Dagblaðið - 18.11.1978, Síða 23
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 18. NÓVEMBER 1978.
8
Útvarp
23
Sjónvarp
B
VÍÐÁTTAN MIKLA — sjónvarp í kvöld kl. 21.45:
FINISKIPSTJORINN
— ískemmti-
Jegum vestra
Gregory Peck sýnir hér hvað i honum býr i myndinni Víðáttan mikla.
Viðáttan mikla (The Big Country)
nefnist bandarisk bíómynd frá árinu
1958, sem sjónvarpið sýnir í kvöld kl.
21.45. Leikstjóri myndarinnar er
William Wyler. Með aðalhlutverk fara
Gregory Peck, Jean Simmons, Carroll
Raker, Charlton Heston og Burt Ives.
Mynd þessi er kúrekamynd. Hún var
sýnd í Háskólabíó fyrir 15—16 árum og
vakti mikla hrifningu bíógesta og var vel
sótt. Myndin fjallar um James McKay,
sem er gamall skipstjóri frá Baltimore.
Hann fer til „villta vestursins” til aö
ganga að eiga unnustu sína, Pat.
Pat er dóttir fyrrum hermanns, sem
nú er orðinn stórbóndi. Hann á í landa-
merkjastríði við annan bónda út af
vatnsbóli. Þegar James kemur vekur
framkoma hans og klæðnaöur fyrirlitn-
ingu kúrekanna sem telja hann
spjátrung.
James er friðsamur og heldur að hægt
sé að ná samkomulagi án þess að nota
byssurnar. Hann er þó reittur til reiði og
þarf að sýna hvað í honum býr. Hlýtur
hann eftir það virðingu allra kúrekanna.
James rekur sig fljótt á að þarna gilda
önnur siðalögmál en hann hefur átt að
venjast.
Kvikmyndahandbók okkar gefur
mynd þessari þrjár stjörnur af fjórum
mögulegum svo vel ætti að vera hægt að
horfa á hana. Myndin er tvo og hálfan
tima að lengd og þýðandi er Ellert Sigur-
björnsson. -ELA.
SKÓLAFERЗsjónvarp annað kvöld kl. 20.35:
Leikarar úr leikritinu Skólaferð.
Skólanemendur í skíðaferð
— íslenzkt sjónvarpsleikrit eftir Ágúst Guðmundsson
Skólaferð nefnist íslenzkt leikrit eftir
Ágúst Guðmundsson, sem sjónvarpið
sýnir annað kvöld kl. 20.35. Leikmynd
gerði Snorri Sveinn Friðriksson.
Leikurinn er unninn í samráði við
Leiklistarskóla lslands. Meðal leikenda
eru nýútskrifaðir nemendur skólans,
tuttugu talsins. Aðrir leikendur eru
ýmist enn við nám eða fyrrverandi
nemendur skólans nema Steindór
Hjörleifsson.
Leikritið fjallar um skólanemendur
sem eru í skiðaferð. Þau hafa komið sér
V___________________________________
fyrir í skiðaskálanum, þegar ískyggileg;
tíðindi fara að berast í útvarpinu.
„Óhætt er að segja aö leikritið sé spenn-
andi, en spennan er stigandi eftir því
sem líður á leikritið og er ekki ætlast til
að fólk sofni yfir þvi,” sagði Ágúst í
samtali við DB.
„Leikritiö fjallar öðrum þræði um
kalda stríðið og áhrif þess á þá sem voru
að vaxa úr grasi þegar það stóð sem hæst
en leikurinn á að gerast I kringum
1965.” Að sögn Agústs eru leikararnir
óvenjulegur hópur sem tók ekkert á við
það að leika fyrir framan myndavél.
Sagði Ágúst að þau hafi bæði leikið vel
ogeðlilega.
Ágúst Guðmundsson er sjálfur lærður
leikari en fór að læra kvikmyndun eftir
að hafa lokið prófi sem leikari. Þetta er
fyrsta leikrit Ágústs, en áður hefur hann
unnið að einstökum þáttum fyrir sjón-
varpið.
Leikritiö er tæplega klukkustundar
langt. Myndatöku annaðist Vilmar
Pedersen og hljóðupptöku Vilmundur
Þór Gíslason. Upptöku stjórnaöi Tage
Ammendrup.
-ELA.
_________________________________l
Útvarp
Laugardagur
18. nóvember
7.00 Vcöurfregnir. Fréttir.
7.10 Lcikfimi.
7.20 Bæn.
7.25 Ljósaskipti: Tónlistarþáttur i umsjá
Guðmundar Jónssonar pianóleikara.
