Dagblaðið - 21.03.1979, Qupperneq 23
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 21. MARZ 1979.
(i
Útvarp
23
Sjónvarp
i
/-----------:----------------------------------\
LIFIBENOVSKY - sjónvarp í kvöld kl. 20.55
Moric August Benovský hinn föngu-
legi. *-----►
Húsarínn ævintýragjami og fríði
Lifi Benovský nefnist nýr
tékknesk/ungverskur myndaflokkur
sem hefst í sjónvarpi í kvöld. Myndin
er byggð á æviminningum Moric
August Benovský sem uppi var á
átjándu öld. Benovský var mikill ævin-
týramaður og mjög friður sýnum þann-
ig að kvenfólkið lá við fætur hans.
Er flokkurinn hefst er Benovský
húsaraliðþjálfi hjá Maríu Theresu
keisaraynju i Vín. Honum berst til
eyrna að mágar hans í Slóvakíu séu að
sölsa undir sig eignir hans og bregður
við hart og heldur heim á leið, leyfis-
laust. Þegar hann kemur þangað
verður hann fyrir því óvart að verða
mági sínum að bana. Anna, dóttir
mikiivægasta mannsins á staðnum,
fremur sjálfsmorð vegna Benovský svo
hann sér sér þann kost vænstan að
flýja.
Ásamt vini sínum, fyrrverandi
unnusta Önnu, heldur Benovský til
Póllands, þar sem allt logar í
uppreisnum gegn hinu ung-
versk/austurríska keisaradæmi. Þeir
félagarnir blanda sér inn í þessar
uppreisnir en tolla þó ekki lengi í
Póllandi heldur flækjast um heiminn.
Benovský dó svo mörgum árum seinna
á Madgaskar.
Að sögn Jóhönnu Þráinsdóttur
þýðanda flokksins er hann dæmigerð
ævintýramynd við hæfi allrar
fjölskyldunnar. -DS.
NYJASTA TÆKNI0G VISINDI
—s jónvarp í kvöld kl. 20.30:
Sjálflýsandi
lífverur
Fjórar ameriskar myndir verða sýnd-
ar í þættinum Nýjasta tækni og vísindi
í kvöld. Fyrsta myndin fjallar um v
skæðan býflugnastofn sem var fluttur
frá Afríku til S-Ameríku fyrir rúmlega
tuttugu árum. Býflugur þessar voru til-
tölulega saklausar í Afriku en þegar
þær komu til S-Ameríku gerðust þær
hinar verstu óvættir og drápu bæði
menn og skepnur. Lögð hefur verið
mikil vinna í að rannsaka háttalag þess- w
ara býflugna og greinir myndin frá
þeim rannsóknum.
Önnur myndin fjallar um björgunar-
pall sem er hengdur neðan í þyrlu
og notaður t.d. sem eldvarnartæki.
Þessum palli er hægt að stýra töluvert
og hann má m.a. nota ef eldur kviknar
i háhýsi þar sem ekki er hægt að koma
við brunastigum. Þá er hægt að láta
hann renna upp með húshliðinni og
bjarga þannig út fólki. Þessi pallur er
enn á tilraunastigi og er beitt geim-
ferðatækni við hönnun hans.
Þriðja myndin fjallar um sjálflýs-
andi lífverur i sjó. Menn eru ekki á eitt
sáttir um hvaða gagn þessar lífverur
hafa af Ijósununt og greint er frá rann-
sóknum á þvi og hvort menn geti
hugsanlega haft eitthvert gagn af þessu.
Hér er um að ræða fullkomnustu fram-
Örnólfur Thorlacius.
leiðslu sem til er á Ijósum þvi að cngin
orka fer forgörðum við frantleiðsluna.
Síðasta myndin fjallar um landbúnað
við erfið skilyrði og rækjuræktun i sjó-
kerjum uppi á landi.
-GAJ
V
J
Miðvikudagur
21. marz
I2.25 Veðurfregnir. Fréttir. Tilkynningar. Tón
leikar.
