Dagblaðið - 31.01.1979, Blaðsíða 22

Dagblaðið - 31.01.1979, Blaðsíða 22
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 31. JANÚAR 1979. Dauðinn á Níl AGATHA CHRISTKS , PfTW USHHOV • UHIBI8KIN • 10B CHIIB BtTTl DAVK • MU fARROW • lOHHHCH OUVU HUSSfY • LS.JOtUÍ! I GfOfití KfHHfOV • iHGIU LAHSGURY 1SIMON Moc COfiKIHfULf • DiVID HIYfN MAGGK SMITH • UCKVUDDfH .lUnucwsKi DfÁIHOHTHf Hllf HEEOl Frábær ný ensk stórmynd, byggð á sögu eftir Agatha Christie. Sýnd við melað- sókn víða um heim núna. Leikstjóri: John Guillermin íslenzkur texti. Bönnuð börnum. Sýndkl. 3,6og9. Hækkað verð. B- Convoy salur Spennandi og skemmtileg ný ensk bandarísk Panavision-litmynd, með Kris Kristofferson, Ali MacGraw — Leik- stjóri: Sam Peckinpah. Íslenzkur texti. Sýndkl. 3.05, 5.40, 8.30 og 10.50. ---— salur Ökuþórinn Hörkuspennandi og fjörug ný litmynd íslenzkurtexti. Bönnuðinnan 14ára. Sýnd kl. 3.10, 5.05, 7.05,9.05 og 11.05. " " salur Liðhlaupinn Spennandi og afar vel gerð ensk litmynd með Glenda Jackson og Oliver Reed. Leikstjóri Michel Apdet. Bönnuð börnum. Sýnd fcl. 3.10, 5.05, 7.05,9.05 og 11.05. GAMLA BIO I Jólaskaupið Sprenghlægileg ný, dönsk gamanmynd, eins og þær gerast beztar. Islenzkur texti Sýnd kl. 5, 7 og9. íslenzkur texti Sýnd kl. 5,7og9. HAFNARBIO S) Með hreinan skjöld Endalokin WALKINGM Sérlega spennandi og vel gerð ný banda- risk litmynd. byggð á sönnum atburðum úr ævi lögreglumanns. Beint framhald af myndinni „Með hreinan skjöld" sem sýnd var hér fyrir nokkrú. -Bo Svenson Margaret Blye. íslenzkur texti.' Bönnuðinnan 16 ára. 'Sýnd kl. 5,7, 9 og 11.15. Kvikmyndir AUSTURBÆJARBÍÓ: Seven Beauties. Aðalhlut- verk: GiancarloGianni, Fernandi Rey, leikstjóri: Lina Wertmuller. Bönnuð innan 16 ára. Sýnd kl. 5,7 og 9. 14 ára. BÆJARBlÓ: ókindin 2 kl. 9. GAMLA Bló:Sjá auglýsingu. H AFNARBlÓ: Sjá auglýsingu. HAFNARFJARÐARBlÓ: Himnariki má biða kl. 9. tslenzkur texti. HÁSKÖLABló: Grease, aðalhlutverk Olivia New- ton-John og John Travolta kl. 5 og 9. tslenzkur texti liækkað verð. LAUGARÁSBlÓ: Derzu Uzala. Leikstjóri: Akira K urosawa. Sýnd kl. 5,7.30 og 10. NÝJA BlÓ: Silent Movie kl. 5,7 og 9. REGNBOGINN: Sjá auglýsingu. STJÖRNUBlÓ: Liðhlauparnir. Aðalhlutverk: Claudia Gravy, Mary Fletter, Sabine Sanders. Leik stjóri: Pascal Cerver. Bönnuð börnum innan 16 ára. Sýndkl. 5.7.9 og 11. TÓNABlÓ: Loppur. Klær og Gin (Paws, Claws and Jaws). Sýnd kl. 5,7 og9. Dagblað án ríkisstyrks f Útvarp Sjónvarp I RÆTUR — sjónvarp íkvöld kl. 21.15: Nýr Kúnta Kinte „Vill sjálfur flytja til Afríku” „Ég er eini lifandi leikarinn sem hefði getað leikið Kúnta á fullorðinsárum,” sagði John Amos sem við sjáum i kvöld í fyrsta sinn í hlutverki Kúnta Kinte i Rótum. Athugasemd Amos á ekki ein- ungis við hæfileika hans sem leikara heldur ekki síður allt það erfiði sem hann hefur lagt á sig til þess að skilja hvernig negrum frá Afríku líður. Eins og Kúnta ber Amos þá ósk heit- asta í brjósti að