Dagblaðið - 14.10.1978, Síða 4

Dagblaðið - 14.10.1978, Síða 4
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 14. OKTÓBER 1978. DB á ne vtendamarkaði SALTFISKUR Til eru þau heimili þar sem það þykir nálgast helgispjöll að borða kjöt á laugardögum. Og af því að við höfðum svo fínan og dýran mat 1 gær skulum við borða fisk í dag, soðinn saltfisk. Kílóið af útvötnuðum saltfiski kostar núna 583 krónur og dugar það fyrir 5—6. Látið fiskinn í sjóðandi vatn og sjóðið hann í 10—15 mínútur. Veiðið Enginn helmingsmunur á molasykursverði íBorgarnesi Hringt var frá Borgarnesi og vakin athygli á mótsögn i fyrirsögn og grein á neytendasiðunni á þriðjudaginn. I fyrirsögn stóð: Helmingsmunur á molasykursverði í Borgarnesi. Þegar greinin var hins vegar skoðuð nánar sást að 1 öllum verzlunum nema einni var gefið verð á einu kílói en i þeirri sem var með helmingi lægra verð var gefið upp verð á hálfu kilói. Verðið á sykrinum er því alls ekki lægst í verzlun Jóns Eggertssonar heldur í verzluninni Neskjör og munar þar 11 krónum. Beðizt er velvirðingar á mannlegum mistökum. Neytendasamtökin safna félögum: ÞVÍFLEIRI ÞVÍSTERKARI Neytendasamtökin hyggjast núna næstu daga gera stórátak til aðauka félagatal sitt og styrkja samtökin með nýjum félögum. Herferðin hefst 1 dag þó laugardagur sé og geta menn þá hringt i síma 21666 frá kl. 10 til 5 og látið skrá sig í félagið. Árgjaldið er núna 2000 krónur og fyrir það fá menn Neytendablaðið ásamt þeirri þjónustu sem samtökin veita. Óþarft er að taka fram að því fjöl- mennari sem Neytendasamtökin eru því betri þjónustu geta þau veitt neytendum og ætti því að vera hagur allra að ganga í samtökin. DS. Akranes Fyrstu leigu- og söluíbúðirnar, sem byggðar hafa verið á vegum Akraneskaupstaðar, eru hér með auglýstar til leigu eða sölu. íbúðirnar eru 2ja og 3ja herb. í íbúðablokkinni nr. 1—3 við Vallarbraut. Umsóknarfrestur er til 25. okt. nk. Umsóknareyðublöð eru afhent á bæjarskrif- stofunni. Bæjarstjóri. KVARTMÍLUKEPPNI Kvartmíluklúbburinn mun halda kvartmílukeppm á braut klúbbsins við Álverið i Straumsvík sunnudag- inn 22. okt. eða 29. okt. Keppt verður i öilum flokkum skráðra ökutækja. Upplýsingar um keppn- ina og skráning keppenda fer fram í síma 74351 milli kl. 20.00 og 22.00 fram á fimmtudaginn 19. okt. og í síma 21410 milli kl. 13 og 18 fimmtudag- inn 19. október. Kvartmíluklúbburinn froðuna af áður en fiskurinn er færður upp. Beztur er saltfiskur auðvitað með hamsatólg og nýju kartöflum. En einnig er hann góður með soðnum rófum og jafnvel gulrótum, bræddu smjöri eða sinnepssósu. Séð hef ég fólk borða hrísgrjón og karrísósu með salt- fiski og þótti gott. Aðrir borða ekki saltfisk öðruvísi en með grænmetis- jafningi. Skammturinn af soðnum saltfiski kostar um 100 krónur. Með kartöflum og tólg fer hann upp í ca 140 kr. DS. Uppskrift dagsins [ Sakkann ítyggjói og tannkremi: Enginn sér um að auglýsingar standist Haft var samband við Neytendasið- una vegna auglýsingar í sjónvarpi. 1 þeirri auglýsingu er sagt að ákveðið tyggigúmmí sé sykurlaust og þar af leiðandi skaðlaust fyrir tennur. Sá er haföi samband við síðuna sagðist hins vegar hafa heimildir fyrir því að i tyggjóinu væri sakkarin sem ekki væri siður hættulegt tönnum. Sakkarin sagði hann einnig vera I algengum gerðum af tannkremi og nefndi þá sér- staklega bandarískt tannkrem. Aftur á móti væri tannkrem frá Norður- löndum oftast sykur- og sakkarínlaust. Maðurinn vildi vita hvort leyfilegt væri að auglýsa í islenzkum fjölmiðli að vara hefði einhverja eiginleika sem hún hefur ekki. Það er vitaskuld ekki leyfilegt. En hitt er aftur annað mál að enginn aðili er til hér á landi sem gengur úr skugga um að auglýsingar standist nema kærur séu lagðar fram. Að sögn Williams Th. Möller fulltrúa lögreglu- stjórans í Reykjavík koma öll slík kærumál fyrst til lögreglunnar. Þau væru sárafá að því er hann vissi um. Þegar kært er er það annaðhvort út af beinum svikum við kaupendur eða þá vegna ólögmætrar samkeppni. Þegar kaupendur telja sig svikna er ekki um annað'að ræða fyrir hvern einstakan en að kæra til lögreglunnar og gildir hið sama um'aðila sem telja samkeppni ekki jafna. Sé talin ástæða til að rannsaka málið er það gert og að þvi loknu fer málið fyrir dóm. Upplýsíngaseðill til samanburóar á heimiliskostnaði Nafn áskrifanda Heimili Simi Hvaó kostar heimilishaldiö? Vinsamlegast afhendió þennan svarseöil um leiö og þér greiðió áskrift næst. Á þann hátt verðið þér virkur þátttakandi í upplýsingamiölun meöal almennings um hvert sé meöaltal heimiliskostnaðar fjölskyldu af sömu stærö og yðar. Kostnaöur í septmánuöi 1978 Matur og hreinlætisvörur kr.______________________ Annaó kr____________________ Alls kr. _ Fjöldi heimilisfólks_____

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.