Dagblaðið - 29.01.1979, Side 32
Olíumöl h.f.—aðalf undur loks eftirtvö og hálft ár:
FYRIRTÆKK) VIRÐIST
Á BARMIGJALDÞROTS
Fyrirtækið Oliumöl h.f. stendur
höllum fæti um þessar mundir. Aðal-
fundur fyrirtækisins var haldinn á
föstudaginn var og boðið i mat og
drykk. Hafði aðalfundur þá ekki verið:
haldinn i tvö og hálft ár.
Reikningar fyrir árið 1977 voru
lagðir fram og segir endurskoðandinn í
áritun sinni að bankareikningar, víxla-
eign og langtímaskuldir hafi verið
kannaðar, en að öðru leyti hafi endur-
skoðun ekki farið fram. Reikningur
þessi er því ekki fyllilega endurskoðað-
ur.
Tölur þessa reiknings flytja íbúum.
Reykjanesumdæmis, sem eru eigendur
fyrirtækisins að stórum hluta, heldur
uggvænleg tíðindi.
Tapið árið 1976 virðist vera 28
milljónir, 1977 84 milljónir. Höfuð-
stóll fyrirtækisins er öfugur um 129
milljónir, þ.e. skuldir umfram eignir.
Skuldir Olíumalar h.f. eru að upp-
hæð 749 milljónir og eru sveitarfélög-
in á Reykjanesi ábyrg fyrir greiðslu
þeirra. Þrátt fyrir þessa stöðu hafa
jöfnunarhlutabréf verið boðin út.
Reynt hefur verið að fá Vegagerð
ríkisins til að gerast eignaraðili í fyrir-
tækinu, enda þótt allt virðist stefna á
gjaldþrot.
Söluskatt að upphæð 55 milljónir
frá 1977 hafa Oliumalarmenn ekki
greitt skv. reikningunum, og opinber
gjöld eru í skuld. Hefur félagið ekki
talið fram til tekju- og eignarskatts
síðustu tvö ár og því fengið áætlaða
skatta og gjöld, sem endurskoðandi
telur þó möguleika á að fá leiðrétta.
Tveir verkfrasðingar Páll Hannes-
son og Björn Ólafsson hafa verið
fengnir til að gera könnun á vanda-
málum fyrirtækisins. Framhaldsaðal-
fundur fyrir 1977 hefur verið boðaður
i apríl.
Framkvæmdastjóri Oliumalar h.f.
er Björn Einarsson, tæknifræðingur,
en stjórnarformaður er Ólafur G.
Einarsson, alþingismaður.
-JBP-
Brennuvargur á ferð:
Skvetti úr bensínfötu
á hurðina og kveikti í
Ibúar að Skólabraut 61 Seltjarnarnesi,
urðu varir við mannaferðir i garði sínum
um kl. 21 í gærkvöldi. Ekkert frekar var
gert í því, en skyndilega var sem skvett
væri úr vatnsfötu á útihurð hússins. Það
reyndist þó heldur eldfimari vökvi því
eftir að skvett var á hurðina gaus upp
mikið eldhaf við útihurðina.
Maðurinn sem var að pukrast i garð-
inum hafði skvett bensini á hurðina og
stétt fyrir framan og kveikt siðan i. Ekki
reyndist unnt að komast út til þess að
slökkva eldinn, svo fólRið fór upp á efri
hæð hússins, þar sem hringt var i lög-
reglu.
Aður en lögreglan kom hafði bensínið
þó brunnið að mestu þannig að heimilis-
fólk komst út og gat slökkt i eldinum,
sem enn lifði. Skemmdir urðu ekki telj-
andi á hurðinni eða húsinu, þar sem það
var nær eingöngu bensínið sem brann.
En vart þarf að lýsa þvi hvernig fólki
verður við slíka heimsókn. ^ -'
Brennuvargurinn slapp út i nátt-
myrkrið og náði lögreglan ekki að hand-
sama hann. íkveikjur hafa ekki verið á
Seltjarnarnesi að undanförnu, en þær
voru tiðar í Reykjavík fyrir jól.
