Dagblaðið - 10.11.1978, Síða 11

Dagblaðið - 10.11.1978, Síða 11
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 10. NÓVEMBER 1978. -11 Suður-Afríku og þá undir nafninu Suðvestur-Afríka. Talin er mikil hætta á að ef Suður-Afríka fari ekki að kröfum Sameinuðu þjóðanna varð- andi Namibíu verði gripið til harðra mótaðgerða og þá jafnvel olíuinn- flutningsbanns. Ljóst hefur verið um nokkurra mánaða skeiö að samkomulagið sem náðist í Ródesíu um að stjórn svartra skyldi taka við af stjórn hvitra var misheppnað. 1 það minnsta var ljóst að ekki mundi takast að koma á fyrir- huguðum kosningum, sem átti að halda áður en svarta stjórnin tæki við, fyrir áramót. Ástandið í skæru- hernaðinum hefur versnaö að mun fyrir hina hvitu íbúa. Fyrir nokkrum vikum varð Ian Smith forsætisráð- herra að viðurkenna fyrir ibúum lítils landbúnaðarþorps, þar sem tuttugu hvítir hafa verið drepnir að undan- förnu, að ekkert væri hægt fyrir þá að gera. Hvítir menn væru alls ekki nægilega margir til að standa fyrir nauðsynlegum vörnum á öllum stöðum. Stjórn hvítra í Ródesíu stóðst oliu- innflutningsbann auk algjörs inn- flutningsbanns i þrettán ár. Aðeins þurfti að breyta utanáskriftinni á þann farm, sem senda átti til Ródesiu. í staðinn kom aðeins Suður-Afríka, sem síðan sá um að senda vörurnar áfram til Ródesiu. Suður-Afríka getur aftur á móti ekki vænzt þess að nein þjóð taki að sér slíkt fyrir hana. Hún yrði að leysa sín vandamál sjálf. Afstaða stjórnanna í Washington, London og Paris er ekki lengur sú að Suður-Afríka sé varðmaður gegn áhrifum kommúnista i Afríku. Nú líta þessi stórveldi þannig á að tilvera þessa ríkis hvitra manna i óþökk svartra í landinu og allri Afríku sé. einhver mesta hættan fyrir uppgangi Sovétríkjanna í Afriku. Þessi stefna endurspeglast ljóslega í því að flest vestræn iðnríki hafa snúið sér veru- lega að auknum viðskiptum og fjár- festingum í ríkjum svörtu Afriku jafn- hliða því sem þau hafa farið sér hægar í Suður-Afríku. Margir sérfræðingar telja ekki neinn vafa á að ef vestræn riki þyrftu að velja á milli að styðja hina hvitu í Suður-Afríku eða halda aðstöðu sinni í öðrum ríkjum álfunnar þá mundu þeir ekki hika við að velja hið siðar- nefnda. Tveir nýskeðir atburðir þykja benda til að valið á milli þessara tveggja kosta muni verða fyrr en nokkurn grunaði. Um miðjan september síðastliðinn var hin svonefnda Bingham skýrsla gerð opinber. Samkvæmt henni varð ljóst að fjórar ríkisstjórnir í Bretlandi höfðu vitað í tíu ár að brezk olíufélög fluttu olíu til Ródesiu í gegnum Suður- Afriku þrátt fyrir viðskiptabann. Höfðu ríkisstjórnirnar ekki gert neitt til aðstöðva þessi viðskipti. Rikisstjórnir hinna svörtu Afriku- ríkja brugðust ævareiðar við þessum fregnum, einkum var þar um að ræða riki eins og Zambíu, sem hefur goldið refsiaðgerðanna gegn Ródesiu mjög efnahagslega. Callaghan forsætisráð- herra Breta varð að bregðast skjótt við og fljúga til Nigeriu þar sem hann hitti Kenneth Kaunda þjóðarleiðtoga Zambiu og fullvissaði hann um að stjórn hans mundi undir engum kringumstæðum láta slik brigðmælgi koma fyrir aftur. öllum er hins vegar ljóst að algjört viðskiptabann gegn Ródesíu tekst ekki nema Suður-Afríka taki þátt í því eða sett verði viöskiptabann á hana einnig. Tregða er hjá Suður-Afríku stjórn að fara að samþykktum Sameinuðu þjóðanna i Namibíu málinu og í stað þess hefur hún tilkynnt að þeir muni sjálfir standa