Dagblaðið - 30.04.1979, Síða 6
6
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 30. APRÍL 1979.
„Ljóst er að gallar hafa komið í
ljós á Austurlínu og Sveinbjörn Guð-
mundsson, fulltrúi Rafmagnseftirlits
ríkisins á Egilsstöðum, bendir rétti-
lega á það,” sagði Guðjón Guð-
mundsson, rekstrarstjóri Rafmagns-
veitna ríkisins. ,,En ég sé ekki annað
en þetta sé nokkuð orðum aukið hjá
Sveinbirni um andvaraleysi Raf-
magnsveitnanna.
Mönnum var ekki Ijóst í haust að
bilunin væri svo alvarleg, sem raun
hefur borið vitni. Við höfum fengið
stórgallaða vöru, þar sem splittin
losna úr, en það eiga þau alls ekki að
ENDURBÆTUR í SUMAR
— fengum stórgallaða vöru segir rekstrarstjóri Rafmagnsveitna ríkisins
— ekki Ijóst í haust hve gallarnir voru alvarlegir er línan var tengd
gera.
En alvarlegastar eru ekki truflan-
irnar sem orðið hafa vegna þessara
gölluðu splitta, heldur það mikla
verk sem vinna þarf til endurbóta.
Hin mikla vinna sem liggur fyrir er
ástæða þess að ekki var hafizt handa
í skammdeginu. Það er nær ógerlegt
að gera þetta á þeim tíma.
Það hefur alltaf staðið til að fara í
endurbætur á Austurlínunni, t.d.
setja á hana dempara, og verður það
gert í sumar, þegar nægileg önnur
orka er fyrir hendi. Þá verða gerðar
endurbáttur á splittunum um leið.
Þannig hefur þetta verið áætlað, til
þess að viðgerðin yrði sem hagkvæm-
ust, því kostnaðurinn verður ekki til-
finnanlegur ef þetta er gert samtímis.
Okkur var geysimikið kappsmál að
tengja línuna sl. haust. Með því
höfum við sparað hundruð milljóna i
olíukostnaði, sem annars hefðu farið
til keyrslu disilvéla. Truflanirnar
tvær sem orðið hafa vegna bilana á
línunni eru ekki miklar miðað við þá
kosti sem tenging línunnar hefur fyrir
okkur.
Á þessu stigi vil ég ekki tjá mig um
aðvaranir Rafmagnseftirlitsins vegna
þessa galla. Á það má þó benda að
eftirlitið veitti tengingarheimild á lín-
una, gallinn var ekki talinn það alvar-
legur.
Rafmagnsveiturnar hafa tilkynnt
framleiðanda splittanna um galla
þeirra. Hann hefur viðurkennt að
þau voru ekki í lagi og býðst til að
leggja fram ný splitti. En það bætir
þó aldrei nema brot af kostnaðinum.
Þessi splitti eru gölluð víðar en á lín-
unni frá Kröflu og að Skriðdal.
Byrjað verður á endurbótum á þeim á
línunni frá Brennimel í Hvalfirði og
farið norður um í áföngum. í ágúst er
síðan fyrirhugað að byrja á slíkum
endurbótum á línunni frá Kröflu.”
„Það er erfitt að segja til um
kostnað vegna viðgerða á splittun-
um,” s^gði Kristján Jónsson raf-
magnsvtéitustjóri. Gert verður við
splittin um leið og settir verða demp-
arar á línuna og þá þarf að fara upp í
hvern staur. Aukakostnaður vegna
splittanna ætti því ekki að verða mik-
ill.
Heildarkostnaður við demparana á
alla línuna er áætlaður um 80
milljónir króna, en 23 milljónir á
Austurlínu eina.” -JH
BJÖRNINN
Smurbrauðstofan
NjóUgötu 49 — Sími 15105
Sætaáklæði
i bíla
Allar geröir. Einföld, ódýr.
Fástá
bensínstöóvum Shell
Oliufélagiö
Skeljungur hf
Smávörudeild,
Laugavegi 180.
oneil simi 81722.
L
HEILDSÖLUBIRGÐIR
llastiM hr
Sími 82655
M EINS
AUÐVELT
■ OG VATN
ÚRKRANA
Ungir félagar i Gerplu við undirbúninginn að útimarkaðnum, sem haldinn verður á
morgun.
Útimarkaður í Kópavogi
Það stendur til að lífga svolítið upp á
þæjarbraginn í Kópavogi á morgun, 1.
mai. Félagar í Íþróttafélaginu Gerplu
gangast þá fyrir útimarkaði á litla torg-
inu fyrir framan verzlanir í Hamraborg
1.
Útimarkaðurinn býður upp á alls
kyns muni, sem seldir verða við ótrú-
lega hagstæðu verði. Þarna verður að
finna alls konar kökur og meðlæti,
blóm, bækur og sitthvað sem til gagns
oggamansmáverða.
Trúlega verður hægt að prútta eitt-
hvað við sölufólkið úr Gerplu, rétt eins
og á mörkuðum sunnar I álfunni, en
Gerplurnar spá suðurlandaveðri 1. maí
og búast við miklum og fjörugum við-
skiptum.
Undanfarna mánuði hefur Gerpla
lagt í hvert stórvirkið af öðru. Reist
íþróttasal að Skemmuvegi 6, ráðið til
sín sovézkan fimleikasérfræðing og
margfaldað alla starfsemi sína.
