Dagblaðið - 29.01.1979, Qupperneq 8
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 29. JANÚAR 1979.
FER KÍNA MEÐ HER
INN í VÍETNAM?
— málið orðið sameiginlegt áhyggjuef ni Moskvu og Washington
Sovétstjórnin hefur gefið til kynna
að hún hafi miklar áhyggjur af
hugsanlegri innrás eða íhlutun
Kínverja í núverandi styrjöld i Viet-
nam en þar ber nú hæst átökin í
Kambódíu. Vitað er að Bandaríkja-
stjórn hefur haft nokkrar áhyggjur af
hugsanlegri beinni ihlutun Kínverja i
'styrjöldina.
Kínverjar hafa stutt stjórn Pol Pots
í Kambodíu en Vietnamar hafa aftur
á móti stutt uppreisnarmenn sem hafa
með hjálp þeirra náð meginhluta
landsins á-sitt vald.
-;Ef Kinverjar mundu hefja beina
íhlutun í styrjöldina er óttast að það
gæti leitt til nýrrar styrjaldar i
Suðaustur-Asíu i líkingu við Víetnam-
styrjöld Bandarikjamanna og Frakka.
VEGG- OG GÓLFFLÍSAR
YFIR 100 MISMUNANDI GERÐIR OG LITIR
Gott flot er I bátnum, en rétt er að muna eftir bjargbeltunum.
SÍI: TILVALIÐ LEIKFANG
Fínlux
Litsjónvörp
7i-
FISHER
Hljómtæki
OCOSINA
Myndavélar
TSIGínfl
Linsur
sunpflK
Flöss
MAGNON
Kvikmynda
sýningavólar
HOYfl
Ljósmynda
filterar
MallorY
Rafhlööur
ZENITH
ZORKI - KIEV
MYNDAVÉLAR
SEKONIC
Ljósmælar
8 MM
KVIKMYNDATÖKUVÉLAR
SJÓNVARPSBÚDIN
BORGARTÚN118 REYKJAVÍK SÍMI27099
^ audio
technica
Pickup
Heyrnartól
Astra Music
Útvarpsklukkur
tefiecta
Kvikmyndatöku
Ijós og
Sýningartjöld
Þrifætur
GINO
Ljósmynda
töskur
spéctrUm
Sjónvarps
leiktæki
SUPER ZENITH
Sjónaukar
— bátur sem hægt er að brjóta saman
og vegur aðeins 32 kg
Þrátt fyrir kulda undangenginna
daga, eru Lundúnabúar farnir að hugsa
til sumarsins. Dagana 4.-14. janúar sl.
var haldin mikil sýning á ýmsum sumar-
leyfisgögnum og meðal hluta þar var lítil
bátkæna, sem vakti mikla athygli.
Báturinn er úr harðviði og sterkum
gerviefnum og botn og hliðar fylltar með
sams konar efni og er i bjargbeltum,
þannig að báturinn flýtur mjög vel.
Hann er ákaflega léttur aðeins 32 kg og
hægt er að brjóta hann saman á
toppgrind á bil. Það tekur aðeins 30
sekúndur að leggja bátinn saman.
Árar fylgja bátnum, en annars er
hægt að kaupa með honum litinn utan-
borðsmótor, tveggja hestafla. Bátur sem
þessi er að sjálfsögðu aðeins gerður fyrir
mjög grunn vötn og tjarnir og aðeins til
notkunar í mjög góðu veðri. Þá má ekki
gleyma því að hafa bjargbelti á báts-
verjum, sérstaklega ef farið er með börn
í bátinn.
Verði báturinn fyrir hnjaski, er mjög
auðvelt að gera við hann. Viðarlitur er
innan í bátnum, en hann er
appelsinugulur að utan, þannig að hann
sést mjög vel, langt að.
ÓH/JH.
Anderson, Htíbner
og Polugajevski
efstir í Hollandi
Robert Híibner, Vestur-Þýzkalandi,
tók sæti við hlið þeirra Polugajevskis
og Andersons, er hann sigraði Nonu
Gabrindashvili i 7. umferðinni i
Hoogovens-skákmótinu i Hollandi i
gær.
Sovézka skákdrottningin Gabrinda-
shvili er eina konan, sem hefur unnið
sér rétt til að kallast alþjóðlegur stór-
meistari í skák. Hún
tók forystuna í byrjun þessa móts en
hefur ekki unnið skák síðan í 3. um-
ferðinni, og nú varð hún að láta i
minni pokann fyrir hinum 31 árs
gamla tungumálaprófessor, Hubner,
einsogfyrr segir.
I. 6. umferð varð jafntefli hjá And-
erson og Dzidzindashvili (Israel).
Einnig varð jafntefli hjá þeim Polu-
gajevski og brezka stórmeistaranum
Tony Miles.
í 7. umferð varð jafntefli hjá Hort
og Sosonko, og biðskák hjá Garcia
(Kúbu) og Hans Ree (Holland).
Staðan í mótinu eftir 7 umferðir er
þessi:
L-3. Hubner, Polugajevski, Anderson:
4 l/2.
4.-5. Miles, Sosonko: 4.
6. Timman: 3 I/2 og biðskák.
7. -8. Hort, Dzidzindashvili: 3.
9.-10. Garcia, Ree: 2 l/2 og biöskák.
11. Gaprindashvili: 2 l/2.
12. Nikolac: l/2ogbiðskák.