fyrir kosningum og leysa vandann á þann hátt. Þetta gera þeir þrátt fyrir miklar tilraunir vesturveld- anna til að fá þá til að samþykkja leið Sameinuðu þjóðanna. Olíubann á Suður-Afríku er alls ekki lengur óhugsandi. Arabaríkin hafa ekki selt þangað olíu frá þvi árið 1973 og síðan hefur nær öll olia þangað komið frá íran. Vopnasölu- bannið sem samþykkt var hjá Sameinuðu þjóðunum fyrir skömmu sýnir Ijóslega hvert stefnir og þó Suður-Afrika geti i þetta skipti að likindum komizt hjá olíusölubanni með einhverju málamiðlunarsam- komulagi hvað varðar Namibíumálið verður þeim slíkt tæplega kleift aftur. sjálfstæðisbaráttu, sem sífellt er háð, eru öll af sama stofni. Misjöfn aðstaða? Segja má, að blaðaútgáfu lands- manna i dag megi skipa í tvo höfuðflokka, nefnilega þau blöð, sem gefin eru út í höfuðborginni annars vegar og hins vegar þau, sem gefin eru út annars staðar á landinu. Eins og kunnugt er, eru þau blöð, sem gefin eru út reglulega i höfuðborginni flest blöð eða málgögn stjórnmálaflokkanna, en nokkur eru þeim óháð. Annars staðar á landinu er þessu svipað farið. Flest landsmála- blöðin eru i tengslum við stjórnmála- flokkana og túlka skoðanir þeirra í málefnaflutningi, svo og i forystu- greinum sinum. Þegar litið er á þennan blaðakost allan, er ærið lestrarefni um að ræða, sem landsmenn eiga aðgang að. Og svo vill til, að fólkið í landinu er þurftarfrekt til lestrarefnis, það sannar reynslan. Ekki er óalgengt, að einstaklingar eða heimili séu áskrif- endur að fleiri en einu dagblaði, t.d. og stundum að fleiri en tveimur, auk viku- eða mánaðarrita. Auðvitað er það svo að stærstu blöðin ná mestri útbreiðslu. Þetta er eins konar „markaðslögmál” og gildir hvarvetna í hinu frjálsa markaðskerfi lýðræðisríkjanna. Um leið er þá hinu ekki að leyna að þau hin minni ná ekki til eins fjölmenns lesendahóps, ýmist vegna hins algilda lögmáls um „framboð og eftirspurn”, eða vegna þess að ppplagi blaðanna eru skorður settar vegna staðbundinna vand- kvæða ýmiss konar, sem ekki verða leyst öðru visi en til komi ráðstafanir, sem gera viðkomandi blaði kleift að auka upplag sitt t.d. með endur- nýjuðum tækjakosti, húsnæði, auknum starfsmannafjölda, eða auknu hlutafé — eða allt þetta þarf til. Eru þá þessar ástæðurnar fyrir þvi, t.d. að landsmálablöðin koma út i minna upplagi en flest blöðin á Reykjavíkursvæðinu? Eða er fólks- fæðinni einni um að kenna? Ef til vill er um hvort tveggja að ræða. Alla vega er þó erfítt að sætta sig við þá hugsun, að aðstaða annarra blaða en þeirra sem gefin eru út i Reykjavík sé svo miklu verri. Ef undan er skilin sú staðreynd að flest blöðin utan Reykjavíkur eru ekki gefin út daglega, ætti ekkert aö vera því til fyrirstöðu að þau væru, þrátt fyrir það, gefin út i miklu stærra upplagi en nú er raunin. Það nýmæli, sem tekið var upp fyrir nokkrum árum, að lesa úr forystugreinum dagblaða og lands- málablaða i útvarpi þá daga sem blöðin koma út, mæltist vel fyrir hjá flestum sem láta sig þessi blöð varða og hafa áhuga á islenzkum blaöakosti, almennt talað. 