Dagblaðið - 30.04.1979, Qupperneq 5
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 30. APRÍL 1979.
5
„Fagnaði því að fá andstæðing'’
sagði Einar S. Einarsson, forseti — Forseti FIDE af henti þrjú meistarabréf og flutti ávarp
,,Ég er alveg sérstaklega ánægður
með að hafa ekki verið kosinn út úr
neyð og fagnaði þvi að fá andstæð-
ing,” sagði Einar S. Einarsson, for-
seti Skáksambands íslands, í viðtali
við DB. Einar var kosinn formaður
Skáksambandsins í fjórða sinn
síðastliðinn laugardag. Hlaut hann
45 atkvæði en Bragi Halldórsson,
kennari og kunnur skákmaður, hlaut
31 atkvæði. 2 seðlar voru auðir.
Sjötíu og átta fulltrúar voru mættir
á aðalfundi Skáksambands íslands,
sem haldinn var á laugardaginn. Tvö
ný félög gengu í sambandið: Skák-
félag heyrnarlausra og Skáksamband
Vesturlands.
,,Það er von mín að eftir þennan
aðalfund, þar sem fráfarandi stjórn
skilaði framboðsmálinu, sem öðrum
málum, af sér, megi að nýju skapast
full eining innan skákhreyfingarinn-
ar,” sagðsi Einar S. Einarsson, ,,og
að nýju megi takast gott samstarf við
forseta FIDE, sem mótazt geti af
góðum anda og samstarfsvilja beggja
aðila.
Ég vil bæta því við,” sagði Einar,
,,að nú snúi menn bökum saman í
áframhaldandi starfi til eflingar is-
lenzkum skákmálum og til að auka
veg og virðingu íslands í skákheimin-
um.”
Friðrik flutti ávarp
og afhenti meistara-
bréf FIDE
Friðrik Ólafsson, forseti FIDE,
páði boð Skáksambandsins um að
vera viðstaddur setningu fundarins.
Flutti Friðrik ávarp við það tækifæri
3g afhenti þrem ungum afreksmönn-
jm meistarabréf FIDE. Þessir menn
:ru Helgi Ólafsson og Margeir
Pétursson, sem nú eru formlega
prðnir alþjóðlegir skákmeistarar, og
Jón L. Árnason, sem er fyrsti FIDE-
meistari heims. Helgi gat ekki verið
viðstaddur, en Stefán Bjömsson, for-
maður Taflfélags Reykjavikur, tók
við meistarabréfinu fyrir hann.
Það kom fram í orðum Einars og
Friðriks, sem og annarra fundar-
manna, að enda þótt eitthvað hafi
farið á milli sem menn gætu kannski
aldrei orðið fyllilega sammála um,
bæri að láta hag skákhreyfingarinnar
sitja i fyrirrúmi og leggja öll leið og
mannskemmandi deilumál til hliðar.
Allir, bæði innan skákhreyfingar-
innar sem utan, væru orðnir þreyttir
á þessum væringum. Nú bæri að
snúa sér að uppbyggilegri málum.
Guðmundur
Ágústsson
hylltur heiðursfélagi
Guðmundur Ágústsson var i einu
hljóði gerður að heiðursfélaga Skák-
sambands íslands. Var hann hylltur
fyrir virka þálttöku í islenzku skáklífi
i yfir 40 ár.
Sambandið samþykkti að ráða
skákerindreka til starfa, a.m.k. i
nokkra mánuði á ári, til eflingar
skákstarfinu i félögum og svæðasam-
böndum og vinna að skólaskák.
Flutt var og fram lögð skýrsla
stjórnar og reikningar og ýmsar sér-
skýrslur. - BS
Júgóslavíusöfnun Rauða krossins framlengd
til 12. maí:
Mikið uppbygging-
arstarf f ramundan
Samkvæmt þeim fregnum sem Rauði
kross íslands fékk frá Alþjóðasam-
bandi Rauða krossins er hjálparstarf á
jarðskjálftasvæðunum i Júgóslaviu vel
á veg komið og búið að leysa vanda
þeirra sem urðu hart úti vegna jarð-
skjálftanna, til bráðabirgða.
Vittani, fulltrúi Rauða krossins sem
kom frá Júgóslavíu til aðalstöðvanna i
Genf í gær, sagði aðdáanlegt hversu
hjálparaðgerðir Júgóslava hefðu farið
fljótt og vel í gang.
Stærsta hjálparaðgerðin undanfarið
hefur verið að koma upp neyzluvatns-
dreifingu, en fólk á svæðinu er farið að
snúa aftur til síns heima. Einnig er
unnið að því að koma upp heilsugæzlu-
aðstöðu og úrlausn félagslegra mála. í
fyrradag var lokið við að koma upp 210
rúma spítala í Kodor sem þýzki rauði
krossinn sendi og verið að koma upp
öðru slíku í Bar.
Vegna umfangs hjálparaðgerða í
Júgóslavíu hefur Rauði kross íslands
talið nauðsynlegt að styðja uppbygg-
ingarstarfið frekar en gert hefur verið
og því ákveðið að framlengja söfnun-
ina til 12. mai. Enn sem fyrr er tekið á
móti framlögum á giróreikning 90000 í
öllum pósthúsum og peningastofnun-
um auk þess sem deildir félagsins taka
við framlögum. Er þess vænzt að
landsmenn bregðist við af rausn og
minnist þess að hér er um að ræða nátt-
úruhamfarir sem eru áþekkar því sem
gerzt gæti hér á landi. Við höfum lent í
örðugleikum vegna náttúruhamfara
og þá mátt reiða okkur á aðstoð ann-
arra.