13.20 Litli barnatíminn. Stjórnandinn. SigríÖur
Eyþórsdóttir, og Ágúst Guðmundsson lesa úr
ritsafni Sigurbjarnar Sveinssonar.
13.40 Víð vinnuna: Tónleikar.
14.30 Mlðdegissagan; „Fyrir opnum tjöldum”
eftir Grétu Sigíúsdðttur. Herdís horvalds
dóttir leikkonalesllO).
15.00 MiðdeRÍstónleikan Útvarpskórinn i
Letpzig syngur „Myndir frá Mátrahéraði**,
tónverk fyrir blandaðan kór eftir Zoltán
Kodály;_ Herbert Kegel stj. / Pcter Katin
leikur með Fllharmoníusveit Lundúna
Konsenfantasíu fyrir pianó og hljómsveit eftir
Tsjaikovský; Sir Adrian Bouit stj.
15.40 íslenzkt mál.
16.00 Fréttir. Tilkynningar. (16.15 Veðurfregn
ir).
16.20 Popphorn: HalldórGunnarsson kynnir.
17.20 Útvarpvsaga barnanna: „Polli, ég og allir
hinir” eftir Jónas Jónasson. Höfundur les (4).
17.40 Á hvitum reitum og svörtum. Jón Þ. Þór
flyturskákþátt.
18.10 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Vcðurfrcgnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Tilkynningar.
19.35 Frá tónleikum Tónlistarfélagsins i
Háskólabiói 27. janúar sJ. Alfons og Aloys
Kontarsky leika Konsert fyrir ivö pianó eftir
Igor Stravinsky.
20.00 Úr skólalínnu. Kristján E. Guðmundsson
stjórnar þættinum, scm fjallar um Samvinnu
skólann 1 Bifröst i Borgarfirði.
20.30 „Umskiptingurinn”, smásaga eftir W.
W. Jacobs. Óli Hermannsson þýddi. Jón
Júliusson leikari lcs.
21.00 Hljómskálamúsik. Guðmundur Gilsson
kynnir.
21.30 Ljóð eftir Rögnu Steinunni Eyjólfsdóttur.
Silja Aðalstcinsdóttir og Kristján Jóhann Jóns
son lesa.
21.45 íþróttir. Hermann Gunnarsson segir frá.
22.10 Loft og láð. Pétur Einarsson ræðir við
Björn Jónsson deildarstjóra um Alþjóðaflug
málastofnunina.
22.30 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá morgun
dagsins. Lestur Passlusálma (33).
22.55 Úr tónlistarlifinu. Knútur R. Magnússon
sér um þáttinn.
23.10 Svört tónlist. Umsjón: Gerard Chinotti.
Kynnir: Jórunn Tómasdóttir.
23.50 Fréttir. Dagskrárlok.
Fimmtudagur
22. marz
7.00 Veðurfrcgnir. Fréttir. Tónleikar.
7.10 Leikfimi. 7.20 Bæn.
7.25 Morgunpósturinn. Umsjónarmenn: Páll
Heiðar Jónsson og Sigmar B. Hauksson (8 00
Fréttir).
8.15 Veðurfregnir. Forustugr. dagbl. (útdr.).
Dagskrá.
8.35 Morgunþulur kynnir ýrais lög aó eigin
vali. 9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna: Geir Christensen
lýkur lestri sögunnar „Stelpnanna. sem
struku” eftir Evi Bögenæs I þýðingu Þoriáks
Jónssonar (8).
9.20 Leikfimi.
9.30 Tilkynningar. Tónlcikar. 9.45 Þingfréttir.
10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir.
10.25 Morgunþulur kynnir ýmislög; frh.
11.00 Iðnaðarmál. Umsjón: Sigmar Ármanns
son og Sveinn Hannesson. Rætt um iðnþróun
og iðnþróunarstarfsemi.'
11.15 Morguntónleikar: Felix Ayoog I Musici
kammersveitin leika Fiðlukonscrt nr. 1 eftir
Jospch Haydn/Kammcrsveit Jcan Francois
Paillard leikur Brandenborgarkonscrt nr. I í
F dúr eftir Bach.