1 þessu efni hafa öll þau blöð sem gefin eru út reglulega jafna aðstöðu. Hitt er jafnvist að fekki nægir þessi aðstöðujöfnuður til þess að auka upplag blaða utan Reykjavíkur. Er' enda margt annað sem gæti ýtt undir þá þróun að landsmálablöðin og önnur blöð utan Reykjavikursvæðisins yrðu viðlesnari en þau eru nú og kæmusttil fleiri kaupenda, sem yrði til þess að upplag þessara blaöa ykist. Breyttar aðferðir Stóru blöðin á höfuðborgarsvæðinu SVIKJA ÞING- MENN VEST- FIRÐINGA? i nútima tæknivæddu þjóðfélagi er eitt af frumskilyrðum framþróunar að næg raforka sé fyrir hendi. Á þetta hefur mjög skort víða hér á landi og hefur það hamlað mjög eðlilegri byggðaþróun. Orkuskortur hefur viða verið á landinu og sum svæði, eins og t.d. Vestfirðir, hafa verið í orkusvelti. Ástand orkumála á Vestfjörðum hefur vægast sagt verið hið bágasta á undan- förnum árum. Ekki bara það að orku- skortur hafi hrjáð Vestfirðinga heldur hefur einnig sú raforka sem fyrir hendi er verið mjög ótrygg og valdið fjár- hagslega miklum sköðum, svo ekki sé nú talað um þann þátt málsins hvað Vestfirðingar hafa þurft að gjalda hina ótryggu raforku háu verði. Stofnun Orkubúsins Með tilkomu Orkubús Vestfjarða var það trú Vestfirðinga að rofa mundi til í þessum málum og var það ekki að ástæðulausu að sú von bærðist í brjóstum. Fögur voru þau fyrirheit stjórnvalda, sem gefin voru við stofn- un Orkubúsins. En þvi miður virðist enn ætla að sannast að eitt er loforð og annaðefndir. Ein meginforsendan fyrir stofnun Orkubúsins, og raunar sú sem tilvera þess fyrst og fremst byggðist á, va; að hin margumtalaða byggðalina, nú orðið vesturlína, kæmist i gagnið hið fyrsta og gæfi möguleika til nægrar orku á sambærilegu verði við það sem annars staðar gilti og að rikissjóður kostaði þá framkvæmd. Um þetta voru gefin afdráttarlaus fyrirheit og því hátíðlega lofað, meðal annars i umræðum á Alþingi á sl. vetri af þá- verandi iðnaðarráðherra, að lagningu vesturlínu yrði lokið á árinu 1979. Á að svíkja þetta loforð En skjótt skipast veður í lofti því hú mun ákveðið, að því er haft var eftir framkvæmdastjóra Orkubús Vest- fjarða nýlega I útvarpsviðtali, af rikis- stjórn launafólksins, sem sumir kalla, að fresta um eitt ár, eða til ársins 1980, að Ijúka framkvæmdum við vestur- línu. Ég geri ráð fyrir að Vestfirðingar almennt minnist hinna fjálglegu yfir- lýsinga þeirra þingmanna Vest- firðinga sem nú sitja á þingi um þetta mál svo og fleiri á framboðsfundum hér vestra á sl. sumri. Nú er komið að því að þeir standi við fyrirheitin og loforðin. Standi upp- réttir en lyppist ekki niður þótt ein- hverjum, sem nú telja sig æðstu presta, finnist það í lagi að koma með þessum hætti aftan að Vestfirðingum. Þess verður að krefjast af þingmönn- um Vestfjarða að þeir sjái svo um að staðið verði við hin gefnu fyrirheit um lagningu vesturlinu og að þvi verki verði að fullu lokið á árinu 1979. Verði það ekki gert og loforðin svikin þá skrifast þau svik ekki sístá þingmenn Vestfjarða því þá hafa þeir látiðráð- Kjallarinn Karvel Pálmason herrana niu talsins kúga sig til undan- halds I þessu lifshagsmunamáli Vest- firðinga. Kosið fremur að vera góðu börnin i augum ráðherranna en standa við loforðin gagnvart sinum um- bjóðendum. Eftir því verður tekið af Vestfirðingum hvort og þá hverjir þingmanna þeirra standa við loforðin. þvi þessu geta þeir ráðið ef þeir vilja. Bolungarvík, I nóvember 1978. Karvel Pálmason. hafa löngum gegnt hlutverki dagblaða almennings vitt og breittt um landið. Til þess að ná til lesenda sinna hafa þau, hvert um sig, eigið dreifingarkerfi og með öruggum og tiltölulega greiðum flugsamgöngum um allt landið ná blöðin til lesenda skömmu eftir að þau koma út. Dreifing blaðanna, þ.