Dagblaðið - 21.04.1979, Blaðsíða 24
Tungufossslysið:
„Öryggisreglur þverbrotnar
og hraðinn allt of mikill”
segir einn trúnaðarmanna Dagsbrúnar við höf nina
„Erfiðast er aö eiga við hraðann
þegar gæta þarf öryggis á vinnustöð-’
um eins og hér við höfnina,” sagöi'
Benedikt Kristjánsson, trúnaðar-
maður Dagsbrúnar, í viðtali við DB.
Fréttamaður spurði um álit hans á or-
sökum banaslyssins sem varð um
borö í Tungufossi fyrr í vikunni.
Maðurinn sem lézt hét Guðmundur
Árnason, 52 ára gamall, til heimilis
að Hverfisgötu 28 i Reykjavik.
„Þetta er annað dauðasiysið sem
ég verð vitni að á allt of skömmum
tíma,” sagði Benedikt. ,,Þaö er því
miður staðreynd að öryggisreglur eru
hér þverbrotnar og hér eru allt of tíð
slys þótt ekki séu þau jafn alvarleg og
það sem varð um borð í Tungufossi
siðastliðinn þriðjudag. Til dæmis fót-
brotnaði maður um borð í Goðafossi
í fyrradag.
Þá vil ég geta þess að Eimskipa-
félaginu hefur verið skrifað út af of
roiklum hávaða i vökvaspilum. Hann
mælist um 115 desibel þar sem hættu-
mörkin eru fyrir ofan 85 desibel.
Þessi 115 desibela_hávaði er á því
tiðnisviði að eyrnahlifar koma ekki
að fullu gagni,” sagði Benedikt, ,,en
það virðist ekki vera hlustað á
öryggiseftirlit ríkisins þegar það gerir
kröfur um úrbætur.” -BS,
— sjá einnig bls. 5
1. maí hátíðahöldin:
Sjálfstæðis-
menn
ekki með
„Sjálfstæðismenn verða greinilega
ekki með,” sagði Kristvin Kristvinsson,
Dagsbrún, ser,i á sæti í 1. maí nefnd
fulltrúaráðs verkalýðsfélaganna í
Reykjavík, í viðtali við DB í gær.
Sjálfstæðismenn höfðu borið fram
tillögu á fundi í fulltrúaráðinu um
fjölgun í nefndinni úr 6 í 7 og stefnt að
því að fá þar tvo menn í stað eins, að
sögn Kristvins. Þetta var fellt. Þá fór
svo að enginn sjálfstæðismaður hefur
verið skipaður í nefndina og eru í henni
5 menn en ekki 6.
„Við erum þrír alþýðubandalags-
menn,” sagði Kristvin, „og tveir al-
þýðuflokksmenn.” Auk fulltrúaráðs-
ins sagði hann að BSRB og Iðnnema-
sambandið ættu aðild að hátiðahöld-
unum í Reykjavík. Kristvin .taldi að
samkomulag yrði um ávarp og fram-
kvæmd hátíðahaldanna milli alþýðu-
bandalags- og alþýðuflokksmanna.
Sjálfstæðismenn gengu í fyrra úr 1.
maí nefndinni í Reykjavík vegna
ágreinings um ávarp og tilhögun
hátíðahalda. Kristvin sagði að samt
hefðu ýmis félög, sem sjálfstæðismenn
ráða miklu í, verið með í hátíðahöldun-
um. Gæti eins farið nú.
- HH
Aðalfundi
Olíumalar hf.
frestað
Aðalfundi Olíumalar hf., sem vera
átti í gær, hefur verið frestað til 30.
apríl nk. Að sögn Ólafs G. Einarssonar
stjórnarformanns Olíumalar hf. er
fundinum frestað vegna þess að enn'
hafa ekki borizt svör frá öllum sveitar-
félögum, er standa að fyrirtækinu, um
framlag til hlutafjáraukningar.
Þau svör sem nú hafa borizt eru
langflest neikvæð. Ljóst ætti að vera í
næstu viku hver afstaða sveitarfélag-
anna er til hlutafjáraukningarinnar.
- JH
Najeíb Italaby, tengdafaðir Husseins Jórdaniukonungs, fyrir miðju. Honum til rinstri handar er Agnar Kofoed-Hansen flugmálastjðri og til hægri handar Hilmi
Ghandour verkfræðingur sem var I fylgd með Najeeb Halaby. DB-mynd Hörður.
Tengdafaðir Husseins
Jórdaníukonungs hér
—gerði stuttan stanz á Hótel Loftleiðum
Tengdafaðir Husseins Jórdaníu- næring þreyttum flugmanni að líta augum en aðalatriðið var þó að fá sér
konungs átti stuttan stanz hérlendis í hinar glæsilegu sýningarstúlkur eitthvað í svanginn. -JH
gær. Tengdafaðirinn, Najeeb
Halaby, kom hingað á einkaþotu
sinni á leið vestur um haf en hann
flýgur sjálfur.
Najeeb er faðir Lisu, þeirrar er í
fyrra gekk að eiga Hussein konung
Jórdaníu, en þau feðgin eru banda-
rísk. Hussein kvæntist Lisu eftir að
Alia Jórdaníudrottning fórst í þyrlu-
slysi.
