Dagblaðið - 14.10.1978, Side 9
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 14.0KTÓBER 1978.
Hvítt: Sævar Bjarnason
Svart: Benedikt Jónasson
Drottningarbragð
1. c4 Rf6 2. Rc3 e6 3. Rf3 d5 4. d4
Rbd7 5. Bg5 c6 6. e3 Da5
Svartur teflir hið ævaforna Cam-
bridge-Springs afbrigði, sem hvað eftir
annað varð uppi á teningnum í hinu
sögufræga einvigi milli Alekhine og
Capablanca í Buenos Aires 1927.
7. Rd2 Bb4 8. Dc2 Re4?!
Upphafið að erfiðleikum svarts.
Traustari leikur ér 8. — 0-0, sem
hvítur má vara sig á að svara með 9.
Bd3? vegna 9. — dxc4 10. Rxc4 Dxg5
og svartur vinnur mann.
9. Rdxe4 dxe4 10. Bh4 0-0 11. Be2 e5
12.0-0 exd4 13. exd4 Bxc3
13. — g5 14. Bg3 f5 er sterklega
svarað með 15. f4! g4 16. Rdl og
hvitur hefur mun betra tafl.
14. bxc3 He8 15. f3! Dh5
Svartur á þegar í miklum erfiðleik-
um, þvi hann kemur mönnum sínum
ekki í gagnið. Hrókurinn á a8 og
biskupinn á c8 eru úr leik sem stendur
og riddarinn á d7 á ekki í mörg hús að
venda. Hann reynir því að bæta stöðu
drottningarinnar, en ein sin liðs
bjargar hún ekki miklu.
16. Bg3 Dg6 17. fxe4 Rf6
17. — H eða Dxe4 er svarað með
18. Bd3 og hvitur vinnur lið.
18. Bd3 Rxe4 19. Hael f5
111 nauðsyn. Biskupinn á c8 bætist
nú í peðasafn svarts og hann getur
litið annað gert en fylgst með að-
gerðum andstæðingsins. Sævar fer sér
að engu óðslega og bætir stöðu sína
hægt en örugglega og hefur bersýni-
lega mikið gaman af.
20. Be5 Be6 21. HD He7 22. Khl
Hf7 23. Hefl Haf8 24. Bf4 Kh8 25.
Bcl He8 26. Bf4 Hef8 27. Be5 Kg8
28. a4 Bc8 29.Hf4Be6
30. g4!
Eftir drjúgan undirbúning lætur
hvitur loks til skarar skriða. Svartur
getur sig hvergi hrært þvi 28. —
fxg4?? er auðvitað ekki mögulegt
vegna riddarans á e4.
30. — Dh6 31. Dg2
Svartur hótaði 29. — Rg3 +
31. — Rg5 32. gxf5 Bc8 33. Dg4 Dh3
34. Dxh3
Hvitur kýs að fara öruggu leiðina
og engu er í sjálfu sér spillt með þessu.
Einfaldari vinningsleið var þó 34.
Dxg5 Dxd3 35. Hgl og svartur verður
fljótlega mát.
34. — Rxh3 35. Hg4 h6 36. Hg3 Rg5
37. h4 Rh7 38. Hfgl Rf6 39. Hg6 Kh8
40. c5 h5 41. Hlg5
— og svartur gafst upp.
Guðmundur Ágústsson kom
nokkuð á óvart í 6. umferð er hann
lagði Björn Þorsteinsson að velli á
sannfærandi hátt. Við skplum nú líta
á hvernig þaðatvikaðist.
Hvltt: Guðmundur Ágústsson
Svart: Björn Þorsteinsson
Vængtafl.
l.RD Rf6 2.g3d5 3.c4dxc4
Traustari leikir eru 3. — e6 eða 3.
— c6.
hvergi hrært, því biskupinn á d7 er
óvaldaður. Svar svarts er þvi þvingað.
14. - exf5 15. exd5 Rd4 16. Dd2
Hfe8 17. Hfel f4 18. Hxe8 +
Við hver uppskipti eykst máttur
frelsingjans á d-línunni.
18. — Hxe8 19. Hel b5 20. Hxe8
Bxe8 21. Del! Kf8
Ef 21. — Bd7, þá 22. De5! með
lúmskri máthótun á b8.
22. Db4+ Kg8 23. Rd2
23. Rd6 er sterklega svarað með 23.
— f3!
