Dagblaðið - 30.04.1979, Síða 4
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 30. APRÍL 1979.
DB á ne ytendamarkaði
Vorið er komið fyrir alvöru i
stofugluggana. Þeir, sem ekki eru
búnir að stífa ofan af vetrar-
renglunum verða að gera það sem
allra fyrst.
Reyndar ættu bæði Hawairós og
forlagajurt að vera komnar með
blómhnappa, hafi þær verið stífðar á
réttum tíma, eða um mánaðamótin
janúar-febrúar.
En margar jurtir má enn laga til.
Það er lítið varið í stofublóm sem eru
á ógnarlöngum, blaðlausum stilk.
Flestar blaðplöntur eru líka
Það getur verið bæði fallegt og
skemmtilegt að planta fleiri en einni
tegund I hvem pott.
Þá er heppilegast að planta saman
há- og lágvöxnum jurtum. Helzt má
ekki vera nema ein blómstrandi
planta í hverjum potti.
VAL h/f auglýsir:
Höfum á söluskrá fjölda vörubíla og vinnu-
tækja, m.a.:
hjólaskóflur, Leyland árg. 1970, Massey Ferguson 70
árg. ’74, Terlx 7251 árg. 1973 og 1974, Michigan 75B
árg. 1972, nýinnflutt og yfirfarin af framleiðanda. Enn-
fremur seljum við Benz 306, 18 manna. Mjög góður
bíll.
Okkur vantar á söluskrá jaröýtur og vörubíla.
Vinsamlega hafið samband við okkur sem
fyrst og látið skrá tækin.
VAGNHÖFÐA 3 REYKJAVIK
SÍMI 85265.
VINNUVELA- & VÖRUBIFREIÐASALA.
skemmtilegri ef þær eru bústnar og
greinóttar.
Nú á líka áburðargjöf að vera
hafin, búið á að vera að skipta um
mold og láta sumar plöntur í stærri
potta.
Það má fara að sá til sumar-
blóma. Gætið þess að hafa
smáplönturnar í góðri birtu eftir að
þær eru farnar að spíra.
Væntanlega er óþarfi að minnast
á, að sjálfsagt er að nota kröftugustu
afklippurnar af stofuplöntunum sem
græðlinga. Ef maður getur ekki notið
þeirra sjálfur, er hægt að miðla til
vina og kunningja. Margir flytja
einmitt í nýtt húsnæði á þessum
tíma og vantar þá blóm í stofu eða
glugga.
Flestum þykir þægilegast að koma
græðlingum til í vatni en gætið þess
að laufblöðin nái ekki ofan í vatnið.
Það getur orðið til þess að vatnið
fúni og græðlingarnir rotni.
Heppilegt er að hafa afleggjarana
í eldhúsglugganum, þar sem auðvelt
er að fylgjast með þeim. Það þarf oft
að bæta vatni í ílátið, þannig að
græðlingarnir þorni ekki upp og
visni.
Látið heldur ekki ræturnar verða
of langar áður en afleggjararnir eru
settir í mold.
H.L./abj.
GAGNLEGAR UPPLYSINGAR
FYRIR SÓLARLANDAFARA
Um það bil 18 þúsund
íslendingar, eða rúmlega 8%, tóku
þátt í sólarlandaferðum árið 1978.
Ferðirnar eru skipulagðar af ferða-
skrifstofum, sem bjóða upp á ótal
möguleika fyrir tiltölulegt lágt verð.
Á þennan hátt er einnig þeim, sem
ekki tilheyra hinni „efnahagslegu
yfirstétt” gert kleift að fara til út-
landa.
Þessar upplýsingar er að finna í
grein í nýútkomnu Neytendablaði. í
greininni má lesa mjög gagnlegar
upplýsingar fyrir sólarlandafara og
þar bent á hvað mönnum beri að
kynna sér áður en lagt er af stað —
raunar áður en ferðin er svo mikið
sem pöntuð.
