Dagblaðið - 30.04.1979, Side 12

Dagblaðið - 30.04.1979, Side 12
12 DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 30. APRÍL 1979. SUMARBÚSTAÐUR TIL SÖLU Til sölu er ca 28 ferm bústaður í flekum, tilbúinn til uppsetningar. Upplýsingar í síma 53255 á daginn og 50135 á kvöldin. KONl höggdeyfa undir bílinn fyrir sumarið. Talið við okkur sem fyrst, ef til vill þarf að sérpanta. Sími 84450. Smyrill h/f — Armúla 7 Auglýsing Utanrikisráðuneytið óskar að ráða nú þegar ritara til starfa i utanríkisþjónustunni. Umsækjendur verða að hafa góða kunnáttu og þjálfun í ensku og a.m.k. einu öðru tungumáli. Fullkomin vélritunarkunnátta áskilin. Eftir þjálfun i utanrikisráðuneytinu má gera ráð fyrir að rit- arinn verði sendur til starfa í sendiráðum íslands erlendis, þegar störf losna þar. Eiginhandarumsóknir með upplýsingum um aldur, menntun og fyrri störf verða að hafa borist utanrikisráðuneytinu, Hverfisgötú 115 Reykjavík, fyrir 10. maí 1979. Utanríkisráðuneytið. /* SVIKIN UM LAUNIN SÍN Hvers vegna hefur allur þessi fjöldi fylkt liði undir kröfum Rauðrar verkalýðseiningar á hverjum 1. maí allt frá 1972? Baráttusinnað verka- fólk, róttækir kvenfrelsissinnar, námsfólk, herstöðva- og Natoand- stæðingar. Hvers vegna skilur þessi fjöldi sig frá göngu fulltrúaráðsins á mótum Bankastrætis og Lækjargötu til að halda eigin útifund við Miðbæjar- skólann? Það er vegna þess að hann hafnar undanslætti verkalýðsforystunnar gagnvart ásókn atvinnurekenda og ríkisvalds þeirra. Það er vegna þess að hann vill bera fram til sigurs kröfur sem verkalýðsforystan annað- hvort er feimin við að bera fram eða hreinlega á móti. En eru þessir forystumenn verka- lýðsins ekki alltaf öðru hvoru að rífast við fulltrúa atvinnurekenda í sjónvarpinu? Það nægir bara ekki að gera sig breiða þar til að sannfæra okkur. Látum verkin tala. Samningarnir sem náðust eftir verkföllin 77 voru rofnir af fyrrver- andi' ríkisstjórn 1. mars í fyrra (5— 6%) og aftur 1. des sl. (4—6%). Og nú er búið að setja ný kjara- skerðingarlög (6%)frá l.júnínk. , Allir flokkar á þingi eru orðnir uppvisir að því að svíkja fólk um launin sín. Verkalýðsflokkarnir svo- kallaðir, Abl. og Alþfl., voru alltaf að hamra á þvt að vissulega gætu verkalýðssamtökin knúið fram hærri laun en til að vernda gerðá samninga yrði að kjósa þá sjálfa á þing. Sér er nú hver verndin. Þessir foringjar hafa ekki sannað neitt annað en það Til hvers eru spariskírteini? í DB 2. þ.m. birtist löng grein eftir Jón frá Pálmholti þar sem hann ræðir enn um húsaleigumál, án þess að birta útreikninga sína á húsaleigu, þrátt fyrir áskoranir minar. í grein Jóns er mikill fjöldi rangfærslna sem mér þykir leitt að Jón skuli bera á borð fyrir lesendur. Eftirfarandi at- riði tel ég rétt að benda á: a) Jón talar um „reiknikúnstir” í útreikningum minum. Hverjar eru „kúnstirnar”, Jón? Mega lesendur ekki fáað vita, hjá Jóni, hvernig rétt- ir útreikningar hans eru, án kúnsta? Er það feimnismál hvað sé sanngjörn leiga? Hvað borgar Jón sjálfur? b) Ég hef aldrei sagt að leigjendur almennt lifi lúxuslífi þótt slíkir fyrir- finnist. Húsnæðisvandi er líka til, því miður, það vita fleiri en Jón. c) Ég tel að leiga ætti að vera frá- dráttarbær til skatts, hjá leigjanda, og að lækka beri skatta á leiguhús- næði til samræmis við séreignarhús- næði en þar vantar mikið á að jöfn- uður