23. — fxg3
Ef nú 23. — f3, þá 24. Bh3 og eftir
24. — Re2+ 25. Khl Dal + 26. Bfl,
hótar hvítur óþægilega 27. De7!
24. fxg3 a5!?
Þrátt fyrir mikið timahrak finnur
Björn skemmtilegan möguleika til að
halda taflinu gangandi.
25. Dc5?!
25. Dxa5 er betra, þó svartur fái
sóknarmöguleika fyrir peðið eftir 25.
— h5 (25. — Re2+ 26. Khl Dd4 27.
Rf3 Ddl+ er svarað með 28. Del).
T.d. 26. h4 Re2+ 27. Kh2 Df2 28.
Dc7 g5! 29. hxg5 h4! og staðan er
mjög tvisýn.
25. — h5?
Hér gat svartur leikið 25. — Re2 +
26. Khl Rxg3! 27. hxg3 Dh6+ 28.
4. Ra3 c5 5. Rxc4 Rc6 6. Bg2 e6 7.0-0
Be7 8. b3 0-0 9. Bb2 Rd5
Svartur á þegar við ýmis vandamál
að stríða, t.d. hvernig hann ætlar að
koma drottningarbiskupnum í gagnið.
Fyrst hyggst hann hins vegar stinga
uppibiskupinnáb2 með—Bf6.
10. d4!
Hvitur hefur komið öllum mönnum
sínum út og opnar þvi taflið hið snar-
asta.
10. —cxd411.Rxd4 Bd7?
Þessu svarar hvítur á skemmtilegan
hátt. Betri möguleiki var fólginn 111.
— Rxd4 o.s.frv.
12. Rf5! Bf6 13. Bxf6 Dxf6 14. e4!
Vel leikið! Riddarinn á d5 getur sig
Kgl Dxd2 og hefur góða jafnteflis-
möguleika. Fleiri tækifæri fær hann
hins vegarekki!
26. h4! Bd7 27. Re4 Re2+ 28. Kh2
De5 29. d6 Dal 30. Da7!
Svartur kemst nú ekki hjá manns-
tapi, þvi 30. — Bf5 er svarað með 31.
d7 Ddl og nú annaðhvort 32. Rc3!
eða 32. Db8 + Kh7 33. Rg5 + Kg6 34.
Db6+ f6 35. d8D og vinnur i báðum
tilvikum.
30. - f6 31. Dxd7 Dgl+ 32. Kh3
Ddl 33. De8+ Kh7 34. Rg5 + ! fxg5
35. Be4 +
— og svartur gafst upp.
Hin 17 ára Maja Tsjiburdanidse er
hinn nýi heimsmeistari kvenna í skák.
Sigraði Nonu Gaprindasvili heims-
meistara í einvíginu í Kákasus með
átta og hálfum vinningi gegn sex og
hálfum. Siðasta skákin — hin 15. í ein-
viginu — varð 94 leikir. Þá varð Nona
að sætta sig við jafntefli og heinis-
meistaratitillinn varglataður.
Riðuveiki breiðist mjög út:
OHUGNANLEGUR OG
OLÆKNANDISJUKDOMURISAUÐFE
— Hver eru einkenni veikinnar?
„Fyrstu einkennin eru dálítið breyti-
leg eftir landshlutum og einnig innan
sömu svæðanna. Einnig eru einstakar
kindur misnæmar. Sumar ættir standast
veikina betur en aðrar. Á flestum nýju
svæðunum er kláði mjög áberandi
einkenni snemma. Annars staðar sést
kláði aldrei eða mjög seint. Á Barða-
strönd er kláði líklega óþekktur.
Uppdráttarsýki er mjög áberandi ein-
kenni þ.e. féð missir hold þrátt fyrir
ágæta lyst. Það sem sumir taka fyrst
eftir er að kindin verður hrædd. Menn
lesa óttann úr augum hennar. Einnig
fara að koma kippir i andlitsvöðvana.
Þegar þessum kindum er klórað niður í
bakið láta þær mjög vel við þvi, kjamsa
út i loftið, jafnvel þótt kláði sé ekki mjög
áberandi einkenni á þeim svæðum.
Hárfinn vöðvatitringur finnst þegar
An0 yf'
tekið er á kindunum. Þeim bregður við
og þær fá krampaflog þegar komið er að
þeim óvörum. Þá er tannagnístur
stundum áberandi, væntanlega af
kvölum. Oft verður jarmurinn hás og
kraftlítill. Hins vegar fylgir sótthiti ekki
þessum sjúkdómi.
