Dagblaðið - 29.01.1979, Page 12
12
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 29. JANÚAR 1979.
ÁÐUR ÁTTIAÐ SEUA -
NÚ Á AÐ BYGGJA UPP
Málefni Landssmiðjunnar fá heldur betur byr undir vængi hjá núverandi stjórn
Mismunurinn á stefnu núverandi
og fyrrverandi ríkisstjóma kemur lík-
lega hvergi jafnberlega i Ijós og að því
er varðar málefni Landssmiðjunnar.
Fyrrverandi ríkisstjórn var að athuga
hvaða rikisfyrirtæki ætti helzt að
leggja niður og var Landssmiðjan þar
ofarlega eða efst á lista. Núverandi
ríkisstjórn er þveröfugrar skoðunar.
Verið er að kanna möguleika á nýjum
húsakynnum fyrir Landssmiðjuna og
hvernig megi efla hana sem mest.
Gunnar Guttormsson deildarstjóri I
iðnaðarráðuneytinu sagði á blaða-
mannafundi að engin rök mæltu með
því að Landssmiðjan yrði lögð niður
frekar en einhverjar aðrar járnsmiðj-
ur. Landssmiðjan hefði átt sinn þátt i
þróun járniðnaöar hér á landi.
Gunnar sagði að járniðnaöarmál
yrðu hins vegar í heild að teljast mjög
vanþróuð á tslandi nú. í þeim efnum
þyrfti að gera stórátak. Hann sagði að
ráðuneytið hugaði nú að nýjum
og hentugri húsakynnum fyrir Lands-
smiðjuna. Strönduðu framkvæmdir
helzt á því að enn hefðu forráðamenn
Reykjavíkurborgar ekki ákveðið hvar
framtíðarstaður skipasmiða- og skipa-
viðgerða ætti að vera við Reykjavíkur-
höfn, en I námunda við þann stað væri
æskilegast að Landssmiðjan yrði til
húsa.
Þorsteinn Ólafsson aðstoðarmaður
ráðherra taldi það firru að leggja niður
ríkisfyrirtæki sem búið væri að byggja
upp.
Landssmiðjan á því líklega eftir að
rísa upp eins og fuglinn Fönix — hafi
hún einhvern tíma komizt í alvarlega
lægð.
-ASt.
Þaö er margt
sem þér líkar vel
íþeim
nýju amerísku
Aflmikil 5,7 lítra 8 cyl. vél
Sjálfskipting
Vökvastýri
Aflhemlar
Styrkt fjöðrun
Sæti fyrir 12 manns
Millibil hjóla 125”
Burðargeta 2,400 kg
Urval lita, innan og utan
Chevrolet Sport Van kr. 6.850.000. til sendibílstjóra
Þetta er þaó sem þeir nýju
frá General Motors snúast allir um
Chevrolet Sport Van til annarra kr. 8.900.000.
Baldur
aftur um
Breiðafjörð
Starfræksla flóabátsins Baldurs á
Breiðafirði hefst innan tíðar eftir að
hafa legið niðr.i um nokkurt skeið vegna
fjárh^gsörðugleika útgerðarinnar. Fiski-
bátur var leigður á meðan til brýnustu
flutningaverkefna.
Samgönguráðuneytið hefur m.a.
unnið að lausn þessa máls og með
ýmsum breytingum á rekstrinum, svo
sem fækkun mannafla við hann, sýnist
nú mögulegt að halda rekstrinum áfram
og kann ferðafjöldi að verða svipaður og
áður. Ekki er fullgengið frá málinu en á
starfsmanni ráðuneytisins mátti skilja að
það yrði alveg á næstunni.
-G.S.
Tæpar300
milljónir í
dreifbýlis-
styrki
— afgreiddir ífebrúar
„Það er veitt 295 milljónum króna til
dreifbýlisstyrkja á fjárlögum og þeir
verða greiddir út I byrjun febrúar,” sagði
Halldór Ámason, fulltrúi í fjármála- og
áætlanadeild menntamálaráðuneytisins
í viðtali við DB. „Styrkir þessir eru veitt-
ir þeim nemendum, sem verða að sækja
nám sitt til Reykjavikur og ekki njóta
aðstoðar Lánasjóðs islenzkra náms-
manna.”
Sagði Halldór að meðalstyrkurinn
væri um kr. 115 þúsund á nemanda, en
þeir væru breytilegir. Væri t.d. miðað
við heimferðarstyrk til þeirra sem
byggju fyrir utan samsvarandi radíus og
frá Reykjavík að Þjórsá, en fastur
styrkur væri 16.500 krónur í fæði og
húsnæði.
Alls verða 2550 styrkir veittir i ár.
-HP.
Aukin tillitssemi
bætir umferðina
UMFERÐARRÁÐ.
ÞÚ SPARAR
TÍMA, FÉ OG
FYRIRHÖFN
EF ÞÚ NOTAR