Dagblaðið - 30.04.1979, Page 3
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 30. APRÍL 1979.
3
Glöggt er
gests augað
—grein um ísland í dönsku blaði
ífllle (og hvem gider det? sagde
min sagkyndige hjemmels-
• mand). Svavar Gestsson. der
er kendt som en af landets
videre
,(fra Fremskridts-
partiet), under hvem spiritus-
' lovgivningen horer. »Det er
Jfinansministerens private ini-
ttiativ«, siger han til mig.
F»Spargsmálet har aldrig været
'droftet i regeringen«. Over for
nflationen-er^det^
Björn S. Lárusson skrifar frá Kaup-
mannahöfn:
í helgarblaðinu „Weekendavisen
Berlingske aften” þ. 23. marz birtist
mjög athyglisverð grein um ísland og
íslendinga. Greinarhöfundur hefur
dvalið 3 vikur á íslandi og kynnt sér
land og lýð, m.a. farið norður til
Akureyrar og til Patreksfjarðar.
Eins og við íslendingar þekkjum
af sögunni eru greinar og bækur sem
ritaðar hafa verið af erlendum
mönnum um land og lýð ekki alltaf
sem nákvæmastar, svo ekki sé meira
sagt. Hér er hins vegar lögð þó
nokkur vinna í greinina og vel á
pennanum haldið. Þó eru nokkur at-
riði sem kitla mjög hláturtaugarnar
hjá okkur mörlöndum búsettum
erlendis sem mig langar að gera að
umtalsefni.
„ Það reddast allt"
Höfundur gerir nokkuð úr undan-
haldi dönskunnar og danskra áhrifa
fyrir enskri menningu og enskri
tungu en segir íslendinga þó geta
lesið Andrés Önd og merkingar uian
á umbúðum — ennþá. íslendingar
skilji semsé dönsku en vilji ógjarnan
tala hana. Hins vegar séum við einna
ákafastir talsmenn norrænnar
samvinnu.
Raddir
lesenda
Að gefnu tilefni skal þeim
sem senda Dagblaðinu les-
endabréf bent á að þau eru
ekki birt nema nafn og
heimilisfang ásamt nafn-
númeri sendanda fylgi með.
Hringið
í síma
27022
millikl.
13 og 15,
eða skrifið
Heimilis-
iæknir
Raddir lesenda taka við
skilaboðum til umsjónar-
manns þáttarins „Heimil-
islæknir svarar" i sima
27022, kl. 13-15 alla
virka daga.
Höfundur segir það vera ein-
kennandi í fari íslendinga að þeir
hafi „Það reddast hugsun” (det
ordner sig) í þessu sambandi minnist
hann á Hallgrímskirkju með rakettu-
myndaðan turn og óklárað
kirkjuskip sem hefur verið í byggingu
síðan 1945.
En það gerir ekki svo mikið til
því íslendingar séu löngu búnir að
gera sér í hugarlund hvernig hún
muni líta út fullkláruð. Með samspili
þessarar hugsunar, verðbólgu og
rýrnandi virðingu fyrir gildi peninga,
kasta íslendingar sér út i húsbygging-
ar og borga 50% út, mest með
lánum, og flytja svo inn i húsið nakið
að innan, að öðru leyti en því að úti-
dyr séu komnar og kannski
klósetthurð. Þegar svo mesta skulda-
súpan hefur verið greidd niður eru
tekin ný lán til þess að klára kofann.
Þegar svo þær skuldir eru greiddar
byrjar allt á nýjan leik nema hvað nú
er það stærri kofi sem gildir.
Eplavínið
hans Svavars
Er það nema von að Danir furði
sig á þessu þar sem hér er útborgun
5 — 10% og svo endist þeim varla
ævin til þess að greiða af-
borganirnar, svo litlar eru þær.
En það sem teygir brosið út að
eyrum eru skrif höfundar um heima-
brugg íslendinga.í búðum er hægt að
kaupa öll efni til gerjunar öls en hins
vegar eru utan á pökkunum við-
vörunarorð um það að ekki megi gera
það sterkt. Þegar umbúðirnir eru svo
opnaðar eru í þeim leiðbeiningar á
dönsku um það hernig eigi að gera
það sterkt (það er eins gott að týna
ekki niður dönskunni, landar góðir).
