Dagblaðið - 14.10.1978, Page 7

Dagblaðið - 14.10.1978, Page 7
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 14.0KTÓBER 1978. Sparisjóðirnir anna 15-20% lánsumsókna — sparifé fer sífellt minnkandi í hlutfalli við þjóðartekjur „Ég efast um að sparisjóðirnir almennt geti uppfyllt lánaóskir nema fimmta til sjöunda hvers manns,” sagði einn stjórnarmanna Sambands íslenzkra sparisjóða á fundi með fréttamönnum í vikunni. Fréttamannafundurinn var haldinn í kjölfar aðalfundar sambandsins um sl. helgi. Minntu stjórnarmenn á að hlutfall sparifjáreignar landsmanna og þjóðarframleiðslunnar hefði minnkað verulega á undanförnum átta árum. „Um áramótin 1970 var heildarspari- fjáreign landsmanna um 40% af þjóðarframleiðslunni,” sagði Baldvin Tryggvason, formaður sambandsins, „en um síðustu áramót vantaði 42.5 milljarða upp á sama hlutfall. Orsökin er fyrst og fremst of lágir vextir.” Engu að síður var rekstrarafkoma sparisjóðanna góð á síðasta ári. Heildarinnistæður þeirra í árslok voru 15.3 milljarðar, höfðu aukizt um 44.6% á árinu, en almenn innistæðu- aukning hjá innlánsstofnunum það ár var 42.9%. Hlutdeild sparisjóðanna í innlánsfé landsmanna jókst því nokkuð og hefur enn aukizt á þessu ári. 1 lok ágúst var hún komin i 16%. 1 ályktun aðalfundar Sambands ísl. sparisjóða segirm.a.: „Á undanfömum árum hefur sparifé sífellt farið minhkandi i hlut- falli við þjóðartekjur og aðgerðir af hálfu stjórnvalda ekki reynzt þess megnugar að halda raunvöxtum og tryggja þannig hag sparifjáreigenda. Stjórn og varastjórn Sambands isl. sparisjóða. Frá vinstri: Ingólfur Guðnason, Páll Jónsson, Guðmundur Guðmundsson, Þór Gunnarsson, Baldvin Tryggvason formaður, Sólberg Jónsson, Ingi Tryggvason og Hallgrimur Jónsson. Fundurinn leggur áherzlu á að mennings á innlánsstofnunum undinn verði að því bráður bugur að landsins og verðgildi íslenzka gjald- tryggja á þann veg verðgildi sparifjár- miðilsins." innistæðna að aukið verði traust al- ÓV. ——_________________ ^ hljómdeíldín kynnir nýja hljómjþlötu ’fífty second street” * með Billy íJoel — geitungabú fannst í Laugarnesinu Deiiurnar í Sjálfstæðisf lokknum magnast: Geitungabú fannst í garði við Laugarnesveginn í gær. Var þar lif og fjör og mikið að gera hjá fjölda vinnu- dýra geitungadrottningar, sem tókst að handsama. Athugul kona tók eftir þvi nú i haust að fuglar sóttu ekki i frjósöm rifsberjatré í garði nágranna hennar. Þrestir og starrar hafa glatt íbúa hverf- isins, ekki hvað sízt i trjágörðum. Þeir hafa gætt sér á berjum runna og trjáa. Þótti konunni einkennilegt að þeir létu falleg og þroskuð rifsber eiga sig í fæðuöfluninni. í þessum garði hefur orðið vart flugna sem taldar voru venjulegar randaflugur. Síðsumars hefur komið fyrir að þessar flugur hafa stungið böm svo að miklum óþægindum hefur valdið. Hefur húðin hlaupið upp um- hverfis stungustaðinn. Datt hinni athugulu konu í hug að samband gæti verið á milli hinna árásargjörnu flugna og óskýranlegs lystarleysis spörfuglanna á safaríkum berjum. Hringdi hún í Náttúrufræði- stofnunina. Komu þá á vettvang Erling Ólafsson skordýrafræðingur og Kristbjörn Egilsson grasafræðingur. Var þeim vísað á hið líflega flugna- bú. Tókst þeim að fanga fjölda geit- unga og við frekari leit fundu þeir aðra drottningu til viðbótar þeirri sem fyrst fannst. „Hér verður mikið að gera í vor ef ekkert verður að gert,” sagði Erling Ólafsson í viðtali við fréttamann