Dagblaðið - 13.10.1978, Síða 3
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 13.0KTÓBER 1978.
3
Verðlagsnefnd og síðdegisblöðin:
VERÐLAGSRIDDARAR
í VINDMYLLUSTRÍÐI
Jón Bjarklind skrifar:
Á stríðsárunum starfaði ég hjá
Viðskiptaráði, sem var valdamikil
stofnun á þeim tíma, stjórnaði
innflutningi til landsins og fór
með yfirstjórn verðlagseftirlits. Þá
voru verðlagsákvæði réttlætanleg og
raunar nauðsynleg því að vöruinn-
flutningur var takmarkaður og enginn
grundvöliur fyrir frjálsri verðmyndun.
En baráttan gegn dýrtiðinni gat þá
tekið á sig skringilega mynd engu síður
,en nú. Mér er það minnisstætt er ég
kom eitt sinn inn á fund um verðlags-
mál þar sem aðal viðfangsefnið var
það hvort leyfa skyldi að hækka verð á
gosdrykkjum um 5 aura á flösku.
Þarna sátu margir ágætir menn, sumir
jafnvel með doktorsgráðu i hagspeki,
og ræddu um þessa 5 aura hækkun og
héldu að þeir væru að berjast gegn
dýrtíð.
Og enn i dag eru hraustir menn að
berjast við dýrtíð. Nú virðist veiga-
mesta málið vera það, hvort tvö vinsæl
síðdegisblöð skuli fá að kosta 2.200 kr.
eða 2.400 kr. á mánuði eða hækka um
heilar 10 krónur í lausasölu. Um þetta
stendur nú styr. Skyldi þjóðin ekki
bíða með öndina í hálsinum eftir
úrslitunum? Hljóta ekki ómerkileg
smámál eins og milljarða skattsvik að
gleymast í slíkum hildarleik?
Don Quixote barðist við vindmyllur
á sínum tíma. Hann hafði þá afsökun
að vera ofurlítið „klikkaður” eins og
sagt er á nútíma íslenzku. Slíka verðlagsriddarar okkar ekki í dag —
afsökun hafa hinir baráttuglöðu eða hvað?
Hringið
ísíma
Raddir
lesenda
27022
milli kl. 13 og 15
Má Póstur og
sími hirða frí-
merkin?
JÓN STEFANSSON- HRAUNTEÍGUR VIÐ HEKt.U
ÁVALLT
í FARARBRODDI
TEIKNIPENNA
E" I
E o' I
9 gerðir
ISLAND 1000
út frímerki að verðgildi 1000 kr. Ekki
er nema gott eitt um það að segja og
ætti þetta að verða sparnaður er þeir
líma frímerkin á fylgibréf til okkar
landsbyggðarmanna þegar þeir senda
okkur brennivínið.
En ég vildi gjarnan vita hvort laga-
stoð sé fyrir því að Pósti og sima sé
heimilt að hirða frímerkin af kröfu-
bréfum sem við fáum? Sé svo, þá ætti
samgönguráðherra að beita sér fyrir
því að koma í veg fyrir slikt, þannig að
við fáum þessi frímerki sjálf. Póstur og,
sími fær víst nóg samt.
Flugan torkennilégaxfg Qotkrónan.
DB-mynd Ragnar Th.
Viðurkenndir úrvals pennar fyrir
atvinnumenn, kennarar og námsfólk.
isograph®
Allar nánari upplysmgar:
PENNAVIÐGERÐIN
Ingólfsstræti 2, simi 13271
Torkennileg fluga
Pétur Óskarsson Neskaupstað skrif-
an
Þess var getið í fréttum nýlega, að
Póst- og simamálastjórnin hygðist gefa
Starfsmenn Héðins litu hér inn á
DB og höfðu í fórum sinum flugu
stóra og og torkennilega. Enn var
líftóra í flugu þessari, en mjög af henni
dregið. Fluguna fundu starfs-
mennirnir á gólfi vinnustaðar síns og
töldu líklegt að hún hefði borizt
hingað með erlendri sendingu.
Dagblaðsmenn báru ekki kennsl á
fluguna, enda fengið gagnrýni fyrir
fákunnáttu i dýrafræði. Flugan var
Rotring teiknipennar og teikniáhöld fást í
þægilegum einingum fyrir skóla og
teiknistofur.
Tvöföld þétting í hettunni tryggir, að eigin-
leikar (Rotring Isograph) eru ávallt hinir
sömu, jafnvel þótt hann hafi ekki verið
notaður lengi.
svört að lit og mun stærri en venju-
legar fiskiflugur sem við þekkjum.
Aftur úr flugunni gengur sproti og
fálmarar fram úr hausnum.
Það væri vel þegið ef einhver fróður
maður um flugur léti okkur vita um
hvaða grip er hér að ræða og hvar slík-
ar flugur eru hagvanar. Stærð flug-
unnar má ráða af „flotkrónunni” við
hlið hennar.
JÓNAS
HARALDSSON
Spurning
dagsins
Ætlar þú að fá þér
nýja kuldaúlpu fyrir
veturinn?
Árni Ársælsson læknir: Nei, ég á eina
góða. Hún hefur dugað mér í ellefu ár.
Hún hefur reynzt mér ágætlega.
Sigriður Gunnlaugsdóttir nemi: Nei,
þessi sem ég er i er ágæt. Hún hefur
dugað mér í fjögur til fimm ár.
Ölafsdóttir húsmóðir: Nei.það ætla
ég ekki að fá mér. Ég keypti mér íslenzka
gæruskinnskápu fyrir þremur árum og
ég kann reglulega vel við hana.
Hafdís Ösk Vlðisdóttir, 11 ára: Nei.
Mamma gaf mér úlpu i vetur. Hún er
ofsalega hlý og góð.
Ingibjörg Sigurðardóttir húsmóðir:
Nýja kuldaúlpu ætla ég ekki að fá mér.
Ég á nóg til þess að fara i i vetur.
Unnar Andrésson sölumaður. Ég á nú
eina. Ætli ég láti hana ekki duga. Hún
hefur dugað mér i ein sex ár og þykir
gott.