Dagblaðið - 21.03.1979, Side 24

Dagblaðið - 21.03.1979, Side 24
„SITJA EINS OG PÁFA- GAUKAR Á PRIKI” —segir Ólafur Ragnar Grímsson um ákveðinn arm Alþýðuf lokksins „Mér sýnist, að mikill hugur sé í mönnum, bæði í verkalýðs- hreyfingunni og hjá ýmsum stuðningsmönnum stjórnar- flokkanna, að fundnar verði leiðir til að fullnægja sjónarmiðum launþega og tryggja áfram stjórnarsamstarfið. Helzt finnst mér standa á ákveðnum armi í Alþýðuflokknum,” sagði Ólafur Ragnar Grímsson alþingis- maður (AB) i viðtali við DB í morgun. ,,Það er sama, hverju hreyft er við þennan arm Alþýðuflokksins. Þeir sitja eins og páfagaukar á priki og segja „nei, nei, nei”. Þó held ég, að þeir muni finna þrýstinginn frá sam- tökum launafólks og þeim verði erfitt að standa á móti honum. Mér viröist, að síðustu sólarhringa hafi skapazt víðtækur skilningur á þörfinni á samstöðu,” sagði Ólafur Ragnar. Hann kvaðst dæma þetta af viðræöum, sem hefðu farið fram milli alþýðubandalagsmanna, fram- sóknarmanna, ýmissa forystumanna i verkalýðshreyfingu og hluta af Al- þýðufiokknum. í viðræðunum heföu verið nefndar ýmsar leiðir til mála- miðlunar, en mestu skipti, að vilji til samstöðu væri til staðar. „Ekki minna sáttfúsir" „Við erum ekki minna sáttfúsir en alþýðubandalagsmenn,” sagði Arni Gunnarsson alþingismaður (A) í viðtali við DB. Árni sagði, aö á- greiningur væri um, hvernig faraætti í samkomulag. Alþýðubandalagið vildi breytingar á frumvarpi Ólafs. „Alþýðuflokksmenn vilja ekki gera frekari breytingar á frumvarpinu,” sagði Árni. „Mín skoðun er, að þeg- ar sé búið að veikja frumvarpið svo mjög sem baráttutæki gegn verðbólgunni, að ekki megi ganga lengra í þá átt.” Allar hugmyndir um breytingar yrðu þá að koma til hliðar við frumvarpið. Orðahnippingar DB hefur frétt, að Ólafur Ragnar Grímsson hafi í gær vegið hart að Jóni Sigurðssyni, forstöðumanni Þjóðhagsstofnunar, sem mættur var til ráðuneytis á sameiginlegum fundi þingnefnda í gær. Ólafur gagnrýndi þátt Jóns í frumvarpssmíðinni, en Jón svaraði fáu. Fjárhags- og viðskiptanefndir beggja deilda tóku þá fyrir frumvarp forsætisráðherra. -HH. Margirbrugðu við og sýndu GÓÐVILD OG RAUSN — tilað bætagömlu konunni tjónið Nokkrir lesendur Dagblaðsins hafa haft samband við ritstjórn þess og tjáð vilja sinn til að leggja eitthvað af mörkum til gömlu konunnar, sem DB sagði frá í gær. Einn hefur hringt og látið vita af því, að hann hafi fundið 5 þúsund króna seðil á þeim slóðum, sem konan týndi peningunum. Þá hefur einn lesandi DB sent dálitla upphæð í bréfi. Hann lætur ekki nafns síns getið. ,,í snarpri vindhviðu opnaðist taska gamallar konu, sem var á leið niður Laugaveg. Féll úr töskunni allt, sem i henni var. Meðal þess voru peninga- seðlar og skilríki. Margir vegfarendur urðu vitni að þessu.Hjálpuðust þeir við að grípa það, sem til náðist. Því fór samt fjarri, að allt kæmi til skila. Þegar síðast sást til gömlu konunnar, gekk hún grátandi á- fram niður Laugaveginn.” Þannig var hluti fréttarinnar í DB í gær. Var sett fram sú tilgáta vegfarenda, að gamla konan hefði verið að koma úr Tryggingunum með ellilífeyri sinn. Viðbrögð lesenda DB sýna enn einu sinni þá góðvild og rausn, sem íslendingar sýna þeim, sem örlögin leika grátt. Það, sem einum kann að vera léttbært óhapp, getur verið sárt og óbærilegt tjón fyrir annan. Það er von DB, að gamla konan, eða einhver henni kunnugur, lesi þessar fréttir. Vonandi lætur hún til sín heyra. Sem fyrr . heldur DB til haga upplýsingum fólks, sem kann að hafa fundið peninga eða annað, sem telja má, að gamla konan hafi misst úr tösku sinni á gatnamótum Barónsstígs og Laugavegs um miðjan dag siðastliðinn mánudag. -GS. RK: Landburður — hefst vart undan ífiskvinnslunni Mokafli hefur borizt að landi á Rifi að undanförnu og má segja að ekki hafi hafzt undan að vinna aflann, þótt unnið hafi verið fram á nótt á hverjum degi. Á mánudag, höfðu borizt um 2 þúsund tonn á land í Rifi og var hæsti báturinn með 527 tonn í 35 róðrum. Landburður þessi hefur nú staðið í fjórar vikur. Á mánudag varð að gefa frí í efsta bekk grunnskólans svo hægt væri að vinna aflann. Vatnsleysi hefur hrjáð íbúa á Hellis- andi að undanförnu, því mikil vatns- notkun er samfara hinni miklu vinnslu. Vatnslaust er i