Dagblaðið - 04.09.1978, Qupperneq 3
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 4. SEPTEMBER 1978.
3
Vestri skrifar:
MEÐ EFTIRUTSDÓP í ÆÐUM
Spurning
dagsins
Gangi Islendingur inn um búðardyr
má telja vist að hann skoði vörurnar í
þeirri trú að heilög verndarhendi
verðlagseftirlitsins varðveiti hann gegn
því að gera vitlaus innkaup. Saga
verðlagseftirlits í liöndum stjórnmála-
manna og ríkislaunaðra skrifstofu-
manna er orðin svo löng hér á landi að
reikna má með að þeir sem ættu að
muna hana alla séu farnir að tapa minni
aldurs vegna. Bókhald Kröfluvirkjunar
sýnir vafningalaust hvað Krafla kostar
og uppskeran rnælist siðan i mega-
vöttum mörgum, fáum eða engum. En
hver treystir sér til að reikna kostnað við
vcrðlagseftirlit á þessu landi frá upphafi
og hvernig á að vigta uppskeruna?
Vitaskuld hefur enginn lagt i að gera
þetta og því rúllar vcrðgæzlukraflan
áfram, kynslóð eftir kynslóð.
En nú er alll i einu komið babb i
bátinn. Með útlendri vog hafa verið
leiddar að því miklar likur, að íslend-
ingar greiði um fjórðungi meira en
aðrar þjóðir fyrir vörur sinar i innkaupi.
Fljótfærnislegt væri að álykta að þessi
voðalega útkoma sé fyrst og fremst sök
fjárglæframanna og svindlara i verzl-
unarstétt. Ef svo væri, mætti byrja á
að hengja sámvinnuhreyfinguna i heilu
lagi. þvi þar er allt bókhald opið. engin
umboðssvik eða faktúrufalsanir og
vörur jafndýrar eða dýrari en hjá kaup-
mönnum. Glæpur samvinnufélaganna
hlyti því að vera margslungnari en hjá
nokkrum öðrum.
".....að hver maður
eigi að bera
ábyrgð á
sjáifum sér."
Sjálfsagt finnast óprúttnir einstakl-
ingar i hópi kaupmanna og samvinnu-
manna en ef þeim er sleppt er ekkert lik-
legra en glæpur innflutningstéttarinnar
sé fólginn i þvi að spila nauðugir alltof
lengi eftir leikreglum verðlagseftirlits og
hafta. Ef menn viðurkenna að llytja
þurfi inn vörur og að einhver þurfi að
annast það er sjálfgefiö að sá hinn sami
vcrður einhvern veginn að lifa. Ef
álagningarreglur skipa innflytjanda (SlS
eða kaupmanni) að fara á hausinn eða
gera aðeins dýrari innkaup til að næla
löglega i nokkrar krónur er liklegt að
fyrirtækið fresti því að fara á hausinn og
þjarki ekki við útlendinga um lægra
verð. Þannig hafa innflytjendur unnið
með cftirlitsdópið i æðunum mikinn
hlttta þessarar aldar og cr ekki von að vel
fari.
Önnur hlið er á þessu máli sem ristir
dýpra en ætla mætti i fljótu bragði. í
trúnni á eftírlitsforsjá stjórnmálamanna
og kontórista hefur almenningur glatað
verðskyni og dómgreind í innk-aupum og
er líka dottinn i dópið. Farið hefur
forgörðum það grundvallaratriði i
mannlegu lifi aðhver maður eigi fyrst og
fremst að bera ábyrgð á sjálfum sér og
sjá fótum sinum forráð en ekki eitthvert
eftirlit eða þjóðfélagsmamma.
Mál að mömmu-
leiknum linni
Þessi mömmulcikur kemur viðar við
en í verðlagsmálum. Allt veður uppi i
eftirliti. Við höfum heilbrigðiseftirlit.
