Dagblaðið - 21.04.1979, Page 6
Niðurstöður skoðana-
könnunarinnar uvðu þessar:
Frjáls lokunartími
Óbreytt kerfi
Óákveðnir
182 eða 602/3%
63 eða 21%
55 eða 181/3%
Ef aðeins ern teknir þeir sem
tóku afstöðu verða niðurstöð-
urnar þessar:
Frjáls lokunartími 74,3%
Óbreytt kerfi 25,7%
„Af vínveitingastað í vinniT
— segir Hilmar Helgason, formaður SÁÁ
„Mér sýnist klárt af þessum niður-
stöðum að almenningur hefur ekki.
gefið sér tíma til að hugsa málið til
enda,” sagði Hilmar Helgason, for-
maður Samtaka áhugafólks um
áfengisvandamálið, um niðurstöður
skoðanakönnunarinnar. '
„Ef tíminn er frjáls munu margir
leiðast til að hafa mikið opið. Það
verður alltaf opið einhvers staðar.
„Mitt fólk” mun þá sitja fram i
morgunsárið og fara af vínveitinga-
staðí vinnu. Menn kæmu einnig við á
slíkum stað til að fá sér einn lauflétt-
an áður en þeir færu í vinnu. Þetta
vandamál á við tíu prósent af þjóð-
inni og greinilega þyrfti að fjölga
sjúkrarúmum ef slík breyting yrði
gerð.
Þá mundi aftur skapast „sjoppu-
menningin sæla” eins og hún var í
gamla daga en nú í hrikalegri mynd.
Hagsmunahópar mundu myndast og
klíkur sem héngju á „sínum bar”.
Menn mundu verr rækja skyldur
gagnvart vinnu og fjölskyldu.
Þá mundi peningaleysið, sem
fylgdi aukinni drykkju, leiða af sér
alls kyns glæpi. Á íslandi hafa menn
ekki efni á slíkri drykkju án þess að
stela,” sagði Hilmar.
Hann kvaðst telja að niðurstöður
könnunarinnar gæfu góða mynd af
viðhorfum meirihlutans. -HH.
Saumakona —
Húsgagnabó/strun
Óskum eftir að ráða sauma-
kottu. Upplýsingar í síma
85815.
HÚSAVÍK
Dagblaðið óskar eftir að ráða umboðs-
mann á Húsavík. Uppl. í síma 27022 og
96-41582.
'ti
íBIAÐIÐ
NYR
ÓNOTAÐUR
NÝR
E/ectro/ux frysti-
og kæliskápur
Litur: Gulbrúnn
H. 175, B. 59,5, D. 59,5, 335 lítrar. Kælir 200
ltr. Frystir 155 ltr. Hagstætt verð: 400.000 til
450.000.
Nýr kostar 513.000.
Upplýsingar í síma 41551 eftirkl. 18.00.
Mest andstaða
hjá konum
úti á landi
Meirihlutinn fyrir frjálsræði í
þessum efnum var mun meiri á
Reykjavíkursvæðinu en utan þess. Af
150 sem spurðir voru á höfuðborgar-
svæðinu sögðust 107 vilja frjálsan
tíma, vildi óbreytt kerfi og 16 voru
óákveðnir.
Af 150 sem spurðir voru úti á
landsbyggðinni vildu 75 frjálsan
lokunartíma, 36 vildu óbreytt ástand
og 39 voru óákveðnir.
Mestan meirihluta hlaut frjálsi
tíminn meðal karla á Reykjavíkur-
svæðinu en langminnstan meðal
kvenna úti á landsbyggðinni.
-HH.
„ Vaktaskipti hjá vínveitingahúsum"
„Veitingahúsatímanum er heppi-
legra að dreifa, lengja hann og draga
með því úr hættu á heimafilleríi,”
sagði karl á Reykjavíkursvæðinu.
Margir nefndu að bezt yrði að vin-
veitingahúsin skiptust á um að hafa
opið á ýmsum tímum. „Húsin eiga
að loka á mismunandi tímum,” sagði
karl á Reykjavíkursvæðinu. Enn einn
karl á höfuðborgarsvæðinu sagði:
, ,Koma þarf á einhvers konar vakta-
skiptum hjá vínveitingahúsunum í
þessum málum.”
Karl í Keflavík sem kvaðst ekki
hafa neytt víns í 18 ár vildi hafa opið
allan sólarhringinn.