heilu götunum allan daginn, en menn loka augunum fyrir því vegna hinna sérstöku aðstæðna. -HJ/JH. Pétur Jónsson RE náðist á f lot — eftir strandið í Seyðisfirði Loðnuskipið Pétur Jónsson RE ó strandstað. Loðnuskipið Pétur Jónsson RE strandaði rétt fyrir kl. 4 í fyrrinótt við Vestdalseyri í Seyðisfirði. Þá um nótt- ina gekk á með dimmum éljum og ofsa- rok var. Skipið lenti á sandfjöru og skemmdir eru taldar litlar. Strandferðaskipið Esja dró loðnu- bátinn út um kl. 17 í gærdag og naut við það aðstoðar Litlaness NS 51. Eftir að Pétur náðist á flot kom hann við á DB-mynd Jón Guðmundsson. Seyðisfirði og fékk vatn í stað þess sem dælt var úr á strandstað og hélt siðan áleiðis til Reykjavíkur. -JG/JH. Fyrstu ísrastirnar lóna inn fyrir Húsavikurhöfða sem sést í baksýn, um hádegisbilið í gær, í átt til hafnarinnar sem er hægra megin utan myndarinnar. DB-mynd Einar Ólason. Hafísinn rekur hægt og hægt sunnar með Austurlandi og í gær sáust jakar allt suður með Gerpi. í morgun þegar annar Ólafsfjarðartogarinn ætlaði út úr höfninni varð hann við að snúa vegna íss sem hrakið hafði inn í höfn- ina. Annars munu siglingaleiðir fyrir Norðurlandi greiðar nema hvað Eyja- fjörður er lokaður á milli Héðinsfjarð- ar og Gjögurtáar. í gærdag var ísrönd að þéttleika 7/10—10/10 81 sjómílu vestur af Bjargtöngum, 63 mílur vestur af Barðaströnd og 30 mílur norðvestur af Straumnesi. Jakahrafl, 1/10 — 3/10 var 30 sjómílur norður af Horni, 30 mílur norður af Skaga, 6 mílur norður af Grímsey, 20 mílur norður af Rauða- núpi, 27 mílur norðaustur af Hraun- hafnartanga, 9 mílur austur af Langa- nesi og 50 mílur norðasturur af Glett inganesi. Auk þess eru ísrastir víða um sjó. En siglingaleið mun greiðfær, að minnsta kosti í björtu. DS. íijálst, óháð dagblað MIÐVIKUDAGUR 21. MARZ 1979. Gagntiiboð BSRB lagt fyrir ráðherra í morgun Einstök aðildar- f élög fái verkfalls- rétt í gagntilboði BSRB, sem sex manna nefnd lagði fyrir ríkisstjórnina í morgun, eru helztu breytingar frá fyrra tilboði, að aðildarfélög BSRB eiga að fara með sérsamninga sína og fá verk- fallsrétt, að sögn Kristjáns Thorlacíus, formanns BSRB, í morgun. Samningar félaganna yrðu þá til tveggja ára en heildarsamningar BSRB ekki bundnir þannig heldur gilti frjáls samningsrétt- ur um þá. BSRB kom sér niður á þetta tilboð á fundi, sem stóð til miðnættis í nótt. Eftir að sex manna nefndin hefur rætt við þrjá ráðherra, mun „stóra” samn- inganefndin hjá BSRB koma saman klukkan tvö og fjalla um niðurstöður viðræðnanna. „Við föllum ekki frá 3% kauphækkuninni 1. apríl nema sam- komulag verði um samningsréttar- málið,” sagði Kristján Thorlacius. „Ég ræddi við fjármálaráðherra í gær, og hann fullvissaði mig um, að ríkisstjórn- in hefði enga ákvörðun tekið um að greiða ekki 3% hækkunina 1. april. Vel að merkja er rætt um í greinargerð frumvarps forsætisráðherra, að reynt skuli að ná samkomulagi við launþega um að fella niður þessa hækkun. Hvergi segir i frumvarpinu, að hún skuli falla niður. Sumir ráðherrar hafa viljað túlka bráðabirgðalögin frá í sept- ember þannig, að þau felldu þrjú pró- sentin út, en ég trúi ekki fyrr en ég tek á því, að ríkið noti sér hið loðna orða- lag þeirra laga,” sagði Kristján. -HH. JÓN L. Á BIÐSKÁK „Það verður að fara að stöðva þessa sigurgöngu hjá Jens Ove Fritz Nielsen — hann hefur sigrað í fimm fyrstu um- ferðunum á skákmótinu hér í Kaupa- mannahöfn,” sagði Jón L. Árnason, þegar DB ræddi við hann í morgun. Jón teflir við Nielsen á morgun, fimmtudag, og hefur svart. I fimmtu umferðinni í gær tefldi Jón við Danann Fuglsang. Hafði svart. Skákin fór í bið — en Fuglsang bauð jafntefii. „Ég ætla að líta betur á skákina. Það er mikið eftir, drottning- ar, hrókar og riddarar á borðinu auk peða. Ég veit ekki hvort ég á einhverja vinningsleið. Þarf að rannsaka það”. Hinn 19 ára Jens O. F. Nielsen sigraði Jens Kristiansen í 5. umferðinni og er efstur með 5 vinninga. Mjög efnilegur skákmaður, sem tvívegis hefur orðið í þriðja sæti á HM unglinga. Kristiansen er annar með 3.5 v. Síðan koma Svíarnir Schneider og Wedberg með 3 v. og Jón L. er í fimmta sæti með 2 vinninga og biðskák. Keppendur eru 10. Frí verður ídagámótinu. -hsím.

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.