8.00 Fréttir. Forustugr. dagbl. (útdr.). Dagskrá.
8.35 Morgunþulur kynnir ýmis lög aó cigin'
vali.
9.00 Fréttir. Tilkynningar.
9.20 Leikfimi.
9.30 Óskalög sjúklinga: Kristín Sveinbjöms-
dóttir kynnir. (10.00 Fréttir. 10.10 Veður-
fregnir).
11.20 Að lesa og leika. Jónína H. Jónsdóttir sér
um barnatima.
,12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynningar.
12.25 Veðurfregnir. Fréttir. Tilkynningar.
Tónleikar.
13.30 í vikulokin. Blandað efni í samantekt Jóns
Björgvinssonar, Ólafs Geirssonar, Eddu
Andrésdóttur og Áma Johnsens.
15.30 Á grænu Ijósi. Óli H. Þóröarson
framkv^tj. umferðarráðs spjallar við hlustend-
ur.
15.40 íslenzkt mál. Ásgeir Blöndai Magnússon
cand. mag. talar.
16.00 Fréttir.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Vinsælustu popplögin. Vignir Sveinsson
kynnir.
17.00 Námsdvöl á erlendri grund. Þáttur í umsjá
Hörpu Jósefsdóttur Amín. Fjallað um skipti-
nemasamtök og rætt við Erlend Magnússon,
Mörtu Eiríksdóttur, Bergþór Pálsson, Bjöm
Hermannsson og Ester Hanka. — Áður útv. i
júní i vor.
17.50 Söngvar í léttum dúr. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Tilkynningar.
19.35 „Ég er mestur”. Hermann Gunnarsson
flytur þýddan og endursagðan þátt um
Múhameð Ali heimsmeistara i hnefaleikum.
20.00 H(jómplöturabb. Þorsteinn Hannesson
kynnir sönglög og söngvara.
20.45 Hvað væri hfið án söngs? Erna
Ragnarsdóttir Utur inn I Söngskólann i
Reykjavik og spjaUar við kennara og ncm-
endur.
21.20 Kvöldljóð. Tónlistarþáttur í umsjá Ásgeirs
Tómassonar og Helga Péturssonar.
22.05 Kvöldsagan: Saga Snæbjarnar i Hergils-
ey rítuð af honum sjálfum. Ágúst Vigfússon
les(IO).
22.30 Veðurfregnir. Fréttir.
22.45 Danslög. (21.50 Fréttir).
01.00 Dagskrárlok.
Sunnudagur
19. nóvember
8.00 Fréttir.
8.05 Morgunandakt Séra Sigurður Pálsson
vigslubiskup flytur ritningarorð og bæn.
8.15 Veðurfregnir. Forustugr. dagbl. (útdr.).
8.35 Létt morgunlög: a. Strausshljómsveitin í
Vínarborg leikur tvö lög eftir Johann Strauss;
Heinz Sandauer og Max Schönherr stj. b.
Hljómsveit Tónlistarháskólans í París leikur
þætti úr „Þymirósarballettinum” eftir Tsjaí-
kovský; Anatoli Fistoulari stj.
9.00 Hvað varð fyrir valinu? „Heimþrá”, dýra-
saga eftir Þorgils gjallanda. Guörún P. Helga-
dóttir skólastjóri les.
9.20 morguntónleikar. a. Orgelsónata nr. 1 i
Es-dúr eftir Johann Sebastian Bach. Marie
Claire-Alain leikur. b. „Allt, sem gjörið þér”,
kantata eftir Dietrich Buxtehude. Johannes
Kunzel og Dómkórinn í Greifswald syngja
með Bach-hljómsveitinni í Berlín; Hans Pflug-
beil stj. c. Fiðlukonsert í c-moll eftir Antonio
Vivaldi. Arthur Grumiaux og Riki^hljómsveit-
in í Dresden leika; Vittorio Negri stj.
10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir.
10.25 Ljósaskipti: Tónlistarþáttur í umsjá Guð-
mundar Jónssonar píanóleikara (endurt.).
11.00 Messa i Hafnarfjarðarkirkju. Prestur:
Séra Gunnþór Ingason. Organleikari: Páll Kr.
Pálsson.
12.15 Dagskráin.Tónleikar.
12.25 Veðurfregnir. Fréttir. Tilkynningar. Tón-
leikar.
