Dagblaðið - 10.11.1978, Síða 13

Dagblaðið - 10.11.1978, Síða 13
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 10. NÓVEMBER 1978. metrar á hæð og má engin bygging i borginni fara yfir þá hæð. 1 borgarferðinni var ekið framhjá Hvita húsinu. Undruðust ferðalang- arnir vinsældir Bandarikjaforseta, en landsmenn hans stóðu i langri biðröð eftir að fá að komast inn og skoða herlegheitin í veikri von um að sjá forsetanum eða einhverju af skylduliði hans bregða fyrir. Það tók okkur nokkrar mínútur að aka meðfram biðröðinni sem ersú lengsta sem menn höfðu séð, enda biðraðamenning framandi Islendingum. Auðvitað í verzlunarleiðangur Snæddur var hádegisverður á veitingastað i Virginiaríki, Evans Farm. Staðurinn er frá 18. öld og allt i gömlum stíl. Gömul verkfæri blöstu sér gott til glóðarinnar að komast i búðir. Gerðu menn þarna misjöfn kaup og eftir að allir voru komnir til baka úr leiðangrinum mátti heyra ýmsan samanburð á verði þar ytra og hér heima — yfirleitt útlandinu stórlega í vil. Aðrir létu sér nægja að ráfa um og skoða það sem á boðstólum var. Stefán Jasonarson sagðist ætla að kaupa sér hatt i stað þess sem stolið hefði verið frá honum á landbúnaðar- sýningunni á Selfossi í haust — það er að segja ef hann fyndi einhvern góðan og ódýran. En Stefán kom út hattlaus, sagðist hann ekki hafa lagt í hatta- kaupin sökum dýrleika þeirra sem á boðstólum voru.. En einhver keypti sér jakkaföt sem kostuðu sem svaraði 25 þúsund íslenzkum krónum. Kom í Ijós þegar betur var að gáð að jakkafötin voru saumuð i Kóreu og kemur þar skýring á lágu verði. — Erfitt er að lýsa með orðum einum svona verzlunarmiðstöð — en þær eru mjög algengar vestanhafs. Þetta er i rauninni miklu meira heldur en verzlunarmiðstöð, þvi þama fer fram ýmiss konar starf- semi, þannig að hægt er að dvelja þarna nánast allan daginn. Fólk fer Þarna var komið að lokum ferðarinnar og var mynd þessi tekin rétt áður en hópurinn lagði af stað til íslands á laugar- dagskvöldið. við augum gestanna. Athygli vakti að annar af þeldökkum framreiðslu- mönnum staðarins var með freknur. Minntust menn þess ekki að hafa áður séð kolsvartan negra með freknur. Voru starfsmenn klæddir i forna búninga, hnébuxur og spennuskó. Þama voru fluttar nokkrar skála- ræður og bornar fram hamingjuóskir til Flugleiða með nýju flugleiðina. Því næst var haldið af stað á nýjan leik og nú í gríðarlega stóra verzlunar- miðstöð, Tysons Corner. Kættust nú ferðalangamir að heiman og hugsuðu þama til þess að sýna sig og sjá aðra. Þarna eru mörg kvikmyndahús, auk lítilla og vistlegra matsölustaða. Þar fyrir utan eru þama fjölmargar verzlanir, en þær eru tengdar saman með flísalögðum göngum, þar sem eru bekkir á víð og dreif innan um blóma- skreytingar. Allt er þetta undir einu og sama þakinu og fólksmergðin var þarna mikil. Úti fyrir eru bílastæði svo langt sem augað eygir og varð einhverjum að orði að ekki veitti af að hafa strætisvagnaferðir frá yztu enda- mörkum þeirra. Komiðað leiðarlokum Nú var enn haldiö af stað i lang- ferðabilunum og ekið til hótelsins á nýjan leik. Tóku menn saman föggur sínar og skyldi nú halda út í sjálfa flug- stöðvarbygginguna, þar sem flugyftr- völd í Marylandríki buðu til enn einnar veizlunnar áður en halda átti heimleiðis klukkan 9. Starfsmenn Flugleiða frá Kennedyflugvelli voru komnir til Baltimore til þess að taka á móti fyrsta fluginu og var nú mikill handagangur í öskjunni að koma Tveir af fulltrúum landsmálablaðanna, Stefán Jasonarson frá Vorsabæ og Hall- dóra Magnúsd. frá Eyjablaðinu I Vestmannaeyjum. Þau áttu bæði sinn þátt f þvi hve fyrsta flugið til Baltimore var skemmtilegt. Hjá sendiherranum Nú var ekið sem leið lá til íslenzka sendiráðsins í Washington. Hans G. Andersen og kona hans Ástríður buðu til veizlu. Sendiherrabústaðurinn er mjög skemmtileg bygging og blakti islenzki fáninn þar yfir dyrum. Inni fyrir eru húsakynni hvitmáluð og á gólfum eru hvítar ábreiður. Sökkva menn i skóvarp, svo mjúkar eru þær. Heimili sendiherrahjónanna er einna líkast listasafni. Þar standa frammi margir góðir og fagrir gripir. íslenzk málverk prýða veggina. Mörg verk voru eftir sendiherrafrúna sjálfa, sem er fær listakona og hefur haldið mál- verkasýningar bæði heima og erlendis. Kom gestum saman um að málverk frúarinnar væru forkunnarfögur og landi okkar til hins mesta sóma. Veglegar veitingar voru frambornar hjá sendiherranum. Enn kom bóndinn úr Vorsabæ við sögu. Ávarpaði hann gestgjafana og þakkaði fyrir okkur ferðalangana. Færði hann frúnni postulínsdisk frá landbúnaðarsýning- unni í þakklætisskyni. öllum til baka og tékka inn eins og það er kallaðá „flugmáli”. Loks voru menn komnir út i flug- stöðvarbygginguna þar sem sanian komnir voru margir gestir. Enn var veittur matur, meðal annars gómsætur skelfiskur og fleira góðgæti sem neytt var með beztu lyst. Margir voru þó enn saddir eftir 'sendiherra- máltiðina og létu sér nægja að fá eitt- hvað til að væta kverkarnar með. Voru menn kátir og var mikið spjallað. Þarna voru enn haldnar skálaræður. M.a. talaði flugmálastj. Marylandríkis. Lýsti hann mikilli ánægju sinni með þennan nýja áfangastað Flugleiða. Taldi hann að þetta yrði lyftistöng allra flug- og atvinnumála almennt I Marylandríki þegar frant liðu stundir. Eins og áður segireru Flugleiðir fyrsta erlenda flug- félagið sem gerir Baltimore- Washington flugvöll að viðkomustað sinum. Loks var koniið að skilnaðarstund. Langsamlega flestir héldu heim á leið, „uppi i skýjunum" i fleiri en einum skilningi. Fáeinir tóku sig út úr hópnum og héldu á aðrar slóðir. Ln öllum kom saman uni að þessi skamma viðdvöl í Ballimore og Washington hefði verið alltof stutt og voru staðráðnir í þvi að koma aftur við fyrsta tækifæri. -A.Bj. Þarna má s]i nautalærið góða, sem m.a. var boðið upp á 1 fyrsta málsverðinum. Þarna eru þeir Sveinn Sæmundsson blaðafulltrúi, Alfreð Eliasson, einn af for- stjórum Flugleiða, Hermann Einarsson frá Vestmannaeyjum og Hans G. Ander- sen ambassador. / Stóraukiö kscfni í stívkkaóri Y iku Nú veröur WíM3 64. bls. f ramvegis er stækkuö

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.