Til að koma í veg fyrir heimilis-
iðnaðinn lagði fjármálaráðherra það
til við viðskiptaráðherra að hann
tæki ger út af frílista en orðrétt segir
í greininni: „Svavar Gestsson sem er
þekktur sem einn af duglegustu epla-
vínframleiðendum landsins svaraði
ekki bréfinu en sendi það áfram til
dómsmálaráðherra.” Það er varla
von að ráðherrann vildi stofnað
iðnaði sínum í hættu með slíkri á-
kvörðun því hver veit nema hann
með tíð og tíma geti farið að flytja út
eplavín til þess að rétta við slæman
vöruskiptajöfnuð.
Ekki veit ég hversu mikill fótur er
fyrir þessu með eplavínið en sá
grunur læðist að manni að einhver
sem ekki er alveg sáttur við stefnu
ráðherrans hafi lætt þessu að sak-
lausum blaðamanninum, en gaman
væri að fá að vita um sannleiksgiIdi
fréttarinnar. Það væri hálfneyðar-
legt ef t.d. danski kollegi Svavars
kæmi í heimsókn til íslands fullur til-
hlökkunar að smakka á einkafram-
leiðslu hans og færi með þurrar
kverkar heim vegna þess að einhver
var aðsprella i Svavari.
Mega brugga
eins og þá lystir
Höfundur talar í fullri alvöru um
málið, enda ekki nema von þar sem
hér i( Danmörku leyfist hverjum að
brugga þaðsun honuin sýnist. Þess
ber þó að getu að bíinnað cr að eima
vín, aðallega sökunt sprengihættu.
Eins og sést á þe ,um stutta út-
drætti í langri og annars ágætri grein
þá er gests augað glöggt — stundum
of glöggt. Greinarhöfundur gerir sér
að sjálfsögðu mestan mat úr þeim
hlutum sem skilja að okkur og Dani
og hluti sem honum koma á óvart
eins og gefur að skilja. Við höfum
gott af því að lesa í bókum og grein-
um sem þessari um okkur því alltaf
leynist einhver gagnrýni sem við
getum lært af. Dönum kemur það
t.d. mjög á óvart þegar maður hefur
orð á því að það geti varla aukið
framleiðni þeirra að þamba allt upp í
10 bjóra á dag i vinnunni. Þeir benda
bara hróðugir á tölur um framleiðni á
mann í hinum ýmsu löndum og þá
kemur í Ijós að Danir eru með þvi
hæsta sem gerist.
m
m
GIRMOTORAR
RAFMÓTORAR
EIGUM JAFNAN TIL
GÍRMÓTORA:
Ýmsir snúningshraðar lns fasa: 3/4 - 1 1/2 hö 3ja fasa: 1/3 - 20 hö
RAFMÓTORA:
1400 - 1500 sn/mín. lns fasa: 1/3 - 3 hö 3ja fasa: 1/3 - 20 hö
Útvegum allar fáanlegar stærðir og gerðir.
FÁLKINN*
SUÐURLANDSBRAUT 8, SÍMI 84670
Spurning
Horfir þú á stund-
ina okkar?
Þórarinn Þórarinsson, 7 ára: Já.
Mér finnst hún stundum skemmtileg og
stundum leiðinleg. Kata og Kobbi eru
skemmtilegust.
Ásgeir Örn Ásgeirsson, 8 ára: Ég geri
það sjaldan Mér finnst hún frekar
leiðinleg.
Björn Friðbjörnsson, 8 ára: Ég gerí það
stundum. Mér finnst hún frekar leiðin-
leg.
Magnús Ingi Eggertsson, 8 ára: Éggeri
það stundum. Það er allt jafnleiðinlegt
i henni. Hún var mikið skemmtilegri í
fyrra.
Sveinbjörn Helgason, 8 ára: Já, ég gerí
það alltaf. Mér finnst allt jafnskemmti-
legt.
Berta Traustadóttir, 8 ára: Já. Það er
allt jafnskemmtilegt í henni.