13.30 Hundrað og fimmtugasta ártið Franz
Schuberts. a. Ámi Kristjánsson fyrrum tón-
listarstjóri útvarpsins flytur erindi. b.
„Dauðinn og stúlkan”, strengjakvartett i d-
moll. Fílharmoníski kvartettinn i Vínarborg
leikur. c. Lög úr lagaflokknum „Schwanenge-
sang". Kristinn Hallsson syngur.^Árni Krist-
jánsson leikur á pianó.
15.00 Dagskrárstjóri i kiukkustund. Unnur Kol-
beinsdóttir kennari ræður dagskránni.
16.00 Fréttir. 16.15 Veðurfregnir.
16.25 Á bókamarkaðinum. Lestur úr nýjum
bókum. Umsjónarmaður: Andrés Björnsson.
Kynnir: Dóra Ingvadóttir.
17.45 Með hornaþyt. Lúðrasveitin Svanur,
yngri deild, leikur undir stjórn Sæbjörns Jóns-
sonar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Fréttir. Tilkynningar.
19.25 Bein Una. Geir Hallgrimsson alþm., for-
maður Sjálfstæðisflokksins, svarar spurning-
um hlustenda. Umsjónarmenn: Kári Jónasson
og Vilhelm G. Kristinsson.
20.30 íslenzk tónlist: a. Fantasiusónata eftir
Victor Urbancic. Egill Jónsson og höfundur-
inn leika saman á klarinettu og pianó. b. Tvær
rómönsur eftir Áma Bjömsson. Þorvaldur
Steingrímsson og Ólafur Vignir Albcrtsson
leika saman á fíðlu og pianó.
21.00 Söguþáttur. Umsjónarmenn: Broddi
Broddason ogGisli Ágúst Gunnlaugsson.
21.25 „Meyjaskemman”, eftir Heinrich Berté
við tónlist eftir Franz Schubert. Útdráttur.
Erika Köth, Rudolf Schock o.fl. syngja með
kór og hljómsveit. Stjórnandi: Frank Fox.
22.00 Kvöldsagan: Saga Snæbjarnar i Hergilsey
rituð af honum sjálfum-.Ágúst Vigfússon les
(11).
22.30 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá morgun-
dagsins.
22.50 Við uppsprettu sigildrar tóniistar. Þáttur í
umsjá Ketils Ingólfssonar.
23.50 Fréttir. Dagskrárlok.
Mánudagur
20. nóvember
7.00 Veðurfregnir. Fréttir.
7.10 Leikfimk Valdimar örnólfsson leikfimi-
kennari og Magnús Pétursson pianóleikari.
(alla virka daga vikunnar).
7.20 Bæn: Séra Jón Einarsson í Saurbæ á Hval-
fjarðarströnd flytur (a.v.d.v.).
7.25 Morgunpósturinn. Umsjónarmenn: Páll
Heiðar Jónsson og Sigmar B. Hauksson. (8.00
Fréttir).
8.15 Veðurfregnir. Forustugr. landsmálablað-
anna (útdr.). Dagskrá.
8.35 Morgunþulur kynnir ýmis lög að eigin
vali. 9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna: Kristján Jóhann
Jónsson heldur áfram lestri þýðingar sinnar á
„Ævintýrum Halldóru” eftir Modwenu Sedg-
wick (6).
9.20 Leikfimi. 9.30 Tilkynningar. Tónleikar.
9.45 Landbúnaðarmál: Umsjónarmaður: Jónas
Jónsson. Rætt við Ólaf E. Stefánsson ráðu-
naut um nautgriparækt.
10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir.
10.25 Morgunþulur kynnir ýmis lög; frh.
11.00 Áður fyrr á árunum: Ágústa Björnsdóttir
sér um þáttinn.
Sjónvarp
Laugardagur
18. nóvember
16.30 Alþýðufræðsla um efnahagsmál.
' Lokaþáttur. Þjóðarframleiðsla og hagvöxtur.
Umsjónarmenn Ásmundur Stefánsson og dr.’
Þráinn Eggertsson. Stjórn upptöku örn
Harðarson. Áður á dagskrá 20. júní
siðastliöinn.
17.00 Iþróttir. Umsjónarmaður Bjami Felixson.
18.30 Fimmn fræknir. Fimm á Finnastöðum.
Þýöandi Jóhanna Jóhannsdóttir.
18.55 Enska knattspyrnan.
Hlé.
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.30 Gengið á vit Wodehouse. Á leirfótum.
