Dagblaðið - 30.04.1979, Síða 20
20
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 30. APRÍL 1979.
iþróttir
Ásdis Alfreðsdóttir. DB-mynd Þorri.
Ásdísvann
fyrir Utsýn
„Þetta var ánægjulegur sigur en auð-
vitað er þreytan farin að segja til sín
eftir allar þessar ferðir,” sagði Ásdis
Alfreðsdóttir sigurvegari Firmakeppni
Skíðaráðs Reykjavíkur. Hún keppti
fyrír Ferðaskrifstofuna Útsýn. Alls
voru 162 fyrirtæki skráð til keppni.
Keppt er i tveim samsíða brautum og er
hverjum keppanda gefin forgjöf eftir
getu, þannig að allir eiga að hafa sömu
mögulcika á að sigra, og er keppni
þessi mjög skemmtileg fyrir áhorf-
endur.
Mjög kalt var í Bláfjöllum á sunnu-
dag um 6 stiga frost og 6—7 vindstig og
var færi mjög hart og héldust braut-
irnar þar með mjög góðar, meðan á
keppninni stóð.
Úrslit urðu sem hérsegir:
I. Ferfla-I. r ifsiofan Úlsýn keppandi Ásdis
Alfreókdótfír,
2. Satúrnus h keppandi Tryggvi Þorsteinsson.
3. Spennubreytar ii/f keppandi Sigurður
(iiiðmundsson.
4. (íullsniu'ii lljarni og Þórarínn keppandi Þröstur
ÁmórsMin.
5. A*k'i leiknistofa keppandi Jóhann Vilbergsson.
6. Húsið byggingavörur keppandi Bryndís Ýr
Viggósdóttir.
7. Vogaveg keppandi Ámi Þór Ámason.
8. Ócúlus h/f keppandi Ása Hrönn Sæmundsdótl-
ir.
9. Guðni Sigfússon vélaleiga -u-ppandi Haukur
Þorsleinsson.
10. Vélsmiðjan Trausli, keppandi \rnar Þórisson.
Þorri.
Afmælissund
KR-inga
1 tilefni af 80 ára afmæli Knattspyrnu-
félags Rcykjavíkur á þessu ári efnir
sunddcild félagsins til mikillar sund-
keppni í Sundlaug Vesturbæjar í dag.
Hún hefst kl. 13.00 og taka 50 sund-
menn félagsins þátt í henni — synda
2000 metra hver.
Grosswallstadt
Evrópumeistari
Þýzkalandsmeistarar Grosswallstadt
sigruðu í Evrópubikarnum — keppni
meistaraliða — i gær, þrátt fyrir tap
gegn austur-þýzka liðinu Rostock á úti-
velli, 14—12. Grosswallstadt sigraði á
heimavelli 14—10 og var aldrei í hættu
með að tapa niður þeim mun. Martin
Hoffmann, þýzki landsliðsmark-
vörðurinn, átti frábæran leik i marki
Grosswallstadt.
Fyrsta tap
Kínaí6ár
Ungverjaland sigraði Kína 5—2 í karíakeppni i
borðtennis á 35. heimsmeistaramótinu, sem nú
stendur yfir í Pyongyang. Þaö var fyrsta tap Kín-
verja í sex ár á þessum vettvangi. Þeir eru núverandi
heimsmeistarar og hafa þrátt fyrír tapið möguleika á
að halda titli sínum. Komust í úrslit í kcppninni —
og leika þar ef að líkum lætur til úrslita við
Ungverja.
Bþróttir
íþrótti
Iþróttir
íþrt
Bikarinn hafnaði einnig
hjá stúlkunum í Fram!
Fram sigraði KR11-8 í úrslitaleiknum í Bikarkeppni HSI
Sigurganga stúlknanna i Fram heldur
áfram — í gærkvöld bættu þær enn
j einni skrautfjöður í hatt sinn er þær
sigruðu KR 11—8 í úrslitaleik Bikar-
keppni HSÍ. Þær unnu þar sitt áttunda
mót í röð og bættu bikarnum við ís-
landsmeistaratignina í ár. Slikir eru
yfirburðir Fram í íslenzkum kvenna-
handknattleik.
