Dagblaðið - 30.04.1979, Blaðsíða 21
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 30. APRÍL 1979.
21
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
unnartíl
Grambke
Grambke, liðið sem Björgvin Björg-
vinsson leikur með i Bundeslígunni í
Vestur-Þýzkalandi i handknattleikn-
um, sigraði Göppingen 20—17 á laug-
ardag. Þarf nú eitt stig í þeim þremur
leikjum, sem liðið á eftir, til að tryggja
sér áfram sæti i Bundeslígunni.
Grambke lék vel og fáir betur en Björg-
vin. Gunnar Einarsson og Þorbergur
Aðalsteinsson eru hættir að leika með
Göppingen og allar líkur eru á að
Gunnar leiki með Grambke næsta leik-
tímabil. Þorbergur hins vegar með liði í
2. deild á Norður-Þýzkalandi.
Keppnin um þýzka meistaratitilinn
stendur nú eingöngu milli Hofweier og
Grosswallstadt. Hofweier, sent vann
Gummersbach 17—14 á laugardag,
hefur tapað stigi minna, sex stigum, og
leikur á heimavelli í síðustu umferðinni
við Þýzkalandsmeistara Grosswall-
stadt. Ef að líkum lætur verður það
hreinn úrslitaleikur. Gummersbach er
ekki lengur í myndinni — hefur lapað
10 stigum — og lítið gert eftir Evrópu-
leikinn við ungverska liðið Tatabanya.
Þar slasaðist Joachim Deckarm. Hann
hefur verið fluttur lil Þýzkalands með
sjúkraflugvél á spitala í Köln og cr enn
ekki kominn til meðvitundar.
Dankersen vann Rheinhausen 22—9
á útivelli á laugardag, Nettelstedt vann
Gensungen 17—12 og Rintheim vann
Milbertshofen 18—14. Dankersen
leggur nú mesta áherzlu á bikarkcppn-
ina — er komið í átta liða úrslit. Þjálf-
ari liðsins, Vinko Dekaris, var rekinn í
siðustu viku — en um tima áður en
hann fór til Dankersen i sumar voru
hugmyndir uppi um að hann yrði þjálf-
ari hjá Viking.
Antwerpen
hefuráhuga
á Janusi
Nokkur erlend knattspyrnufélög
hafa sýnt Janusi Guðlaugssvni, lands-
liðskappanum kunna i Hafnarfirði,
mikinn áhuga og um helgina bættist
enn eitt við. Það er eitt af kunnustu
knattspyrnufélögum Belgíu, Antwerp-
en. Það hefur haft samband við Janus
og mun senda menn til að fylgjast með
honum í Evrópulcik Sviss og íslands,
sem verður í Bern 22. maí næstkom-
andi — og einnig í leik íslands og Vest-
ur-Þýzkalands á Laugardalsvelli siðast
i maí.
Antwerpen er eitt af stærstu félögum
Belgíu. Völlur félagsins í hafnarborg-
inni þekktu rúmar 68 þúsund áhorfend-
ur — het Bosuil-stadion te Deurnc. Fé-
lagið hefur fjórum sinnuin orðið
Belgíu-meistari í knattspyrnu og einu
sinni sigrað í bikarkeppninni.
hsím.
Jafntefli—von
Feyenoord
er nú lítil
„Þetta var hörkuskemmtilegur
leikur og gífurleg stemmning meðal 68
þúsund áhorfenda á leikvelli
Feyenoord í Rotterdam. Við áttum
mun meira í lciknum — lékum betur —
en tókst ekki að nýta það til sigurs,”
sagði Pétur Pétursson hjá Feyenoord í
morgun. Jafntefli varð 1—I „og
möguleikar okkar á meistaratitlinum
eru nú sáralitlir,” sagði Pétur enn-
fremur.
Feyenoord skoraði eftir 20 min.
Gefið var fyrir mark Ajax frá hægri —
Pétur skallaði knöttinn yfir markvörð
Ajax frá hægri — Pétur skallaði knött-
inn yfir markvörð Ajax til Jan Peters,
sem skallaði áfram í mark. Þegar 60
mín. voru af leik jafnaði Ajax og Feye-
noord, drifið áfram af hrópum áhorf-
enda, sótti mjög lokakafla leiksins en
án árangurs.