fá að búa í Afriku. „Ég vona að ég geti flutt þangað eftir nokkur ár. í fyrstu verðég þó líklega að láta mér nægja að búa þar hálft árið í einu og vinna hinn helminginn í Bandaríkjunum til að afla fjár. En takmark mitt í lifinu er að verða Afríkumaður árið um kring,” segir þessi bandaríski leikari. Amos hefur verið leikari í tólf ár af þeim 32 sem hann hefur lifað. Hlutverk Kúnta er hið langstærsta sem honum hefur boðizt og það sem hann hefur hlotið mesta frægð fyrir. Hlutverkið hefur einnig valdið því að Amos hefur ekki í bili áhuga á neinum öðrum. „Eg hef leikið það bezta hlutverk sem ég fæ nokkurn tíma. Mér reynist erfitt að ná mér út úr þvi til nýrra verka,” segir hann. Til þess að kynna sér sem bezt hlut- skipti Afrikunegra hefur Amos farið sex sinnum til Vestur-Afriku og búið þar mánuðum saman. En hver er svo John Amos í daglega lifinu? Vildi verða knattspyrnumaður John Amos ólst upp í negrahverfinu í borginni Newark í New Jersey. Foreldr- ar hans skildu þegar hann var tveggja ára og móðir hans sem fékk forræði þriggja sona átti oft í erfiðleikum með að vinna fyrir nægum mat. „Henni tókst það með hörðum vilja. Einnig tókst henni að halda okkur bræðrunum fyrir utan glæpaölduna sem rikti þarna í hverfinu," segir John. Áður en hugur Amos beindist að leik- listinni hafði hann reynt að komast áfram í knattspyrnu. „Ég var bara ekki nógu góður og einnig erfiður að vinna með,” segir hann. Upphafið að leikferlinum var að Amos var strax sem krakki flinkur við að segja sögur. Vinir hans ráðlögðu honum að nýta sér þennan hæfileika með þvi að reyna að fá vinnu hjá ein- hverri sjónvarpsstöðvanna og þá bæði sem leikari og höfundur. Ekki spillti heldur fyrir að Amos var mjög snjöll eftirherma, gat meðal annars hermt eftir öllum þeim knattspyrnuþjálfurum sem hann hafði haft. Hann ákvað að reyna að fá starf á þessum grundvelli. Eftir nokkra leit komst hann á auglýsingastofu sem slag- orðasmiður. En það þótti honum hræði- lega leiðinlegt starf. „Hugsið ykkur bara að eiga að skrifa eitthvað af viti um hljóðnema eða þá prjónavél.” Með starfinu á auglýsingastofunni tókst Amos að koma að nokkrum hand- ritum sínum um sjónvarpsþætti og hann fékk einnig nokkur smáhlutverk. Fyrsta merkið um velgengni var handrit sem Amos samdi fyrir þátt sem hann og Leslie Uggams léku saman í. Leslie leikur reyndar dóttur Kúnta seinna í myndaflokknum Rótum. Fyrir sex árum byrjaði Amos að koma fram i þáttum Mary Tyler Moore sem við horfum nú á á laugardagskvöld- um sem Mary Richard í þáttunum Stúlka á réttri leið. Með Amos i þessum þáttum var meðal annars Ed Asner sem við sáum á laugardaginn var með Mary og lék einnig skipstjórann á þrælaskip- inu í Rótum. Lengi vel átti vinnan í sjónvarpsþátt- Hjónin John og Lillian Amos eru bæði blendinnar trúar á framtlð slna I leik- starfsemi. Þau vilja reyna eitthvað nýtt, helzt i Afriku. um Moore aðeins að vera til bráða- birgða. En svo fór