„Fólk á að ráða því sjálft hvað það
vill sitja lengi frameftir,” sagði kona
í Borgarnesi. „Það sem vandfengið
er vill nú verða eftirsóknarverðara en
hitt, svo að ég held að það sé bezt að
V
þetta sé frjálst,” sagði karl í Borgar-
firði. „Það má reyna að láta húsin
vera opin lengur til skiptis til að byrja
með,” sagði kona áEskifirði.
Vinsældaspil
nokkurra
þingmanna?
„Það er nægilegt svigrúm fyrir
malarbörnin að tralla eins og nú er og
samkomuhúsið okkar er opið þegar
við þurfum,” sagði karl í Mýrasýslu.
„Það er engin þörf á að hafa vin-
veitingahús opin lengur en nú er.
Nokkrir þingmenn eru bara að skapa
sér vinsældir með þessu,” sagði kona
á Reykjanesf. „Það er opið alveg
nógu lengi í vínveitingahúsunum nú.
Hins vegar ætti að taka áfengismálin
öll og þar með talin húsin til ræki-
legrar endurskoðunar,” sagði kona á
Reykjavíkursvæðinu.
„Það ætti að loka öllum vín-
veitingahúsum,” sagði karl á Reykja-
víkursvæðinu og var ekki einn um þá
skoðun. „Helzt ætti að loka þeim
alveg,” sagði kona i Vestmanna-
eyjum.
„Ég held að frjálsari lokunartími
verði ekki til að draga úr drykkj-
unni,” sagði karl á Húsavík.
„Drykkjuskapurinn er nógur þótt
ekki sé veriö að hafa barina lengur
opna,” sagði kona á Sauðárkróki.
„Ég pæli ekki í þessu. Ég fer svo
sjaldan,” sagði kona í Keflavik.
Nokkrir sem taldir eru óákveðnir
nefndu að breyta ætti i átt til rýmk-
unar en ekki gefa alveg frjálst.
Mikill meirihluti þjóðarinnar vill
hafa lokunartíma veitingahúsa
frjálsan en ekki bundinn eins og nú
er. Þetta urðu niðurstöður skoðana-
könnunar Dagblaðsins.
Ríflega sextíu af hverjum hundrað
voru fylgjandi frjálsræðinu, tuttugu
og einn af hundraði vildi óbreytti
kerfi og rúmlega átján af hundraði
voru óákveðnir. Þegar þeir eru teknir
sem tóku afstöðu reynast um þrír af
hverjum fjórum fylgjandi frjálsum
lokunartíma.
Spurt var hvort menn teldu að
lokunartími veitingahúsa ætti að vera
frjáls eða óbreyttur. Þarna var því
spurt um veitingahús sem heild en
ekki aðeins vínveitingahús. Athygli
fólks beindist þó greinilega að
lokunartíma vínveitingahúsanna
fremur en annarra veitingahúsa. Það
kom fram í svörum fólks, að það
hugsaði til vínveitingahúsanna.
Spurningin var til komin vegna þeirra
umræðna sem urðu eftir að fjórir
þingmenn fluttu frumvarp um
frjálsan lokunartíma veitingahúsa. í
þeim umræðum beindist athyglin
einnig fyrst og fremst að vínveitinga-
húsunum.
„Vona að málið fái afgreiðslu fyrir
þinglok” — segir Vilmundur Gylfason
„Þetta eru mjög ánægjuleg
úrslit,” sagði Vilmundur Gylfason
alþingismaður (A) um niðurstöður
könnunarinnar. Vilntundur er fyrsti
flutningsmaður frumvarps um
frjálsan lokunartíma veitingahúsa.
Aðrir flutningsmenn eru Friðrikj
Sophusson (S), Eiður Guðnason (A)'
og Ellert B. Schram (S).
„í sjálfu sér koma þessi úrslit mér
ekki svo mikið á óvart,” sagði
Vilmundur, því að ég þykist hafa
þekkt nokkuð hugi neytenda, að
minnsta kosti hér í Reykjavik.
Grundvallarhugsun flutnings-
manna frumvarpsins er auðvitað ekki
að auka þá ógæfu sem er samfara
óhóflegri neyzlu áfengis eins og
margra annarra hluta. Mikils ber að
meta varnarstörf í þessum efnum,
bæði störf á vegum hins opinbera og
einkaaðila. En við viljum reyna að
bæta samkomumenninguna.
Ég vona að þessar niöurstöður ýti á
málið, svo að það fái afgreiðslu nú
fyrir þinglokin í maí,” sagði
Vilmundur.
-HH.
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 21. APRÍL 1979.
35. skoðanakönnun Dagblaðsins:
Fólk vill hafa tímann frjálsan