Dagblaðið - 13.10.1978, Síða 9
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 13.0KTÓBER 1978.
9
TEKST KORTSNOJ
AÐ JAFNA METIN?
31. skákin i heimsmeistaraeinvíginu
var tefld í gær og fór í bið eftir 47 leiki.
Almennt voru „sérfræðingamir” á Fil-
ippseyjum þeirrar skoðunar að staða
Kortsnojs væri allt að því unnin og
Kortsnoj sjálfur var mjög sigurviss eftir
skákina. Sagði hann að þegar að henni
lyki, myndi staðan í einvíginu verða 5-5!
Enski stórmeistarinn Keene var ekki
alveg eins stórmæltur, en sagði þó að
Kortsnoj hefði góða sigurmöguleika og í
sama streng tók dr. Max Euwe, forseti
FIDE. 1 herbúðum Sovétmanna var
hins vegar annað hljóð í strokknum.
Fyrrum heimsmeistari, Mikhael Tal,
sagði einungis að staðan væri flókin. Ef-
laust binda Sovétmenn vonir sínar við
það, að í biðstöðurannsóknunum takist
honum að töfra fram eina af sínum
frægu leikfléttum.
Kortsnoj hóf 31. einvigisskákina á c-
peðinu, sem engum ætti að koma á
óvart. Skákin snerist yfir i drottningar-
bragð og Kortsnoj beitti uppskiptaaf-
brigðinu í fyrsta sinn i einvíginu. Kapp-
amir fylgdu lengi vel troðnum slóðum
og hafði Kortsnoj rýmri stöðu lengst af.
Uppskipti urðu á drottningum og eftir
það er skákinni best lýst með einu orði
— Kortsnoj. Endataflið tefldi áskorand-
inn af sinni alkunnu snilli og braut allt
mótspil heimsmeistarans á bak aftur,
strax i fæðingu. Það var síðan ekki fyrr
en í 41. leik, sem hann lét til skarar
skriða, en þó opnaði hann taflið sér í
hag. Eins og áður sagði er biðstaða hans
síðan mjög vænleg og takist honum að
sigra verður staðan i einviginu 5-5. Segja
má að þá yrði spennan i algleymingi, þvi
sá telst sigurvegari sem fyrr hlýtur 6
vinninga.
31. einvígisskákin
Hvítt: V. Kortsnoj
Svart: A. Karpov
Drottningarbragð
I.c4e6 2. Rc3d5
Karpov breytir nú um leikjaröð og
hindrar þannig að Kortsnoj geti notað
afbrigðið sem hann beitti í 29. skákinni
(1. c4 Rf6 2. Rc3 e6 3. e4 o.s.frv.). Þess í .
stað kemur nú upp hefðbundið drottn-
ingarbragð, sem margsinnis hefur sést
áður í einvíginu.
3. d4 Rf6 4. cxd5!
Kortsnoj er ávallt fyrri til að breyta út
af. 1 síðustu drottningarbrögðum þeirra
kappanna hefur hann leikið 4. Rf3 Be7
5. Bf4, reyndar með þokkalegum ár-
angri. Nú finnst honum hins vegar kom-
inn timi til að reyna eitthvað annað og
færa Karpov ný vandamál við að glíma.
4. — exd5 5. Bg5 Be7 6. e3 0-0 7. Bd3
Rbd7 8. Rf3
Einnig er mögulegt 8. Rge2, en þann
leik gerðu fyrrverandi heimsmeistarar
Botvinnik og Petrosjan vinsælan á sín-
um tima.
8. —He8 9. Dc2 c6 10.0-0
í 4. skákinni í áskorendaeinviginu
milli Portisch og Larsen 1977 lék
Portisch 10. h3 og sigraði örugglega —
aðallega þó vegna þess að Larsen átti af-
mæli þann daginn og fórnaði mönnum á
báðar hendur.
10. — Rf8 ll.Bxf6
Í áðurnefndu einvígi Portisch og
Larsen lék Portisch hér 11. Hael tví-
vegis, en komst ekkert áleiðis. „Teórían”
mælir með 11. Habl, ásamt b2-b4
o.s.frv. en leikur Kortsnojs virðist sist
verri.
11. — Bxf6 12. b4 Bg4 13. Rd2 Hc8 14.
Bf5 Bxf5 15. Dxf5
Allt hefur þetta sést áður og í skákinni
Reshevsky — Mjagmarsuren, milli-
44904-44904-44904
Höfum úrval eigna á
söluskrá,
eignir í
Opið alla
tilkl. 19.
44904
I
£
(O
vantar
Reykjavík. i
vir ka daga g
örkin sf. |
Fasteignasáía.
Hamraborg 7. *
Sími 44904. S
Lögmaður Sigurflur Helgason hri. J
Þ06ÞÞ- Þ06ÞÞ-Þ06ÞÞ-Þ06 *
LYKUR
31. OKTÓDER
eða vanur maður
óskaststrax
KRAFTUR H/F
Vagnhöfða 3. Sími 85235.
Firmakeppni
í knattspyrnu innanhúss
hefst sunnudaginn 29. okt. í hinu nýja iþrótta-
húsi Gerplu við Skemmuveg í Kópavogi. Þátt-
taka tilkynnist Gunnari i síma 23401 milli kl.