að Amos var í henni í nokkur ár, þó ekki í hverjum þætti. Þetta var föst vinna sem kom sér vel fyrir hann fjárhagslega þó ekki væri hún skemmtileg að hans mati. Amos varð ekki feitur af því að leika fyrstu árin. Hvað eftir annað var billinn hans sóttur heim sem gjald fyrir van- goldnum skuldum. En síðan Rætur komu til þarf fjölskylda Amos ekki að hafa áhyggjur. Hún hefur fjárfest nokkuð af þvi sem þá kom inn i jörð og vonast John Amos til þess að hafa fastar tekjur af henni það sem hann á eftir. Þá Amos fyrir framan einbýlishús sitt I hæðum Kaliforniu. Hann vill selja hfisið og allan munaðinn sem þvi fylgir og koma sér upp litlu húsi i Afriku. John Amos var með alveg sérstaka skoðun á þvi hvernig ætti að túlka Kúnta Kinte. Eftir miklar vangaveltur fékk hann að gera það sem hann vildi. getur hann látið sig dreyma um það að flytja til Afríku. Fyrsta takmarkið er Líberia, ríki sem stofnað er af amerísk- um negrum og er enn eins konar banda- risk nýlenda. Á 19. öld, þegar banda- riskir negrar voru leystir úr ánauð, þótti mörgum sem þeir ættu hvergi heima nema i Afriku og voru þeir fluttir þangað i stórum hópum. En fyrir menn sem búið höfðu i Bandaríkjunum alla sína tíð var Líbería síður en svo eftir- sóknarverð. En þetta er útúrdúr. Kona John Amos er einnig leikkona og heitir Lillian. Hún er núna að læra að verða læknir heyrnardaufra og getur sú menntun rétt eins nýzt henni i Afríku. John er að læra að fljúga og telur það koma sér vel þar ásamt því sem hann hyggur á eitthvert frekara nám. Rætur Amos „Af hverju ég vil flytja til Afríku? Margir spyrja mig þess. Ég get ekki gefið neitt eitt ákveðið svar en allt frá því ég kom fyrst þangað hefur mér fundizt að þar og hvergi annars staðar ætti ég heima. Náttúran á ugglaust stóran hlut i því. Hérna í Kaliforníu bý ég úti í sveit og það tekur mig 25 mínútur að aka til Hollywood. En ég vil ekki skipta á sveit- inni og þvi að búa í borg. Við erum með hesta, hunda og öll þau dýr önnur sem við sjáum okkur fært að hugsa um. Þetta getum við líka gert í Afríku.” Síðan Amos lék í Rótum hefur hann haft mikinn áhuga á þvi að finna sinar eigin rætur. En honum hefur aðeins tekizt að rekja þær 2 til 3 kynslóðir aftur í timann. „1 heilt ár sátum við mamma af og til saman og spjölluðum. Ég hafði keypt handa henni uppáhaldsviskíið hennar og þegar búið var að taka tappann af flöskunni losnaði um mál- beinið á þeirri gömlu. Hún gat sagt mér frá ömmu sinni og sú saga var mjög athyglisverð. Langamma var frá Alabama og var hálfur indíáni og hálfur negri. Hún var gift hvítum manni. Um fjölskyldu föður míns veit ég mjög lítið. Langafi minn var þræll og hét Amos Amos. Vegna þess hversu sterkan mál- róm hann hafði var það starfi hans að kalla þrælana heim af ökrunum á hverju kvöldi. Ég hef ábyggilega sömu rödd og hann,” sagir Amos. (DS þýddi og endursagöi úr dönsku blaði)

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.