Najeeb er fv. forstjóri bandaríska
flugfélagsins Pan Am. Hann snæddi
á Hótel Loftleiðum í hádeginu í gær
og horfði jafnframt á tizkusýningu.
Hann hafði á orði að það væri endur-
Hussein Jórdaniukonungur með konu sinni, Lisu Halaby, dðttur Najeeb.
Otrúlegt annað en BSRB-sam-
komulagið verði samþykkt”
segir Haraldur Steinþórsson
,,Mér finnst órtrúlegt annað en
samningar BSRB og ríkisstjórnar-
innar verði samþykktir við atkvæða-
greiðsluna 3. og 4. maí,” sagði
Haraldur Steinþórsson fram-
kvæmdastj'' ””RB í viðtali við DB i
gæi.
SameiginL^, dur stjórnar og
samninganefnda RB hefur sam-
V
þykkt að samkomulagið veröi í alls-
herjaratkvæðagreiðslu lagt sam-
eiginlega fyrir alla ríkisstarfsmenn og
aðra félagsmenn BSRB sem ekki eru
innan bæjarstarfsmannafélags. Á
sama hátt fari fram allsherjar-
atkvæðagreiðslá í hverju bæjarstarfs-
mannafélagi fyrir sig.
Haraldur, sem er ritstjóri tímarits
BSRB, Ásgarðs, svaraði á blaða-
mannafundi í gær ásökunum
„andófsmanna” þeirra sem berjast
gegn samningnum. Hann sagði að
ekki hefði verið neitað um birtingu á
röksemdum „Andófs ’79” í blaði
BSRB. Þar væri opinn vettvangur
fyrir slíkt i lesendaþætti en ekkert
hefði borizt. BSRB og aðildarfélög
munu efna til fjölmargra funda fram
að atkvæðagreiðslunni. í dag,
laugardag, verða fundir i Vestmanna-
eyjum og Keflavík.
í kosningunum verður talið sér-
staklega hjá hverjú félagi bæjar-
starfsmanna og gæti sú staða komið
upp að einhver þeirra höfnuðu en
önnursamþykktusamninginn. -HH
írjálst, úháð dagbhtð
LAUGARDAGUR 21. APRÍL 1979.
Kviknaði í
logsuðumanni
Litlu munaði að stórslys yrði um
borð í togaranum Júpíter í gær.
Óhappið varð með þeim hætti að járn-
iðnaðarnemi var við logskurð á vinnu-
palli í lest. skipsins er eldur komst í
vinnuklæði hans. Skipti engum togum
að fötin urðu alelda á svipstundu og er
hann kom niður af vinnupallinum
stóðu eldtungurnar út frá honum í allar
áttir. Þrír vinnufélagar hans réðust
þegar að honum og tókst þeim með
miklu snarræði að ná fötunum utan af
honum. Slapp járniðnaðarneminn
óbrunninn með öllu og þótti það hin
mesta mildi. Hjálpaðist þar tvennt að,
góð hlífðarföt og snarræði vinnufélag-
anna.
-GAJ-
Máttu þrífa
upp eigin
saur
Piltarnir tveir sem brutust inn í
félagsheimilið á Staðarfelli á dögunum
hafa nú náðst og þeir hafa játað sekt
sina. Þeir hafa greinilega flýtt sér mjög
af innbrotsstaðnum þvi að þeir skildu
hljóðkút bifreiðar sinnar eftir á hlaðinu
við félagsheimilið og óku síðan með
miklum drunum í gegnum Búðardal.
Þar veitti maður einn bílnum athygli
sökum hávaðans frá honum og tók'
niður númerið. Leiddi það siðan til
handtöku piltanna á Akranesi. í
bílnum fundust allar kaffikönnurnar
og öll glösin sem hurfu úr félags-
heimilinu.
Þegar játning piltanna lá fyrir sendi
lögreglan á Akranesi þá vestur að
beiðni lögreglunnar í Búðardal. Voru
þeir fluttir að Staðarfelli og þar voru
þeir látnir þrífa húsið en þeir höfðu
áður skilið við það í heldur leiðinlegu
ástandi og meðal annars gert þarfir
sínar víðs vegar um húsið.
-GAJ-/AF, Búðardal.
Andóf 79:
„Mikill
hljóm-
grunnur”
,,Við, félagar í Andófi 79, höfum
heimsótt vinnustaði að undanförnu og
verið mjög vel tekið,” sagði Pétur
Pétursson útvarpsþulur og einn andófs-
manna innan BSRB.
„Við fórum í matsal Pósts og síma í
hádeginu á miðvikudag og ávörpuðum^
félaga okkar þar og skýrðum sjónar-
mið okkar. Síðan fórum við í mötu-
neyti Tollstjóraskrifstofunnar og
Skattstofunnar í gær og var mjög vel
tekið ábáðum stöðum. Við fyrirhugum
svo frekari aðgerðir á vinnustöðum i
næstu viku. Það er greinilegt að okkur
er að aukast fylgi og mikið er hringt til
okkar. Það virðist mikill hljómgrunnur
hjá hinum almenna félaga,” sagði
Pétur.
-GAJ-