JH.
Ólafur G. Einarsson, alþingismaður:
„Eigum um-
fram skuldir”
„Ástæðan fyrir því, að aðalfundur
hefur ekki verið haldinn fyrr, er fyrst
og fremst erfið staða fyrirtækisins og
tilraunir stjórnar þess að koma
hlutunum í rétt horf,” sagði Ólafur
G. Einarsson stjórnarformaður Olíu-
malar hf. I viðtali við Dagblaðið,
„Við teljum okkur hafa gert það nú'
með því að leggja til að hlutafé verði
stórlega aukið. Það er trú okkar að
núverandi hluthafar notfæri sér rétt
sinn til þess að auka hlut sinn í fyrir-
tækinu og láti eignir þess ekki fara í
súginn.”
Ólafur sagði að nýtt mat á eignum
fyrirtækisins, gert af verkfræðistofu,
sýndi að eignir félagsins næmu um
880 milljónum króna, þannig að eignir
umfram skuldir væru um 250
milljónir.
„Söluskatt höfum við verið að gera
upp smátt og smátt,” sagði Ólafur
ennfremur. „Viðskipti okkar við stóra
aðila eru ekki gerð upp fyrr en i enda
árs og söluskattur því ekki reiknaður
fyrr en eftir á. Við skuldum því ekki
söluskatt fráárinu 1977, en viðskiptin
hafa fariðframáþvíári.”
>
Þegar lögreglan kom á staðinn var
búið að draga stúlkuna suður fyrir
húsið og lá hún þarna I skotinu.
Blóðug fingraför piltsins eru á
veggnum.
Sautján ára Reykvíkingur varð
ungri stúlku að bana aðfaranótt laug-
ardagsins síðasta við Safamýri 93 i
Reykjavík. Ibúar i húsinu við Safa-
mýri, öðru húsi frá Miðbæ, urðu varir
við neyðaróp stúlkunnar, dynki og
óhljóð. Maður í húsinu fór út að at-
huga hverju þetta sætti og kom að
óhugnanlegri sjón.
Stúlkan var mjög illa farin i andliti
og yfir henni stóð pilturinn, Sigurður
Jónsson Skúlagötu 64 I Reykjavík.
Var hann þá að bera hana að rusl
geymslu hússins.
Það var klukkan 4 um nóttina að
kallað var á lögreglu á staðinn af fólki
í húsinu við Safamýri. Lögreglan kom t
Ung stúlka lézt eftir átök:
Ungur maður í gæzlu
hefur ekkert játað
skjótt á staðinn og handtók þar unga
manninn sem var þá á hlaupum frá
staðnum.
Stúlkan sem var mjög illa til reika
var flutt umsvifalaust á Borgarspital-
ann. Þar lézt hún kl. 10.05 á laugar-
dagsmorgun.
í yfirheyrslum hjá Rannsóknarlög-
reglu rikisins sem stóðu alla helgina
bar Sigurðúr eftirfarandi:
Hann kvaðst hafa hitt stúlkuna,
Sunnu Hildi Svavarsdóttur, írabakka
8, 21 árs gamla, á dansleik i veitinga-
húsinu Klúbbnum þá um kvöldið. Að
dansleiknum loknum hafði hann
fengið hana til að koma með sér í
heimahús við Háaleitisbraut þar sem
hann taldi að mundi vera gleðskapur
hjá kunningjafólki. Var hann þá tals-
vert ölvaður og kveður stúlkuna
einnig hafa verið það, þó öllu meira
því hún sofnaði í gleðskap þessum.
Rétt fyrir klukkan 4 um nóttina fór
fólk að hugsa til heimferðar og fór
Sunna þá ein á undan út úr húsinu og
vildi ekki þiggja boð um heimkeyrslu.,
Ekki vissi fólkið sem þarna átti hlut
að máli um nafn hennar eða heimilis-
fang, en hún kvaðst eiga heima
skammt frá staðnum.
Hélt Sigurður nú á eftir stúlkunni
og kvaðst ætla að fylgja henni heim.