Þýðandi Jón Thor Haraldsson.
21.00 Myndgátan. Getraunaleikur með þátt-
töku starfsmanna frá eftirtöldum blöðum:
Alþýðublaðinu, Dagblaðinu, Morgunblaðinu,
Tímanum, Visi og Þjóðviljanum. í myndget-
raun þessari er fremur höfðaö til myndminnis
og athyglisgáfu en sérþekkingar.Stjórnendur
Ásta R. Jóhannesdóttir og Þorgeir Ástvalds-
son. Umsjónarmaður Egill Eðvarðsson.
21.45 Víðáttan mikla. (The Big C'ountry))
Bandarisk biómynd frá árinu 1958. Leikstjóri
William Wyler. Aðalhlutverk Gregory Peck,
Jean Simmons, Carroll Baker, Charlton
Heston og Burl Ives. James McKay, skipstjóri
úr austurfylkjum Bandaríkjanna, kemur til
„villta vestursins” að vitja unnustu sinnar, en
hún er dóttir stórbónda. Hann dregst inn í
landamerkjaþrætur og rekur sig fljótt á, að
þama gilda önnur siöalögmál en hann hefur
átt að venjast. Þýðandi Ellert Sigurbjörnsson.
00.25 Dagskrárlok.
Sunnudagur
19. nóvember
16.00 Húsið á sléttunni. (Little House on the
Prairie). Nýr, bandarískur framhaldsmynda-
flokkur, byggður á frásögnum Lauri Ingalls
Wilder af landnámi og frumbýlingsárum i
vesturfylkjum Bandarikjanna á síðustu öld.
Aðalhlutverk Michael Landon og Karen
Grassle. Fyrsta myndin er um 100 minútur að
lengd, en hinar eru um 50 minútur hver.
Þýðandi öskar Ingimarsson.
I7.40 Hlé.
18.00 Stundin okkar. Kynnir Sigríður Ragna
Sigurðardóttir. Stjórn upptöku Andrés
Indriðason.
Hlé.
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.35 Skólaferð. Leikrit eftir Ágúst Guðmunds-
son. Frumsýning. Skólanemendur eru. j
sklðaferð. Þau hafa kom ið sér fyrr i skíða-
skálanum, þegar ískyggilcg tíðindi fara að
berast í útvarpinu. Leikurinn er unninm
samráði við Leiklistarskóla íslands. Meðal
leikenda eru nýútskrifaðir nemendur skólans
tuttugu talsins. Aðrir leikendur eru ýmist enn
við nám eða fyrrverandi nemendur skólans
nema Steindór Hjörleifsson. Leikmynd Snorri
Sveinn'Friðriksson. Myndataka Vilmar Peder-
sen. Hljóðupptaka Vilmundur Þór Gíslason.
Stjórn upptöku Tage Ammendrup.
21.30 Ars antiqua. Franski tónlistarflokkurinn
„Ars antiqua de Paris” flytur lög frá þrett
ándu, fjórtándu og fimmtándu öld. Stjórn
upptöku Tage Ammendrup.
22.00 Ég, Kládius. Þríðji þáttur. Beðið að tjalda-
baki. Efni annars þáttar. Hjónaband Júlíu og
Agrippu varir níu ár. Þá lætur Lívia myrða
hann á eitri. Að undirlagi Livíu skilur Tiberius
við Vipsaniu og gengur að eiga Júlíu. Sambúð
þeirra er stirð. Tiberlus fær bréf frá Drúsusi
bróður sinum, en hann er í hernaöi í Ger-
maníu og hefur særst. í bréfinu segir hann, að
Ágústus myndi glaður segja af sér keisaradómi
og koma á lýðveldi, en megi það ekki fyrir
hinni valdasjúku konu sinni. Lívia sendir
Músu, lækni sinn, til að gera að meiðslum
Drúsusar en ekki tekst betur CH en svo, að drep
hleypur í sárið og Drúsus andast. Tíberíus
tekur bróðurmissinn nærri sér. Hann vill
skilja við Júlíu en móðir hans og tengdafaðir
leggja bann við þvi og Ágústus skipar honum i
útlegð. Þýðandi Dóra Hafsteinsdóttir.
22.50 Fimleikar. Myndir frá heimsmeistara-
keppninni í Strasbourg. Kynnir Bjami
Felixson.
23.20 Að kvöldi dags. Geir Waage cand. theol.
flytur hugvekju.
23.30 Dagskrárlok.