Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 09.01.1979, Qupperneq 23

Dagblaðið - 09.01.1979, Qupperneq 23
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 9. JANÚAR 1979. I Útvarp Sjónvarp NAM, MINNI, GLEYMSKA - sjónvarp í kvöld kl. 20.55: AÐ LÆRA AÐ MUNA TIL AÐ GETA LÆRT Sjónvarpið sýnir í kvöld fræðsluþátt í umsjón Friðriks G. Friðrikssonar um fyrirbærin að læra og að muna og gleyma. Er þátturinn sérstaklega ætlaður foreldum barna á grunnskóla- stigi og kennurum. Meðfylgjandi mynd verður notuð til að skýra þessi fyrirbæri. Er hún nokkuð flókin og er því betra fyrir fólk að hafa hana hjá sér á meðan það horfirá þáttinn. Hér áður fyrr og reyndar alveg fram á siðustu daga hefur það að læra, muna og gleyma verið tiltölulega einfalt. Annaðhvort muna menn eitthvað eða ekki, annaðhvort læra þeir eitthvað eða ekki. En hinn einfaldi heimur er kominn að falli. Nú er allt orðið svo flókið og menn verða að byrja að læra hvernig á að muna hlutina áður en þeir geta byrjað að læra þá. Hvort menn muna svo eitthvað betur en áður skal ósagt látið, hlýtur það ekki að vera? -DS. Á HUÓÐBERGI — útvarp íkvöld kl. 23.05: Ljóð eftir Schiller HANDTEKINN FYRIR FYRSTA LEIKRIT Sin Óðurinn til gleðinnar eftir Friedrich von Schiller á á dagskrá þáttarins Á hljóðbergi í kvöld ásamtöðrum kvæðum eftir Schiller. Flestir kannast án efa við Óðinn til gleðinnar, sem sunginn er við lag eftir Beethoven í 9. sinfóniu hans. Matthías Jochumsson þýddi þann texta yfir á íslenzku. Þorsteinn Ö. Stephensen las hann fyrir okkur að vanda á nýárs- dag er 9. sinfónían var flutt í útvarpi. Johann Christoph Friedrich von Schiller var fæddur árið 1759 i Þýzka- landi. Faðir hans ætlaði honum að læra guðfræði en að boði hertogans í Wurtemberg, sem faðir hans var i þjónustu hjá, fór hann þess í stað að lesa lög. En að lokum fór þó svo að hann ákvað að verða læknir og útskrifaðist sem slikur 1780. Þó hann væri róleg- heitamaður að sjá var hann afar tilfinninganæmur og kom það fram í Ijóðum hans og leikritum. Fyrsta leikrit hans, Ræningjarnir, sló þegar i stað i gegn þótt það þætti mjög rót ækt. Schiller, sem þá var þjónn hersins, skrópaði á æfingu til þess að sjá frumsýningu leiksins en var þá hand- tekinn og honum bannað að skrifa i framtíðinni nokkuð annað en rit læknis- fræðilegs eðlis. En hann flúði og lauk í Bauerbach við leikritið Fieskoog Kabale og Liebe. Heils.i Schillersbilaði erliann vann við að skrifa sögu þrjátiu ára stríðsins ásamt fleiru. Um svipað leyti kynntist hann Goethe.Vinátta þeirra ogsamstarf var mikið, og eru þeir jafnvel oft nefndir i sömu andrá. Friedrich von Schiller. Schiller veiktist hastarlega árið 1805 ogdóskömmuseinna. -DS. J Útvarp Þriðjudagur 9. janúar 12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynningar. 12.25 Veðurfregnir. Fréttir. Tilkynningar. Tón- leikar. Á frívaktinni. Sigrún Siguröardóttir kynnir óskalög sjómanna. 14.30 Miðdegissagan: „Á norðurslóðurn Kanada” eftir Farley Mowat. Ragnar Lárus- son les þýðingu sína (9). 