Dagblaðið - 10.11.1978, Síða 4
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 10. NÓVEMBER 1978.
DB á ne ytendamarkaði
Mosfellingar sjálf um sér nógir um flest:
Nú er komið apótek f sveitina
„Þaö virðist svo sannarlega hafa
verið orðin nauðsyn á að fá apótek
hingað í sveitina. Það hefur verið
mjög mikið að gera hjá okkur síðan
við opnuðumsagði Helga Vilhjálms-
dóttir, nýbakaður apótekari í Mosfells
Apóteki í samtali við DB.
Eins og nafnið bendir til er þetta
apótek i Mosfellssveitinni, nánar til-
tekið í verzlunarmiðstöðinni í Þver-
holti. Apótekið var opnað sl. laugar-
dag, 4. nóvember.
„Sveitarfélagið hefur áður sótt um
að fá auglýst lyfsöluleyfi, en sækja
verður um slíkt leyfi til ráðuneytisins.
Fyrir nokkrum árum var veitt leyfi
fyrir útibúi hér í sveitinni. Einn
apótekari sótti um það til tíu ára. Þótti
það of langur tími fyrir útibú og átti að
leyfa það til sjö ára. En sá sem sótti
um féll þá frá því. Sveitarfélagið sótti
síðan um að fá auglýst lyfsöluleyfi i
vetur og fékkst það,” sagði Helga.
Það má með sanni segja að full þörf
sé á apóteki i byggð sem telur á þriðja
þúsund líbúa.
Læknarnir í sveitinni voru orðnir
þreyttir á apóteksleysinu, því
stundum getur verið erfitt að ná síma-
sambandi við Reykjavík á anna-
timum og þeir gátu þurft að símsenda
lyfseðla i allt að tiu apótek í
höfuðborginni.
í nýja apótekinu starfa tvær
stúlkur, Bjarney Einarsdóttir, sem átti
aðeins að vera fyrir hádegi en hefur
einnig orðið að vera eftir hádegi
sökum þess hve mikið hefur verið að
gera. Hin afgreiðslustúlkan er Kristin
Ekkí ber & öðru en úrvaliö af lyfjunum sé dágott. Helga apótekari er aó afgreiða
lyfseðla.
Verkakvennafélagið Framsókn:
BASAR
Verkakvennafélagsins Framsóknar verður
haldinn laugardaginn 11. nóvember kl. 2 e.h. í
Alþýðuhúsinu.
Komið og gerið góð kaup.
Basarstjórnin.
Merkjasala
Blindrafélagsins
Sölubörn:
Merki afgreidd frá kl. 10.00 laugardaginn 11.
nóvember.
Afgreiðslustaðir.
Barnaskólar landsins, Holts apótek, Bjarkarás
við Stjörnugróf, Blindraheimilið, Hamrahlíð
17.
Seljið merki Blindrafélagsins.
Góð sölulaun.
-raijuniu!
TÖKUM AÐ OKKUR AÐ VÍKKA
LEGGI (KÁLFA) Á UPPHÁUM
SKÓM OG STÍGVÉLUM.
EIIMNIG RISTAR. PÓSTSENDUM.
Skóvinnustofa Hafþórs
Garðastræti 13a sími 27403
Segja má að Þverholt i Mosfellssveit sé verzlunarmiðstöð sveitarinnar. Þar eru nú, fyrir utan nýja apöteldð, bðka-
verzlun, raftækjaverzlun, kjörbúð og loks „sjoppa” auk bensinsölu. Þarna hefur áætlunarvagninn einnig eins konar
endastöð. Skammt frá erKaupfélag Kjalarnesþings og veitingastofan Áning. — Nú vantar aðeins bakarí!
DB-myndir Ragnar Th. Sigurðsson.
„Það er langmest að gera hérna hjá
okkur milli klukkan 2 og 5 á daginn,”
sagði Helga, „Þá koma húsmæðumar
úr sveitinni að verzla og skoða. Það
eru miklu fleiri konur heima hér á
daginn en mig óraði fyrir á meðan ég
vann sjálf i bænum. Mosfellssveitin er
alls ekki eins mikill svefnbær og
margir halda. Hér er heilmikið að
gerast á daginn,” sagði Helga.