öryggiseftirlit. bifreiðaeftirlit. bygginga-
eftirlit, áfengisvarnareftirlit, ferskfisk-
eftirlit, kartöflu- og grænmetiseftirlit,
eftirlit með veitingastöðum og guð ntá
vita hvað allt þetta eftirlit heitir og ekki
má gleyma blessuðu verðlagseftirlitinu.
Þá er eftir að nefna opinbera handleiðslu
á endalaust mörgum sviðum eins og t.d.
þvi að forða fólki frá þvi að kaupa
matvöru eftir klukkan 6 eða ganga inn
i vpitingahús eftir hálftólf, baða sig í
volgum læk og myndi æra óstöðugan að
Raddir
lesenda
Vestri gerir sér tíðrætt um verðlagseftirlit i skrifum sínum i dag. Segir hann almenning, i trú sinni á eftirlitsforsjá, stjórn-
málamanna og kontórista hafa glatað verðskyni.
telja öll þau mannlegu svið. sem
opinberir aðilar hafa lagt undir sig til að
hafa vit fyrir fólki.
Sjálfsagt er að viðurkenna þörf fyrir
eftirlit og opinbera forsjá að vissu marki.
Það hriktir hins vegar i undirstöðum
þegar tekin hefur verið frá mönnum
ábyrgðin á því að passa sig sjálfir. Þegar
engin húsmóðir veit hvað grænar baunir
kosta af þvi að vcrðlagseftirlitið á að
passa verðið. þegar menn umgangast
vinnuvélar eins og fifl, af því að öryggis-
eftirlitið er nýbúið að vera á staðnum og
týna öllu lauslegu í trausti þess að fá það
bætt, þá er falskt öryggi og cftirlit búið
að sljóvga menn svo að óvíst er að úr
verði bætt. Mál er að mömmuleiknum
linni og menn fái i friði að taka
afleiðingum gjörða sinna. þar á mcðal að
græða eða tapa, eftir því sem þeir hafa
til unnið.
Electropower
GIRMOTORAR
RAFMÓTORAR
EIGUM JAFNAN TIL
GÍRMÓTORA:
Ýmsir snúningshraðar lns fasa: 3/4-1 1/2 hö 3ja fasa: 1/3 - 20 hö
RAFMÓTORA:
1400 - 1500 sn/mín. lns fasa: 1/3 - 3 hö 3ja fasa: 1/3 - 20 hö
Utvegum allar fáanlegar stærðir og gerðir.
FÁLKIN N
SUÐURLANDSBRAUT 8, SÍMI 84670
Hvernig lízt þér á
nýju ráðherrana?
Hildiþór Loftsson verzlunarmaður: Ja.
mér lízt bara vel á þá. Ég held að þetta
verði afkastamikil stjórn.
Sveinn Ingólfsson bilstjóri: Mér iízt
ágætlega á þá. Ég held nefnilega að þeir
séu ágætir i þetta. Kannski þeir hækki
líka kaupið hjá manni.
Hafsteinn Karlsson verkamaður: Mér
lizt engu betur á þá en fyrirrennara
þeirra. Þeir nýju cru sem þeir gömlu,
fulltrúar nákvæmlega sama þjóðfélags-
hóps, nefnilega auðvaldsins. Engin
breyting verður til hagsbóta fyrir
verkalýð fyrr en með sósialisku bylting-
unni.
Sigfús Gunnlaugsson ellilifc.vrisþcgi: Eru
þetta nokkrir ráðherrar. Ég fyrir mina
parta hef ekkert álit á þeim. Þetta eru al
gjörlega óreyndir menn. Eiginlega eru
þetta allt saman eintómir heildsalar
meira og minna.
verzlunarmaður: Ja,
mér lizt nú bara ekkert of vel á þá. Þetta
lið er samansafn þess versta. Eintómir
gapuxar. röfla meira en þeir síðan eru
menn til þess aðstanda við.
Kristinn Skarphéðinsson verkamaður:
Ja, ég veit nú ekki hvað skal segja um
þetta. Þetta eru vafalaust allt saman
ágætis menn. En vinstri stjórnin hefur
bara aldrei virkað vel.