Dagblaðið - 23.08.1978, Blaðsíða 24
Byggingameistarinn á Neskaupstað leitar til ráðuneyta:
Kominn til
að sækja
já eða nei
— bæjarstjórinn vill rökstuðning um
pólitík í málinu
Ég er kominn hingað til að leita til
ráðuneyta með málið enda fæst aldrei
lausn í því f . austan. Ég fer ekki
afmr ai.oiur nema með já eða nei upp
á vasann,” sagði Pétur Óskarsson,
byggingameistari á Neskaupstað, er
hann kom í heimsókn á ritstjórn DB í
morgun.
Hugðist hann fyrst snúa sér til
dómsmálaráðuneytis en bjóst við að
þaðan yrði málinu visað til félagsmála-
ráðuneytis.
Logi Kristjánsson bæjarstjóri
kvaðst óhress með málflutninginn í
Dagblaðinu vegna máls þessa. „Ég
vildi gjarnan að þessi ábyggilegi ibúi
Þessi mynd var tekin <vid erfið skilyrði greinilega) þar sem Pétur Oskarsson er ad
puða við hús sitt sem orðið hefur tilefni svona mikilla umræðna.
Neskaupstaðar, sem segir að sér sýnist
pólitík hlaupin í málið, rökstyðji sitt
mál. Hann getur svo sem gert það
nafnlaust mín vegna, því ég er tilbúinn
að rökræða þetta mál. I bæjarstjóm
hefur aldrei verið ágreiningur í þessu
máli, nema um einstök atriði,” sagði
bæjarstjórinn. GS7-J.B.P.
Flugleiðirá nýrri leið:
Beint
i
höfuð-
borg
Banda-
ríkjanna
— eða svo gott sem,
þegar Baltimoreflug
hefst 4. nóv.
4. nóvember nk. munu Flugleiðir
hefja flug til Baltimore i Banda-
ríkjunum., Undanfarið hafa Flugleiða-
menn kannað hvort hagkvæmt væri að
fljúga til fleiri staða í Bandarikjunum en
New York og Chicago. Niðurstaða þess-
arar könnunar hefur nú orðið til þess að
Flugleiðir hafa ákveðið að hefja flug til
flugvallarins Baltimore-Washington
International Airport, sem er flugvöllur
fyrir tvær fyrrnefndar borgir.
í fluginu til Baltimore verður brottför
frá Keflavikurflugvelli kl. 17.45 og
komutími til BWI flugvallar verður kl.
19.00. Flugtíminn er því sex klst. og
fimmtán minútur. Flogið verður með
þotum af gerðinni DC—8—63, sem
hafa sæti fyrir 249 farþega.
í vetur verður ein ferð í viku á þessari
leið. Af ýmsum ástæðum þótti ráðlegt
að hefja Baltimoreflugið að hausti til
þegar farþegaflutningar eru minni en
yfir sumartímann. Markaðskannanir
hafa gefið ástæðu til bjartsýni varðandi
þessa nýju flugleið.Rcyns an sem fæst á
næstu máiiuðum mun skera úr um
hvort félaginu tekst að vinna sér traust-
an sess á flugleiðinni. Ef svo fer mun
ferðum til Baltimore sennilega verða
fjölgað næsta sumar.
-GAJ-
Ungir minkabanar
Minkurinn er misjafnlega séður. Hann
er eftirsóttur hjá heföarkonum sem vilja
klæðast iburðarmiklum fatnaði - en er
illa séður á víðavangi þar sem hann þykir
ógna umhverfinu og er þá réttdræpur.
Villiminkar eru þeir kallaðir og einn
slikur átti leið um fjörurnar i Keflavik
þegar tveir piltar komu auga á hann.
„Ég hitti hann i fyrsta höggi með þessum
steini frá Hellugerðinni, eftir að hafa elt
hann nokkra metra,” sagði Sveinn
Karlsson, um leið og hann sýndi okkur
bæði mink og vopnið — hellusteininn.
Hvort ég reyni að fá eitthvað fyrir
skottið veit ég ekki en dauður minkur
ógnar ekki öðrum friðsamari dýrum.”
Með Sveini á myndinni er Þorsteinn
Einarsson, sem fyrstur kom auga á
„varginn”.