á m. lands- málablaðanna, um landið hefur tekið miklum framförum, eftir að flugsam- göngur mynduðu svo að segja sam- felldan hring í leiðakerftnu. Hér er komið aö mikilvægum þætti í aðstöðu blaðanna, til þess að gera þeim kleift að koma framleiðslu sinni til kaupenda. Og hér eiga blöð lands- byggðarinnar talsvert stærri leik á borði en e.t.v. hefur verið hugað að í nægum mæli. Með þá staðreynd I huga, að í Reykjavík er varla það heimili til sem ekki á hagsmuna að gæta einhvers staðar á landsbyggðinni, þótt ekki sé nema með skyldleika- eða fjölskyldu- tengslum í einhverju byggðarlaginu' eða kaupstaðnum, má fullvíst telja, að það væri vel þegin þjónusta við þetta fólk á höfuðborgarsvæðinu að hafa jafnan landsmálablöð til sölu á blaða- útsölustöðum þar sem blöð eru annars seld. Afar sjaldgæft er að sjá slik blöð til sölu á þessum stöðum í Reykjavík, jafnvel i fjölmennum hverfum, en eins og vitað er, þá eru þessir sölustaðir mjög fjölsóttir af fólki eftir aö verzlanir loka og um helgar. Og ekki er að efa, að þótt fólk hafi ekki hug á, eða komi í framkvæmd, að gerast áskrifendur þessara blaða myndu þau seljast á borð við annan blaðakost, sem þar er til sölu, ef rétt er á málum haldið, og í mörgum tilvikum auka áskriftafjölda þeirra. Nú er það einnig staðreynd, eins og áður er að vikið, að mörg landsmála- blaðanna eru gefin út og rekin á sömu forsendum og sum dagblöðin á höfuð- borgarsvæðinu, þ.e. með tilstuðlan stjórnmálaflokkanna eða I beinum tengslum við þá. Það er enn staðreynd að íslenzkir stjórnmálaflokkar eiga svipaðra hags- muna að gæta hvarvetna á landinu. Hví skyldu þá málgögn þeirra, hvar sem þau eru á landinu, ekki eiga greiðan aðgang að þeim lesendahópi sem, t.d. vegna stjómmálaskoðana, kaupir viðkomandi málgagn? En auðvitað þurfa ekki stjórnmála- skoðanir hér til að koma, að þvi er varðar lesendur sjálfa. Hitt væri engin goðgá, og i raun ekki nema þjónustuauki við lesendur (eða a.m.k. við hina föstu áskrif- endur), að hin stærri stjórnmálamál- gögn I Reykjavík tækju upp þá nýbreytni að dreifa, hvert fyrir sig, einu landsmálablaðanna til lesenda einu sinni í viku, t.d. með sunnudags- útgáfunni. Þetta þyrfti ekki alltaf að vera sama blaðið, þvi stjómmálaflokkamir eiga aðild að blöðum víðs vegar um landið. Til kynningar mætti viðhafa þessa aðferð í fyrstu. Kostnaði sem af þessu leiddi yrði t.d. jafnað þannig; að viðkomandi dagblað á höfuðborgar- svæðinu greiddi dreifingar- og flutningskostnað frá heimabyggð, en hefði tekjur að jöfnu við heimablað - (viðkomandi landsmálablað) af auglýsingum, sem aflað yrði á báðum stöðum. Við þetta ykist upplagafjöldi og tekjuöflun blaða víðs vegar um Kjallarinn Geir R. Andersen land og yrði til framdráttar báðum aðilum ef rétt er að staðið. 1 þeim umræðum, sem fram hafa farið að undanförnu i sambandi við ríkisstyrk til dagblaða, réttiátan eða óréttlátan og um rétt þann, sem dag- blöð gera tilkall til, að verðleggja blöð óháð verðlagsákvæðum, er ekki nema réttlátt að gera þá kröfu til þeirra á móti að þau sjálf leiti breyttra aðferða til þess að verðskulda það traust sem þorri landsmanna sýnir þeim með áhuga sinumáþeim. Blaðaútgáfa heldur áfram að hafa þýðingu fyrir sjálfstæði þjóðar, en breyttir tímar kalla á breyttar aðferðir, og I þeim efnum geta hinar smærri einingar haft frumkvæði, ekki síður en þær stóru. I því er styrkur lýðræðis fólginn, meðal annars. Geir R. Andersen.

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.