Dagblaðið - 14.10.1978, Page 6
6
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 14.QKTÓBER 1978.
Sími 29922 Fasteignir
Opið alla daga og öll kvöld vikunnar
Dalsel
2 herb. 80 ferm sérlega vel hönnuð og vönduð íbúð i sérflokki með
bilskýli.
Skúlagata
3 herb. 80 ferm. íbúðáefstu hæðí fjölbýlishúsi.
Vesturbær
Gamalt en vel við haldið einbýlishús ásamt byggingarlóð til sölu eða í
makaskiptum fyrir góða hæð í vesturbæ.
Bárugata
4 hérb. 116 ferm góð ibúð á 2. hæð i góðu steinhúsi til sölu eða i
skiptum fyrir góða hæð í vesturbæ.
Sólvallagata
100 ferm 4 herb. vönduð og sólrík íbúð til sölu eða i makaskiptum
. fyrir 4—5 herb. hæð.
Álfheimar
3—4 herb. 110 ferm toppíbúð í fjórbýli, laus strax.
Barmahlíð
3 herb. 75 ferm jarðhæð í fjórbýlishúsi, sérstaklega snyrtileg og vel
umgengin íbúð, til sölu eða i skiptum fyrir2 herb. íbúð.
Efstasund
3 herb. 80 ferm jarðhæð í þríbýlishúsi, björt og falleg íbúð, í sér-
flokki, til sölu eða í skiptum fyrir íbúð á 1. eða 2. hæð.
IMorðurbraut Hafnarfirði
3 herb. risibúð í tvíbýli, sem nýtt hús með góðum garði.
Blöndubakki
4 herb. 110 ferm ibúð með herbergi í kjallara til sölu eða4 skiptum
fyrir einbýlishús, má vera gamalt.
Skólagerði
96 ferm ibúð á 1. hæð i fjórbýli, sérlega vönduð og góð eign. Höfum
til sölu neðri hæð í tvíbýli 90 ferm, 3 herb., á góðum stað í Árbæjar
hverfi, lausstrax.
Melgerði
Sérhæð i tvíbýli, 3 herb., góð stofa, sérinngangur, sérhiti, suðursvalir
40 ferm upphitaður bílskúr, falleg og góð eign i fallegu umhverfi.
Makaskipti
Höfum ávallt fyrirliggjandi fjölda góðra eigna i makaskiptum, s.s. i
Hlíðum, vesturbæ, Hraunbæ, Garðabæ, Kópavogi og Hafnarfirði.
Höfum fjársterka kaupendur aö öllum gerðum eigna.
Góð útborgun. Staðgreiðsla kemur til greina fyrir rétta
eign.
FASTEIGNASALAN
ASkálafell
Mjóuhliö 2 (viö Miklatorg)
Sölustjóri: Svcinn Frcyr
Sölum. Valur Magnósson.
Hcimasimi 85974.
Lögm: Ólafur Axdsson hdl.
Grindavík
Þórkötiustaðahverfi
Dagblaðið vantar umboðsmann frá 1.
nóvember.
Uppl. gefa Elín Þorsteinsdóttir, sími
8163 og afgreiðsla 22078.
Piltur eða stúlka,
17 til 20 ára með bílpróf, óskast til starfa við
sendi- og lagerstörf.
KRAFTUR HF.f
VAGNHÖFÐA 3, SÍMI85235.
Keflavík - Ný námskeið
Ný námskeið eru að
hefjast. Barna- og full-
orðinsflokkar.
Innritun í húsi UMFK
Hafnargötu 6 mánu-
dag og þriðjudag kl.
20.
JÓN L ÁRNAS0N
SKRIFAR UM SKÁK
„HAPPDRÆTTl HVOR
VINNUR □NVÍGIД
- sagði Kortsnoj eftir sigurinn 131. skákinni
Viktor Kortsnoj sigraði glæsilega i
31. einvígiskákinni, sem var tefld
áfram í gær, og hefur því tekist að
jafna metin í einviginu. Staðan er nú
5—5 og allt er á suðupunkti i Baguio
því sá vinnur einvígið sem fyrr hlýtur
6 vinninga. 1 síðustu 4 skákum hefur
Kortsnoj fengið 3 1/2 vinning gegn
aðeins 1/2 vinningi heimsmeistarans
og nú er spurningin sú, hvort honum
takist að halda þessari sigurgöngu
áfram. Eftir skákina í gær sagði
Kortsnoj að nú væri það algjört happ-
drætti hvor ynni einvígið. Aðeins ein
lítil mistök — og öllu væri lokið.
Svo undarlega vill til að þrjú síðustu
töp Karpovs hafa öll komið eftir að
nýr maður hefur bæst í sovéska
hópinn. Þegar staðan var 5—2 í
einvíginu kom sovéski stórmeistarinn
Vasiukov beint frá Indlandi, þar sem
hann sigraði á alþjóðlegu skákmóti.
Kvöldið sem hann kom tapaði
Karpov. Nokkrum dögum seinna kom
sovéski geimfarinn Sebastianov, sem
nú er forseti sovéska skáksambands-
ins, og enn tapaði Karpov. Allt er
þegar þrennt er og þegar íþróttamála-
ráðherra Sovétríkjanna Ivonin kom á
vettvang fékk Karpov eitt núllið enn.
Ekki sakar að geta þess aö allir þessir
menn komu til að halda upp á
krýningu Karpovs sem heims-
meistara! Eitt er víst — sovéski
hópurinn á ekki eftir að stækka mikið
héðan í frá!
