Dagblaðið - 09.01.1979, Síða 8

Dagblaðið - 09.01.1979, Síða 8
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 9. JANUAR 1979. Loðnuf lotinn að halda úr höf n: „Dugar ekki að allir séu éánægðir” —segja sjómenn og eru ánægðir með loðnuverðið Bjartsýnir að eðlisfari „Ef bræðslueigendur eru óánægðir með verðið þá hljótum við að vera ánægðir. Það dugar ekki að allir séu óánægðir,” sagði Axel Axelsson, I. stýrimaður á Húnanaustinni í gær. Skipverjar voru í óða önn að gera skipið klárt þar sem það lá við Granda- garð i gær. Það var létt yfir skipverj- um á Húnanaustinni og ekki ánnað að heyra en þeir væru bjartsýnir á kom- andi vertíð. „Við erum bjartsýnir að eðlisfari. Annars stæðum við ekki i þessu,” sagði Axel og Þráinn Ómars Svansson „yfirháseti” bætti því við að sjómenn kæmust langt'á trúnni því að þeir væru örugglega trúaðasta stétt lands- ins. Skipstjóri á Húnanaustinni er Hákon Magnússon. Hann sagðist ekki hafa búizt við hærra loðnuverði en raun varð á og væri hann bara bjart- sýnn. Hann og Axel hafa verið saman á Húnanaustinni síðan 1972 og létu þeir vel af skipinu og sögðu að það hefði yfirleitt fiskað mjög vel. Skammt frá Húnanaustinni lá eitt þekktasta skip islenzka flotans, Gísli Árni. Þar var ekki minna um að vera en í Húnanaustinni enda átti skipið að fara út þá um kvöldið. Verið var að flytja sólþurrkaðan saltfisk um borð og fleira lostæti enda eins gott að vera undir allt búnir. 1 fyrra hafði Gisli Árni hundrað daga útivist í upphafi vertíðar án þess að koma að landi. Þá voru logsuðumenn að dytta að ýmsu um borð og verið var að dæla 600— 700 lítrum af smurolíu i skipið. „Aflamesta skipið miðað við stærð" Stefán Sigurðsson, 2. stýrimaður á Gísla Áma taldi loðnuverðið „ekki svo ósanngjarnt” og sagðist ekki hafa heyrt annað en sjómenn væru ánægðir með það. „Við höldum út i kvöld eða nótt þangað sem loðnan er en hvar hún er verður að koma í Ijós,” sagði Stefán. „Við erum ánægðir með verðið svo langt sem það nær. Annars hefðum við ekki farið af stað,” sagði Guð- Ctsala 10—50% verðlœkkun á öllum fatnaði einnig efiium í metratali. Jósefína, Ingólfsstræti 8. SÍMI í MÍMIER mi Fjölbreytt og skemmtilegt tungumálanám 1 004 BILAPARTASALAN Höfum úrvalnotaðra varahlufa íýmsar tegundir bifreiða, tildæmis: Franskur Chrysler '71 Fiat128'73 Toyota Crown '67 BMW 1600 '69-70 Volvo Amazon '65 Fiat 125 '73 Einnighöfum við urval af kerruefni, til dæmis undir vélsleða. Sendum um allt land. BÍLAPARTASALAN Höfiatúni 10 — Sími 11397 mundur Vigfússon, háseti á Gísla Árna. Guðmundur sagðist reikna með að stefna yrði tekin á Kolbeinseyja- svæðið. „Ég hef verið á sjó siðan ég var 15 ára,” sagði Guðmundur, „og þetta er fjórða vertíðin mín á Gísla Árna. Við erum búnir að gera það mjög gott öll þessi ár og Gísli Árni hefur verið aflamesta skipið miðað við stærð.” Skipverjar á Gísla Árna eru alls fjórtán en fá fri á milli.enda er nú svo komið að skipið er á veiðum 10 Skipverjar á Gísla Árna, „aflamesta skipi tslendinga miðaó slaginn. mánuði ársins. Strax og loðnunni er lokið heldur skipið á spærlingsveiðar. GAJ við stærð”, tilbúnir f DB-myndir Hörður t brúnni á Húnanaustinni. Frá vinstri Axel Axelsson, 