Dagblaðið - 31.01.1979, Blaðsíða 6

Dagblaðið - 31.01.1979, Blaðsíða 6
6 DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 31. JANÚAR 1979. 1X21X2 1X2 23. leikvika — leikir 27. janúar 1979 Vinnlngsröð: 1 x 2 - 111 - 211 - x x x, ■ 1. vinningun 11 réttir — kr. 145.500.- f' 2822 35531(4/11) 40532(4/10) 2. vinningur: 10 réttir — kr. 7.300.- 1420 1543 1561 1844 '2467 2301 4405 4708 6533(2/10) 7109 7242 30282 30580 30634 30783 31459 31656 31864 32230 + 32438 + ■33030 33496 33807 33957 + 34527 34549 35165 35341 + 35346+ 35351+ 35476 35652 35919 + 36182 36364+ 36365 + 36423 36430 40065 40422 + 40652 42186 + 42335(2/10) 55063 Kærufrestur er til 19. febrúar kl. 12 á há- degi. Kærur skulu vera skriflegar. Kærueyðu-^ blöð fást hjá umboðsmönnum og á aðalskrif- stofunni. Vinningsupphæðir geta lækkað ef kærur verða teknar til greina. Handhafar nafnlausra seðla ( + ) verða að framvísa stofni eða senda stofninn og fullar upplýsingar um nafn og heimilisfang til Get- rauna fyrir greiðsludag vinninga. GETRAUNIR íþróttamiöstöðin - REYKJAVÍK BILAPARTASALAN Höfúm úrval notaðra varahluta íýmsar tegundir bifreiöa, tildæmis: Cortina '70 Rat125'73 BMW 1600 árg. '68 Toyota Crown '66 Franykur Chrysler '71 Emnig höfum viö urval af kerruefni, til dæmis undir vélsleöa. Sendum um alltland. BÍLAPARTASALAN Höföatúni 10 — Sími 11397 Meddelelse fra den danske ambassade: 1. Fra og med den 1. januar 1979 vil börn, der födes í ægteskab, hvor moderen er dansk statsborger, selv automatisk erhverve dansk statsborgerret ved födselen. (Börn, der födes i ægteskab, hvor faderen er dansk statsborger, vil fortsat som hidtil erhverve dansk stats- borgerret ved födselen). 2. Börn, der er födt för den 1. januar 1979, men eftir den 31. december 1960 i ægteskab, hvor moderen er dansk statsborger, har mulig- hed for selv at erhverve dansk statsborgerret ved erklæring. 3. Erklæring afgives for börn, hvis moder er bosat i udlandet, til vedkommende danske udenrigsrepreæsentation, i Island som hoved- regel Den danske Ambassade i Reykjavik, i undtagelsestilfælde vedkommende danske konsulat. Erklæringen afgives af barnets moder og er betinget af, at moderen sável ved barnets födsel var, sem ved erklæringens af- givelse er dansk statsborger. 4. Erklæring vedrörende et barn, som ved afgivelsen er fyldt 15 ár, skal tiltrædes af barnet. 5. Erklæring vedrörende börn, der ved af- givelsen er fyldt 18 ár, kan kun afgives til og med den 30. juni 1979. Ingen erklæring kan afgives eftir den 31. december 1981. Retsgyld- igheden af erklæringer, der afgives mellem de to tidspunkter, forudsætter altsá, að barnet ved afgivelsen ikke er fyldt 18 ár. 6. Nærmere oplysninger kan indhentes hos ambassaden eller nærmeste danske konsulat. Bretland: Sóparar og þvotta- konur taka viö af bifreiðastjórunum —götur í London eins og ruslahaugar og hætt við að senda verði sjúklinga heim af sjúkrahúsum Ýmsir verkamenn í opinberri þjónustu hafa nú hafið verkfall í Bret- landi og virðist svo sem mesta þungan- um af vinnustöðvun flutningabifreiða- stjóra sé ekki aflétt en það taki við. Þessir verkamenn, sem starfa við ýmis sjúkrahús, skóla við ræstingu á skrif- stofum og opinberum byggingum eru með þeim lægst launuðu í Bretlandi. Ríkið hefur boðið þeim 