Árangurinn hefur líka ekki látið á sér
standa, því Gerplustúlkurnar unnu
megnið af verðlaununum á siðasta
íslandsmóti í fimleikum.
Útimarkaðurinn hefst kl. 2, en kl. 5
verður kvikmyndasýning fyrir börn i
Hamraborg 1.
Myndin er tekin á æfingu Passiukórsins á Akureyri á óratoríunni Árstfðirnar eftir
Joseph Haydn.
Passíukórinn með
tónleika í Háteigs-
kirkju á morgun
í gær lauk Tónlistardögum á
Akureyri með flutningi Passíukórsins
á óratoríunni „Árstíðirnar” eftir
Josep Haydn, og mun tónlistargagn-
rýnandi DB skrifa um tónleikana í
miðvikudagsblaðið.
En á morgun mun Passíukórinn á
Akureyri leggja land undir fó og
leyfa Sunnlendingum að hlýða á
Árstíðirnar í Háteigskirkju. Stjórn-
Plai.Sl.OS lll*
PLASTPOKAR
O 82655
andi kórsins er Roar Kvam, en
einsöngvarar með kórnum verða þau
Ólöf K. Harðardóttir, Jón Þorsteins-
son og Halldór Vilhelmsson, en
undirleik annast félagar úr Sinfóníu-
hljómsveit íslands.
Tónleikarnir verða sem fyrr segir
í Háteigskirkju á morgun I. maí og
hefjast kl. 17.
Árstíðirnar eru án efa erfiðasta
verk sem Passíukórinn hefur ráðizt í
hingað til, en tónlistin er afar
skentmtileg og hrífur við fyrstu
hlutun. Textinn er sunginn á þýzku
en Magnús Kristinsson menntaskóla-
kennari hefur gert íslenzka þýðingu,
semerí efnisskrá. -KIE.
Tíð og al-
varleg raf-
magnsslys
Vörubifreiðarstjóri á Egilsstöðum
lézt á sunnudag, er bíll með áföstum
krana rak kranann upp í háspennu-
línu, eins og DB greindi frá á mánu-
dag.
Sveinbjörn Guðmundsson, fulltrúi
Rafmagnseftirlits ríkisins á Egils-
stöðum, sagði að i þessu tilfelli hefði
ekki verið um að kenna ólöglegum
búnaði, hvorki á linu néöðru.
Hitt væri, að eftirlitsmenn fengju
sorglega litlu áorkað i fræðslumálum
og hefðu lítið samband við almenn-
ing um öryggismál og þá hættu sem
stafar af rafmagni, ef rangt er að
staðið. Þá eru fjölmiðlar að sögn
Sveinbjöms fálátir um þessi efni.
„Við höfum litillega farið hér í
skóla og á vinnustaði með fræðslu-
efni og myndir, en þar mætti vinna
mikið starf ef vel ætti að vera.
Við erum nánast eins og sofandi
þörn. Almenningur veit nánast ekk-
ert um þessa hluti og ekki er leitað
eftir upplýsingum.
Rafmagnsslys eru oft á tíðum mjög
alvarleg og miklu tiðari, bæði utan
húss og innan, en almennt er vitað
um. Þá er ekki minnzt á eldsvoðana
sem beint má rekja til lélegra raflagna
ogbúnaðar.
Hér má enginn liggja á liði sinu til
varnar og úrbóta. Öll störf á sviði
öryggismála hljóta að höfða til hug-
sjóna og samvizkusemi hvers manns.
Þeir sem leita fanga við öryggismála-
störf bara til að eiga náðuga daga og
fá þokkalegt kaup eru ekki á réttri
hillu í þessu iifi.” -JH
Svölurnar í Súlnasal:
Má bjóða
þérkaffi
á morgun?
— Hafa nýlega veitt
4,2 millj. kr. vegna
þroskaheftra og
fatlaðra barna
Svölurnar, félag núverandi og fyrr-
verandi flugfreyja, hafa á undanförn-
um árum verið ötular við fjársöfnun
sem þær hafa varið til liknarmála.
Fjárins afla þær m.a. með kaffisölu og
eru löngu rómaðar þær kræsingar sem
bornar eru á borð fyrir gesti. Borgar-
búar, Svölurnar bjóða borgarbúum
upp á kaffiveitingar í Súlnasal Hótel
Sögu á morgun, 1. mai.
Þessar ötulu flugfreyjur hafa nýlega
úthlutað styrkjum sínum. Snæfríður
Egilsson hlaut 500 þúsund, Þorsteinn
Sigurðsson 200 þús. og Guðrún S.
Norðfjörð 150 þúsund til þess að sér-
mennta sig til iðjuþjálfunar og sér-
kennslu þroskaheftra barna. Ferða-
sjóður nemenda við Þroskaþjálfaskóla
íslands hlaut 350 þús., blindradeild
Laugarnesskólans 500 þús. kr. og
barnadeiidir Kópavogshælis fengu 2,5
ntillj. kr. til að kaupa þroskaleikföng
og þjálfunartæki fyrir fjölfötluð börn.
Formaður Svalanna er Anna Þrúður
Þorkelsdóttir. Formaður fjáröflunar-
nefndar er Kolbrún Björnsdóttir. A.Bj.