Dagblaðið - 30.04.1979, Side 9

Dagblaðið - 30.04.1979, Side 9
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 30. APRÍL 1979. 9 Israelskt skip um Suezskurð í fyrsta skipti ísraelska skipið Ashdoud kom til Suezborgar í gær og mun í dag verða fyrsta þarlenda skipið til að fara um skurðinn. Var þetta tilkynnt af yfir- stjórn Suezskurðar i gær. ísraelska skipið, sem er fjögur þúsund og fimm hundruð tonna flutningaskip mun verða í hópi þrjátíu og fimm annarra skipa sem fara munu áleiðis í gegnum skurðinn og halda hópinn undir yfir- stjórn egypzks leiðsögumanns þar til komið verðurtil Port Said. Israelska skipið fer nú í gegnum Suezskurð í samræmi við ákvæði nýgerðra friðarsamninga ísraels- manna og Egypta. Mun þar verða síðast í röðinni hinna þrjátíu og fimm skipa. Verður sérstakur varðbátur sem fylgir því til öryggis. Óttazt er að reynt verði að hindra siglingu hins israelska skips um skurðinn. Er Ashdoud hið ísraelska skip kemur út á Miðjarðarhafið er ferð- inni heitið til Haifa i fsrael. Haft er eftir egypzkum yfirvöldum Suezskurðarins að hið ísraelska skip muni hljóta alla þá sömu meðferð og þjónustu og önnur skip, sem um skurðinn fara. : ' : : :: • • : : ': .' i ■ ■ : . f:. ’Xvf .'‘X'fXv - i ' ■ '■. XvXvXvtvA;: NÝ EVRÓPU- HÖLL? Þessi sérkennilega bygging á ad hýsa hið nýja Evrópuþing, sem kosið verður í júni næstkomandi. Situr það í Strasborg i Frakklandi. 1 kosningunum munu óbreyttir borgarar hinna niu ríkja, sem i Efnahagsbandalagi Evrópu eru i fyrsta skipti hafa bein áhrif á val þingfulltrúa. Er þvi mikill viðbúnaður fyrír kosningarnar og margt stórmenna í framboði. Leggja stjórnmálaflokkar I löndunum niu mikla áherzlu á að tryggja sinum mönnum sæti á Evrópuþing- inu i Strasborg. Einnig hefur þess töluvert gætt að flokkar eins og jatnaðar- menn hyggist hafa samvinnu sfn á milli þó fuiltrúar þeirra séu frá hinum mis- munandi löndum. Washington - Moskva: SKIPTIÁ NJÓSNURUM 0G FLUGRÆNINGJUM MINNINGAR ÚR STRÍÐINU Margar sprengjur féllu á London i siðari heimsstyrjöldinni en þær sprungu ekki allar af ýmsum ástæðum. Á myndinni sést sprengjusérfræðingur standa við cina slíka í Eppingskógi nærri London. Er þetta nærri fimmhundruð kilógramma sprengja, sem sleppt var úr þýzkri sprengjuflugvél — Junker 88 áður en hún nauðlcnti i síðarí heim- styrjöldinni. Voru það áhugamenn um gamlar minjar, sem fundu sprengjuna, er þeir leituðu flaks vélarinnar í Eppingskógi. Kanada: Mikil vorfíóð í Winnipeg Nærri fimm þúsund manns hafa orðið að flýja heimili sín vegna mikilla flóða í Kanada undanfarna daga. Hefur Manitoba orðið einna verst úti í flóðum þessum sem stafa af vorleysingum og miklum rigningum en áhrifa þeirra gætir i fjórum fylkjum Kanada. Hefur á einum stað myndast nýtt vatn sem er eitt hundrað kílómetra langt og fjörutiu kílómetra breitt. Fylkisstjórinn í Manitoba skipaði íbúum á stóru svæði að yfirgefa heimili sín vegna flóðanna, þegar í fyrri viku en ekki hafa allir hlýtt þeirri skipun. Mikil flóð eru i Rauðá sem hefur einnig valdið miklum skaða í Norður Dakota fylki i Banda- ríkjunum. Fregnir hafa borizt af þvi, að áin hafi farið hærra en árið 1950 en þá urðu þarna mestu flóð, sem vitaðer unt. Búizt er við að flóðið nái ekki hámarki sínu fyrr en i fyrsta lagi á morgun. Vitað er um að ein mann- eskja hafi farizt vegna Dóðanna hingað til en engum gctum hcfur verið leitt að þvi, hve mikið fjárhags- legt tjón hefur orðið af völdum þeirra. Sviss: Felldu kosningarétt kvenna Tveim sovézkum gyðingum, sem sleppt var úr haldi í skiptum fyrir tvo sovézka menn sem sátu í fangelsi i Bandaríkjunum, var fagnað sem hetjum við komu þeirra til New York. Gyðingarnir, sem hlutu dauðadóma fyrir tilraun til að ræna sovézkri flugvél árið 1970 ætluðu að fljúga henni til ísrael. Á miklum fjöldafundi með gyðingum í New York sagði annar þeirra að vegna mikilla mótmæla frá gyðingum í Bandaríkjunum hefði tekizt að koma i veg fyrir að dómunum væri fullnægt. Sovétmennirnir, sem sluppu úr fang- elsi í Bandaríkjunum voru dæmdir þar í tandi fyrir njósnir. Eru þeir þegar komnir til Sovétríkjanna. Þrem öðrum andófsmönnum var sleppt úr haldi fyrir njósnarana tvo. Annar þeirra gyðinga, sem sleppt var úr haldi hvatti bandariska gyðinga til að hætta ekki baráttu sinni fyrir sovézka meðbræður sína fyrr en í það minnsta þeim fimmtán félögum þeirra, sem sætu i fangabúðum vegna skoðanna sinna, hefði verið sleppt. Enn einu sinni felldu karlar í Appenzell kantónu í Sviss að veita konum þar almennan kosningarétt. Er kantónan, þar sem almennir þingfundir eru enn haldnir úti undir beru lofti eín hinna siðustu af fylkjum i Sviss að lála þennan rétt afhendi viðkonur. of\€L Nýkomnir HÖGGDEYFAR mSm 1 ettirtaldar bitreiðin BR0NC0, BLAZER, CHEROKEE, L. ROVER, RANGE ROVER, HUNTER, CORTINA, MINI, MOSKVITCH, MAZDA, ESCORT, AVENGER, TAUNUS 17M, COMET, CHEVROLET, VOLGA, V0LV0, VW, VIVA, FIAT RAMBLER, DODGE, M. BENZ O.FL. Xpil mw Gli Sb varahiutir Armúlð24—Sími36510 Póstsendum

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.