DB. er hann kom á staðinn. Hann sagði að auðvelt ætti að vera að eyðileggja búið eða búin. Til þess þyrfti þó nokkurt rask og leyfi garðeiganda. „Þessir geitungar eru komnir er- lendis frá. Þetta er annað tilvikið, sem við vitum um, að geitungar hafi komið sér upp blómlegu búi,” sagði Erling. Þegar vetur nálgast aftur drepast öll dýrin nema drottning eða drottningar. Áður en það gerist hefur náttúran valið karlflugur sem frjóvga egg drottninganna og deyja siðan. Drottn- ingin leggst í vetrardvala og vaknar svo með vorinu og klekur og þannig gengur þetta kynslóð eftir kynslóð, ár eftirár. Búin eru marghólfuð. svipað og hjá býflugum. Heldureru þetta hvimleiðir gestir og ekki með öllu skaðlausir. - BS Hann kvað geitunga berast frá öðrum löndum með vörum og varn- ingi. Til dæmis væru þeir á Norður- l'öndunum. Líklegast væri að frjóvguð drottning hefði komizt hingað þannig og lagzt svo i vetrardvala. Hún verpir síðan frjóvguðum eggjum að vorinu. Úr þeim klekjast síðan vinnudýr sem sjá um þarfir drottningar. Kristbjörn Egilsson og Erling Ólafs- son frá Náttúrufræðistofnuninni skoða geitungabúið, i Laugarneshverfinu. Krakkarnir i kring láta ekki á sér standa að fá kennslustund i skordýra- fræði. DB-mynd Hörður. Luku danskennara- próf um í Ipswich Þessi fríði hópur með mikilúðlegu hefðarfrúnni til vinstri eru íslenzkir danskennarar sem nýlega luku viður- kenndum danskepnaraprófum frá Ipswich School of Dancing í Englandi. Það var Sigurður Hákonarson úr Kópavogi (annar frá hægri) sem hafði milligöngu um að þau Rakel Guðmundsdóttir og Niels Einarsson úr Hafnarfirði tækju lokapróf sín frá nefndum skóla. Próf þeirra hafa verið viðurkennd af brezka danskennarasam- bandinu og Danskennarasambandi brezka heimsveldisins. Var lokið sér- stöku lofsorði á frammistöðu þeirra RakelogNielsar. Lengst til hægri er Anna Maria Guðnadóttir, sem tók áfangapróf í dansi við sama tækifæri, en skólastjóri Ipswich School of Dancing, frú Olga E Whitmont, er önnur frá vinstri. ÓV. Skipulega var staðið í vegi fyrir því að Albert Guðmundsson, fyrsti þingmaður Reykjavíkur, yrði tilnefndur af hálfu Sjálfstæðisflokksins í þingnefndir sem hann hafði hug á sæti í. Þetta gerðist þegar sjálfstæðismenn funduðu um val í þingnefndir eftir að frestað hafði verið þingfundum í fyrradagaðóskum þeirra. Eins og DB skýrði frá í gær eru deilur uppi í þingflokki sjálfstæðismanna um það hver gegna skuli stöðu formanns þingflokksins. Gunnar Thoroddsen gefur kost á sér en einhverjir þingmanna flokksins reyna að efna til mótframboðs. Ekki er auðséð að ágreiningurinn um Gunnar sé af sömu rót og þessi afstaða til Alberts, þótt vitað sé að Albert styður Gunnar sem þingflokksformann. Það gerir meirihluti þingflokksins einnig. Albert hafði hug á því að fá sæti í utanríkismálanefnd og viðskipta- og fjár- hagsnefnd neðri deildar. 1 hvoruga nefndina hlaut hann nægilegt fylgi í þingflokknum. Friðsamari menn reýndu að leysa ágreininginn, jafnvel með því að bjóðast til að standa upp fyrir Albert í nefndir. Þvi var ekki sinnt. Eins opinskáar og harðar deilur og þær, sem nú þjaka stærsta flokk landsins, gætu dregið alvarlegan dilk á eftir sér. Má vera að sá tilgangur hafi vakað fyrir hinum herskárri i forystuliði flokksins. - BS HHEVRLL Simi 8 55 22 Geitungar vörnuðu fuglum að gæða sér á rifsberjum ALBERT ÚTHÝST í VALIÁ MÖNNUM í MNGNEFNDIR

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.