Dagblaðið - 29.01.1979, Side 9

Dagblaðið - 29.01.1979, Side 9
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 29. JANÚAR 1979. 9 Iran: ER BAKTIAR AÐIMISSA ÖLL TÖK A MÁLUM? Þær óeirðir og bardagar, sem urðu á milli fylgismanna Khomeinys og iranskra hermanna i Teheran og öðrum borgum írans um helgina þykja mikið áfall fyrir Baktiar forsætisráðherra landsins og stjórn hans. Vitað er um meira en þrjátíu manns, sem féllu í Te- heran einni og herinn beitti vélbyssum gegn hópum andstæðinga sinna. Fulltrúar Baktiars hafa fullyrt að hann hafi lagt á það áherzlu, að aðeins skyldi skotið upp í loftið en vatnsslöngum og táragasi einungis beint að mannfjöld- anum. Virðist svo sem herinn hafi tekið frumkvæðið að þessu leyti en ekki er vit- að til að hann hafi gengið svo langt á fleiri sviðum. Baktiar tilkynnti í morgun að hann mundi ekki fara fyrirhugaða ferð sina til Parísar til að hitta þar að máli trúarleið- togann Khomeiny. Fulltrúar hins siðar- nefnda hafa ekki verið sammála um hvort leiðtoginn vildi hitta Baktiar að máli. Síðustu yfirlýsingar hermdu að hann mundi einungis veita forsætisráð- herranum viðtal ef hann segði af sér embætti áður. Khomeiny telur stjórnina i Iran ólög- lega og hyggst sjálfur koma á fót ríki múhameðstrúarmanna í lran. Óttast er að bardögum muni ekki linna á strætum Teheran. Fulltrúar Iranshers hafa haldið því fram að sumir andstæðingar þeirra séu vopnaðir vél- byssum. Útíóvissuna: ÍSLENZKU LEIKAR- ARNIR STÓÐU SIG MEÐ MIKILLIPRÝÐI — en sjónvarpsþættirnir þóttu standa bókinni að baki Sýningum á sjónvarpsþættinum Út í óvissuna, eða Running blind. eins og hann nefnist á frummálinu, er nú lokið í Bretlandi. Sögusvið er ísland og er byggt á sakamálasögu Desmond Bagley. Eins og menn rekur e.t.v. minni til voru sjónvarpsþættir þessir kvik- myndaðir hér á Islandi i fyrrasumar. Nokkrir islenzkir leikarar leika i myndinni og leikur Ragnheiður Stein- dórsdóttir aðalkvenhlutverkið. Sjónvarpsþættirnir eru þrir og sagði heimildamaður DB i London, Olafur Haraldsson, að tveir fyrstu þættirnir hefðu verið nokkuð langdregnir og i heild virtist sér að þættirnir stæðu bókinni nokkuð að baki, en bókin kom út á islenzku fyrir fáum árum. Ólafur sagði þó að íslenzku leikararnir hefðu staðið sig vel, sérstaklega Ragn- heiður Steindórsdóttir. Þá þótti brezkum íslenzkt landslag tilkomumikið og margir voru á þvi að það hefði verið bezti þáttur myndaflokksins. JH. Bretar hafa nú fengið að berja Ragnheiði Steindórsdóttur leikara augum. DB-mynd Jim Smart. Erlendar fréttir Mermaid // Marine Diesel Engine Afíerbeztí hverjum teik" Vatnskældar dísilvélar með gfrkassa Verö: 40 hö. kr. 970.000 80hö. kr. 1.480.000 120hö. kr. 1.980.000 Verðfob. England Gísli Jónsson og co. hf. Sundaborg 41, sfmi 86644 þar sem 11 aðaldansarnir úr kvikmyndinni GREASE verða kenndir. Skírteini afhent sunnudaginn 4. febrúar frá kl. 16.00 tilkl. 19.00 í Brautarholti 4 og Drafharfelli 4. Innritun frá kl. 17.00 tilkl. 22.00 í Brautarholti 4, sími 20345, og Drafnarfelli 4, sími 74444. Kennslugjöld fyrir námskeiðið greiðist við afhendingu skírteina. Verið með og lærið topp- dansana í dag.

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.