12.00 Dagskráin. Tónleikar Tilkynningar.
12.25 Veðurfregnir. Fréttir. Tilkynningar. Við
vinnuna: Tónleikar.
14.30 Þankar um hlbýli og mannlíf; — annar
þáttur. Hvemig lífskjör og umhverfi þróuðust
i skipulagsátt. Umsjón: Ásdís Skúladóttir
þjóðfélagsfræðingur og Gylfi Guðjónsson
arkitekt.
15.00 Miðdegistónleikan Filharmoníusveitin i
Vjn lcikur Sinfóníu nr. 3 i d moll eftir Anton
Bruckner; Carl Schuricht stj.
16.00 Fréttir. Tilkynningar. (46.15 Veður-
fregnir).
16.20 Tónleikar.
16.40 Lagið mitt: Helga Þ. Stephcnsen kynnir
óskalög barna.
17.20 Útvarpssaga barnanna: „Polli, ég og allir
hinir” eftir Jónas Jónasson. Höfundur lcs (5).
17.40 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Vcðurfrcgnir. Dagskrá kvöldsíns.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Tilkynningar.
Sjónvarp
Miðvikudagur
21. mars
18.00 Barbapapa. Framvegis vcrða endursýndar
á miðvikudögum myndir um Barbapapa, scm
verið hafa I Stundinni okkar á næstliönum
sunnudegi. Fyrsti þáttur. Þýðandi Þuriöur
Baxter. Sögumaður Kjartan Ragnarsson.
18.05 Sumarvinna. Annar hluti finnskrar mynd-
ar um tólf ára drcng scm fær vinnu i sumar
leyfinu. Þýðandi Trausti Júlíusson. (Nord-
vision — Finnska sjónvarpið).
18.45 Heimur dýranna. Fræðslumyndafiokkur
um dýralíf viða um hcim. Þýðandi og þulur
Gylfi Pálsson.
19.10 Hlé.
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.30 Nýjasta tækni og vlsindi. Umsjónarmaður
ömólfur Thorlacius.
20.55 Lifi Benovský. Nýr, tékknesk ungverskur
myndafíokkur um ævintýramanninn og
fcrðalanginn Moric August Benovský. ástir
hans og hetjudáðir. Benovský var uppi á
átjándu old. Hann skrifaði æviminningar
siðar, og þær njóta enn hylli viöa um lönd.
Fyrsti þáttur. Er sagan heíst er Benovský
ungur húsari i þjónustu Maríu Theresu
keisaraynju. Hann fcr í ólcyfi hcim til
Slóvakiu að verja eigur sinar gegn ásælni
mágasinna. Þýðandi Jóhanna Þráinsdóttir.
21.50 Áfengismál á Norðurlöndum. Norsk
fræðslumynd. Annar þáttur. Þýðandi Jón O.
Edwald. (Nordvision—Norskasjónvarpið).
22.30 Dagskráriok.
t----------------
ÚTVARP KL.22.55:
FRÉTTIR UR
TÓNHEIMINUM
Lúðrasveilin Svanur.
. ,,Ég mun minnast lítillega á sinfóníu-
tónleikana á fimmtudaginn,” sagði
Knútur R. Magnússon, en hann hefur
umsjón með þættinum Úr tónlistarlíf-
inu í kvöld kl. 22.55. „Þetta er nú
ekki langur þáttur, aðeins 15 mínútur,
svo maður kemst ekki yfir mikið.”
Knútur sagði, að hann myndi einnig
fjalla um heimsókn þeirra feðga, Ib og
Wilhelm Lanskyotto, hingað til lands
og leika tóndæmi.
„Þá slæddist ég inn á hljómleika hjá
lúðrasveitinni Svan um helgina og
skemmti mér konunglega,” sagði
Knútur. ,,Ég mun greina frá þeim
hljómleikum og leika nokkur lög með
hljómsveitinni.”
-HP.
V J