5% launa- hækkun, sem er í samræmi við launa- málastefnu rikisstjórnar Callaghans forsætisráðherra. Hafa forustumenn verkamannanna þverlega neitað þvi tilboði. Flutningabifreiðastjórnarnir fengu 20% launahækkun og ákvæði um að lágmarks laun verði 64 pund á viku. Götusóparar eru ein þeirra starfs- stétta, sem hafið hafa verkfall og er sagt að sumar götur í miðhluta Lond- on séu orðnar heldur óhrjálegar. Starfsfólk sjúkrahúsa og skóla hefur verið i verkfalli að hluta um nokkurn tima og hefur borið nokkuð á erfiðleik- um vegna þessa. Er óttazt að stjórnir sjúkrahúsa verði að grípa til þess ráðs að senda sjúklinga heim til sín vegna lítillar kyndingar, skorts á hreinu línu og ýmsum rekstrarvörum vegna verk- fallsins. Forustumenn verkfallsmanna eru> taldir krefjast sambærilegra launa og fólk í sams konar störfum hjá einka- fyrirtækjum hefur. Auk þess munu vera kröfur um í það minnsta 8% launahækkun. Báðir deiluaðilar telja ekki líklegt að samkomnlag náist á næstu dögum. Leikarar i Bandarikjunum hafa staðið i launadeilum við þá aðila sem framleiða auglýsingakvikmyndir. Eru þar frægustu leikarar heimsins við hlið óþekktra aukaleikara en ekki mun hafa gengið saman þrátt fyrir langvinnar samningaviðræður. Á meðan vinna utanfélagsmenn störf leikaranna. DB-mynd JBP. Milljónir bíöa trúarieidtogans — hótað að sprengja flugvél hans íloft upp Milljónir stuðningsmanna Khom- einys, trúarleiðtoga, búa sig nú und- ir að taka á móti honum í Teheran en þangað er hann væntanlegur frá Frakklandi á morgun. Tilkynnt var í íran i gær að Khomeiny hefði fengið leyfi til að koma til landsins. Hafði Iransstjórn eða her landsins tafið heim- för hans um rúma viku með þvi að loka öllum flugvöllum landsins. Hringt var til Alþjóðasamtaka flug- manna í London i gær og rödd í síman- um tilkynnti að flugvél trúarleiðtogans yrði sprengd í loft upp. Kvaðst sá er talaði vera fulltrúi lýöræðisaflanna í íran. Khomeiny telur núverandi stjórn landsins undir forustu Baktiars forsætis- ráðherra ólöglega og ætlar að stofna múhameðslýðveldi i lran. Trúarleiðtog- inn hefur verið i sjálfvalinni útlegð í Frakklandi síðastliðin fimmtán ár. Bandaríska stjórnin hefur ákveðið að flytja alla borgara sína frá íran eða í það minnsta þá sem ekki gegna þar nauðsyn- legum störfum. l/ef heppnuð páfa- för komin að lokum í dag lýkur ferð Jóhannesar Páls annars páfa um Mexico og Dominikanska lýðveldið. Þykir hann hafa gert góða för en ekki er Ijóst hvernig hinir ýmsu skoðanahópar meðal presta og biskupa muni taka yfirlýsing- um páfa um að forðast öfgakenndar skoðanir til lausnar vandamálum hinna snauðu í Mið- og Suður-Ameríku. Talið er vist að hann hafi valdið vinstrisinnum i klerkastétt vonbrigðum. Þeir hafa viljað að kaþólska kirkjan styddi kröfur um þjóðnýtingu stóreigna og tæki upp beinan stuðning við hina fátæku og gegn efnuðum og rikum. Yngri kennimenn, sem hafa haft töluvert afskipti af stjómmálum, hafa ekki margir látið i ljós skoðanir á yfir- lýsingu páfa. Ferðin hefur verið mikill persónuleg- ur sigur fyrir páfa. Hvarvetna þar sem hann hefur farið hafa þúsundir fagnað honum. Hafa þeir sem komið hafa til að fagna páfa sums staðar verið taldir i tug- um eða hundruðum þúsunda.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.