lengi í gangi,”
sagði Matthías. „Alltof Iengi. Það var
fyrst 16. marz I973 að Heilbrigðismála-
ráð þinglýsti húsnæði Björns. Jörfa-
bakka I8. óibúðarhæft. Var honum
tilkynnt um það 20. sama mánaðar.
Svaraði hann því engu og hefur reyndar
aldrei svarað okkur, engu bréfa okkar. í
nóvember 1972 er dagsektum þinglýst
frá og með I. ntarz 1973. En áfram
heldur Björn að leigja út húsnæðið.
Móttók hann því bréf okkar I. ntarz
1973 og kvittaði fyrir. Þar var upphaf
dagsekta tilkynnt.”
Prófmál öðrum
til viðvörunar
í desember sl. fór siðan i gang herferð
á vegum heilbrigðiseftirlitsins í þeim
tilgangi að rýmt væri heilsuspillandi
húsnæði. Kom þá í ljós að enn leigði
Björn út umrætt húsnæði að Jörfabakka
18. Ekki bara eina, svokallaða ibúð.
heldur 2. Þegar Björn svaraði eigi
itrekuðum skrifum heilbrigðiseftirlits fór
það þess á leit við borgarfógetaembættið
að lögtök færu fram hjá Birni fyrir
seklarupphæðinni.”
Mál þetta er að sögn Matthiasar
einskonar prófmál öðrum til viðvörunar.
en ekki mun hal'a kontið til slikra
lögtaksaðgerða fyrr grundvallaðra á
kröfu heilbrigðismálaráðs. En þess ntun
nú brátt að vænta að heilbrigðiseflirlitið
láti ti! skarar skriða og beiti heimild sinni
til dagsekta vegna útleigu heilsuspillandi
húsnæðis.
Að utan. „Jarðhýsið”, eins og heilbrigðisfulltrúi nefndi það séð utan frá. Sem sjá má
er það að mestu niðurgrafið og gluggar undir stölum ibúðarinnar fyrir ofan. í hús-
næðinu búa nú ung hjón með barn.
Reiknar með veseni
„Jú. þetta er rétt með lögtakið hjá þér.
En sannleikurinn er þó sá að ég hafði
munnlegt leyfi starfsmanns borgar-
læknisembættisinsgefið I973 tilþessað
leigja þetta út til handa einstaklingum
eiginlega sem svefnpláss. En að sjálf-
sögðu var betta aldrei ætlað sem
fjölskylduhúsnæði." sagði Björn
Traustason leigusali Itins heilsuspillandi
kjallarahúsnæðis að Jörfabakka 18 þá er
DB hafði santband við hann i gær.
„Þegar húseignin að Jörl'abakka 18
var komin i gagnið einhvern tima upp úr
1970 kom i ljós að í kjallara var fyrir
ágætis húsrými. Mér fannst þá, sem
— DB-mvnd Ari.
byggingameistara utan af landi. óþarfi
að láta þetta standa autt og leigði þvi
út. aðallega starfsmönnum minum.
Þeir komu hér i gærkveldi að tilkynna
mér lögtakið. En eins og ég sagði hafði
ég ntunnlegt leyfi yfirvalda. Því er óvist
livort dagsektir heilbrigðismálaráðs eru
rtttmætar og gæti ég reiknað með
einhverju veseni vegna þessa lögtaks.
Ekki minnist ég þess heldur að hafa
fengiö nokkra lilkynningu þess eðlis á
sinum tima. enda langt síðan.
F.g vil itreka það að húsnæðið var
einungis ætlað sent svefnpláss fyrir
einstaklinga en ekki fyrir fjölskyldur."
sagði Björn að lokum.
JÁ.
Mikill áhugi á verzlunar-
miðstöð á Seltjarnarnesi
— framkvæmdir gætu hafizt innan tveggja ára
l.ikan af fyrirhugaðri urzlunarmióstöð.
„Það er brýn þörf á þessari
verzlunarmiðstöð i ört stækkandi
bæjarfélagi.” sagði Einar Norðfjörð
byggingarfulltrúi á Seltjarnarnesi i
samtali við DB þegar blaðamenn
skoðuðu líkan og teikningar af fyrir-
huguðu verzlunar- og skrifstofuhverfi
i landi Eiðis á Seltjarnarnesi.
Arkitektarnir Ormar Þór Guð-
ntundsson og Örnólfur Hall eiga
hugmyndina að því skipulagi sem hér
er um að ræða. Það hefur ekki enn
verið samþykkt i bæjarstjóm en Einar
Norðfjörð taldi líkur á að málið yrði
afgreitt með haustinu.
„Menn hafa tekið vel i þessa hug
mynd og það virðist vera grundvöllur
fyrir henni," sagði Einar. „Ef af
verður gætu framkvæmdir hafizl
innan tveggja ára en það er ómögulegt
að segja hve langan tima þær mundu
taka."
Gert er ráð fyrir því að í verzlunar-
miðstöðinni verði ýmsar tegundir al'
verzlunum og skrifstofum. Þar verður
matsölustaður og ýntis þjónustustarf-
semi. Talað hefur verið um að þar
opni útsala Áfengis- og tóbaks-
verzlunar rikisins en Seltirningar taka
sjálfir ákvörðun unt það i alntcnnri
atkvæðagreiðslu.
Bifreiðastæði fyrir 107 bila verða
við verzlunarmiðstöðina.
Á sama svæði er einnig fyrirhugað
að rísi tvö 3ja-4ra hæða fjölbýlishús.
Þar yrðu 47 ibúðir. Þá eru uppi ráða-
gerðir um að reisa fjölbýlishúsahverfi
skammt frá og gætu þar verið 350
ibúðir.
I.jósm. DB-Ari.
Ennfrentur hefur verið talað um
að þama risi hverfi meðsmáiðnaði.
„íbúar á Seltjarnarnesi eru nú um
3500 og fer fjölgandi," sagði Einar
Norðfjörð. Hann sagði að búast ntætti
við að mikil aðsókn yrði i þau fjölbýlis
hús sem fyrirhugaðer að byggja.
GM
F.inar Norófjörð byggingarfulltrúi hendir á svæðið þar sem fyrirhuguð verzlunar-
miðsýöð á að risa. l.jósm. DB-Ari.