BÆÐILÆR- OG
FÓTBROTNAÐI
Fimmtán ára drengur slasaðist
illilega á fæti I gærkvöldi i umferðar-
slysi á mótum Setbergsvegar, Reykja-
nesbrautar og Lækjargötu i Hafnar-
firði. Drengurinn bæði lærbrotnaði og
fótbrotnaði en slapp furðuvel að öðru
leyti. Kastaðist hann um 10 metra frá
bilnum er hann varð fyrir.
Drengurinn kom niður Setbergs-
veginn og ætlaði yftr Reykjanes-
brautina. Fór hann í veg fyrir bil sem
kom sunnan að með fyrrgreindum af-
leiðingum.
-ASt.
BARN FELLUTUM
GLUGGA Á 3. HÆÐ
Hálfs annars árs gömul telpa féll út
um glugga á þriðju hæð fjölbýlishúss í
Breiðholti I gær. Sú mildi var yfir
barninu að það lenti i moldarflagi og
er talið að það hafi sloppið ómeitt eða
lítið meitt. Var það þó flutt I slysa-
deild til rannsóknar.
Glugginn sem barnið féll út um er í
36 sentimetra hæð frá gólfi og getur
hann opnazt þannig að 19 sentimetra
op myndast.
Út um þá rifu fór barnið.
-ASt.
Hjóli
sölumanns
DB stolið
„Þetta er sjöunda hjólið sem hverfur
héðan af heimilinu, sé allt talið með,”
tjáði áhyggjufull móðir eins sölumanna
Dagblaðsins DB í gær. „Drengurinn fór
af stað fyrir níu í morgun til þess að ná í
og selja Dagblaðið. Hann var meðal
þeirra fyrstu sem mættu og varð annar I
röðinni, á meðan var hjólinu hans
stolið.”
„Hann hefur verið anzi duglegur að
selja blaðið, sérstaklega sl. sumar, en þá
seldi hann uppundir 100 eintök á dag.
Nú var hann nýkominn heim úr sumar-
frii og ég leyfði honum að fara með
hjólið með sér, Ijósgrænt, kombi-mini,
norskt DBS-hjól, nýlegt með ljósum
hnakki. í það hafði faðir hans grafið
upphafsstafi drengsins, JMB," sagði
móðirin að lokum.
Þeir sem rekast kynnu á reiðhjól
sölumannsins eru vinsamlegast beðnir
um að hafa þegar samband við Dag-
blaðið.
-JÁ.
þ þad
<aupið°<á
TÖLVUR
TÖLVUÚR »
BANKASTRÆTI8
frjálst, úháð daghlað
MIÐVIKUDAGUR 23. ÁGÚST 1978.
Sólkveðjuhátíð
íReykjavík:
,Útfríkuð’
skrúð-
ganga á
sunnu-
daginn
Reykjavik hefur fengið orð fyrir að
vera heldur dauf borg en á sunnudaginn
á að reyna að gera breytingu þar á. Þá
verður gengið til sólkveðjuhátíðar í
borginni. Safnazt verður saman kl.
14.30 á Skólavörðuholti og farið þaðan í
skrúðgöngu á Lækjartorg.
Stefnt er að því að gera gönguna sem
fjölskrúðugasta og því hefur verið
leitað til barnaheimila borgarinnar sem
munu standa fyrir miklum dýra-
sýningum, þar sem langir ormar og und-
arlegustu kvikindi munu slást í hópinn.
Þá verða bumbur barðar af miklum móð
og horn þeytt.
Sjálf hátíðahöldin fara siðan fram í
Austurstræti og á Lækjartorgi. Þar
verða á ferðinni leikarar, trúðar og
hljóðfæraleikarar og gerðar verða
myndir á gangstéttir með litkrit.
Fólk er hvatt til að mæta með vopn og
verjur margs konar svo sem húla-hopp
hringi, potta, pönnur og yfirleitt hvað
sem er sem til yndisauka getur orðið.
Hátíðin verður aðeins haldin ef vel
viðrar en hugsanlegt er að henni verði
flýtt um einn dag eða frestað um
óákveðinn tima.
-JH.