Dagblaðið - 23.08.1978, Qupperneq 12
12
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 23. ÁGÚST 1978.
Iþróttir
Iþróttir
g
íþróttir
Iþróttir
Fjögur heimsmet á HM
— og gullstraumurinn heldur áf ram til bandaríska sundfólksins
Fjögur hcimsmet voru sett á HM i
sundi í Vestur-Berlin i gær og gull-
straumurinn heldur áfram til USA.
Sundfólkið frá USA sigraði i
fimm af sex greinum i
gær. Eftir 12 fyrstu greinarnar hefur
það hlotið niu gull, fimm silfur og ein
bronzverðlaun. Sovétrikin tvenn gull-
verðlaun og V-Þýzkaland ein — en
Austur-Þýzkaland hefur enn ekki hlotið
gullverðlaun. Hins vegar fimm silfur og
ein bronzverðlaun. í milliriðli i sund-
knattleiknum er ítalia efst i A-riðli með 3
stig. USA og Rúmcnía 2 og Sovétríkin
hafa eitt stig. í B-riðli er V-Þýzkaland
og Ungverjaland ð 3 stig — gerðu
innbyrðis jafntefli í gær 6-6 — Júgó-
slavia 2 og Búlgaria eitt.
Úrslit í keppninni í gær urðu þessi:
200 m skríðsund kvenna 1. Cynthia Woodhead, USA, 1:58.53
2. Barbara Krause, A-Þýzkaland, (heimsmet) 1:59.78
3. Larisa Tsareva, Sovétríkin, 2:01.76
4. Annelies Maas, Hollandi, 2:01.89
5. Enith Brigitha, Hollandi, 2:01.99
6. Stephanie Elkins, USA, 2:02.29
400 m Qórsund karla 1. Jesse Vassallo, USA, 4:20.05
2. Sergei Fesenko, Sovétrikin, (heimsmet) 4:22.29
3. Andras Hargitay, Ungverjal., 4:27.04
4. A. Sidorenko, Sovétrikin, 4:27.78
5. Csaba Sos, Ungverjalandi, 4:28.95
6. Scott Matsuda, USA, 4:29.11
100 m baksund kvenna
1. Linda Jezek, USA, 1:02.55
2. Birgit Treiber, A-Þýzkaland, 1:03.18
3. Cheryl Gibson, Kanada, 1:03.43
4. Monique Bosga, Hollandi, 1:03.86
5. Sue Walsh, USA, 1:04.11
6. Antje Stille, A-Þýzkaland, 1:04.45
100 m bríngusund kvenna
1. Yulie Bogdanova, Sovétríkin, 1:10.31
(heimsmet)
2. TracyCaulkins, USA, 1:10.77
3. Margaret Kelly, Bretlandi, 1:11.99
4. Kathy Treible, USA, 1:12.38
5. Eva-Maria Hakonsson, Svíþjóð, í: 12.50
6. Ramona Reinke, A-Þýzkaland, 1:12.62
4X100 m skríðsund karla.
1. Bandaríkin 3:19.14
(heimsmet)
2. Vestur-Þýzkaland 3:26.65
3. Svíþjóð 3:27.14
4. Kanada 3:27.14
5. Ítalía 3:28.90
6. Bretland 3:28.93
í dýfingum karla varð Phil Boggs, USA, heims-
meistarí í þriðja sinn í röð. Var i sérflokki. Hlaut
9.13.95 stig. Falk Hoffmann, A-Þýzkaland, varð ann-
ar með 873.33 stig og Frabco Cagnotto, Ítalíu, þriðji
með 845.51 stig.
Ársælll
stigi fy
með snilldarmarkvörzlu
Frá Kristni Péturssyni, Akranesi.
Þrátt fyrír góð tækifærí i leik Akurnesinga og
Vestmannaeyinga i 1. deild á Akranesi f gærkvöld
tókst leikmönnum liðanna ekki að skora.
Leikurínn var frekar daufur i suð-vestan kalda þar
sem gekk á með rigningarsudda. Skagamenn voru
mun meira með knöttinn — sóttu meira — en frá-
bær markvarzla Ársæls Sveinssonar bjargaði stigi
fyrír ÍBV. Það fór aldrei á milli máia að Akur-
nesingar voru sterkarí aðilinn f leiknum.
Þeir léku undan vindinum i f.h. og strax á
fjórðu min. skapaðist hætta. Skot á mark ÍBV,
sem Ársæll varði. Hann hélt ekki knettinum en
varnarmanni tókst að bjarga rétt við tær Péturs
Péturssonar. ÍBV fékk tvö góð færi á 10. og II
min. og Sigurlás Þorleifsson spyrnti þá tvívegis
að marki en knötturinn fór framhjá — i siðara
skiptið sleikti knötturinn þverslána. Um miðjan
hálfleikinn var Matthias Hallgrímsson á auðum
sjó við mark ÍBV eftir fyrirgjöf Karls Þórðarsonar
en skailaði yfir. Þá átti Pétur hörkuskalla af stuttu
færi, sem Ársæli varði snilldarlega.
t hálfleik snerist vindurinn og stóð þvert á
völlinn. Akurnesingar sóttu miklu meira en það
vantaði herzlumuninn hjá þeim. Leikmenn liðsins
reyndu að leika alveg inn að marki — gáfu
knöttinn til samherja, jafnvel þegar marktækifæri
gáfust. Vestmannaeyingar voru snöggir i
skyndisóknum og Sigurlás fékk sitt þriðja góða
færi i leiknum. Spymti enn framhjá. En greinilegt
var þó, að Vestmannaeyingar gerðu sig ánægða
með jafntefli. Styrktu vörnina mjög á kostnað
sóknarinnar. Á 30. min. átti Pétur gott skot, sem
Ársæll varði og rétt undir lokin kom albezta
tækifæri ÍA — Jón Alfreðsson átti þrumuskot að
marki rétt utan vitateigs, en Ársæll stýrði knettin-
um snilldarlega framhjá. Þá varði hann einnig
hörkuskot frá Jóhannesi.
1 liði ÍBV voru þeir Sigurlás og Öm Óskarsson
beztir i sókninni — en öm var nú framherji.
Þórður Hailgrímsson og Einar Friðþjófsson góðir
í vörn — en Ársæll maður liðsins. Hjá f A voru
Karl, Árni Sveinsson, Jóhannes Guðjónsson og
Ath Eðvaldsson, landsliðsmaðurínn sterki i liði Vals,
að þessu sinni — eins og svo mörgum öðrum leikmönn