Dagblaðið - 13.10.1978, Blaðsíða 26
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 13. OKTÓBER 1978.
Demantar
Spennandi og bráðskemmtileg ísraelsk-
bandarísk litmynd með Robert Shaw,
Richard Roundtree og Barbara Seagull.
Leikstjóri Menahem Golan.
lslenzkur texti.
Bönnuð börnum.
Sýnd kl. 3,5,7,9og 11.
salur
Kvikmynd Reynis Oddssonar
Morðsaga
Aðalhlutverk: Þóra Sigurþórsdóttir.
Steindór Hjörleifsson og Guðrún
Ásmundsdóttir.
Bönnuðinnan 16ára
Sýnd kl. 3.05,5.05,7.05,9.05 og 11.05.
Ath. að myndin verður ekki endursýnd
aftur i bráð og að hún verður ekki sýnd í
sjónvarpinu næstu árin.
-salur
Átök í Harlem
Harlem.
Sl
...gFRED WILLIAMSON U ®
ALarcoProduclion COLOR by movielab ©f
An American International Release
(Svarti guöfaðirinn 2)
Afar spenna/idi og viðburðarík litmynd,
beint framhald af myndinni „Svarti guð
faðirinn.
Islenzkur texti.
Bönnuð innan 16 ára.
Endursýnd kl. 3.10, 5.10, 7.10, 9.10 og
11.10.
salur D-
Lucky Luciano
Lucky
Luciano
Spennandi og vel gerð ný itölsk litmynd
með Gian Volonte og Rod Steiger. Leik-
stjóri Francesco Rosi.
Bönnuðinnan 14ára.
Islenzkur texti.
Sýnd kl. 3.15,5.15,7.15,9.15 og 11.15.
I!
GAMLA BIO
í
Slml n4ZB.
Valsakóngurinn
Skemmtileg og hrífandi ný kvikmynd
um Jóhann Strauss yrigri.
Horst Bucholz
Mary Costa
Íslenzkur textl
Sýnd kl. 5,7 og 9.
I
HAFNARBIO
Shatter
Hörkuspennandi og viðburðahröð, ný
bandarísk litmynd, tekin í Hong Kong.
STUART WHITMAN,
PETER CUSHING.
Leikstjóri: MICHAELCARRERAS.
íslenzkur texti.
Bönnuðinnan 16ára.
Sýndkl. 5,7,9 og 11.
Kvikifiyndir
AUSTURBÆJARBÍÓ: Sekur eða saklaus? (Verdict)
Aðalhlutverk: Sophia Loren, Jean Gabin. Sýnd kl. 5,7
og 9. Bönnuð innan 14 ára.
GAMLA BÍÓ: Sjá auglýsingu.
IIAFNARBÍÓ:Sjáauglýsingu.
HÁSKÓLABÍÓ: Saturday Night Fever. Aðalhlut-
verk: John Travolta. Sýnd kl. 5 og 9.
LAUGARÁSBÍÓ: Dóttir hliðvarðarins kl. 5, 7, 9 og
11. Bönnuð innan 16 ára.
NÝJA BÍÓ: Þokkaleg þrenning (Le Trio Infernal)
Aðalhlutverk: Michel Piccoli, Romy Schneider.
Leikstjóri: Francis Girod. Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Stranglega bönnuð börnuminnan lóára.
REGNBOGINN:Sjá auglýsingu.
;STJÖRNUBÍÓ:Close Encountersof theThird Kind,
kl- 5,7.30og 10.
TÓNABÍÖ: Enginn er fullkominn (Some like it hot).
Aðalhlutverk: Tony Curtis, Jack Lemmon og Marlyn
Monroe. Leikstjóri Billy Wilder. Sýnd kl. 5, 7.15 og
9.30. Bönnuðinnan 12ára.
HAFNARFJARÐARBÍÓ: Hrópað á kölska (Shout
at the Devil), leikstjóri: Peter Hunt, aðalhlutver'k-
Roger Moore, lan Hilm og Lee Marvin, kl. 9.