Fólkið ók hins vegar hring kringum
húsið en sá hvorugt þeirra, Sigurð eða
Sunnu Hildi.
Skömmu siðar vaknaði fólk i næsta
húsi við dynkina og óhljóðin og hús-
bóndinn hélt út til að kanna af hverju
þetta stafaði. Frá húsinu sást Sigurður
draga Sunnu Hildi i átt að sorpgeymsl-
unni og datt hann einu sinni við þetta.
Vildi Sigurður að kallað yrði á leigubil,
en ekki lögregluna.
Rannsóknarlögregla ríkisins tók við
rannsókn á atburði þessum og vann
allan laugardaginn fram á kvöld og all-
an gærdag að yfirheyrslum.
Njörður Snæhólm, yfirlögreglu-
þjónn, tjáði blaðinu að pilturinn bæri
að hann hafi ekki barið stúlkuna, og
hafi hún látizt af hans völdum, þá hafi
það ekki verið viljandi gert. í sorp-
geymslunni var talsvert af skóflum og
kústum, og á staönum mun hafa fund-
izt kústskaft, sem var blóði drifið.
Sigurður Jónsson var i gær úrskurð-
aður í 59 daga gæzluvarðhald eftir
kröfu rannsóknarlögreglunnar.
JBP
frjálst, úháð daghlað
MÁNUDAGUR 29. JAN. 1979,
Hafskip:
Formað-
urinn
boðar
fund
— en stjórnin búin að
ákveða að mæta ekki
Magnús Magnússon, stjórnarfor-
maður í Hafskip h.f. hefur boðað stjórn-
arfund í skrifstofum fyrirtækisins í dag
með símskeyti. Á föstudaginn kom
stjórn og varastjórn fyrirtækisins saman
á fund, þar sem Magnús var ekki boð-
aður. Var þar samþykkt af 5 stjórnar-
niönnum að mæta ekki á fund Magnús-
ar, einn stjórnarmanna vildi ekki greiða
atkvæði.
Samþykkt var á fundi þessum að boða
hluthafa til fundar 14. febrúar nk. og
verða málefni stjórnarformannsins þar
til umræðu og hvað gera skuli í stöð-
unni. -JBP-
Reyðarfjörður:
Föst í
tólf tíma
í snjóbfl
Óvenjulega snjóþungt er víða á Aust-
fjörðum um þessar mundir og hafa
menn átt í erfiðleikum vegna ófærðar.
Hafa snjóbílar verið notaðir víða, en
þó hefur komið fyrir, að þeir hafa einnig
átt í erfiðleikum. Þannig fór snjóbíll frá
Reyðarfirði með farþega í flug til Egils-
staða núna um helgina. Um níu km leið
frá bænum lenti snjóbíllinn i miklum
lausasnjó og festist. Var snjóbíll frá
Egilsstöðum sendur á staðinn, en ekki
fór betur en svo, að hann festist líka.
Var þá fenginn snjóblásari frá
Vegagerðinni á Reyðarfirði og fóru
nokkrir bílar í fylgd með honum. Tókst
að ná fólkinu úr snjóbílunum, en það
hafði þá hafzt við þar I tólf klukkustund-
ir. Engum varð meint af. VÓ/HP.
„Það ereldur
lausíHá-
skólabíói”
— sagði rödd í síma sem
gabbaði slökkviliðið
„Það er eldur laus í Háskólabíói,”
sagði rödd i síma slökkviliðsins kl. 15.24
á laugardaginn. Frekari upplýsingar
fylgdu ekki en slökkviliðið brá skjótt við
og allt tiltækt Iið var sent á vettvang.
Það þýðir fjórir slökkvibílar og tveir
sjúkrabilar og 10—-13menn.
Er að bíóinu var komið kom í Ijós að
um gabb hafði verið að ræða. Er talið
fullvíst að hringt hafi verið úr almenn
inssíma til slökkviliðsins. -ASt.
rVKaupio %
,2 tölvur; í
I* OG T.ÖLVI
BANKASTRÆTI8
i^W!276^