Fram hafði lengst af undirtökin í
viðureign sinni við KR en það var þó
ekki fyrr en á lokamínútunum að sigur-
inn var i höfn. Fram leiddi í leikhléi 7—
5 eftir að KR hafði skorað fyrsta mark
leiksins. KR náði síðan að jafna 7—7
og síðan.var staðan 9—8 en Fram skor-
aði tvö síðustu mörk leiksins og sigur-
inn í höfn. Guðríður Guðjónsdóttir
skoraði flest mörk Fram, 5, OddnýSig-
steinsdóttir 3, Sigrún Blomsterberg,
Jenný Grétarsdóttir og Jóhanna Hall-
Bikarmeistarar Fram 1979
DB-mynd Bjarnleifur.
INGIVANN GRETTIS-
BELTIÐ13. SINN
— þegar hann sigraði í Islandsglímunni í gær
Ingi Þór Yngvason hreppti Grettis-
beltið i þriðja sinn er hann sigraði í
Íslandsglímunni i íþróttahúsi Kennara-
háskóla Íslands í gær. Eins og svo oft
áður þá áttust þeir bræður við í úrslita-
glímunni og Ingi lagði tvíburabróður
sinn. Pétur.
Keppt var með nýju fyrirkomulagi,
■ tslá’ arkeppni og glimdu menn
'vivegis. Ásamt þeim bræðrum úr
Mývatnssveit þá komust i undanúrslit
Ingi með Grettisbeltið eftir sigurínn I
gær. DB-mynd Bjarnleifur.
þeir Guðmundur Ólafsson og Ólafur
Ólafsson — 16 ára piltur sem vakti
mikla athygli. Mikið efni þar á ferð og
áreiðanlegt að Grettisbeltið á eftir að
falla honum í skaut síðar. Ólafur
Ólafsson glimdi við inga í undanúslit-
um og Ingi hafði aðeins betur eftir
mjög jafna viðureign þar sem piltur
sótti ekki siður. Pétur Yngvason
sigraði Guðmund fremur auðveldlega
og þeir bræður áttust því við í úrslita-
glímunni. Þar sigraði Ingi á sannfær-
andi hátt og Gretlisfceliið féll því í hans
hendur. Guðmundur Olafsson hreppti
þriðja sætið eftir sigur gegn Ólafi
Ólafssyni.
FYLKIR VANN KR
— og Fram sigraði Þrótt á Reykjavíkur-
mótinu íknattspyrnu
Fylkir vann fremur óvæntan sigur
gegn Reykjavíkurmeisturum KR í
Reykjavíkurmótinu í gær, 1—0.
Hörður Antonsson skoraði eina mark
leiksins i síðari hálfleik með hörku-
skoti. Annars settu veðurguðirnir
mikinn svip á leikinn, norð-austan
hvassviðri kom í veg fyrir allan fót-
bolta.
Fylkir úr 2. deild hefur staðið sig
mjög vel i Reykjavíkurmótinu og
greinilegt að Fylkir verður sterkt í 2.
deild i sumar.
Á laugardag léku Fram og Þróttur á
Melavellinum. Fram sigraði 2—0, þeir
Pétur Ormslev og Guðmundur Steins-
son skoruðu mörk Fram.
Staðan í Reykjavíkurmótinu er nú:
Valur 4 4 0 0 10—3 9
Lokahóf HSI
I.okahóf Handknattleikssambands
íslands verður í kvöld i Sigtúni. Hefst
kl. 20.00 Á hófinu verða afhent
verðlaun til hinna ýmsu flokka, sem
þegar hafa sigrað í íslandsmótinu og
bikarkeppninni.
Fram 5 3 2 0 9—5 8
KR 6 3 1 2 10—6 8
Fylkir 5 2 1 2 6—6 5
Þróttur 5 1 1 3 6—7 4
Vikingur 4 0 2 2 3—8 2
Ármann 5 0 1 4 2—11 1
Á morgun leika Valsmenn við
Vikinga og sigur i þeim leik myndi
nánast gulltryggja Reykjavikur-
meistaratitilinn að Hlíðarenda.
Depailler
ók hraðast
Frakkinn Patrick Depailler sigraði í grand prix
kappakstrinum í Madríd í gær með nokkrum yfir-
burðum. Var með 21 sek. betri tíma en Caríos
Reuteman, Argentínu, og meðalhraði hans var
154.449 km. Hcimsmeistarinn Marío Andretti,
USA, var þríðji. í stigakeppninni er Depailler efstur
ásamt landa sínum Villeneuve með 20 stig. Ville-
neuve varð sjöundi i gær, en náði mestum meöal-
hraða á hríng, 161.329 km. Laffite og Reuteman
hafa 18 stig, Schecktar 16 og Andretl 12.