sé. Framangreind atriði myndu lækka greiðslubyrði leigjandans verulega, hvort fyrir sig. Leigjendur ættu að stuðla að þessu. Leigjendur gætu stofnað byggingarfélög þar sem gjöldum er safnað saman í vísitölu- tryggða sjóði í mörg ár, t.d. með þvi að kaupa hin margnefndu spariskír- teini ríkissjóðs sem gefa 3,5% í árs- vexti, allt skattfrítt og verðtryggt. Fyrir uppsafnað fé mætti svo byggja hagkvæmar íbúðir sem yrðu síðan eign félagsmanna. Ef leigjandi getur sparað, í skírteinum, sem svarar 2 sígarettupökkum á dag, í 20 ár, þá á hann kr. 14 milljónir á verðgildi 1.7. 1979, þ.e. góða ibúð. En það er ekki nóg að Jón tali bara. Þessu ætti að hrinda í framkvæmd. Ríkið og sveitarfélögin ættu einnig að byggja meira leiguhúsnæði og leigja það á kostnaðarleigu. Hver vinnur kauplaust? d) Jón segir visvitandi ósatt þegar hann segir að ég hafi staðfest við hann, í símtali, ,,að þarna séu á ferð menn (væntanlega ég) sem græði á leigjendum”. Af hverju vill Jón ekki skýra lesendum frá leigukjörum leigj- enda minna, fjögurra, sem hann hefur áreiðanlega kynnt sér hjá þeim? Hve mikilli leigu er stungið undan? Eða er sannleikurinn ekki i samræmi við dylgjur Jóns? Ég hef hins vegar álitið að leigusali ætti ekki að vinna hússtjórnarstörfin kaup- laust, fremur en aðrar starfsstéttir. Kaupið er væntanlega sá gróði sem Jón á við, ef það er þá nokkuð. Vinnur Jón kauplaust? Ég veit ekki betur en talað sé um „kostnað við hússtjórn” í nýja húsaleigulagafrum- varpinu, 42. gr„ og kostnað af um- boðsmanni, í 52. gr. Skattyfirvöld áætla leigusala laun sem nema 10% af leigunni er þau reikna út sérstakan skatt skv. 10. gr. Þessi laun eru dregin frá nettótekjunum og fyrning- ar lagðar við áður en skatturinn er lagður á. Ef Jón á jafnvirði íbúðar- innar, sem hann býr í, í margnefnd- um spariskirteinum fær hann skatt- frítt í tekjur um 2/3 af húsaleigunni sem hann greiðir, ef hann greiðir meðalleigu, og höfuðstól skirtein- anna verðtryggðan og skattfrían fyrir að gera ekkcrt. Hvor skyldi vera meiri gróðapungur, hann eða leigu- salinn, sem fær miklu minna fyrir þó töluverða vinnu við hússtjórnina ásarht öllu sem henni fylgir? e) Um það hvernig fjármagn nýtist sem bezt til íbúðabygginga ætti Jón að ræða við byggingamenn sem eru sérfræðingar á þessu sviði. f) Jón skrifar enn gegn betri vit- und þegar hann heldur því fram að ég sé að reikna út hvernig ég, sem millj- ónaerfingi, „geti ávaxtað arf minn þannig að ég hagnist sjálfur sem mest á arfinum”. Það er ljótt að skrökva, Jón, og enn verra að endurtaka lyg- ina. Ég skýrði frá því í grein minni í DB 19. marz sl. að ég hefði birt út- reikningana til að reyna að útskýra húsnæðisskortinn. Skirteinin drægju til sin fé. Auðvitað mættu vextimir vera lægri en 3,5%. Ég er einmitt að fæða um hvernig megi minnka hús- næðisvandann og lækka leiguna, sbr. lið c hér að framan. Má enginn ræða slíkt nema Jón einn? g) Jón talar um fjármagnskostnað í sambandi við lánsfé, til íbúða. Vill Jón nú hækka kostnaðinn og þar með leiguna? Hann segir þó sjálfur réttilega í DB 9. marz: „Lánið er þá að hluta gjöf.” Það er þá allur kostn- aðurinn. í stað þess að borga kostnað fær lántakandinn gjöf, þ.e. ef hann fær þá nokkurt lán. h) Þekking Jóns á því hvernig raða megi spariskirteinunum þétt saman bendir til þess, sbr. grein hans 9. marz, að hann hafi safnað þeim í röðum gegnum árin í stað þess að kaupa sér íbúð. Það er líka mjög skynsamlegt. Það þarf ekki miklar „reikningskúnstir” til að sjá það. Reksturskostnaður séreignaríbúðar er nefnilega kr. 522.100 á ári á verð- gildi 1.7. 