'í- '
? \
ENDURSKINS-
MERKI ERU
NAUÐSYNLEG
FYRIR ALLA
UMFERÐARRÁÐ
(
Útvarp
Sjónvarp
»
[ Fátt um fína drætti:
Allir eiga aö fá sitt
— vetrardagskrá útvarpsins með hefðbundnu sniði
j
Vetrardagskrá útvarpsins byrjar nú
21. október. Að sjálfsögðu breytist þá
dagskrá útvarpsins og eru margir
þættir sem hverfa af sjónarsviðinu, en
nýir þættir koma i staðinn. Deila má
síðan um hvort þeir séu betri eða verri
en þeir sem áður hafa verið.
í sumar hefur verið mikið af þáttum
með blönduðu efni. Þessir þættir detta
nú úr dagskránni og kemur annað í
staðinn. Margir þættir halda sér þóog
verða áfram. Aðrir verða áfram en
breyta um dag. Tónlist verður meiri i
útvarpi í vetur en verið hefur og
verður það tónlist af öllu tagi.
Breytileg
dagskrá...
Ef við byrjum á að taka sunnudaga
og athuga breytingar þar, er kannski
fyrst að nefna hádegiserindi sem kem-
ur inn í dagskrána kl. 13.20. Það er
Jónas Gíslason dósent sem mun sjá
um þáttinn og fjallar hann um siða-
skipti á Islandi. Léttir blandaðir þættir
sem hafa verið á þessum tíma í sumar
hverfa alveg.
Á tímanum frá kl. 15—16 verður
breytileg dagskrá. Er þá átt við þátt
með blönduðu efni. Ekki verða þætt-
irnir samt eins alla sunnudaga. Einn
sunnudag verður þátturinn tileink-
aður einhverjum sem fær að vera dag-
skrárstjóri í klukkustund. Annan
sunnudag verður þátturinn með efni
úr Reykjavík og síðan koll af kolli.
Ekki hefur enn verið ákveðið hverjir
muni stjórna þáttum þessum.
Kl. 16.00 verður síðan þáttur er
nefnist Á bókamarkaði. Þátturinn er
tileinkaður jólabókunum og verður
lesið úr nýjum bókum. Þáttur þessi
verður fram að jólum. Kl. 19.35
verður síðan Bein lína, þáttur sem
naut mikilla vinsælda hér fyrir um
einu ári. Það eru fréttamennirnir Kári
Jónasson og Vilhelm G. Kristinsson
sem sjá um þann þátt. í þættinum er
ætlunin að stjórnmálamenn svari
spurningum frá hlus(endum. Ekki er
enn ákveðið hvort þáttur þessi verði á
hverjum sunnudegl Blönduð tónlist
verður síðan allan daginn á milli dag-
skrárliða. Ekki fáum við danslög aftur
á sunnudagskvöldum, að minnsta
kosti ekki strax.
Nýr þáttur með
blönduðu efni
Nýr þáttur mun síðan hefja göngu
sína kl. 7.25 alla fimm virka morgna.
Sá þáttur er í umsjá Páls Heiðars Jóns-
sonar og Sigmars B. Haukssonar.
Þættir þessir verða með blönduðu efni
úr daglega lifinu. Verður þá vitnað í
blöðin og slegið á þráðinn til fólks úti 1
bæ. Þáttur þessi likist þætti sem er I
BBC og nefnist Today. Kl. 17.00 á
mánudögum verður síðan barnaleik-
rit. Fyrsta leikritið sem flutt verður er
eftir Andrés Indriðason.
Lög unga fólksins halda áfram á
mánudágskvöldum kl. 20.00, en nú
lengist þátturinn ofurlítið eða til kl.
21.10. Þá mun hefjast þátturinn Á
níunda tímanum sem færist af mið-
vikudagskvöldum. Þátturinn mun
breyta um nafn og heita framvegis Á
tíunda tímanum. Kl. 22.45 verður
siðan myndlistarþáttur og hefur ekki
verið ákveðið hverjir verða stjórn-
endur þess þáttar. Klassísk tónlist
verður siðan fyrir síðustu fréttir
kvöldsins.
Á þriðjudögum breytist dagskráin
ekki ýkja mikið en þó þannig að þátt-
urinn Á frívaktinni verður nú eftir há-
degið i stað þess að vera á fimmtudög-
um. Útvarpssagan verður áfram á dag-
skrá á þriðjudögum og einnig þáttur-
inn Á hljóðbergi. Erindi verða áfram
kl. 19.35 og Kvöldvakan kemur inn í
dagskrána. Kvöldvakan er þáttur með'
þjóðlegu efni, ekki ósvipaður þáftur og
Sumarvakan sem var í sumar.
