Dagblaðið - 10.11.1978, Blaðsíða 24

Dagblaðið - 10.11.1978, Blaðsíða 24
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 10. NÓVEMBER 1978. Öll vildu þau í lukkupottinn dottið hafa Prýðisgóð þátttaka íget- rauninni um Bay City Rollers Svör bárust hvaðanæva aflandinu Alls bárust 212 svör við spurning- um um Bay City Rollers, sem lesend- um poppsíðu Dagblaðsins gafst kostur á að svara. — Flest voru að sjálfsögðu rétt. — Þeir, sem voru svo heppnir að detta í lukkupottinn að þessu sinni voru eftirtaldir: Jónlna Ragnarsdóttir’ Tjarnargötu 10, Reykjavik, Jensey Skúladóttir, Ennisbraut 35, Ólafsvlk, Margrét Hafliðadóttir, Drafnarbraut 6, Dalvík, Þóra Lilja Reynisdóttir, Austurvegi 6, Þórshöfn, Halldóra Óskarsdóttir, Skólagerði 36, Kópavogi, Sigrún Hjörleifsdóttir, Bröttugötu 25, Vestmannaeyjum, María Sölvadóttir, Munaðarhóli 10, Hellissandi, Ólöf Eiriksdóttir, Melgerði 1, Kópa- vogi, Guðbjörg Þórarinsdóttir, Heiðarvegi 47, Vcstmannaeyjum, og Karl Ingvar Egilsson, Strandgötu 97, Eskiflrði. Allt jaetta fólk fær senda til sín nýj ustu LP-plötu skozku hljómsveitarinn- ar Bay City Rollers, plötuna Strangers In The Wind. En það voru fleiri plötur í lukku- potti Dagblaðsins og hljómplötudeilar Fálkans að þessu sinni. Tíu manns til viðbótar hljóta nefnilega nýjustu litlu 'plötuna með Bay City Rolles. Það eru ' þau Lilja Sigurðardóttir, Langanesvegi 21, Þórshöfn, Hugrún Kristinsdóttir, Brautarholti 13, tsafirði, Sólrún Jóhannsdóttir, Hjallavegi 2, Eyrarbakka, Harpa Magnúsdóttir, Hólagötu 44, Vestmannaeyjum, Unnur Helga Arnórsdóttir, Hólsvegi 1, Þórshöfn, Ingibjörg H. Þorsteinsdóttir, Múla- vegi 5, Seyðisfirði, Jóna Baldursdóttir, Meistaravöllum 25, Reykjavik, Guðbjörg D. Tryggvadóttir, Þóristúni 13, Sclfossi, Jakob V. Finnbogason, Holtastig 20, Bolugnarvik, og Björn Lúðvíksson, Háholti 21, Akra- nesi. I Svör við spurningunum tiu bárust hvaðanæva af landinu, jafnt frá Hrísey og Gjögri til Hafnarfjarðar og Garðabæjar. Nokkrir kvörtuðu yfir of stuttum skilafresti. Póstsamgöngur úti á landi eru ekki jafn góðar og sunnan- 'lands og því ekki öruggt að öll bréf berist í tæka tíð. Skilafresturinn er því hér með lengdur um eina viku til við- bótar þeirri sem fyrir var. Rétt er að fara yfir spurningarnar og svörin, þcim aðdáendum Bay City Rollers til leiðbeiningar sem ekki sendu hárrétta lausn inn. Fyrsta spurningin var á þessa leið: Hvað heitir fyrsta lagið sem varð vinsælt með Bay City Rollers hér á landi? Svar: Manana. 2. Hvaða lag kom hljómsveitinni í fyrsta skipti í fyrsta sæti bandarískra vinsældalista?Svar: Saturday Night. 3. Hvað heitir söngvari Bay City Rollers? Svar: Leslie McKeown (sem mun víst vera hættur i hljómsveitinni nú). 4. Hversu margar LP plötur hefur Bay City Rollers sent frá sér? Svar: Sex plötur. Þess er þó að geta að tvær plötur hafa komið út með beztu lögum hljómsveitarinnar, önnur i Englandi og hin í Bandaríkjunum. 5. Hvað heitir nýjasta platan? Svar: Strangers In The Wind. 6. Hverjir eru aðallagasmiðirnir i Bay City Rollers? Svar: Eric Faulkner og Stuart „Woody” Wood. 7. Hvað heitir sá fyrrverandi liðs-í maður BCR, sem varð að hætta sakir aldurs? Svar: Alan Longmuir. 8. Hve gamall var hann þá? Svar: 26 ára. Sumir sögðu Alan hafa verið 23ja ára og aðrir 27. Uppsláttarbók Dagblaðsins segir 26 og við höfum það svar rétt þar til annað reynist sannara. 9. Hver tók stöðu Alans i hljóm- sveitinni? Svar: Ian Mitchell. Hann hætti fljótlega og þá kom i staðinn piltur að nafni Pat McGlynn. Hann staldraði aðeins við í nokkrar vikur. Af þeim er það nú að segja að Ian starfar með írsku hljómsveitinni Rosetta Stone. Hún komst á þýzka vinsældalista í sumar með lagið (If Paradise Is) Half As Nice og hefur sungið inn á LP plötu, sem fæst í hér- lendum verzlunum. — Pat McGlynn leikur með hljómsveitinni Pat McGIynn Scotties. 