Dagblaðið - 10.11.1978, Qupperneq 28
Jakob Jakobsson um stórfellt ónauðsynlegt sfldardráp:
Stefnan f veiðunum
eins vitlaus og
hún getur orðið
— dæmi til að 1 af 50 köstum var hirt
„Stefnan í öflun úr síldarstofninum
er eins vitlausog hún getur orðið. Hún
leiðir bæði af sér mikinn kostnað við
veiðarnar og er auk þess skaðleg fyrir
stofninn sjálfan. Það verður að finna
leið til að nýta þennan stofn á annan
hátt.” sagði Jakob Jakobsson,
fiskifræðingur i viðtali við DB í
morgun.
Hinn litli kvóti hringnótabátanna.
sem eru mjög afkastamiklir, leiðir til
þess að kasti þeir á síld i ódýrari
verðflokki, freistast sjómenn eðlilega
til að sleppa kastinu og freista þess að
ná betri síld í næsta kasti. Þannig hafa
eftirlitsmenn orðið varir við að eitt
kast af 50 hefur verið hirt, en algengt
mun að tuttugasta hvert kast sé hirt.
Þegar kastað hefur verið á síld og
nótinni lokað er óhjákvæmilegt að
hreistur hluta sildarinnar i nótinni
skaddist, en það dregur hana til dauða
þótt kastinu sé sleppt.
Að sögn Jakobs er ólíklegt að minna
en 5 prósent síldar úr þannig kasti
drepist, en hann telur að það hlutfall
kunni að vera hærra ef eitthvað er.
Miðað við að tuttugasta hvert kast sé
hirt er því ekki fráleitt að fyrir hvert
tonn, sem hringnótabátarnir hirða.
drepist annað tonn. Nú eru þeir
búnir að veiða nálægt 9 þús. tonnum
þannig að ætla má að annað eins hafi
verið drepið engum til gagns en
stofninum til ógagns, miðað við að
heildarkvótinn, 35 þús. tonn, sé látinn
halda sér. Nálægt 100 hringnótabátar
fengu leyfi i haust og nálægt 80
reknetabátar.
-G.S.
Tilraun til bankaráns í Landsbankanum
Laugavegi77ígær:
Miðaðibyss-
unni á af-
gr&ðslumann
og heimtaði
peninga
— var handtekinn og byssan reyndist nákvæm
eftirlíking
Maður gekk inn í Landsbankann að
Laugavegi 77 laust eftir hádegið i gær,
að afgreiðsluborði gjaldeyrisdeildar-
innar, dró upp byssu og miðaði henni af
„dauðafæri” á höfuð starfs manns um
leið og hann krafðist peninga. Lagði
hann áherzlu á kröfu sina með að itreka
að auðvelt væri að hleypa af.
Starfsmanninum varð það fyrst til
ráða að afhenda manninum peninga-
veski sitt. Annar starfsmaður deildar-
innar hringdi um leið á lögregluna. Ekki
er ljóst hvort maðurinn hugðist láta
veskið nægja, eða vildi meira, en starfs-
fólki tókst að þæfa málið þá stuttu
stund, sem leið unz lögreglan kom og
afvopnaði manninn.
Kom þá i ljós að byssan var leikfanga-
eftirlíking af raunverulegri byssu, mjög
vel gerð og ógemingur að sjá það jafnvel
úr lítilli fjarlægð. Lögreglan tók byssu-
manninn í sína vörzlu, en hann mun
eiga við andlega vanheilsu að striða.
-G.S.
Byssueftirlíkingin liggur þarna á skrif-
borði Hilmars Þorbjörnssonar varð-
stjóra. DB-mynd: Sv.Þorm. ^ ■>»
RÍKISSTJÓRNIN
MUN SAMÞYKKJA
VERÐHÆKKUN
BLAÐANNA
Eftir þvi sem DB kemst næst mun
ríkisstjórnin samþykkja þá
verðhækkun dagblaðanna, sem
Verðlagsnefnd hefur afgreitt. Dag-
blöðin hafa tilkynnt hækkun frá og
með I. desember. Verðlagsnefnd hefur
samþykkt þá hækkun og fer hún næst
fyrir rikisstjómina.
Svavar Gestsson viðskiptaráðherra
er erlendis og náðist ekki til hans, en
gert er ráð fyrir að hækkunin verði
samþykkt í ríkisstjórninni. Hún var
samþykkt með öllum atkvæðum i
Verðlagsnefnd.
Mánaðaráskrift hækkar i 2500
krónur og blöðin fara i 125 krónur i
lausasölu. Það er 5 krónum meiri
hækkun en Dagblaðið og Vísir ákváðu
í októberbyrjun og var stefnt fyrir
Verðlagsdóm fyrir. Útgefendur segja
að stjórnvöld viðurkenni nú að
hækkunin, sem þau leyfðu þá, hafi
verið langt undir því, sem nauðsynlegt
var vegna aukins kostnaðar
blaðaútgáfu. -HH.
FÖSTUDAGUR 10. NÓV. 1978.
Loðnan:
600 tonna
meðal-
farmar
Frá fyrra miðnætti þar til í morgun
hafa 20 loðnubátar fengið samtals
13.500 tonn út af Vestfjörðum, skv.
upplýsingum Loðnunefndar, en það
þýðir hvorki meira né minna en 600
tonn að meðaltali á bát. Er þetta bæði
góð veiði og hátt meðaltal. Var von á
frekari aflafréttum af miðunum snemma
í morgun. Stærstu loðnuskipin nú bera
hátt í 1400 tonn, en þau smæstu innan
við 500 tonn. Er farið að kalla siik skip
„koppa” þótt þau hafi þótt meiri háttar
loðnuskip fyrir aðeins örfáum árum.
-G.S.
Eldur laus
á Reykja-
víkurflug-
velli
Eldur varð laus i nýuppgerðri kaffi-
stofu viö vélaverkstæði Flugmálastjórn-
ar í nótt. Urðu menn eldsins varir
klukkan 6.15 í morgun og var slökkviliði
vallarins þegar gert viðvart. Kom það
ásamt liði frá Slökkviliði Reykjavíkur á
vettvang og réð niðurlögum eldsins á
stuttum tima.
Samkvæmt upplýsingum verkstæðis-
formannsins er tjón af eldi mest á
salernum og næst þeim. Allt húsið, sem
er um það bil 70 fermetrar, er svo meira
og minna skemmt af reyk og hita.
Kaffistofan var nýuppgerð og verður
ekki nothæf í næstu framtið.
-ASt.
Dagheimilið
í Garðinum
lokað um
óákveðinn
tíma
Búið er að auglýsa lokun dag-
heimilisins í Garðinum frá og með 1.
desember í óákveðinn tíma. Að sögn
Kristjönu Vilhjálmsdóttur er það bæði
gert til þess að reyna að koma á betri
rekstrargrundvelli og eins til þess að
mála og lagfæra tækin á staðnum. Núna
eru 22 börn eftir hádegið á dagheimilinu
en mun færri á morgnana.
Gerðahreppur í Garði hefur stutt
rekstur dagheimilisins hingað til en ekki
nægilega að sögn Kristjönu. „Við
verðum að fá meiri peninga um ára-
mótin, annaðhvort frá hreppnum eða
annars staðar frá ef við eigum að geta
haldið áfram," sagði hún. Það er
kvenfélag staðarins sem sér um rekstur
dagheimilisins.
•DS.
yr Kaupio^*
TÖLVUR:
QG TÖLVUUR ”1
BANKASTRÆTI8
«^»1276^