Skólamál og
þáttur um f lug
Á miðvikudögum verður endurtek-
inn þáttur um íslenzkt mál sem annars
verður á laugardögum. Kl. 20.00 hefst
nýr þáttur um skólalíf unglinga í fram-
haldsskólum. Þetta verður hálftíma
langur þáttur og gerður fyrir ungt
fólk. Stjórnendur hafa ekki verið
ákveðnir enn. Þættirnir Svört tónlist
og Jazz sem eru á miðvikudagskvöld-
um halda áfram. Þáttur um flugmál
verður einnig á dagskrá útvarpsins á
miðvikudögum, en þó hálfsmánaðar-
lega. Stjórnendur þess þáttar eru Pétur
Einarsson og Oddrún Kristjánsdóttir,
en þau starfa bæði hjá flugmálastjóra.
Á móti þættinum um flugið verður
síðan þáttur frá Norðurlandskjördæmi
eystra. Verður það aðsent efni frá því
svæði um markverða hluti. Þáttur um
tónlistarmál verður einnig á miðviku-
dögum kl. 22.45. Hermann Gunnars-
son mun halda áfram með íþróttaþátt-
inn sinn á miðvikudagskvöldum.
Nýr skemmti-
þáttur
Á fimmtudögum breytist lítið. Leik-
ritin halda áfram og einu sinni í
mánuði verður nýr þáttur sem kalla má
skemmtiþátt. Sá þáttur verður í um-
sjón Jónasar Jónassonar. Jónas mun
fá til sín fólk í útvarpssal og hafa í
frammi ýmis gamanmál ásamt ungu
fólki. Þátturinn verður klukkustundar
langur. Viðsjá verður nú einu sinni í
viku, á fimmtudagskvöldum kl. 22.45.
Föstudagar verða einnig með svip-
uðu sniði en Kvöldvaktin mun þó falla
af dagskránni. Kl. 19.35 verða viðtals-
þættir. Hljómleikar með Sinfóniu-
hljómsveit Íslands verða á föstudögum
og nýr söguþáttur kemur inn í dag-
skrána. Söguþátturinn verður í umsjá
Brodda Broddasonar og Gísla Gunn-
laugssonar.
Gerningar, þáttur í umsjá Hannesar
Gissurarsonar, mun einnig verða á
föstudagskvöldum. Kvöldsagan
verður síðan kl. 22.05 og verður hún
lesin föstudags-, laugardags- og sunnu-
dagskvöld. Kl. 22.45 verður síðan bók-
menntaþáttur 1 umsjá Önnu Ólafs-
dóttur.' Bókmenntaþátturinn verður
annan hvern föstudag en á móti Önnu
verður Hulda Valtýsdóttir með þátt
sem enn hefur ekki verið ákveðið
hvernig verður.
Blandaður þáttur
með fjórum
stjórnendum
Laugardagurinn á að byrja með tón-
listarþætti sem Guðmundur Jónsson
píanóleikari sér um og hefst sá þáttur
kl. 7.25. KI. 13.30 verður rúmlega
tveggja stunda langur þáttur með
blönduðu efni. Stjórnendur þáttarins
verða fjórir. Það eru þau Ólafur Geirs-
son sem hefur verið með Brotabrot á
laugardögum, Jón Björgvinsson, sem
starfar hjá kvikmyndadeild sjónvarps-
ins, Þórunn Gestsdóttir, sem verið
hefur með þáttinn Krydd á sunnudög-
um, og Ögmundur Jónasson frétta-
maður.
Kl. 15.40 verður síðan þátturinn
íslenzkt mál. Orðabókarmenn Háskól-
ans sjá um þann þátt og verður hann
tuttugu mínútna langur. Vinsældalist-
inn heldur áfram I umsjá Vignis
Sveinssonar. Annan hvern laugardag
verður síðan þáttur um trúarbrögð kl.
17.00. Það eru tveir guðfræðinemar
sem sjá munu um þann þátt. Kl. 19.35
verður á dagskrá léttur þáttur, Efst á
spaugi, sem verið hefur undanfarna
laugardaga og mun að öllum líkindum
halda eitthvað áfram.