Úrslit í úrvalsdeildinni í gær urðu
þessi:
PEC, Zwolle—Haarlem
Maastricht—Haag
NAC, Breda—GA Eagles, Deventer
NEC, Nijmegen—Sparla
Utrecht—AZ ’67, Alkmaur
Twente Enschede—PSV
Roda—Vitesse, Arnheim
Feyenoord—Ajax
Volendam—Venlo
Staðaefstuliða:
Ajax
Feyenoord
AZ’67
Roda
PSV
2-0
1- 3
3— 1
1—0
1-2
2— 2
1—0
1—1
4— 0
27 19 4 4 73—26 42
27 13 12 2 45—16 38
27 16 5 6 73—36 37
27 15 7 5 42—22 37
27 14 7 6 46—20 35
ttir
Víkingur bikarmeistari
— eftir hörkuleik við ÍR í Laugardalshöll í gærkvöld — Úrslit 20-13
„Eftir að við jöfnuðum okkur á
taugum þá náðum við okkur mjög vel á
strik — þá small allt saman,” sagði
hinn pólski þjálfari Vikings, Bogdan
Kowalczyk eftir að Víkingur hreppti
bikarinn í gærkvöld. Sigraði ÍR 20—13
í Höllinni. Það var gífurleg stemmning
meðal hinna 1500 áhorfenda, sérstak-
lega settu áhangendur Víkings
skemmtilcgan svip á leikinn með söng
og hvatningarhrópum. Víkingar fögn-
uðu sigrinum vel — sungu lengi vel eftir
að sigurinn var í höfn. Víkingar toller-
uðu Bogdan eftir leikinn, — fögnuður
þeirra var mikill. Bikarinn fór að Hæð-
argarði.
En það fór um Víkinga í HöUinni
áður en sigurinn var i höfn og það var
ekki fyrr en á lokasprettinum að Vík-
ingar náðu að tryggja sér sigur. ÍR-ing-
ar byrjuðu mjög vel, náðu sannkallaðri
óskabyrjun — komust í 4—0. Það var
ekki fyrr en á 14. mínútu að Víkingur
náði loks að skora — að komast á blað.
Hreint ótrúlegt hvað leikmenn Vikings
virtust taugaþrúgaðir, brugðust í upp-
lögðum færum en Jens Einarsson i
marki ÍR varði líka vel. Aðeins tíu mín-
útum siðar þó náðu Víkingar að jafna
— og komast yfir. Þeir breyttu stöð-
unni úr 4—0 í 7—6 en ÍR náði að jafna
fyrir leikhlé, 7—7.
Menn bjuggust því við að Víkingur
myndi sigla hraðbyri til sigurs í síðari
hálfleik en rétt eins og í byrjun Ieiks þá
mættu ÍR-ingar ákveðnir til síðari hálf-
leiks og náðu þriggja marka forustu,
10—7. Víkingar gerðu sig seka um
hreint ótrúlegar skyssur og það var
ekki fyrr en á 12. mínútu að Víkinguir
skoraði sitt fyrsta mark í síðari hálfleik
— Árni Indriðason úr víti. Þá hafði
Víkingur ekki skorað í 16 mínútur. Það
var eins og losnaði um Víkinga — og
mörkin beinlínis komu á færibandi,
mörg hreint gullfalleg. Víkingur náði
að jafna 10—10 á 16. mínútu og áfram
héldu Víkingar að skora — komust í
15—10! Skoruðu átta mörk í röð! Allt
gekk upp hjá Víking — á meðan allt
misheppnaðist hjá ÍR. Dæmið hafði
alveg snúizt við. Áhorfendur voru vel
með á nótunum, og þeir fögnuðu
hverju marki, en aldrei eins og þegar
Eggert Guðmundsson, markvörður
skoraði 19. mark Víkings. Bikarinn var
í höfn — annað árið i röð, og fögnuður
Víkinga mikill.
Viðureign Víkings og ÍR varáreiðan-
lega einn skemmtilegasti leikur vetrar-
ins. Vissulega gerðu bæði lið sig sek um
mistök — en hraðinn var gífurlegur.
Mörg gullfalleg mörk og það kunnu
áhorfendur að meta, stemmningin
mikil. ÍR-ingar gerðu þá skyssu að
leyfa Vikingum að ráða hraðanum og
það einfaldlega réðu þeir ekki við.
Annars var Víkingsliðið mikil ráð-
gáta í gærkvöld. í heilar 30 minútur af
leiknum — það er í upphafi fyrri hálf-
leiks og síðan siðari, þá hvorki gekk né
rak. Upplögð tækifæri misnotuð. Allt
fór í vaskinn. Ef ekki hefði komið til
snilldarmarkvarzla Eggerts Guðmunds-
sonar i leiknum, sérstaklega í siðari
hálfleik, þá hefðu ÍR-ingar getað náð
mun meiri forustu. Þeim gafst færi á
að komast 4—6 mörk yfir en Eggert
beinlinis lokaði markinu — og síðan
fór sóknarleikurinn að gangáeins og
smurð vél. Mörg ákaflega falleg mörk,
hraðinn keyrður upp — við því áttu ÍR-
ingar ekkert svar. Eggert var án nokk-
urs vafa maður leiksins — en það var
engin spurning hver var sá óheppnasti,
tvímælalaust Árni Indriðason. í síð-
ustu leikjum með Víking hefur Árni
hvað eftir annað brugðizt í upplögðum
færum á línunni. Og sérstaklega hefur
hann verið iðinn við að skjóta í stang-
irnar, og þar var engin engin undan-
tekning í gærkvöld. Árni skoraði að
vísu tvívegis en bæði mörkin úr viti.
ÍR — ekki síður en Víkingur var
einnig mikii ráðgáta. Leikmenn börð-
ust mjög vel upphafskafla beggja hálf-
leikja. Sérstaklega var vörnin sterk og í
markinu var Jens Einarsson góður.
