Dagblaðið - 09.01.1979, Síða 1
5. ÁRG. — ÞRIÐJUDAGUR9. JANÚAR 1979 — 7.TBL. RITSTJÓRN SÍÐUMÍILA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI 11.—AÐALSÍMI 27022.
Piltarnir
enn
ófundnir:
NOKKRIR TEUA SIG
HAFA SÓ) FRÆNDURNA
„Dugar ekki að allir séu óánægðir”
— segja loðnusjómenn og halda ánægðir
úr höf n — sjá bls. 8
Verður loðnuaflinn skorinn niður um
150-200 þús. tonn?
— loðnuveiðar hefjast á miðnætti
„Ég vona bara til guös, að það séu
krakkar, kunningjar drengjanna, sem
hafi þá i felum og skilji ekki ennþá
hvaða alvörumál er á ferðinni,” sagði
móðir annars drengjanna, sem saknaö
er, i viðtali við DB. „Ég hef lítið sofið
siðan ég fór að verða hrædd,” sagði
hún, „en ég vona samt enn, að þeir séu
einhvers staðar hjá kunningjum.”
„Maður hugsar margt — en maður
getur ekkert gert,” sagði móðurafi
Ingva Sævars, þegar blaðamaður
ræddi við hann. „Það er verst með
konuna mina, hún er alveg niður-
brotin,” bætti hann við. Konan er
móðuramma Karls Jóhanns Norð-
mann.
Ingvi Sævar Ingvarsson og Karl
Jóhann Norðmann fóru saman að
heiman frá afa og ömmu að Miðtúni
90, um kl. 15 sl. laugardag. Síðan þá
hefur ekki spurzt til þeirra með vissu.
Nokkrar ábendingar hafa borizt til
lögreglunnar, sem hefur umsjón með
þeim leitaraðgerðum, sem beitt verður
og beitt hefur verið. Ennþá er ekki
ákveðin meiri háttar allsherjarleit.
Vinstúlka drengjanna telur sig hafa
séð þá í Hliðahverfinu þar sem Ingi
Sævar á heima. Ekki er útilokað að
hún hafi rétt fyrir sér.
Annar aðili telur sig hafa séð þá og
jafnvel haft tal af þeim niðri við Iðn-
aðarbanka í gær.
Enn einn telur sig hafa séð þá á
Laugarásveginum einnig I gærdag.
Enda þótt ekki sé talið fullvist að
það hafi verið drengimir sem saknaö
er, sem þama sáust, gefur það þó vonir
um að svo sé.
Leitarflokkar hafa enn ekki verið
kvaddir út en öllum ábendingum eru
menn beðnir um að koma á framfæri
við lögregluna þegar í stað.
BS.
Með báðar
hendur
lausar
Þær hafa Ifkað vel, pylsurnar úr danska
vagninum á Lækjartorgi, og eins gott að
vera mcð báðar hendur lausar til að taka
við góðgætinu.
DB-mynd: Hörður.
Karl Jóhann Norðmann, 15 ára. Ingvi Sævar Ingvarsson, 14 ára.
Hann er mjög grannur og lágvax- Hann er um 176 cm á hæð, grann-
inn, dökkskolhærður.
ur og dökkskolhærður.
Tímabært að Jesús Jósefsson
fái íslenzkan þegnrétt
— sjá kjallaragrein Magnúsar Kjartanssonar
á bls. 11
Brjóta tryggingarfélögin
hegningarlögin daglega?
— sjá kjallaragrein Leós Löve á bls. 10 og 11
Aðeins 3 starfhæf ir sjúkrabílar
íReykjavík
— sjá um skyndikönnun Almannavama á bls. 5
Nýja stjórnin í íran riðar til falls
— sjá erl. fréttir á bls. 6 og 7
Loðnuflotinn er nú sem óðast að
ferðbúast á loðnumiðin þar sem
leyfilegt er að hefja veiðar nú á
miðnætti. Ekki er enn vitað nákvæm-
lega hvar loðnan er helzt stödd nú, en
búast má við að hún sé farin að færa
sig austur með norðurströndinni, svo
sem verið hefur.
í svonefndri „gráu skýrslu" fiski-
fræðinga, sem þeir gáfu út upp úr ára-
mótunum 1977, var lagt til að
loðnuaflinn frá júlí 78 til júlí 79 yrði
ekki meiri en milljón tonn.
Á haustvertíðinni, sem lauk laust
fyrir áramót, veiddust um 500 þúsund
tonn, svo að öllu eðlilegu mætti veiða
500 þúsund tonn á vetrarvertiðinni
nú. Undanfarin ár hefur aflinn verið
440 til 500 þús. tonn.
En allar líkur benda til að loðnuafli
Norðmanna við Jan Mayen sl. sumar
upp á 150 þús. tonn, hafi verið úr
islenzka stofninum og telja því ýmsir
fiskifræðingar að það magn eigi að
koma til frádráttar kvótanum nú.
Á vetrarvertíðinni veiddu
Færeyingar 35 þús. tonn og eru nú
komnir til að semja aftur. Munu þeir
vafalitið ekki fara fram á minna nú.
Íslenzki loðnuflotinn er nú um 50 til
60 öflug skip, sem gætu veitt 350
þúsund tonn á skömmum tíma við góð
skilyrði. -G.S.
Loðnusjómenn gera klárt fýrir veiðamar. Myndin var tekin i Reykjavfkurhöfn I
8ær- DB-mynd: Hörður.
Rannsóknarlög-
reglumenn mótmæla
fullyrðingum LMFÍ:
Ætlað aðgrafa
undan trausti
borgarannaá
rannsóknar-
lögreglunni
— sjá bls. 5
„Óvinsamlegt
andrúmsloft”
— sjá bls. 9