Dagblaðið - 09.01.1979, Page 4
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 9. JANÚAR 1979.
DB á ne ytendamarkaði
Plast-
poka-
málið:
Plastpokamir lækkaðir um
10% næstu sex mánuði
„Plastprent hf. er fyllilega Ijós
ábyrgð sin gagnvart neytendum og
reynir ekki að skjóta sér undan henni.
Neytendur hafa að ósekju orðið fyrir
tjóni fyrir mistök, sem Plastprent hf.
verður að svo stöddu að skrifa á sinn
reikning.
Nú eru liðlega 2 mánuðir síðan
Plastprent hf. leysti út lokasendingu af
þessum erlendu plastpokum þar sem
fyrirtækið er á ný tekið til við að fram-
leiða alla sina heimilispoka sjálft, enda
eru þeir eins og könnunin sýnir
komnir á markaðinn.
Erlendu pokarnir eru hins vegar að
) Vantöldu pokamir voru innf luttir
seljast upp I verzlunum og skaðinn því
skeður. Verður hann héðan af ekki á
annan hátt bættur þeim, sem um skeið
hafa keypt færri poka en þeir greiddu
fyrir, en með tímabundinni lækkun frá
gildandi verði. Plastprent hf. mun því
lækka verðið á „Plastfix 15” um 10%
frá verðskrárverði næstu sex mánuöi.”
Á þennan hátt hljóðar niðurlag
langrar greinargerðar sem fram-
kvæmdastjóri Plastprents hf., Eggert
Hauksson, hefur sent Dagblaðinu.
í greinargeröinni er m.a. skýrt frá
þvi að vegna vélarbilunar á sl. sumri
hafi Plastprent hf. gripið til þess ráðs
að flytja inn plastpoka nr. 15 erlendis
frá. Voru þeir síðan seldir í neytenda-
pakkningum fyrirtækisins. Hætt var
framleiðslu á pokum nr. 10 um tíma,
en pokar nr. 1, 2 og 3 framleiddir i
annarri vél og seldir I lausum búntum í
stað rúlla, eins og áður.
Mistökin
koma í Ijós
1 neytendabréfi í DB 18. des. sl. var
kvartað yfir því að pokarnir nr. 15
væru ekki 50 i rúllunum, heldur 48.
1 greinargerðinni segir að þá hafi
verið haft samband við erlenda fram-
leiðandann. Viðurkenndi hann (5. jan.
sl.) að Plastprenti hf. hafi verið seldir
48 pokar á rúllu. Þeirri spurningu er
varpað fram hvers vegna Plastprent
hf. hafi ekki látið telja erlendu pokana
þegar i upphafi. En þar sem fyrirtækið
haföi aldrei verið sakað um áður að
láta of fáa poka í rúllurnar hefði það
heldur ekki búizt við slíku af öðrum.
Með greinargerðinni fylgdi einnig
Ijósrit af athugun á plastpokum, sem
gerð var hjá lðntæknistofnun íslands.
Er þar tekið fram að greinilegur mis-
munur sé á hvernig skurðarraufar eru
gerðar til þess að skilja pokana í hverri
rúllu. Innlenda framleiðslan var fin
tökkuð (merkt F I greinargerð Neyt-
endasamtakanna), í samræmi við þá
vél sem var i fyrirtækinu. Hins vegar
eru erlendu pokarnir gróftakkaðir
(merktir G i skýrslu Neytendasamtak-
anna).
Verður því að telja að nú sé þessu
plastpokamáli lokið og Plastpreni hf.
hafi ekki selt viðskiptavinum sínum
vísvitandi færri plastpoka en
áprentaðar umbúðir gefa til kynua.
Höfum opnað
bifreiðaþjónustu
í norðurenda Bílasölunnar Skeifunnar,
Skeifunni 11. Björt og rúmgóð húsa-
kynni, mjög góð þvottaaðstaða. Opið
alla daga frá kl. 8—22. Verið velkomin.
*
Brfreiðaþjónustan,
Skerfunni 11
Niðurstaða könnun-
ar á plastpokum
Verzlunarhúsnæði
við Laugaveginn
Vil kaupa eða taka á leigu verzlunarhúsnæði
við Laugaveg ca 100—200 fermetra ásamt
lager.
Tilboð er greini staðsetningu og frekari upp-
lýsingar sendist afgreiðslu Dagblaðsins Þver-
holti 11 merkt „Verzlun við Laugaveg” fyrir
laugardaginn 13. jan.
