Dagblaðið - 29.01.1979, Page 1

Dagblaðið - 29.01.1979, Page 1
 5. ÁRG. - MÁNUDAGÚR 29. JANÚAR 1979 — 24. TBL. RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI11.—AÐALSÍMI27022. r „Heyrði högg og grát” sagði gömul kona í Saf amýrinni sem var vitni að barsmíðum sem leiddu til dauða ungrar stúlku „Við hjónin vorum vakin klukkan hálfþrjú við að fólkið á efri hæðinni þurfti að komast inn. Ég gat ekki sofnað aftur en maðurinn minn var nýsofnaður þegar ég heyrði mikil högg og grát. 1 fyrstu gat ég ekki áttað mig á hvaðan hljóðið kom en svo klæddi ég mig og heyrði þá að hljóðin komu frá svæðinu sunnan við húsið, þar sem ruslatunnurnar eru,” sagði kona, ibúi hússins Safamýri 93. Sunnan við það hús var ung kona svo illa leikin af unglingspilti á laugardagsnóttina að hún dó af sárum sínum á laugardags- morgun. „Ég vakti manninn minn og fólkið uppi kom niður því það heyrði lætin. Ég þorði ekki að opna út því við gamalmennin vitum aldrei hvað við fáum yfir okkur. En maðurinn uppi fór út. Þá sér hann piltinn þarna yfir stúlkunni og biður hann um að hringt sé fyrir sig á leigubíl, hann viti hvar stúlkan eigi heima og ætli að fara með hana þangað. Maðurinn uppi fór þeg- ar inn en hringdi ekki á leigubíl heldur á lögregluna. Á meðan hann var I sím- anum dröslaði pilturinn stúlkunni vestur fyrir húsið. Við hjónin sáum það ekki en maðurinn í næsta húsi sem vaknaði við lætin, sá það. Stúlkan var mjög illa klædd, yfir-' hafnarlaus og ekki með veski eða skil- riki á sér. Kalt var úti, 10 stiga frost og rok þannig að greinilegt er að hún hefur verið að koma úr partíi ekki langt frá. Lögreglan og sjúkraliðið komu mjög fljótt á staðinn og náðu piltinum og fluttu stúlkuna á slysadeildina. Maðurinn minn sá hana á börunum og sagði að hún hefði verið anzi illa leikin. Lögreglan var hér alla nóttina og fram yfir hádegi á laugardag og kom hingað síðast í gær til að taka myndir." sagði gamla konan. -DS. í skjóli undir tröppum hússins við Safamýri 93 er sorptunnugeymsla. Þar var unga stúikan barin til óbóta. DB-myndir Hörður. Ekki amalegt að fá slíka skepnu á krók- inn. Þeir á Otra GK 5 fengu hann i Vikurál núna fyrir helgina. Þorskurinn atarna er 22 kíló og er 144 sentimetrar á lengd. Ummál hans fyrir aftan haus reyndist 70 senti- metrar. Því miður eru slíkir gríðarþorskar allt of sjaldgæfir nú til dags. -DB-mynd Hörður. Alþýðubandalagið enn ósveigjanlegt Enn er óleystur ágreinungur milli stjórnarflokkanna um mörg mikilvæg atriði I viðræðum þeirra um efnahags- aðgerðir. Þannig hefur ekki orðið sam- komulag um að binda fjárfestingu á næstu tveimur árum og rikisútgjöld við ákveðnar stærðir. Alþýðubanda- lagið hefur ekki fallizt á það að svo stöddu. Þetta á við um tillögur um, að ríkis- báknið fari ekki fram úr 30 af hundr- aði af þjóðarframleiðslunni á næstu tveim árum og heildarfjárfesting fari i ár ekki upp úr 24,5% af þjóðarfram- leiðslunni. Alþýðubandalagið hefur heldur ekki enn samþykkt drög að lánsfjáráætlun, sem liggja tyrir frá hinum. Skiptar skoðanir eru, hversu fast bundnir við I. febrúar flokkarnir séu um tillögurnar. I útvarpsþættinum Beinni línu kom fram hjá Kjartani Jóhannssyni