1. stýrimaður, Þráinn Ómar Svansson, „yfirháseti”, og Hákon Magnússon, skipstjóri. Guðmundur Vigfússon, háseti á Gisla Árna, hefur verið til sjós frá 15 ára aldri. Hrakfarir krónunnar Gengisfall íslenzku krónunnar hefur verið hratt undanfarið eins og lands- mönnum er kunnugt. Krónan minnkar og minnkar og má sjá þróunina með því að bera saman skráð gengi íslenzku krónunnar miðað við bandarískan doll- ar. Þess ber þó að geta að dollarinn hefur staðið heldur illa að vígi að undanförnu og því sýnir þessi viðmiðun ekki til hlítar hina miklu gengisfellingu krónunnar. Árið 1967 var einn dollari jafngildi 57 króna. Meðalgengi dollarans frá 1968 til 72 var 88 kr. og snemma árs 1973 var dollarinn kominn í rúmlega 98 kr. Þá gerðust þau undur og stórmerki að gengi krónunnar var hækkað í tið þáverandi vinstri stjómar. Meðalgengi dollarans frá mai og fram í júni var þá tæplega 93 krónur. Eftir stjómarskiptin, í árslok 1974, var dollarinn kominn i tæplega 118 kr. Síðla árs 1975 var gengi dollarans 165 kr. Seint á árinu 1976 kostaði dollarinn rúmar 187 kr. og á sama tíma árið 1977 kostaði hann 209 kr. Hinn 22. nóvember á nýliðnu ári hafði heilsu krónunnar hrakað allveru lega og þurfti nú að greiða 316 krónur fyrir dollarann. Og hinn 8. janúar 1979 er söluverð dollarans 319.50 kr. og ekk- ert lát virðist á hrakförunum. Þá má geta þess að sl. haust var tekin upp sérstök gengisskráning fyrir ferða- mannagjaldeyri og verða ferðamenn að greiða 351.45 kr. fyrir hvem banda- rískan dollar, sé miðað við 8. janúar. - JH Kristján siturfyrir svörum hjá BSRB Fræðslunefnd BSRB hefur tekið upp þá nýjung að efna til erindaflutnings I fundasal samtakanna að Grettisgötu 89. Kristján Thorlacius mun hefja þessa starfsemi á nýbyrjuðu ári með því að sitja fyrir svörum í kvöld kl. 20.30. Þar geta félagsmenn í BSRB, svo og aðrir sem áhuga hafa á málefnum bandalagsins, aflað sér fróðleiks eða vakið athygli á einhverju því sem þeim erefstísinni. Verði þátttaka góð má ætla að þetta verði upphaf að því að fá til skrafs for- ystumenn á ýmsum sviðum sem al- menning varða, segir í fréttatilkynningu frá BSRB. Dagblað án ríkisstyrks Llkan Selfosskirkju eins og hún verður fullgerð. Turninn og litla húsið við hlið hans eru væntanlegt safnaðarheimili sem framkvæmdir eru hafnar við. ALLIR KÓRAR SELF0SS SUNGU SAMAN Selfossbúar fengu heldur betur tæki- færi til að heyra í kórum sinum um jólin, því allir kórarnir fimm héldu þrenna tónleika fyrir fullri Selfosskirkju. Hver kóranna flutti þrjú lög og i lokin sungu þeir allir saman tvö lög við góðar undir- tektir. Þessir kórar eru Kirkjukórinn undir stjóm Glúms Gylfasonar, Barnaskóla- kórinn undir stjórn Björns Þórarinsson - ar.Gagnfræðaskólakórinn undir stjórn Jóns Inga Sigurmundssonar, Karla- kórinn undir stjórn Ásgeirs Sigurðssonar og Samkórinn undir stjórn Björgvins Valdimarssonar. Tónleikarnir voru haldnir til styrktar byggingu safnaðarheimilisins sem unnið er við. 1 lok þriðju og siðustu tónleik- anna afhenti fulltrúi kóranna sóknar- prestinum, séra Sigurði Sigurðssyni, ágóða af aðgangseyri sem var samtals rúm hálf milljón króna. - KE Selfossi

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.