Eftir að skákin fór í bið má segja að
hún hafi verið leikur kattarins að
músinni. Kortsnoj tefldi alveg eins og
heimsmeistari og leyfði Karpov ekki
að komast upp með neitt. Eftir
glæsilega peðsfórn í 52. leik átti
Karpov sér ekki viðreisnar von og
mátti gefast upp 20 leikjum síðar. En
skákin talarsínu máli:
Kortsnoj af stakri snilld.
47. — gxf5 48. gxf5 Hg8
48. — Ha8 er einfaldlega svarað
með 49. Ha2, ásamt Kc3 og d4-d5,
sem fylgt er eftir með Kd4 eða Kb4
eftir atvikum.
49. Kc3!I
Eftir næturlangar rannsóknir hafa
Kortsnoj og menn hans fundið þennan
bráðsnjalla leik. Flestir bjuggust við
49. d5l? en svartur svarar sterklega
með 49. — Hd8! 50. d6 He8! og eins
og lesendur geta sannreynt er
peðsendataflið jafntefli.
49. — He8
49. - Hg3+ 50. Kb4 Hxh3 er
svarað á stórkostlegan hátt með 51.
a6! bxa6 52. d5! cxd5 53. c6! og
svartur er neyddur til að gefa hrók
sinn til að vama því að peðið verði að
drottningu.
50. Hd2!
Hér valdar hrókurinn d-peðið,
þannig að hvíti kóngurinn getur farið
að geysast fram völlinn.
50. — He4 51.Kb4 Ke8
Svartur verður að reyna að koma
kóngi sínum til varnar á drottningar-
vængnum en það dugir samt skammt.
52. »6!
Nú getur kóngurinn ruðst inn fyrir
vígiinuna.
52. — bxa6 53. Ka5 Kd7 54. Kb6!
52. — bxa6 53. Ka5 Kd7 54. Kb6!
A-peð svarts skiptir að sjálfsögðu
engu máli.
54. -b455.d5!
Taflmennska Kortsnojs er hreint og
beint aðdáunarverð. Hvítur fær nú
frelsingja á c-línunni sem svartur
ræður alls ekki við. Frelsingjar svarts
á drottningarvæng hafa ekkert að
segja.
55. — cxd5 56. Hxd5+ Kc8 57.
Hd3!
Undirbýr Hg3 — g8. Svartur er
glataður.
57. —a5 58. Hg3 b3
Þvingað, því nú getur svartur
svarað með 59. c6, með 59. — Hb4+.
59. Kc6! Kb8 60. Hxb3+ Ka7 61.
Hb7+ Ka6 62. Hb6+ Ka7 63. Kb5!
a4 64. Hxf6
Svörtu peðin falla nú hvert af öðru.
64. — Hf4 65. Hxh6 a3 66. Ha6+
Kb8 67. Hxa3 Hxf5 68. Hg3 Hf6 69.
Hg8+ Kc7 70. Hg7 + Kc871.Hh7!
Karpov gafst upp. Hann getur ekki
hindrað að hvítur ýti peðinu til h6 og
leiki síðan Ha8 + Kc7 — h7 Hh6 —
Ha8! þvj Hxh7 er svarað með Ha7 +
Bif reiðaíþróttaklúbbur Reykjavíkur gengst fyrir sparakstri:
HVER KEMST LENGST
Á FIMM LÍTRUM?
— um fjörutíu bifreiðir verða með í keppninni
Um það bil fjörutiu bifreiðir taka þátt
í svonefndum sparakstri sem Bifreiða-
iþróttaklúbbur Reykjavíkur gengst fyrir
á sunnudag. Hver bifreið fær fimm lítra
af bensíni og síðan verður keppt um
hver kemst lengst áður en siðasti drop-
inn brennur.
Keppendur leggja af stað um eitt-
leytið á sunnudag frá bensínstöð Skelj-
ungs við Reykjanesbraut (skammt frá
slökkvistöð Reykvíkinga). Þaðan verður
ekið sem leið liggur um Hamrahlíð,
Miklubraut, Vesturlandsveg, Þingvalla-
veg, Kjósarskarðsveg og síðan aftur út á
Vesturlandsveg. Alls verður keppt í átta
flokkum. Flokkun bifreiðanna fjörutíu
fer eftir vélarstærð.
Síðast efndi Bifreiðaíþróttaklúbbur
Reykjavíkur til sparaksturs fyrir um ári.
Þá komst Citroen SL lengst á fimm litr-
unum, tæpa eitt hundrað kilómetra. —
Á sunnudagsmorguninn verður öllum
keppnisbílunum safnað saman við
Laugardalshöllina. Þaðan leggja þeir af
stað um ellefuleytið og aka í halarófu að
bensínstöðinni við Reykjanesbraut.
• ÁT
Viðgerð nýja Eyjarafstrengsins:
STRENGURINN SAGAÐUR
í SUNDUR Á 40 M DÝPI
Viðgerðin á nýja rafstrengnum til
Vestmannaeyja hefur reynzt talsvert
erfið og vandasöm. Erfiðleikar hafa
verið við köfun á bilunarstaðnum
skammt frá Faxaskeri, aðallega vegna
strauma og veðurs.
Kristján Jónsson, rafmagnsveitustjóri
ríkisins, sagði í samtali við fréttamann
DB, að verið væri að saga strenginn í
sundur á um 40 metra dýpi. Síðan yrðu
endarnir teknir upp og skeyttir saman á
ný eftir viðgerðina.
„Viðgerðinni lýkur þá væntanlega á
sunnudagskvöld eða á mánudag,” sagði
Kristján. „Kafarar eiga erfitt með að
athafna sig á þessu dýpi og geta ekki
verið niðri nema stuttan tíma í einu.”
ÓV.