ráðherra, að „skýrsla” yrði lögð fram I ríkisstjórn fyrir l. febrúar. DB hefur áður greint frá hug- myndum um, að það uppfylli fyrirheit forsætisráðherra um tímamörk, að drög að frumvörpum liggi fyrir I rikis- stjórn fyrir l. febrúar, þótt þau komi ekki fyrir Alþingi fyrr en eftir næstu helgi. Litið sem ekkert hefur enn verið rætt í þessum hópum um kaupgjalds- málin, þar sem ágreiningur er mikill. Viðræður við verkalýðshreyfinguna eru á döfinni næstu daga. -HH. ............................... Norræn samvinna í verki: Daninn Pedersen hefur synjað áfrýjun Víkings Daninn Frelund Pedersen hefur um hvernig atkvæði hans verður og sent IHF — Alþjóðahandknattleiks- formaður IHF, Höglund, sem að sambandinu atkvæði sitt í sambandi öllum likindummunstyðjalandasinn, við áfrýjun Víkings á brottvísun úr þó ekki sé vitað hvernig atkvæði hans Evrópukeppni. Hans atkvæði var — fellur. vísið Víking úr Evrópukeppni bikar- hafa. Því bendir nú flest til, að Víking- DB hafði samband við Pepp Maier, ar verði dæmdir frá keppni á jöfnum framkvæmdastjóra IHF i Basel i atkvæðum — 3-3. Sovétmenn hafa morgun. Ekki hafði þá enn verið þegar lýst yfir stuðningi við Víking, og dæmt í Víkingsmálinu þó svo að Vík- Spánverjar og V-Þjóðverjar verið já- ingum hafi verið lofað niðurstöðu i kvæðir. Hins vegar eru þrír í fram- máliriu um helgina. Maier sagði að kvæmdanefndinni frá Norðurlöndum, fundur yrði í dag um málið hjá IHF og tveir Svíar og einn Dani. Svíarnir eru Vikingi sendar niðurstöður málsins í Kurt Wadmark og ekki þarf að efast kvöld eða fyrramálið. Eitt stærsta uppboðið hérlendis: 570 milljón- ir boðn- ar í Font Reinhold Þ. Kristjánsson, lög- fræðingur Landsbanka Islands, ósKaði eftir öðru og síðasta upp- boði á bv Fonti, sem var boðinn upp á Húsavik si. föstudag, sam- kvæmt beiðni Fiskveiðasjóðs ts- lands og Rikisábyrgðasjóðs. Hæsta boð í togarann, sem er eign Útgerðarfélags Þórshafnar, var 570 milljónir króna. Var það frá Ríkisábyrgðasjóði. Ekki var með þessu boði full- nægt kröfum veðhafa, sem eru taldar einhvers staðar á bilinu 900— 1000 milljónir króna. Hópur lögmanna var mættur á Húsavík á þessu uppboði, sem haldið var af myndugleik sam- kvæmt auglýsingu af Sigurði J. Briem, héraðsdómara á Húsavík. Fyrir Fiskveiðasjóð Islands mættu þeir Sverrir Júlíusson for- stjóri og Þórður Ólafsson lög- maður. Fyrir Rikisábyrgðasjóð mætti Björn Ólafs lögmaður og fyrir Byggðasjóð, Guðmundur Malmkvist lögmaður. Fyrir norska kröfuhafa mætti Skúli Pálmason lögmaður. Þarna voru og mættir lögmennirnir Benedikt Ólafsson fyrir ýmsa veðhafa og fyrir Útgerðarfélag Þórshafnar Jóhann A. Jónsson forstjóri og Ásmundur S. Jóhannsson, lög- maður úlgerðarfyrirtækisins. Útgerðin á Fonti hefur lengi verið ákaflega erfið og hlotið ýmis áföll. Áhvilandi skuldir eru eins og fyrr segir áætlaðar nærri einum milljarði króna, þegar með er talinn kostnaður, vextir og annað, sem til fellur auk áhvílandi veð- skulda við lánsstofnanir og sjóveð vegna launa og annarra krafna. Er þetta eitthvert stærsta upp- boð, sem fram hefur farið hérlend- is og ef til vill hið stærsta. A

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.