10. Hvað heita núverandi liðs- menn Bay City Rollers? Svar: Derek Longmuir, Stuart Wood, Eric Faulkner, Alan Longmuir (ihlaupa- maður) og Leslie McKeown (sem sagt er að sé búinn að segja upp). Svarið var talið rétt, þó að nafn hans vantaði. Næstkomandi föstudag bætir hljómplötudeild Fálkans tíu stórum _plötum og tíu litlum í lukkupottinn. Sama dag birtast tiu spurningar um heimsþekkta enska hljómsveit. Við látum ekkert uppi um, hver hljóm- sveitin er fyrr en að viku liðinni, en ráðleggjum lesendum samt að lesa sér vel til um popphljómsveit Listahátíðar 1978. -ÁT LINDA GISLADOITIR — A plötu hennar eru tlu erlend lög við texta Þorsteins Eggertssonar. DB-mynd Ragnar Th. Sigurðsson. Linda „lumma” syngur sóló Linda nefnist nýútkomin hljóm- plata með Lindu Gísladóttur söng- konu — „Lindu lummu” eins og hún hefur oftsinnis verið kölluð. Plata þessi er unnin með dálitið óvenjuleg- um hætti; danskir hljóðfæraleikarar sáu um undirspilið og léku það inn i Danmörku. Siðan var það sent til íslands, þar sem Linda söng inn á plötuna. „Ég hef orðið var við að fólk er neikvætt gagnvart þessari aðferð,” sagði Steinar Berg, útgefandi Lindu, er platan var kynnt fréttamönnum. „Sjálfur sé ég ekkert athugavert við að prófa að taka undirleikinn upp er- lendis, fyrst það býðst. Með þessu móti fáum við að mörgu leyti betri hljóðfæraleik, til dæmis strengi. Það er fyrir það fyrsta erfitt að fá fiðlu- leikara til starfa hér heima og svo loksins þegar þeir eru komnir i stúdíó upphefst eilíft brölt og bras. Sömuleiðis er engin launung á því að með því að hljóðrita undirspilið erlendis verður platan mun ódýrari en ella. Með þessu móti er þvi ein- hver von til að plata skili hagnaði á þessum tímum samdráttar í plötu- iðnaðinum,” sagði Steinar Berg enn- fremur. Á plötu sinni syngur Linda Gísla- dóttir tíu erlend lög við texta Þor- steins Eggertssonar. Nokkur þeirra hafa orðið vinsæl hér á landi á undanförnum árum, en önnur eru minna þekkt. Jóhann Eiríksson sá um upptökustjórn söngsins og syngur reyndar með i einu lagi. Upp- tökumaður var Garðar Hansen. AT Þursaflokksplatan erkominút Fyrstu sextíu þús. eintökin verða pressuð í svart plast Þursaflokksplatan, Hinn islenzki Þursaflokkur, er nú komin í verzlanir viðast hvar um landið. Platan er seint á ferðinni — á leiðinni úr stúdíói og i búðahillurnar hefur hún oröið fyrir stöðugum töfum. „Tafirnar hófust eiginlega í Hljóð- rita,” sagði Björn Valdimarsson hjá Fálkanum, sem gefur plötuna út, I samtali við DB. James Kay upptöku- maður hvarf fyrirvaralaust af landi brott, sem olli því að platan var hljóð- blönduð þremur vikum síðar en áætlað var. Á leiðinni úr skurðinum I New York í pressuna í Amsterdam eyðilagðist móðurskurðurinn. Það kostaði tiu daga tafir. Síðan bættust við tafir hér og þar og endaði með þvi að upplagið lenti I vöruskoðun.” Að sögn Björns er fyrsta upplag plötunnar þrjú þúsund eintök. Þar af höfðu 1300 plötur verið pantaðar fyrirfram á þriðjudaginn — daginn áður en þær komu á markaðinn. Björn tók það fram að Þursarnir hefðu ákveðið að fyrstu sextíu þúsund ein- tökin yrðu pressuð i svart plast. Þursaflokkurinn leikur þessa dag- ana i Þjóðleikhúsinu. 1 næstu viku hefst ferð flokksins í skóla Reykja- vikur. Björn Valdimarsson bað um að það yrði tekið fram að þau nemenda- félög skólanna sem hefðu áhuga á að fá Þursaflokkinn í heimsókn skyldu hafa samband við sig hjá Fálkanum að Suðurlandsbraut 8. • ÁT — ferð hans um skóla Reykjavikur hefst I næstu viku. i DB-mynd Ragnar Th. Sigurósson.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.