Dagblaðið - 21.04.1979, Blaðsíða 3
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 21. APRÍL 1979.
UM HÖFUÐBUNAÐ
FISKVINNSLUFÓLKS
— svar við lesendabréf i
Jóhann Guðmundsson hjá
Framleiðslueftirliti sjávarafurða
skrifar:
í Dagblaðinu 5. apríl er fyrirspum
frá nokkrum verkstjórum á Aust-
fjörðum vegna höfuðbúnaðar starfs-
stúlkna í frystihúsi á Suðurnesjum.
Tilefni fyrirspumarinnar var mynd er
birtist í fréttatíma sjónvarpsins 3.
apríl.
Umrætt hús hefur lítið sem ekkert
verið starfrækt undanfarin ár en
frysti hins vegar nokkurt magn af ýsu
í aflahrotunni síðari hluta marz-
mánaðar og í byrjun apríl.
Starfsmenn Framleiðslueftirlitsins
(FS) gerðu athugasemdir við höfuð-
búnað starfsstúlkna og óskuðu eftú
lagfæringum. Tveim dögum síðat
kom í ljós aðástandið var óbreytt. Þá
var forráðamönnum fyrirtækisins
gert ljóst að við slíkt yrði ekki unaí
og hefur ekki verið ástæða til að gera
athugasemdir við búnað starfsfólks
eftir það.
Starfsmenn FS setja oft út á ýmis-
legt í eftirlitsferðum sínum. Slíkum
athugasemdum er nær undantekning-
arlaust tekið af vinsemd og skilningi.
Þó eru dæmi þess að FS hafi orðið
að gripa til harkalegra aðgerða, eins
og t.d. að loka frystihúsum eða
svipta matsmenn réttindum.
Þrátt fyrir að mjög margt megi til
betri vegar færa í frystihúsum
landsins verður því ekki í móti mælt
að stórfelldar framfarir hafa orðið í
hreinlæti og búnaði frystiiðnaðarins
á þessum áratug, svo miklar að stór
hluti frystihúsanna hefur tekið al-
gerum stakkaskiptum, en það atvik
er hér um ræðir er þó sem betur fer
undantekning.
Vegna fyrirspurnar verkstjóranna
um hvort aðrar reglur gildi á Suður-
nesjum um hreinlæti en úti á landi
Sömu reglur gilda um hreinlæti og búnað við fiskvinnslu um land allt.
skal það upplýst, þótt óþarft ætti að læti og búnað við fiskvinnslu um
vera, að sömu reglur gilda um hrein- landallt.
SLÖKKTIÁ KÖRLUNUM
— er hún var komin yf ir götuna
Gangandi vegfarandi skrifar:
,,Ég var dag einn í haust á gangi
með 6 ára son minn og vorum við
staddir á móts við gangbrautarljósin
á Hringbrautinni fyrir framan Elli-
heimilið Grund. Var ég að útskýra
fyrir syni mínum regluna um rauða
og græna karlinn og sýndi honum
hnappinn sem maður styður á til að
fá grænan karl og þar með heimild til
að ganga yfir götuna. Bar þá að konu
á miðjum aldri handan götunnar og
ætlaði hún auðsjáanlega yfir, því hún
studdi á hnappinn. Nú benti ég syni
mínum á að fylgjast með konunni og
hvernig ljósin virkuðu. En svo
bregðast krosstré sem önnur tré.
Konan stóð aðeins og horfði á ljósin
og rétt náði að komast yfir götuna
áður en rauða ljósið kviknaði aftur
og bifreiðarstjórarnir orðnir óþolin-
móðir og farnir að taka af stað á ný.
En yfir komst hún með hjálp og til-
litssemi bifreiðastjóranna. Þegar
konan var komin yfir götuna vatt
hún sér að hnappnum þeim megin og
þrýsti á. Sneri ég mér þá að henni og
spurði hvort ég ætti ekki að fylgja
henni yfir ef hún ætlaði til baka. En
hún sagðist vera nýkomin yfir og
ætlaði sér ekkert til baka. Hún væri
bara að slökkva á eftir sér.
Ég reyndi ekki að kenna syni
mínum meira í bili um rauða karlinn
og þann græna.
ro
CHRYSLER
^nniirö
o O
árg■ 1979‘
\ \ in
, , i / /
11 n!
c* o
* SUOURLANOSBRAUT 10. SlMAR; 83330 - 834S4
v\\
LAUGARDAGS-
MARKAÐUR1979,
y'J )
Aspen Custom 2 dr......1978
AspenSE2dr.............1976
Swinger í sérflokki.... 1974.
ChargerSE..............1974
Dart...................1975
DartCustom.............1973
—» ; DODGE Aspen SE, 4 dr. 1977, sjálfsk., aflstýri, 25.000 km, silfurgrár. árg. ekinn
Volaré Premier 2 dr . 1978
Volaré Custom 4 dr . 1978
Volaré Custom 2 dr . 1977
Gold Duster . 1974
Fury station . 1973
Plymouth Volaré Premier 4 dr.
lárg. 1978, sjálfsk., aflstýri, ek-
inn 13.000 km, rauður.
Simca 1508 GT............1978
Simca 1508 S.............1978
Simca 1508 GT............1977
Simca 1508 S.............1977
Simca 1100 LX............1977
Simca 1100 LE............1977
Simca 1100 LX............1976
Simca 1100 GLS...........1974
Citroén GSE c-matic.....1978
Renault 16 TS...........1971
VW Passat LS..............1974
FordEscort................1974
1 Ford Escort þýzkur.......1974
Peugeot404 . . .......... 1974
iDODGE ASPEN Custom árg.
1977, sjálfsk., aflstýri, ekinn
15.000 km. Grænn, 4 dyra.
Mazda 929 4 dr.......1977
Mercedes Benz 300 D... . 1975
Mercedes Benz 220 D.... 1968
PÁáss fyrir góda bíh í
Chrysfer-salnum.
Honda Civic.................1977
VW Golf.....................1978
Audi 100 GLS................1977
Austin Mini 1000 .......... 1974
Fiat 127 .................. 1973
Fiat 128 .................. 1978
Chevrolet Impala............1974
Chevrolet Camaro...........1970
Mercury Comet Custom . . 1974
Ford Fairmont station .... 1978
Simca 1307 GLSárgerð 1978
VILTU SEUA? VILTU SKIPTA? VILTU KAUPA?
OPIÐ KL. 10-17 i DAG, LAUGARDAG
SUÐURLANDSBRAUT 10
CHRYSLER
nnm
iMMi
SÍMAR 83330 - 83454
Þráinn Viltar Þrálnsson, 11 ára: Ég
spilaði með skólahljómsveit Kópavogs i
Kópavogsskóla.
Hvað gek^ .___
sumardaginn fyrsta?
Spurning
dagsins
Sigriður Vala Jörundsdóttir, 11 ára: Ég
fór i skrúðgöngu hér i Kópavogi og fór
svo með pabba að járna hest.
Halldóra Ingþórsdóttir, 11 ára: Eg fór
niður á Lækjartorg á útiskemmtunina
þar en ég sá ekki neitt af því að það var
svomargtfólk þar.
Þórarinn Jóhannsson, 11 ára: Ég fór
niður á Lækjartorg og var aðallega í
tívoliinu þar. Þaðvarágætt.
Laufcy Kristinsdóttir, 11 ára:
skrúðgöngu hér í Kópavoginum. Hún
endaði niöri I Kópavogsskóla.
Reynir Sýrusson, 12 ára: Ég gerði eigin-
lega ekkert sérstakt nema hvað ég var
að keppa við Fram með ÍK.