Dagblaðið - 09.01.1979, Síða 6
6
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 9. JANÚAR 1979.
Shapur Baktiar tók að sér hið erfiða verkefni að mynda borgaralega stjðrn i Íran.
Margir spá honum ekki langri setu i þvi embætti. Hann situr þarna við hliðar við
mynd af Mossadegh, sem rikti árið 1952 I tran I andstöðu við keisarann. Veldi
hans varð þó ekki nema nokkrir daga þá náði keisarinn aftur völdum með góðrí
hjálp CIA leyniþjónustu Bandaríkjanna.
Erlendar
fréttir
HongKong:
Sveitir til að
verjast sjálfs-
morðum um borð
—ekki hægt að set jast langtímum saman vegna þrengsla
Flóttafólkið um borð í flutninga-
skipinu sem biður innilokað fyrir utan
Hong Kong hefur nú komið á fót sér-
stökum gæzlusveitum til að koma í
veg fyrir sjálfsmorð einstakra i hópn-
um. Skipið sem kom til hafnar i Hong
Kong fyrir sautján dögum hefur enn
ekki fengið að leggjast að bryggju og
yfirvöld I Hong Kong neita stöðugt að
leyfa flóttafólkinu að fara í land.
Þegar eru komnir fimm þúsund flótta-
menn frá Vietnam, sem búa i sér-
stökum búðum í borginni.
Fyrst var talið að flóttamenn um
borð í skipinu væru 2700 en að sögn
talsmanns flóttamannahjálpar Sam-
einuðu þjóðanna eru rúmlega 3400
manns þar um borð.
Ástandið mun vera orðið mjög
slæmt og margir farþegar orðnir and-
lega örvinglaðir. Mjög þröngt er í skip-
inu og segir að sumir um borð geti ekki
einu sinni setzt niður vegna þrengsla
langtímum saman. Flutningaskipið er
á engan hátt útbúið til að flytja
farþega.
Hótanir hafa birzt um að flótta-
fólkið hygðist fremja hópsjálfsmorð en
ekki hefur það enn orðið.
Gripið simann
gerið góð
kaup
Smáauglýsingar
WEB1AB5INS
Þverholti11 sími 2 70 22
Opið til kl.10 í kvöld
Chicago:
GACY FJÖLDA-
M0RÐINGI
ÁKÆRÐUR
Gacy hefur verið tvígiftur og var einu
sinni dæmdur í átján mánaða fangelsi
fyrir kynferðislegt óeðli. Hann hefur
viðurkennt að hafa misþyrmt fórnar-
dýrum sinum kynferðislega. Hafa
sum líkanna sem fundin eru verið með
snöru um hálsinn.
Verjandi Gacy telur ekki auðið að
skipa hlutlausan kviðdóm í Chicago
vegna mikils umtals um málið því
verði að flytja málið annars staðar.
Saksóknarinn segist andvígur slíku.
Saksóknarinn i Illinois fylki í Banda-
ríkjunum hefur tilkynnt að John
Gacy, 36 ára fjöldamorðingi i
Chicago, muni verða ákærður nú
þegar fyrir sjö morð og grun um að
hafa myrt samtals þrjátíu og tvo. Sak-
sóknarinn sagði í gær að ef Gacy yrði
fundinn sekur, mundi hann krefjast
dauðarefsingar.
Þegar hafa fundizt tuttugu og sjö lík
pilta á aldrinum I5 til 20 ára undir
húsi Gacy. Auk þess segist hann hafa
kastað fimm líkum í nærliggjandi fljót.