Helga apótekari er gift Reyni
Eyjólfssyni, sem einnig er lyfjafræð-
ingur að mennt. Voru þau búsett í
Danmörku um tiu ára skeið. Þann
tíma vann Helga i apótekum, en
Reynir kenndi við lyfjafræðinga-
háskólann þar. Þau komu til landsins
árið 1971 og fluttu þá beint í Mosfells-
sveitina.
Nýja apótekið er hið vistlegasta.
Allar innréttingar eru teiknaðar og
hannaðar af Stefáni Snæbjörnssyni
arkitekt. Er t.d. loftið og lamparnir
hans sérsmíð.
Opið er i Mosfells Apóteki mánu-
daga til föstudaga kl. 9—18:30 og
laugardaga kl. 9—12.
Nú má segja að Mosfellinga vanti
ekki annað en bakari til þess að þurfa
nánast ekkert að sækja út fyrir
sveitina sína!
-A.Bj.
Við heimkomuna setti Reynir á
stofn fyrstu lyfjarannsóknarstofuna
hér á landi hjá Pharmaco og vann
hann þar um skeið. Hann vinnur nú i
heilbrigðisráðuneytinu. Helga hefur
hins vegar alltaf haldið sig við vinnu I
apótekum, þar til nú síðast er hún
Afgreiðslustúlkurnar eru tvær. Kristin Þorsteinsdóttir er snyrtisérfræðingur og
hefur áður unnið bæði i snyrtivöruverzluninni Clöru og i Borgarapöteki, Bjamey
Einarsdóttir hefur einnig áöur unnið i snyrtivöruverzlun. Hún átti aðeins að
afgreiða fyrir hádegi en sökum anna hefur hún orðið að vera allan daginn.
Helga Vilhjáimsdöttir apótekari i Mosfellssveit er enginn viðvaningur, þvi hún
hefur unnið i á annan tug ára i apótekum.
Þorsteinsdóttir snyrtisérfræðingur,
sem er við afgreiðslu eftir hádegið.
Þannig er þetta algjört kvennaapótek.
í nýja apótekinu er á boðstólum
gott úrval af snyrtivörum, nokkrar
tegundir af ilmvötnum, gjafavörur,
hjúkrunarvörur, fyrir utan öll lyf sem
afgreidd eru.
vann i heilbrigðisráðuneytinu. Þau
hjón eiga eina dóttur, sem er þrettán
ára gömul.
SILD OG EPLI
PASSA VEL SAMAN
Nú borðum við síld á meðan hægt
er að fá hana í verzlunum. Hér er upp-
skrift að síld og eplum (úr norskri
matreiðslubók) og segir í uppskriftinni
að þessi réttur falli bömum sérstaklega
vel i geð. Uppskriftin er fyrir fjóra.
1 kg síld
salt
1 meðalstór laukur
2 matsk. smjöri.
4 súr epli
rasp
rifinn ostur, smjörl.
Hreinsið síldina og takið úr henni
beinin (eftir megni). Stráið á hana
salti. Takið innmatinn varlega út og
hreinsið. Brúnið innmatinn með fint-
hökkuðum lauknum í smjörlíkinu.
Rífið eplin á rifjárni og látið i botninn
á eldföstu móti. Látið brúnaðan inn-
matinn ofan á og loks er síldinni raðað
þétt saman ofan á, látið hrygginn snúa
upp. Ofan á er stráð raspi og rifnum
osti og smjörlíkisklínu. Steikt i ofni í
15—20 mín. Borið fram með kartöflu-
mús.
Verð: Ef notuð er heil síld kostar
þessi réttur um 650 kr„ eða um 162,50
á mann. Ef hins vegar eru keypt flök
(þau kosta 700 kr. kg) kostar rétturinn
um 1000 kr. eða 250 kr. á mann.
-A.Bj.