15.00 Miðdegistónleikar: Filharmóniusveit Lundúna leikur „Fyrir sunnan”, forleik op. 50 eftir Edward Elgar; Sir Adrian Boult stj./ Gerty Herzog, Silvia Kind, Irmgard Helmis og RIAS-sinfóníuhljómsveilin i Berlín leika Litla konsertsinfóniu fyrir píanó. sembal, hörpu og hljómsveit eftir Frak Martin; Ferenc Fricsay stj. / La Suisse Romande hljómsveitin leikur „Vor", sinfóniska svítu i tveimur þáttum eftir Claude Debussy; Ernest Ansermetstj. 16.00 Fréttir. Tilkynningar. (16.15 Veður- fregnir). 1630 Popphorn. Halldór Gunnarsson kynnir. 17.20 Tónlistartlmi barnanna. Egill Friðleifsson stjórnar tímanum. 17.35 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Fréttaauki. Tilkynningar. 19.35 Mælt mál. Ævar R. Kvaran leikari flytur fyrra erindi sitt. 20.00 Pianótónlist eftir Fréderic Chopin. Werner Haas leikur Tólf Etýöur op. 25. 20.30 Útvarpssagan: „Innansveitarkronika” eftir Halldór Laxness. Höfundur les (3). 21.00 Kvöldvaka. a. Einsöngur: Svala Nielsen syngur islenzk lög, Guðrún Kristinsdóttir leikur á píanó. b. Flökkukind frá Fjallsseli. Sigurður Kristinsson kennari segir frá. c. Að yrkja stöku. Samantekt um vísnagerð eftir Jó- hann Sveinsson frá Flögu. Ágúst Vigfússon flytur fyrsta hluta af þremur. d. Frá séra Snorra Brynjólfssyni i Heydal. Rósa Gísla dóttir frá Krossgerði les úr þjóðsögum Sigfúsar Sigfússonar. e. Raddir vindanna. Stefán Ásbjarnarson frá Guðmundarstöðum í Vopnafirði rekur bernskuminningar sinar; — síðari þáttur. f. Kórsöngur: Karlakórinn Geysir á Akureyri syngur. Söngstjóri: Ingi mundur Ámason. 22.30 Veöurfregnir. Fréttir. Dagskrá morgun- dagsins. 22.50 Víðsjá. ögmundur Jónasson sér um þátt- inn. 23.05 Á hljóðbergi. Friedrich von Schiller: „óðurinn til gíeðinnar’’ og önnur kvæði Gert Westphal. Albin Skoda og Hanns Bernhardt lesa á frummálinu. 23.40 Fréttir. Dagskrárlok. Útsata Útsalan byrjar á morgun. Mikil verðlœkkun. Efízubúðin, Skipho/tí 5. Breyttur sýningartími á Óskarsverðlauna- myndum: Þriðjudaginn 9. jan. High Noon sýnd kl. 7 og The Great Ziegfeld kl. 9. Miðvikudaginn 10. jan. It happened one night verður sýnd kl. 7 og Wings kl.9. Brsyttur OPID KL. 9-9 Amerísku stytturnar frá Lee Borten nýkomnar Ntag bllaitcBSI a.a.k. é kvöldia 'BIOMÍAMXHH HAFNARSTRÆTI Slmi 12717 Ritari Ráðuneytið óskar að ráða ritara til starfa hálf- an daginn, eftir hádegi. Góð vélritunar- og málakunnátta nauðsynleg. Umsóknir sendist ráðuneytinu fyrir 15. þ.m. Dóms- og kirkjumálaráðuneytið, 5-janúar 1979. Húsmæðraskólinn Hallormstað Vegna forfalla geta tveir nemendur komist á 5 mánaða hússtjórnarnámskeið við skólann. Kennslugreinar: Fatasaumur, hússtjórn og vefnaður. Upplýsingar gefur skólastjóri. Húsmæðraskólinn Hallormstað. Skrifstofustörf Skattstofan í Reykjavík óskar að ráða starfs- menn í eftirtalin störf: Skattendurskoðun. Vélritun. Skráningarvinnu á I.B.M. diskettuvél. Aðstoðarstarf á afgreiðslu. Umsóknir er greini aldur, menntun og fyrri störf þurfa að hafa borist fyrir 16. janúar nk. Skattstjórinn í Reykjavík.

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.