Dagblaðið - 30.04.1979, Side 17

Dagblaðið - 30.04.1979, Side 17
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 30. APRÍL 1979. 17 Hann heitir Robert „DJ” Guttadaro. Hann er lyjjafrœðingur að mennt og plötusnúður að atvinnu. Hann er leiðandi maður á sviði diskótónlistar í Bandaríkjunum og hefur á undanfiirnum árum haft mót- andi áhrif á störf plötusnúða um allan heim. Hann valdi tónlistina I kvikmyndina Thank God It’s Friday og valdi flytjendurað nokkrum laganna.... ....og síðast en ekki slzt: Hann er hálf- ur Islendingur. Robert Guttadaro er búinn að starfa sem plötusnúður í Banda- ríkjunum i um það bil tíu ár. Eitt sinn er hann var á þriðja ári i lyfja- fræðinámi sínu, rakst hann inn á skemmtistað að nafni Zodiac, komst í kynni við plötusnúðinn þar og var síðar ráðinn til að leysa hann af nokkur kvöld. Robert eða Bobby, eins og hann er yfirleitt kallaður, ilentist á Zodiac í hálft annað ár. Þetta voru þó ekki fyrstu afskipti Bobbys af tónlist. „Ég hef sennilega vinyl í æðunum,” segir hann. „Ég hef alltaf haft mjög gaman af tónlist. Á myndum af mér frá því að ég var lítill er ég til dæmis yfirleitt meðplötu i höndunum.” Risastórt plötusafn Bobbys varð lika til þess að hann fékk starf á diskótekinu lce Palace á eyjunni Fire Island. í fyrsta skipti sem hann steig þangað inn fyrir dyr stóð einmitt yfir heiftúðgugt rifrildi milli plötusnúðsins og eiganda staðarins. Plötusnúðurinn var rekinn og Bobby fékk starfið hans. Siðan þá hefur hann leikið á mörgum helztu diskótekum New York borgar, svo sem Infinity, Le Jardiss, New York New York og fleirum. Nú er hann að mestu leyti hættur að leika fyrir dansi á diskótekum. Annars konar störf hafa tekið við, svo sem vinna hans við Thank God It’s Friday, sjónvarpsþáttur hjá CBS sjónvarps- stöðinni klukkan hálfátta á hverju laugardagskvöldi, og margt fleira. Þá starfar hann jafnframt fyrir aðra plötusnúða, útbýr fyrir þá kassettur með diskótónlist, svo að þeir geti tekið sérsmáhlé í vinnunni. Fyrir störf sín hefur Bobby „DJ" Guttadaro hlotið þrjár gullplötur (DJ- i nafni hans stendur fyrir Disk Jockey eða plötusnúður). Hann er Robert Guttadaro er einn af virtustu plötusnúðum Bandaríkjanna: Hann valdi tónlistina í Thank God It's Friday og hann er af íslenzkum ættum Biðum nú við. — Sagði ekki ein- hvers staðar hér að framan að Bobby DJ Guttadaro væri hálfur Íslendingur? Jú, alveg rétt. Móðir hans heitir Svava Simonardóttir. Hún hefur búið i Bandarikjunum i um 33 ár þar sem hún giftist ítölskum Ameríkana. Bobby hefur komið nokkrum sinnum hingað til lands, síðast fyrir einum tíu árum. Eftir það hefur hann verið svo önnum kafinn við plötusnúðsstarfið að hann hefur ekki mátt vera að þvi að koma hingað. Úr PENTHOUSE, DISCO FEVER og víðar. Last Dance sem vann Óskars- verðlaunin i ár. Hann hljóðblandaði einnig lagið I Feel Love með Donnu Summer og titillag kvikmyndarinnar The Deep, sem Stjörnubíó sýndi á sínum tima. „Það er ekki hægt að starfa sem plötusnúður alla ævina," segir Bobby DJ. „Þaðer ungra manna starf. Ég hef enn ákaflega gaman af diskótekum og diskótónlist, en einhvern tíma tekur allt enda. Þá hef . g lyfjafræðina sem tryggingu fyrir þvi að ég verði ekki at- vinnulaus þegar ég hætti.” ROBERT „DJ”GUTT- ADAROað störfum. Hann hefur hlotið þrjár gullplöt- ur á rúmlega áratugs ferli sinum og var al' Billhoard- tímaritinu val- inn plötusnúð- ur ársins 1977. „Lyfjafræðin er trygging min,” segir Bobby DJ. Hér er hann I peysu frá Brooklyn Coll- ege þar sem haon stundaði 'yfjafræðinair á sínum tím.i^r fyrsti plötusnúðurinn sem sæmdur er gullplötu. Það var sumarið 1973, er Bobby DJ vann enn hjá Ice Palace, að kunningi hans hjá Twentieth Century Fox gaf honum prufuplötu með nýjasta lagi söngvarans Barry White, Love’s Theme. Bobby prófaði að spila lagið jvó að það væri ekki nákvæmlega í þeim dúr sem vinsælastur var á Ice Palace. Fyrst í stað fékk hann nokkur skrýtin augnatillit en brátt fór fólki að líka platan. Síðar, þegar platan kom út, rokseldist hún. Barry White hlaut gullplötu fyrir söluna en útgefendurnir mundu einnig eftir plötusnúðnum, sem fyrstur spilaði plötuna og átti stóran þátt i vinsældum hennar. Hann fékk því einnig gullplötu. Þessi atburður hafði meiri áhrif en aðeins þau að plötúsnúðar væru verðlaunaðir fyrir sitt framlag til plötusölu. Útgefendur tóku nú aðgera sér grein fyrir þýðingu plötusnúða. Fram til þessa dags höfðu þeir orðið að kaupa allar sínar plötur sjálfir en nú tóku útgáfufyrirtækin aðgefa þeim eintök eins og gagnrýnendum. Eftir að diskótónlistin tók að verða vinsæl færðist það I aukana að plötu- snúðar fengju atvinnu hjá upptöku- fyrirtækjum við að hljóðblanda diskó- plötur. Bobby DJ Guttadaro hefur blandað nokkur þekkt lög, til dæmis SFISHER FISHER hljómtæki og myndsegulbönd eru talin þau fullkomnustu og bestu í heimi. Viö bjóöum möguleika fyrir alla í FISHER hljómtækjum. Hátalarar Plötuspilari Kassettu segulbandstæki 50-125 RMS wött Seguldrifinn (Direct Linear) 2og3hausa w'-ff Samstæða Tölvuklukka meö minni fyrir afspilun Útvarpsmóttakari (Tuner) Kraftmagnari 2x 50 RMS wött Kontrolmagnari Kassettu segulbandstæki Magnarar CA-2110 = 2x55 RMS wött CA-2310 = 2x70 RMS wött Utvarpsmagnarar 2 x 40 — 2 x180 RMS wött Myndsegulbandstæki Betacord sama kerfi og Sony, Toshiba, Sanyo o.fl. SJONVARPSBUDIN BORGARTÚN118 REYKJAVÍK SÍMI27099

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.