Dagblaðið - 05.12.1978, Síða 4
16
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 5. DESEMBER 1978.
%
GAPi-mn
bflctif við/R)
Nú hefur Veitingahúsiö Gafl-inn í Hafnarfirói
opnað annan veitingastað undir sama nafni,
við Reykjanesbraut(Keflavíkurveginn)og bjóðum
við nú sem áður AÐEINS ÞAÐ BESTA.
Einnig bjóðum við matarpakka fyrir vinnustaöi.
Frá áramótum leigjum viðútvistlegasali
fyrir stærri og smærri mannfagnaði.
Vcilinnohú/ió
GAPi-inn
REYKJAVÍKURVEGI 68 SÍMI 51857
DALSHRAUNI 13 SÍMI 54424 - HAFNARFIRÐI1
Aukiö
verómœti
meö
Polyurethan
Polyurethan er mjög endingargóð einangrun.
Efninu er sprautað í fljótandi formi í gegn um smógöt
ó innrabyrði lestarklœðningar, þar sem það þenst
út 20—25 sinnum og storknar.
Polyurethan hefur reynst mjög vel í skipum og bótum,
■ veggklœðningar stólgrindahúsa og til einangrunar
kœliklefa.
Betri nýting aflans með Polyurethan.
GóÖ einangrun - aukiö
verÖmœti aflans
sSaía®í2 E2í?.
SIMI S37S5 P. BOX 239 HAFNARFIRÐI
Hafnarfjarðar: Hús Bjarna
riddara Sívertsen
—f rá fyrsta tug 19. aldar
Elzta hús i Hafnarfirði er hús Bjarna
riddara Sívertsen að Vesturgötu 6, frá
fyrsta tug 19. aldar. Húsið er varðveitt
sem safn þó litið sé til af hlutum úr
heimili Bjarna.
Bjarni Sigurðsson fæddist að Nesi í
Selvogi árið 1765. Kona hans Rannveig
Filippusdóttir var stórættuð, nokkuð
eldri en Bjarni og mun hann hafa fengið
með henni auð og áræði. Árið 1790 hóf
hann verzlunarrekstur i Vestmannaeyj-
um en hann hafði áður fengizt nokkuð
við slíkan rekstur i heimabyggð sinni.
Bjarna bezt það traust, sem stiftamt-
maður bar til hans. En valið var vitur-
legt, því að vegna hinna fyrri afskipta
sinna af verzlunarmálum islendinga í
Bretlandi hlaut Bjarni að standa betur
að vígi en flestir aðrir til að koma þar
fram fyrir hönd þjóðar sinnar. Þaðan
hélt Bjarni til Kaupmannahafnar þar
sem hann var sæmdur riddarakrossi af
Danakonungi árið 1812.
Eftir þetta rak Bjarni verzlun sína
tálmanalaust og gerðist auðugur maður.
Var hann sjálfur í förum milli landa og
sat á vetrum í Kauþmannahöfn en leit á
sumrum eftir verzlun sinni í Hafnarfirði.
Árið 1825 dó kona hans og um hana
orti Bjarni Thorarensen þekkt eftirmæli.
Sonur þeirra, Sigurður, kvæntist
Guðrúnu, systur Helga biskups
Thordersen. Árið 1832 fluttist Bjarni
alfarinn til Kaupmannahafnar, en hafði
árið áður kvænzt danskri konu. En
þegar hér var komið átti hann ekki langt
eftir ólifað. Hann andaðist árið 1833 og
hvílirídanskrimold.
-GAJ.
En hann hugsaði enn hærra og hélt
sumarið 1793 til Kaupmannahafnar til
að fá lán til verzlunarreksturs og ann-
arra umsvifa. Málalokin urðu góð og í
byrjun næstu aldar hefur hann mörg
járn í eldinum. Hann kaupir eða kemur
sér upp verzlunar- eða íbúðarhúsnæði á
Akurgerðislóð í Hafnarfirði, kaupir
jörðina Ófriðarstaði 1804 og eignast lika
Óseyri og svo Hvaleyrartorfuna árið
1816. Allar þessar jarðir stórhækkuðu
að mati, á meðan þær voru i eigu
Bjarna. Ófriðarstaðir sem nú eru oftast
nefndir Jófríðarstaðir, áttu þá land að
sjó. Þar hugsaði Bjarni sér skipasmíða-
stöð og er hún talin fullbúin árið 1805.
En þegar árið 1803 hafði þó fyrsta ný-
smíðaða þilskip hans hlaupið af stokk-
unum. Nefndist það Havnefjords
Prövcn.
Ef til vill má telja Bjarna það til for-
dildar að nefna öll skip sín dönskum
nöfnum. taka upp eftirnafnið Sívertsen
og taka í seinni tið að dveljast i Kaup-
mannahöfn á vetrum. En hið jákvæða í
fari hans hlýtur þó að teljast þyngra á
metum, dugnaður, fjölhæfni og hjálp-
semi. Einkum kom þetta i ljós i sam-
bandi við utanför Bjarna árið 1807.
Honum og öðrum skipverjum var
ókunnugt um ófriðinn milli Englendinga
og Dana og kom mjög á óvart að vera af
þeim fyrrnefnda neyddir til að halda til
Skotlands. Er ekki að orðlengja það að
alls voru það orðin um 15 íslandsför sem
Englendingar höfðu kyrrsett þar í
höfnum. Auðséð er af samtíma skjölum
að þáttur Bjarná að farsælli lausn þess-
ara mála var ekki lítifl. Kom þar, að öll
tslandsförin voru látin laus.
Það var sumarið 1809 að hinn kunni
Jörundur hundadagakonungur var hér.
Þótt Jörundur væri í sjálfu sér ekki
óvinsæll þá komu hér öðru hvoru enskir
ævintýramenn, sjóræningjar sumir
hverjir, sem vitanlega var bezt að vera
laus við. Valdi Trampe stiftamtmaður,
Bjarna og annan mann til Englandsfarar
til að stemma stigu við þessu. Var þetta
hin mesta trúnaðarför, og sýnir valið á
Húsið Vesturgata 6 er talið vera elzta hús Hafnarfjarðar, byggt af Bjarna riddara
Sívertsen liklega áríð 1805. Þangað kom Krístján konungur IX 1874. Þar áttu verzl-
unarstjörar Knudtzons verzlunar löngum hcirna, en eftir að sú verzlun lagðist niður
og áður en Brydesverzlun kom til sögunnar, mun Jón Steingrímsson trésmiður hafa
búið þar. En áríð 1902 fluttist verzlunarstjórí Brydesverzlunar I þetta hús, Jón Gunn-
arsson.
Úr eldhúsinu I húsi Bjarna ríddara Sfvertsen.