Schalkc og Borussia Mönchcngladbach gerðu
jafntefli i 1. deild i V-Þýzkalandi á laugardag, 1—1.
Það var eini leikurínn i deildinni vegna leikja í þýzku
bikarkeppninni.
dórsdóttir 1 mark hver. Hjá KR skor-
aði Karólína mest — 5 mörk. Fram
hlaut því bikarinn og síðan fékk
Jóhanna Halldórsdóttir veglegan bikar
frá fyrsta Iandsliðshóp kvenna — hún
var kosinn bezti leikmaður íslands-
mótsins, af þeim stöllum.
Dómararnir
hlutdrægir
— sagði Ingólfur
Óskarsson þjálfari ÍR
eftir ósigur sinna manna
„Eitt er alveg Ijóst — áhorfendur
fengu áreiðanlega eitthvað fyrir
peningana. Þetta var ákaflega
skemmtilegur leikur,” sagði Ingólfur
Óskarsson, þjálfari ÍR, þar sem hann
sat vonsvikinn inn í búningsklefum
eftirósigurinn gegn Viking.
„Við hættum að spila þegar við
komust í 10—7. Sex eða sjö sinnum þá
köstuðu strákarnir knettinum í lúk-
urnar á Vikingum eftir 10—15
sekúndur. Þá fannst mér dómararnir
spila stóra rullu — þeir voru beinlínis
hlutdrægir. Einmitt á þessum kafla er
við vorum yfir þá komust við í hraða-
upphlaup og fremsti maður okkar var
stoppaður, brotið á honum. Þá átti
ekki að dæma neitt nema víti en við
fengum bara aukaköst. Þá var það
afdrifaríkt einmitt á þessum kafla er
við tókum aukakast á réttum stað og
leikmaður okkar stóð óvaldaður á linu
með knöttinn að dómararnir flautuðu
og heimtuðu að aukakastið yrði tekið
aftur. Það var hrein vitleysa.
En ekki þar fyrir — Víkingar eru
með mjög gott lið og þeir eru vanari að
spila svona úrslitaleiki. Þannig kom
ákaflega lítið út úr ungu mönnunum
hjá okkur — þá skortir enn reynsluna.
En ég er sannfærður að ÍR getur náð
langt — ef strákarnir halda vel saman
að æfa vel,” sagði Ingólfur Óskarsson
að lokum.
H. Halls.
Hreinn sigur-
vegariílowa
Hreinn Halldórsson sigraði á frjáls-
íþróttamóti í Des Moines í lowa í
Bandarikjunum á föstudag. Varpaði
kúlunni 19.89 metra eða nokkru frá
sínu bezta i ár. Ekki var getið um aðra
keppendur í fréttaskeyti Reuters frá
mótinu.
Steve Scott, USA, sigraði i mílu-
hlaupi á mótinu — hljóp á 3:55.26 mín.
og hinn 22 ára nemi við háskólann í
Kalifomiu bætti mótsmetið verulega —
það var 4:00.22 mín. sett fyrir tveimur
árum af íranum Niall O’Shaughnessy.
Á móti í Philadelphia hljóp Richard
Edwards 100 m á 10.42 sek. en annar
varð Willie Turner á 10.42 sek. Wayne
Walker sigraði i langstökki — stökk
7.56 metra.
Borg vann
Connors
Bjöm Borg vann auðveldan sigur á Jimmy
Connors i gær í úrslitaleik mikils tennismóls i Las
Vegas i USA. Borg sigraði 6—3 og 6—2 og hlaut 50
þúsund dollara í fyrstu verölaun. Connors, sem
sigraði á þcssu móti 1976 og 1977 hlaut 25 þúsund
dollara en verðlaun námu samtals 250 þúsund
dollurum.
Magdeburg
bikarmeistari
Magdeburg sigraði Dynamo Berlín í úrslitaleik
austur-þýzku bikarkeppninnar í knattspymu í gær.
1—0 eftir framlengdan leik. Júrgen Seouin skoraði
eina mark leiksins á 101, minútu. Áhorfendur voru
50 þúsund en leikurínn fór fram i Austur-Berlín.