Kindin hættir að hafa fullt vald yfir
hreyfingum sínum og fer að riða til að
aftan og af því er nafn veikinnar dregið.
Þessi veiki er mjög óhugnanleg og þeir
sem sjá þetta gleyma því aldrei.
Yfirleitt kemur veikin aðeins upp í
einni kind á bæ í fyrstu og getur legið
niðri árum saman en getur líka magnazt
upp á fáum árum.
Algengt tjón á riðubæjum er frá 5—
10% en við höfum dæmi um að allt að
30% af ásetningsfé veikist.
— Leiðir veikin alltaf til dauða?
„Já. Veikin leiðir alltaf til dauða.
Ekkert læknislyf er til gegn henni og
ekkert bóluefni. Ekki er heldur til neitt
próf til að finna smitbera en vitað er að
kindur geta smitað nokkurn tíma áður
en einkenni koma fram. Tími frá þvi að
kind er sýkt og þar til einkenna verður
vart er frá 8 mánuðum og upp i 32
mánuði. Einnig liða margir mánuðir þar
til sjúkdómurinn leiðir kindina til dauða.
Kindin verður sjaldnast sljó eins og t.d.
við Hvanneyrarveiki. Ekki hallar hún
heldur höfði eða snýst í hringi. Hún
hefur fulla meðvitund og matarlyst fram
í rauðan dauðann.”
— Er þessi veiki til I öðrum dýrum eða
jafnvel mönnum?
„Veikin hefur ekki fundizt hér á landi
í öðrum dýrum en erlendis er hún þekkt
í geitum og einnig hefur verið hægt að
sýkja önnur dýr með henni. Það er til
sjúkdómur í mönnum sem líkist þessum
en það er langsótt að setja jafnaðarmerki
þar á milli. Samt er vissara að
umgangast riðukindur með fullri varúð
og hafa samband við dýralækni strax og
grunur um veikina vaknar. Á bæjum
þar sem riðuveiki hefur verið mikill tjón-
valdur mætti húgsanlega minnka tjón
með þvi að setja eingöngu á Iömb undan
eldri ám eða eldri hrútum sem staðizt
hafa veikina. Þá er nauðsynlegt að kippa
strax i einangrun þeim kindum sem fá
einkennin. Einnig er mjög brýnt að setja
þær ekki í hlöðu og alls ekki inn til lamb-
anna eins og stundum hefur verið gert.
Þess eru dæmi að hver einasta kind sem
kemur úr slíkum lambahópi hefur
drepizt úr sjúkdómnum.”
GAJ.
Hvers vegna æ fleiri munu ferðast
til FiEppseyja og Thailands
Þar er ýmislegt markvert að skoða — meðal
annars hina sögufrægu borg Manila með hinum
spánska bakgrunni og 20. öldina í Makati rétt við
hliðina, eldfjallagígurinn i Týndadal þar sem
baðast er í jarðhituðum laugum, spennandi báta-
ferðir um gljúfur Pagsanjan-fossasvæðisins og
hinn dýrlegi hitabeltisgarður Punta Balurte,
musteri og borgarsýki Bangkok að ekki sé
talað um múnaðinn allan á Pattaya-strönd.
Nútímalegt en ósnortið — alþjóðleg hótel (gædd
litauðgi landanna beggja) ódýrar samgönguleiðir
með vögnum, einkabílum, áætlunarbílum, nætur-
klúbbar, sannkallað fjör (allir geta dansað eftir
hljómfalli okkar Filippseyinga), samt er allt svo
ósnortið. Þægindi vestursins ásamt austrænu
andrúmslofti. Slíkt er ekki auðvelt að finna nú til
dags.
Austrið er ekki dýrt — Drykkur á hótelinu, að
borða úti, leigubílar, minjagripir, og svo allt þetta
aukalega, allt svo ódýrt að það verður næstum
ánægjulegt að eyða peningum.Nokkuð sem
ferðamenn í öðrum löndum eru löngu búnir að
gleyma.
I Undirritaður vill gjarnan heyra meira um hin fjarlægu austurlönd,
J Filippseyjar og Thailand. Vinsamlegast sendið upplýsingar til:
Nafn:
Heimili:
1 ZIIZZZZZZ^Z 1
I Sendið tii Philippine Airlines, 10 Collingham Road, London SW5
Philippine Airlines
TVISVARIVIKU FRÁ EVRÖPU