Með yfirveguðum leik náðu ÍR-ingar
góðu forskoti. En leikmenn stóðu sig
ekki nógu vel — Víkingar keyrðu að
vísu mjög út á móti en leikmenn misstu
knöttinn klaufalega frá sér. Skutu úr
vonlitlum færum og sóknirnar urðu allt
of stuttar. iR-ingar gerðu þá skyssu að
láta Víkinga halda uppi hraðanum, í
stað þess að reyna að dempa tempóið.
Og afleiðingin var hrun — hreint ótrú-
legt hrun. Virðist alveg furðulegt, að
lið skuli ná að vinna upp gott forskot,
IR komst í 10-7, fá ekki mark á sig í 14
mínútur og síðan á 10 mínútum þá fá á
sig átta mörk án þess að ná að svara
fyrir sig. ÍR-ingar skoruðu síðustu 16
mínútur leiksins aðeins þrjú mörk en
fengu á sig 13. Að vísu kom berlega í
ljós að Víkingar eru í mun betri þjálf-
un, snerpa þeirra var mun meiri — við
þetta réðu ÍR-ingar ekki. En ÍR gerðu
þó mikil mistök að reyna að halda í við
Viking, einmitt þar sem Víkingar eru
sterkastir — miklum hraða.
Þeir Karl Jóhannsson og Jón Her-
mannsson dæmdu leikinn — alveg
þokkalega. Þeir dæmdu þrjú víti á ÍR
og fjögur á Viking. Ráku fjóra Víkinga
útaf og tvo leikmenn ÍR.
Mörk Víkings skoruðu: Steinar
Birgisson 5, PáU Björgvinsson 4, Sig-
urður Gunnarsson 3, Ólafur Jónsson 3,
Árni lndriðason 2 og þeir Skarphéðinn
Óskarsson, Eggert Guðmundsson og
Erlendur Hermannsson 1 mark hver.
Hjá ÍR skoraði Brynjólfur Markússon
mest, 5 mörk, Guðjón Marteinsson og
Guðmundur Þórðarson 3 mörk hvor,
Sigurður Svavarsson 2 mörk.
H.Hallsi
Tómas Árnason, fjármálaráðherra, afhendir Páli Björgvinsson, fyrirliða Vikings, i
bikarínn. DB-mynd Bjarnleifur.
Stuðningsmenn Vík-
ings stórkostlegir
— sagði Bogdan Kowalczyk, þjálf ari Víkings
„Áhangendur Víkings voru hrcint því að Vikingur væri á toppnum
stórkostlegir — stóðu dyggilega á bak úrslitaleiknum við Val og því helur
við liöið. Þrjú mörk Víkings má rekja verið svolítið erfitt að halda leikmönn-
beint til þeirra,” sagði Bogdan
Kowalczyk, hinn pólski þjálfari
Víkings, eftir aö bikarínn hafði hafnað
að Hæðargarði — félagsheimili
Vikings annað árið i röð.
„Strákarnir voru mjög taugaóstyrkir
í byrjun en eftir að þeir náðu því úr sér
þá léku þeir mjög vel — þá small allt
saman. Skýringin á hve illa við byrjuð-
um er alls ekki vanmat á ÍR. ÍR er
sterkt lið og okkur hefur alltaf gengið
erfiðlega að sigra ÍR,” bætti Bogdan
við.
,,En allt okkar prógram miðaði að
um áfram í toppformi. Þábætti ekki úr
skák að við urðum að keyra stanzlaust
á sömu mönnum, höfum í vetur misst
Viggó Sigurðsson og Ólaf Einarsson
auk þess að Sigurður Gunnarsson hefur
verið meiddur seinni part vetrar. Nú
tekur við að skipuleggja næsta vetur
og það getum við ekki fyrr en liggur
fyrir frá HSÍ röðun leikja, og hvernig
íslandsmótið verður keyrt næsta vetur.
En eitt er víst — við komum betur
undirbúnir fyrir næsta vetur en
íslandsmótið i ár,” sagði Bogdan. En
hvernig var þér innanbrjóst þegar ÍR
hafði náð hinu góða forskoti og ekkert
gekk hjá Viking — ósigur virlist blasa
við, spurði blaðamaður DB. Þá brosti
Bogdan, og sagði —,,ég var alltaf viss
um að Víkingur myndi sigra, við vorum
líkamlega betur þjálfaðir og með mun
meiri snerpu. Ég einfaldlega einbeitti
mér að finna hvað var að. Og jú einu
máttu bæta við. Dómararnir dæmdu
mjög vel og mig langar að þakka leik-
mönnum, eiginkonum þeirra svo og
dómurum þeim sem hafa dæmt leiki
okkar i vctur og síðast en ekki sízt
langar mig að þakka áhangendum
Víkings — þeir voru stórkostlegir.”
H. Halls.
Bikarmeistarar Vikings 1979
DB mynd Bjarnletfur
TCRg®