1979 með sömu forsendum og margnefnd 14 millj. leiguíbúð. Ef Jón á jafnvirði ibúðarinnar í skírtein- um og borgar 780.000 í leigu á ári þarf hann aðeins að borga 780.000 — 490.000 = 290.000 á ári af kaupi sínu. Ef Jón ætti íbúðina væru út- gjöldin 522.100 eða nærri tvöfalt hærri. Spyrjum svo hver' það er sem hirðir hagnaðinn sinn. Það er ekki von að hann kæri sig um að eiga íbúð yfirleitt. Síðan stofna menn samtök til að fá leiguna lækkaða enn meir. Þá geta hin verðtryggðu, skattfrjálsu skírteini þeirra borgað mestalla eða alla leiguna fyrir þá og leigusala af- ætulýðurinn borgar tapið. i) Sjálfsagt er að reisa húsnæði á félagslegan hátt en það breytir ekki þeirri staðreynd að húsnæði kostar peninga sem einhver verður að borga. j) Jón talar um tekjur sem ríkis- sjóður fái fyrir spariskírteinin. En nú eru þau verðtryggð og gefa þar að auki hagnaðinn til Jóns og allt skatt- frítt. Til langs tíma litið eru þau því baggi á ríkissjóði sem almenningur verður látinn borga síðar, með skött- um, svo að Jón fái arðinn sinn. k) Jón skrifar mikið um það að ég hafi hlotið arf eftir foreldra mína. Ekki vantar öfundsýkina. Var Jón gerður arflaus eða ætlar hann að gefa Pétri eða Páli eigur sínar eftir sinn dag en láta börnin sín ekkert fá? Það verður lítill hagnaðurinn barnanna, jafnvel ekki neikvæður hagnaður eða kauplaus vinna við hússtjórn, a.m.k. ekki við stjórn á öllum skírteinunum. 15,5% tekna í leigu en ekki þriðjungur l) Ég sagði ekki að leiga væri 65.000 á mánuði fyrir „litla” íbúð. Ég sagði að i 40% verðbólgu væri þetta líklega leigan 1.7. 1979 fyrir ibúð sem þá kostar 14 millj. í stað- greiðslu. Leigan væri 45.000 ca árið áður. Það gæti nú verið sæmileg 3 herbergja íbúð. Kr. 180.000 1.7. 1979 jafngilda kr. 128.600 1.7. 1978. Hver hafði aðeins kr. 128.600 í laun á miðju ári 1978? Þeir eru víst fáir. Þar að auki búa einhleypingar oftast í minni íbúðum og ódýrari. Hjón hafa varla haft undir 300.000 á mánuði á miðju ári. 1978 eða 420.000 ári síðar en kr. 65.000 eru aðeins 15,5% af því. Margir hafa mun hærri laun. Það kom skýrt fram í grein minni að töurnar eru miðaðar við 1.7. 1979 og 40% verðbólgu. Sé verðbólgan minni verða bæði leigan og kaupið minni, í krónutölu, í sömu hlutföllum. Dæmi Jóns er því ekki raunhæft. m) Jón talar um að ekki komi fram hvernig kaupverð íbúðarinnar sé „tilkomið”. En nokkrum línum ofar talar hann um milljónaarfinn minn. Ekki veit ég hvort gleymska þessi er kölkun eða andlegt jafn- vægisleysi yfir því að ég skyldi voga mér að birta útreikninga sem erfitt er að hrekja, enda þorir Jón ekk' að birta sína útreikninga, ennþá. n) Jón telur 280.000 of hátt í við- haldskostnað 1979. í 40% verðbólgu jafngildir þetta 200.000 árið 1978 en þá tölu hélt ég að Jón hefði samþykkt í grein sinni 21.10. 1978, hann segir um þessa upphæð: „en látum svo vera,” o.s.frv. Þá var þó aðeins um 2 herbergja íbúð að ræða en ekki 3. • „Leigjendur gætu stofnað byggingar- félög, þar sem gjöldum er safnað saman í vísitölutryggða sjóði í mörg ár, til dæmis með því að kaupa hin margnefndu spariskír- teini ríkissjóðs.”

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.