Samtals höfðu safnazt á hádegi í gær
liðlega 1,3 milljónir og má þess geta að
Ólafsfjarðardeild Rauða krossins sendi
strax 100.000 kr. en áður var búið að
senda tvær milljónir til Júgóslavíu
vegna jarðskjálftanna.
- JR
Athugun Vinnuveitendasambandsins:
Skipstjórar fara f ram á
milljón króna kauphækkun
— ef frídagar eru reiknaðir með
Á vegum Vinnuveitendasambandsins
hefur verið gerð athugun á algengustu
launum ýfirmanna á farskipum eins og
þau eru nú og hver þau yrðu ef gengið
yrði að kröfum þeim sem fram hafa
verið settar i yfirstandandi kjaradeilu.
Í niðurstöðum athugunar þessarar
kemur framað hæsti taxti skipstjóra er
nú 692.267 kr. á mánuði, þegar frí-
dagar hafa verið reiknaðir með, en yrði
ef gengið yrði að kröfum FFSÍ
1.722.853 kr. Eftir því að dæma fara
skipstjórar þar fram á einnar milljón
króna hækkun. Skv. sömu athugun eru
laun yfirvélstjóra að fridögum með-
töldum 701.132 kr. en yrðu 1.413.656
kr. ef gengið yrði að kröfum þeirra, og
hæstu laun I. stýrimanns eru nú
638.273 kr. en yrðu 1.225.963 kr. ef
gengið yrði að kröfum þeirra. Þar er
mismunur 587.690 kr.
í athugun þessari er gengið út frá
grunnlaunum yfirmanna eins og þau
eru í dag skv. kaupgjaldsskrá VSÍ frá 1.
marz sl. Fyrir hvern laugardag, sunnu-
dag og tyllidag utan heimahafnar eða
unninn í heimahöfn vinnur hver yfir-
maður sér inn einn frídag. Fridagar
þessir teljast vera 114,48 á ári, eða að
meðaltali 9,54 i mánuði.
FFSÍ hefurekki mótmælt túlkun VSÍ
á kröfunum.
-GAJ
Mikil ölvun í miðborginni um helgina:
Bytturnar skriðu úr bólunum
Að sögn lögreglumanna í miðborgar-
lögreglustöðinni bar óvenju mikið á
ölvun i miðborginni um helgina, þótt
ekki hafi hlotizt slys af. Viða urðu
nokkur óþægindi af þessu.
Kunnu lögreglumenn ekki aðra skýr-
ingu á þessu en góðviðrið á föstudags-
kvöldið og laugardaginn hafi lokkað
menn út úr húsum venju fremur og því
hafi meira borið á ölvuninni. - GS
Bflþjófar gripnir með
fulla vasa af bfllyklum
Aðfaranótt laugardagsins brutust
tveir þekktir bílaþjófar inn á bilasölu
við Grettisgötu og fylltu þar vasa sína
af bíllyklum er gengu að bilum sem þar
eru til sölu. Völdu þeir sér einn bíl og
þeystu úr hlaðt með fullmiklu kappi þvi
örstutt ökuferðin endaði á grindverki.
Þar skildu þeir bílinn eftir og brutust
inn í annan bil á bílastæði við Iðnskól-
ann og voru að koma honum af stað
þegar lögreglan kom að þeim og hand-
tók þá.
Reyndust þeir þá með fulla vasa af
bíllyklum af bilasölunni. Báðir voru
þeir að auki ölvaðir.
- GS
Gildir bolar íHrísey:
17 mánaða gamall vegur hálft tonn
Hann heitir Jörundur, er aðeins 17
mánaða gamall en vegur samt rúmt
hálft tonn — nákvæmlega 557 kíló.
Jörundur er bolakálfur, fæddur i
einangrunarstöðinni í Hrísey, einn sjö
kálfa sem þar hafa orðið til.
Nautin frá í hittifyrra eru öll hin
digrustu, aðeins eitt undir 400 kílóum,
hin ábilinu489—557 kíló.
í fréttabréfi Upplýsingaþjónustu
landbúnaðarins segir að mikill munur
sé á byggingarlagi þeirra kálfa sem
fæðzt hafa í Hrisey, eftir því hvort
mæðurnar eru Galloway-blendingar
eða venjulegar islenzkar kýr. Kálf-
arnir undan blendingunum eru mun
gildari.
Sæðið sem nú er notað i Hrisey er úr
nautinu Grange Convenanter, en eig-
andi þess er sagður þekktur fyrir frá-
bæran árangur í kynbótum á Gallo-
way. Fyrir skömmu seldi hann naut —
náfrænda þess sem sæðið i Hrísey er
fengið úr — og fékk jalnvirði 2.3 millj-
ón króna íslenzkra fyrir.
Á næstunni verður tekið sæði úr
nautunum í Hrísey og verður það l'ryst.
Ef ckkcri óvænt kemur upp vcrður það
sæði selt bændum um allt land næsta
haus.
Gripirnir i Hrísey eru hrauslir og
hafa engir sjúkdómar komið þar upp.
-ÓV
Mánudagskvöld - frídagur 1. maí
PQPAKIA
»/»// hingó og brjálað fjör í Þórscafé
Oþið til 1
Karon samtökin með nýjustu bað- og strandfatatískuna
Baldur Brjánsson „galdrakarP*
Bulgarian Brothers með spánska tónlist
del Sol kynning
Bingó - utanlandsferðir í vinninga
Ásadans - ferðavinningar fyrir tvo fyrir sigurvegarana
Ludó og Stefán leika fyrir dansi.
Réttir kvöldsins:
Súpa andalouise
Kjúklingar Espagnole
Verð aðeins kr. 4.000
Hittumst á spánska kvöldinu íÞórscafé