Dagblaðið - 10.11.1978, Síða 9
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 10. NÓVEMBER 1978.
9
Erlendar
fréttir
REUTER
Ítalía:
Ellefu gripnir
við vopnagerð
Lögreglan á ítaliu handtók nýlega
ellefu öfgasinna eftir að hafa fundið
húsnæði, sem hún telur hafa verið bæki-
stöðvar vinstri sinnaðra skæruliða. Var
þetta nærri borginni Turin. Á staðnum
fundust að sögn lögreglu mikið af
vopnum auk mannanna ellefu sem voru
i óðaönn að útbúa sprengjur er lögreglan
kom að þeim. Búast má við að þeir verði
ákærðir fyrir það, auk ólöglegra vopna
ogannarra afbrotar.
Bretland:
Beðið
eftir
brauð-
unum
Brezkir bakarar eru i verkfalli eins
og fleiri ágætar starfsstétttir þar i
landi. Gera þeir sig síður ensvoánægða
með 5% tilboð atvinnurekenda og
heimta 26% launahækkun. Kröfu
þeirra var hafnað og hættu þá tuttugu
og sex þúsund bakarar störfum í
London einni. En fólkið vill auðvitað
sitt brauð eftir sem áður og á mynd-
inni sést þar sem hópur bíður í biðröð
eftir því litla af brauði, sem enn
kemur á markaðinn.
Washington:
Fallið frá vopna-
sölubanni á Kfna
Bandaríkin munu þó ekki samþykkja stórfelld vopnakaup
Bandarikjastjórn hefur látið þess
getið við bandamenn sína að hún
mundi láta það óátalið, að Alþýðu-
lýðveldinu Kina verði seld vopn. Ekki
hefur verið haft hátt um þessa
stefnubreytingu en hún mun þó ekki
tákna það, að Bandarikin muni að
óathuguðu máli fallast á víðtæka
vopnasölu til Kína.
Kinverjar hafa að undanförnu leitað
hófanna um vopnakaup hjá bæði Bret-
landi og Frakklandi ogöðrum Atlants-
hafsbandalagsríkjum. Allar sölur
þangað hafa þó stöðvast vegna and-
stöðu Bandarikjanna innan banda-
lagsins. Bandariska utanrikisráðuneyt-
ið gaf þá yfirlýsingu í gær að þessi
breytta • afstaða Bandaríkjanna væri
ekki líkleg til að auka vopnasölu til
Kína verulega á næstunni.
Þá var tekið fram að Bandaríkin
hefðu ekki lengur viljað láta stöðugi
liggja sér á hálsi fyrir að banna sölu á
vopnum til Kína. Sjálfir segjast Banda-
ríkjamenn ekki munu selja vopn
austur þangað vegna þess að það
mundi auka spennuna í samskiptum
við Sovétríkin mjög.
Vietnam:
Bera af
sérgas-
sprengju-
ásakanir
— yfirvofandi
fæðuskortur
vegna
uppskerubrests
Vietnam hefur harðlega mótmælt
þeim ásökunum að herlið þeirra hafi
beitt eiturgassprengjum í átökum á
landamærunum gegn Kambódíu.
Sagði útvarpið i Hanoi að þessar
ásakanir væru einvörðungu bornar
fram til að draga athyglina frá mikilli
hernaðaruppbyggingu Kinverja i
Kambódiu.
Samkvæmt upplýsingum starfs-
manna S.ameinuðu þjóðanna hefur
hernaðarástandið i Víetnam vegna
deilna við Kambódíu og erfiðleikar i
viðskiptum þar af leiðandi hægt mjög
á uppbyggingu þar eftir styrjöldina við
Bandarikin.
Sagði fulltrúi samtakanna að mjög
nauðsynlegt væri að senda þangað
birgðir matvæla því hið stríðsþjáða
land hefði orðið mjög illa úti i felli-
byljum og rigningu í ágúst og
september síðastliönum og mikið af
uppskerunni eyðilagzt.
<7
CHRÝSLER
0 SUÐURLANDSBRAUT 10. SlMAR; 83330 - 83454
*---- ^ ^
\\\
Sýnishorn úr söiuskrá:
\ \ ij/
i • 11 I
i m/
yy
m
Dodge Aspen SE '76,4,4 m.
Plymouth Volare '77,4,5 m.
j Swinger '72,2,0 m.
Dart '74,2,6 m.
Simca 1508 GT, 4,3 m.
Simca 1307 GLS, 3,2 m.
Simca 1100 S '77,2,7 m.
Mazda 818 '77,3,3 m.
Mazda 929 '75,2,6 m.
Saab 99 EMS '76,4,2 m.
Comet Custom '74,2,6 m.
Nova LN '75,3,5 m.
Benz 250, sjálfsk. '70,2,5 m.
Bronco '73,2,5 m.
Scout '74. Tilboð
Allegro station '78,2,4 m.
Mustang '74,2,950 m.
Peugeot 404, sjálfsk., '74,1,8 m.
Dodge Ramcharger '77,6,5 m.
Toyota Cressida '78,
sjálfsk., 4,8 m.
Concours '77,
einkabill, 5,0 m.
Volvo 142 '74,
sjálfsk., 3,3 m.
CHRYSLER
J]U
SUÐURLANDSBRAUT 10 — SÍMAR 83330 -83454