Vegna ummæla I blöðum, þ.e. Dag-
blaðinu 18. des., Þjóðviljanum 23.des.
og Alþýðublaðinu 29. des. 1978, þess
efnis, að vantaldir kunni að hafa verið
pokar i einni tegund af heimilispokum,
Plastfix nr. 15, fór Plastprent hf. þess
á leit við Neytendasamtökin, að þau
létu kanna þetta mál til hlitar. Neyt-
endasamtökin ákváðu að verða við
þeirri ósk og var könnunin gerð 3. jan.
1979. Hún nær til heimilispoka af
gerðinni „Plastfix nr. 1,2,3, 10 og 15.
í ljós kom, að um tvenns konar af-
brigði reyndist vera að ræða af gerð-
inni Plastfix nr. 15. Annars vegar voru
pokarnir „fintakkaðir" (merkt F hér
að neðan), þar sem þeir eru þver-
skornir, en hins vegar reyndust sumir
þeirra vera „gróftakkaðir” (merkt G
hér að neðan). Sýni voru eingöngu
tekin I verzlunum, sem höfðu fengið
afhendingu á heimilispokum fyrir 18
des. 1978, en þann dag hófust blaða
skrif um þetta mál. Niðurstöður könn
unarinnar voru eftirfarandi: Af pok
um nr. 10 og 15 áttu að vera 50 stk.
en af pokum nr. 1,2 og 3 áttu að vera
35 stk.
Guðmundur H. Albertsson, verzlun
Langholtsvegi 42..
Plastfix nr. 15 51 stk. (F)
Hamrakjör, Stigahlið 45—47
Plastfix nr. 15 48 stk. (G)
Hverfiskjötbúðin, Hverfisgötu 50.
Plastfix nr. 15 48stk. (G)
- 10 51-
- 3 35-
2 34— (ekki í
rúllum)
Kjötborg, Búðagerði 10
Plastfix nr. 15 48 stk. (G)
Laugavegsbúðin, Laugavegi 82
Plastfix nr. 15 49stk. (G)
- 15 50- (F)
Melabúðin, Hagamcl 39
Plastfix nr. 15 50stk. (F)
- 10 50-
- 3 35 -
- 2 37 -
- 1 35 —
Skjólakjör, Sörlaskjóli 42
Plastfix nr. 15 50 stk. (F)
- 10 51-
- 3 23 — (ekki í rúll-
um)
Verzlunin Lundur, Sundlaugavegi 12
Plastfix nr. 15 50stk. (F)
- 10 50-
3 36 - (ekki i
rúllum)
rúllum)
2 35 -
I 34 -
(ekki
Vcrzlunin
Bræðraborgarstig 5
Plastfix nr. 15 49 stk. (G)
- 15 48 — (G)
- 10
Snæbjörg,
51 -
36-
35 -
35 -
F.h. stjórnar Neytendasamtakanna
Reynir Ármannsson,
formaður.
Kartöflu-
Almennur kynningar-
fyrirlestur
er í kvöld kl. 20.30 að Hverfisgötu 18 (gegnt
Þjóðleikhúsinu).
Innhverf íhugun er auðstunduð, auðlærð, skerpir
hugsunina og eykur orku og þrótt. Þetta
staðfesta vísindarannsóknir.
Allir velkomnir.
MAHARISHI
MAHESH YOGI
íslenska íhugunavf élagið.
kaka
1 norskri matreiðslubók rákumst við
á eftirfarandi uppskrift, sem virðist
vera spennandi, einföld og frekar ódýr
í tilbúningi. Uppskriftin eraðkartöflu-
pönnuköku með beikonsneiðum.
1 egg
2 dlmjólk
1 dl hveiti
salt
3/4 kg hráar kartöflur
2 msk smjör eða smjörliki
150—200 g beikon I þunnum sneiðum
Þeytið saman hveiti, mjólk og egg.
Flysjið kartöflurnar og hakkið þær I
grænmetiskvörn. Hrærið þeim siðan
saman við deigið. Smyrjið eldfast fat
og hellið deiginu i. Raðið beikonsneið-
unum ofan á og bakið kökuna síðan i
Uppskrift
dagsins
Otal gómsæta rétti má búa til
úr kartöflum.
heitum ofni 200—250°C i 40—45
mín. Berið fram með grænmeti. Rétt
áður en rétturinri er borihn fram má
strá klipptri steinselju (eða þurrkaðri)
ofanátil skrauts.
Verð:
Hráefnið kostar i kringum 786 kr.
eða rétt innan við 200 kr. á mann, því
uppskriftin er ætluð fyrir fjóra.
- A.Bj.