Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 03.02.1979, Qupperneq 24

Dagblaðið - 03.02.1979, Qupperneq 24
„Skattalegri rannsókn á svonefnd- um Finansbankamálum má heita lokið,” sagði Garðar Valdimarsson, skattrannsóknarstjóri í viðtali við DB. Hann kvað gagnaöflun lokið í flestum þeirra mála, sem skattrannsókn tekur til. Hafi þau annars vegar verið af- greidd með hækkunum samkvæmt reglum um viðurlög við skattalaga- brotum. Hins vegar hafa svo nokkur mál verið send til skattsektanefndar til álagningar sekta til viðbótar við hækkun skattálagningar. „Um fyrningu á brotum er ekki að ræða hér,” sagði Garðar, „þar sem þau fyrnast á sex árum að því er tekur til skattalagabrota.” Upplýsingar um 76 reikningshafa á 81 reikningi í Finansbanken í Kaup- mannahöfn bárust skattyfirvöldum hér í ársbyrjun 1978. Eins og DB skýrði frá á sinum tíma hafði verið stofnað til þessara reikn- inga með ýmsum hætti. Eðlilegar skýr- ingar fengust á mörgum þeirra og hafði verið löglega til þeirra stofnað. Aðrir reikningseigendur höfðu gerzt brotlegir bæði við gjaldeyris- og skattalög. „Nokkur þessara mála hafa nú verið rannsökuð og liggja hér hjá okkur." sagði Þórður Björnsson, rikis- saksóknari i viðtali við DB. Hann sagði að þegar rannsókn þessara mála allra væri lokið yrðu þau tekin til meðferðar og skoðunar með tilliti til hugsanlegrar ákvörðunar um opinbera saksókn. í grein í opnu DB i gær var frásögn af því hvernig gjaldeyrismál af sömu rótum runnin eru meðhöndluð i Sviþjóð. Ungar blaðakonur Dagblaðið fær á ári hverju margar heimsöknir, stuttar og langar. Um þetta leyti koma unglingar íir efstu bekkjum grunnskólanna og kynna sér allt sem lýtur að blaðamennsku og blaðaútgáfu. Þessa vikuna voru hjá okkur tvær dömur frá Eyrarbakka og ein úr Garðabæ. Duglegar og áhugasamar stúlkur. Á stóru myndinni er Eyrún Óskarsdóttir að kynna sér morgunblöðin á ritstjórn, en á hinni eru þærSólrún Jóhannsdóttir og Jóhanna Carlsson úr Garðabæ á blaðamanna- fundi vegna nýs búnaðar sem eykur á atvinnuöryggi málara. # DB-myndir Jóhanna Carlsson og Bjarnleifur. Lagarfossvirkjun: Með sama áf ramhaldi er sjálfgef ið að við hættum — segir stöðvarstjórinn. Vatnsborð Lagarfljóts hefur lækkað stöðugt frá miðjum desember „Með svona áframhaldi er sjálfgefið að við verðum að hætta rafmagns- framleiðslunni,” sagði Guðbergur Rúnarsson, stöðvarstjóri Lagarfoss- virkjunar, í samtali við fréttamann DB í gær. Þar eystr^ hefur ekki komið dropi úr lofti síðan um miðjan desember og er nú vatnsborð Lagar- fljóts orðið um metra lægra en það ættiað vera. „Við eigum þó langt eftir i það sem það hefur verið lægst,” sagði Guðbergur Rúnarsson. „þá er nánast ekkert eftir. Við keyrum núna á 2.5 megavöttum en fullt afl er sjö og hálft." Guðbcrgur sagði að á meðan raf- magn fengist um austurlínu væri allt i lagi enástandið yrði alvarlegt ef gerði vond veður eða línan bilaði. „Við gætum bjargað okkur — en ekki mikið meira — með dísilvélum ef allt annað bregzt,” sagði hann. Aflþörf veitusvæðisins er mjög breytileg en er venjulega á bilinu 11 —17 megavött. Þörfin nú er í há- marki. enda allar loðnubræðslur í gangi. -ÓV/BA Ákjósanleg skautasvell útbúin víða um borgina Það ætti ekki að vefjast fyrir neinum að notfæra sér skautana þessa dagana. Langt er síðan frost hefur haldizt svo lengi sem nú. Á Rauðavatni hefur leikfallanefnd Reykjavíkurborgar látið skafa ákjós anlegtsvell. Var ýta þaraðverki igær og auk þess að skafa stærðar flöt af isi lögðu vatninu bjó ýtumaðurinn til ýmsar skautaleiðir i bugðum og slaufum vítt og breitt um vatnið. Etti þvi að verða fjölmennt'um hclL-;na á Rauðavatni. Auk þess eru ákjósanleg svæði skafin við Dvergabakka og clst við Breiðholtsbraut, i Mjóddinni og loks við Rofabæ. JBP. Flugmannadeilan: Stef nt að miðlunar- tillögu sáttanefndar Sáttanefndin i flugmannadeilunni sat á fundi frá kl. 14—18 i gærdag. Báðir deiluaðilar, Félag isl. atvinnu- flugmanna og stjórn Flugleiða, hafa verið boðaðir á fund nefndarinnar í dag. Að sögn Hallgrims Dalbergs ráðuneytisstjóra. formanns sátta- nefndarinnar, er stefnt að þvi að leggja fram miðlunartillögu á fundinum í dag. JH. Skilið bóka- verð- inum — er krafa kennara- háskólanema Nemendur i Kennaraháskóla Islands mótmæla harðlega aðför rikisvaldsins að námi sínu. Almennur fundur kennara- háskólanema haldinn 1. febrúar sam-' samþykkti þessi mótmæli. Hvað eftir annað hefur fjármála- ráðuneytið og menntamálaráðuneytið hunzað kröfur skólans um nýjar stöður. byggingar og frekari þróun ^kennara- náms, að sögn nemanna. Nú er svo komið að eftir síðustu aðgerðir stjórn- valda geta kennaranemar ekki sinnt námi sínu eðlilega þar sem öðrum bóka- verði skólans hefði verið vikið úr starfi í sparnaðarskyni. Nemendumir telja bókasafnið þunga- miðju í námi sinu og krefjast þess að bókaverðinum „verði skilað” nú þegar. Þá krefjast nemarnir þess að ráðuneytin sinni þegar í stað öðrum kröfum Kennaraháskóla Íslands þvi ella verði hann óstarfhæfur með öllu vegna lang- varandi kennaraskorts, húsnæðisleysis og fjársveltis. -JH. Snæfellsnes: Slæmt ástand í sjónvarps- málum Ástandið í sjónvarpsmálum á vestan- verðu Snæfellsnesi mun nú vera mjög slæmt og hefur það aldrei verið verra þrátt fyrir að það hafi oftast verið slæmt. Ástandið mun hafa versnað mjög er Landssíminn setti upp nýja endurvarps- stöð I Grundarfirði er sendir út á sömu rás og eldri endurvarpsstöðin fyrir Hellissand, Ólafsvík, Rif og Gufuskála,- Verst mun ástandið vera á Gufuskálum og Hellissandi, þ.e. þeim stöðum sem eru fjærst stöðinni. Truflanir eru mjög tiðar. myndin er óskýr og rákir koma í hana. Þá koma litirnir mjög illa út. Einnig hefur orðið vart vélatruflana en ekki mun Ijóst hverju er þar um að kenna. HJ/GAJ.

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.