Þá höfum við tekið fyrir það helzta
nýlegt sem kemur fyrir i vetrardagskrá
útvarpsins og er vonandi að allir fái nú
eitthvað við sitt hæfi. Þess má geta hér
að þátturinn Danslög á laugardögum
lengist til kl. 1.00 eftir miðnætti. Dag-
skrárlok verða alla aðra daga kl. 23.50.
Og þá er bara að biða eftir fyrsta
vetrardegi, því frá og með þeim degi
breytist dagskráin samkvæmt því ,sem
hér hefur verið lýst.
- ELA
(í
j)
Föstudagur
13. október
12.25 Veðurfregnir. Fréttir. Tilkynningar. Við
vinnuna: Tónleikar. 14.45 Lesin dagskrá
næstu viku.
15.00 Miðdegissagan: „Föðurást” eftir Selmu
Lagerlöf. Bjöm Bjamason frá Viðfirði þýddi.
Hulda Runólfsdóttir lessögulok (17).
15.30 Miðdegistónleikar: Melos kvartettinn
leikur Strengjakvartett nr. 1 i c moll op. 51
eftir Brahms.
16.00 Fréttir. Tilkynningar. (16.15 Veður-
fregnir). Popp. Þorgeir Ástvaldsson kynnir.
17.20 Hvað er að tarna? Guðrún Guðlaugsdótt-
ir stjórnar þætti fyrir börn um náttúruna og
umhverfið: Hafís.
17.40 Barnalög.
17.50 Tóbaksnotkun. Endurtekinn þáttur
Tómasar Einarssonar frá siðasta þriðjudegi.
18.05 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki.Tilkynningar.
19.35 Skátastarf á Akureyri. Böðvar
Guðmundsson talar við Gunnar Helgason
félagsforingja.
20.00 Fyrstu aðaltónleikar Sinfóniuhljómsveitar
íslands á nýju starfslári, hljóðritaðir í Há-
skólabíói kvöldið áður: — fyrri hluti. Stjórn-
andi: Rafael Frúhbeck de Burgos frá Spáni.
Einleikari á pianó: Stephen Bisho Kovacevitsj
frá Bretlandi. Pianðkonsert nr. 5 i Es-dúr
„Keisarakonsertinn" op. 73 eftir Ludwig van»
Beethoven.
20.45 „Tíminn og vatnið”. Þáttur um Stein
Steinar skáld, áður útvarpað haustið 1975.
Gylfi Gröndal tekur saman þáttinn og ræðir
við Ásthildi Bjömsdóttur, Jón Óskar og
Matthías Johannessen.
21.15 Etýður eftir FernandoSor. Marciso Yepes
leikurá gitar.
21.40 Úr nyrztu byggðum Strandasýslu. Gísli
Kristjánsson fyrrum ritstjóri hefur tal af Bergi
Hjartarsyni verkstjóra og Gunnsteini Gisla-
syni kaupfélagsstjóra (Viðtölin voru hljóðrituð
fyrir rúmuári).
22.00 Kvöldsagan: „Sagan af Cassius Kennedy”
eftir Edgar Wallace. Valdimar Lárusson les
(2).
22.30 Veðurfregnir.Fréttir.
zi.50 Kvöldvaktin. Umsjón: Ásta R.
Jóhannesdóttir.
23.50 Fréttir. Dagskrárlok.
^ Sjónvarp
Föstudagur
13. október
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Auglýsingar og dagskrá.
20.35 Geirfuglasker við Nýíundnaland. Kana-
dísk mynd um gamla geirfuglabyggð. Þýðandi
og þulur Gylfi Pálsson.
21.00 Kastljós. Þáttur um innlend málefni.
Umsjónarmaðurómar Ragnarsson.
22.00 Skipbrotsmennirnir. Bandarisk sjónvarps-
kvikmynd. Aðalhlutverk Martin Sheen, Diane
Baker og Jom Bosley. Skemmtiferðaskip ferst
i fárviðri. Sautján manns, farþegar og skip-
verjar, komast i björgunarbát, sem aðeins er
ætlaður átta, og margir hanga utan á honum.
Myndin er ekki við hæfi bama. Þýðandi Jón
Thor Haraldsson.
23.15 Dagskrárlok.