Þekkingarleysi getur oft valdið
óánægju ferðalanga, en í greininni er
drepið á alla hugsanlega þætti sólar-
landaferðarinnar, vegabréfsáritarnir,
bólusetningu, gjaldeyri, fatnað, hvað
leyfilegt er að verzla fyrir í fríhöfn,
þjórfé, o. fl. o. fl.
Þess er einnig getið í greininni að
Neytendasamtökin aðstoði fólk ef
kvartanir til fararstjóra eða ferða-
skrifstofu bera ekki árangur.
,,Sem betur fer takast hópferðir
yfirleitt vel og ferðafólk verður
þeirrar þjónustu aðnjótandi, sem
vonir stóðu til. Líkurnar fyrir þessu
aukast þó til muna, ef fyrirfram er
spurt réttra spurninga. Á þann hátt
verður helzt komizt hjá marghátt-
uðum misskilningi og vonbrigðum,”
segir í lok greinarinnar.
-A.Bj.
Verzlunarfólk Suðurnesjum
Orlofshús
Þeir sem hafa hug á að leigja orlofshús
Verzlunarmannafélags Suðurnesja í Ölfus-
borgum og Svignaskarði snúi sér til skrifstofu
félagsins að Hafnargötu 16, Keflavík, sími
2570. Vikuleiga, 15 þúsund, greiðist fyrirfram.
Verzlunarmannafélag Suðurnesja.
SKYNDMHYNMR
Vandaðar litmyndir
i öll skirteini.
barna&fjölskyldu-
Ijósmyndir
AUSTURSTRÆTI 6
SIMI 12644
Hvernig á að nota litlu laukana?:
T. D. SULTAÐA MEÐ STEIK!
Bústnar blaöplöntur
Við kvörtuðum um daginn undan
þvi að lesendur væru orðnir latir við
að senda okkur eigin uppskriftir.
Þetta hefur borið nokkurn árangur.
Hér kemur uppskrift af sultuðum
lauk, sem Guðrún Böðvarsdóttir
sagðist hafa prófað með góðum
árangri. Guðrún sagðist vita til þess
að margir veltu því fyrir sér hvernig
matreiða ætti litlu charlotte-laukana
eða perlulauka, eins og þeir eru víst
kallaðir á íslenzku. Sultaði laukurinn
hennar Guðrúnar er tilvalinn til að
nota með hvers konar steik, sem vera
skal. Ekki er okkur grunlaust um að
hann ætti einnig vel við steiktar fisk-
bollur.
langfallegastar
1 kg lítill charlotte-laukur eða
perlulaukur
1 liter edik
1 msk. salt
300 g sykur
1 bréf af niðurrifinni piparrót
5 stk. negulnaglar
2 stk. heill englfer
Byrjið á því að hella sjóðandi vatni
yfir laukinn og takið utan af honum.
Þá er soðinn lögur af ediki og krydd-
inu og látinn sjóða aðeins smástund.
Þá er afhýddur laukurinn látinn út í
og soðið áfram i um það bil 5
mínútur. Laukunum er þá hellt ásamt
Charlettelaukur fæst að jafnaði I verzlunum. Hann má nota vlð ýmiss konar
matargerð, auk þess að sulta hanna, t.d. heilsteika hann með steiktu eða gill-
uðu kjöti og hann er alveg tilvalinn á grilltein" með kjötbitum, bitum af lifur
og fleira góðgæti. DB-mynd Ragnar Th.
leginum á hrein glös, sem lokað er
strax.
Laukurinn var keyptur í Blómavali
og kostaði 1492 kr. kg., engiferinn
fæst í glösum m.a. í Hagkaupi og
kostar glasið 269 kr. (ekki þarf að
nota nema hluta af innihaldinu) og
piparrótina má fá m.a. í Breiðholts-
kjöri og kostar „bréfið” 103 kr.
Þannig kostar hráefnið í uppskriftina
mjög nálægt 2000 kr.
A.Bj.