13 og 17 og Smára í síma 43037 á kvöldin og
um helgar, fyrir 23. okt. nk. j |(
svæðamótinu í Souuse 1967, varð fram-
haldið nú: 15. — g6 16. Dd3 Dd6 17.
Hfbl Bg7 18. a4 og hvitur hefur betra
tafl. Eftir skákina bentu „sérfræðingar"
á 15. — Dd7, sem örugga leið til tafljöfn-
unar. Þann leik velur Karpov einmitt i
þessari skák, en taflið virðist þó ekki
vera eins jafnt og „sérfræðingarnir” vilja
vera láta.
15. — Dd7 16. Dxd7!
Áskorandinn hefur enn einu sinni í
hyggju að sýna skákheiminum fram á
endataflshæfni sina!
16. - Rxd7 17. a4 Be7 18. Hfbl Rf6 19.
a5!
Vegna hótunarinnar 20. a5-a6, er svar
svarts þvingað. Við það myndast hins
vegar veikleikar á svörtu reitunum á
drottningarvæng.
19. — a6 20. Ra4 Bf8 21. Rc5 He7
Svartur getur auðvitað ekki leyft sér
að drepa þennan riddara, því þá opnast
b-línan og hvitur fær óþyrmilegan þrýst-
ing á svarta b-peðið.
22. KH!
Kortsnoj veit hvað hann er að gera!
Þessi maður stefnir á d3, þar sem hann
verður sem kóngur í ríki sínu.
22. — Re8 23. Ke2 Rd6 24. Kd3 Hce8
25. Hel g6 26. He2 f6 27. Hael Bh6 28.
Rdb3 Bf8
m
Þar með er þessi framrás orðin að
veruleika og það undir hagstæðum
kringumstæðum. Taflið opnast nú
hvitum i hag og hann fær enn meira at-
hafnafrelsi fyrir menn sína en hann
hafði áður.
41. — dxe4 42. Rdxe4 Rb5 43. Rc3
Þar með losnar hvítur við riddarann á
b5, sem þrýstir óþægilega á d-peðið.
43. — Hxe2 44. Hxe2 Bxc5
Svartur gat sig hvergi hrært fyrir ridd-
aranum. Nú er hrókurinn þóa.m.k. laus
úr prísundinni á b8.
45. bxc5 Hd8
Eftir 45. — He8 46. Rxb5 axb5 (46.
— Hxe2 47. Rd6 + ) 47. d5! cxd5 48.
Hxe8 Kxe8 49. c6 Kd8 50. cxb7 Kc7 51.
a6 vinnur hvítur. T.d. 51. — b4 (51. —
f5 52. Kc3! og vinnur) 52. h4! g5 (Ef 52.
- h5, þá 53. f5! og ef 52. - Kb8, þá 53.
g5! fxg5 54. h5! gxh5 55. f5 og vinnur)
53. hxg5 hxg5 54. fxg5 fxg5 55. Kd4
Kb8 56. Kc5! b3 57. Kb6 b2 58. a7 og
svarturermát.
46. Rxb5axb547.f5!
Svartur getur litið annað en beðið
þess sem verða vill. Hvítur hefur aftur á
móti t.d. frábæra möguleika á gegnum-
broti með e3-e4 o.s.frv. og hefur því öll
ráð i hendi sér. Ekkert liggur þó á og í
næstu leikjum fer hvítur sér að engu
óðslega, heldur bætir stöðu sína hægt og
sígandi.
29. Rd2 Bh6 30. h3 Kf7 31. g4 Bf8 32. f3
Hd8 33. Rdb3 Rb5 34. Hfl Bh6 35. f4
Bf8 36. Rd2 Rd6 37. Hfel h6 38. Hfl
Hb8 39. Hal Hbe8 40. Hael Hb8
Þar með er 40 leikja markinu náð og
Kortsnoj hefur skyndilega nógan um-
hugsunartíma. Snilldin lætur því ekki á
sérstanda!
41. e4!
Hér fór skákin í bið og lék Karpov
(svartur) biðleik. Hann á greinilega í
miklum erfiðleikum, því hvítur hótar
einfaldlega 48. Ha2, ásamt 49. a6
o.s.frv. og ef 48. — Ha8, þá 49. d5! cxd5
50. Kd4. Biöskákin verður tefld áfram í
dag og kemur þá væntanlega i Ijós,
hvorir mega sin betur — Kortsnoj,
Euwe og Keene, eða leikfléttusnillingur-
inn Mikhael Tal.
JÓN L ÁRNAS0N
SKRIFAR UM SKÁK
ÓKE^PIS
heilræði öllum sem œtla að
selja bílinn sinn
1.
2.
3.
4.
5.
Hafðu hann í fyrirmyndarstandi og leyndu ekki göllum
sem á honum kunna að vera.
Þrífðu hann utan sem innan og bónaðu hann og láttu lag-
færa þessa smámuni sem þú hefur vanrækt en eiga ekki
að vera á góðum bil.
Spurðu marga um hugsanlegt söluverð bílsins, fáðu sitt
lítið frá hverjum og settu á hann það sem þú telur vera
sanngjarnt
Vertu reiðubúinn að lána hluta verðsins ef kaupandjnn er
kunnur að skilvísi.
Farðu með hann til einhvers bílasala sem getur haft bílinn
inni, sem tryggir hann og lítur eftir honum, þér að
kostnaðarlausu.
í Sýningahöllinni. Símar 81199 - 81410.